Vísir - 16.05.1972, Side 1

Vísir - 16.05.1972, Side 1
íslenzk nýlenda í hippaborginni! Blaðamaður Vísis fór í fyrradag í heimsókn í hippahverfið við Krist jánsborg í Kaupmannahöf n. Þar hafa 700 hippar hreiðrað um sig, — og nú er búizt við „,innrás" hippa víða að, einkum frá Banda- rikjunum. í einni blokkinni þarna er íslenzk nýlenda. Gunnar Gunnarsson lýsir mann- lifinu í hippabænum. — SJÁ BLS 2 og 3 Tízkufyrirbœrin alltaf ó eftir hér? „Þjóðlif okkar ber þess svip, að hvers konar tizkufyrir- bæri berast hingað, jafnvei mörgum árum eftir að þau hafa geisaö erlendis, og oft svo, að þau mega heita liöin undir lok þar. island er þvi enn furðu fjarlægt straum- um timans, þótt fólk geti brugðið sér til annarra landa á nokkrum stundum”. Þannig segir i leiðara I dag. — SJA BLS 6. * BROSIÐH Það eru farnar herferðir I ýmsum tiigangi, — og þvi ekki að fara I herferð fyrir brosinu, sem er hvaO bezta læknisráðið I þeirri streitu- veröld sem við búum I. Nú tröllríður veröldinni bros- karl nokkur, afskaplega ein faldur i sniðum, sem reyndar hefur sézt áður hér á landi, en við visum á hann á bls. 4. * Lesendur hafa alltaf orðið Lesendur Visis eru stöðugt mjög iðnir við að senda bréf, — nú eða slá á þráðinn. i dag eru nokkur skrif lesenda, en önnur verða að biða um sinn, og vonandi getum við af- greitt meira af bréfunum inn i blaðið á morgun. i dag er fjallaö um lélega skot- æfingaaðstöðu, dónaskap i tryggingastofnun o.fl. — Sjá bls. 2. * Tröllafoss brennivínsins VIÐ DREKKUM MEIRA OG MEIRA Sjá baksíðu ★ Belfast: Fjölsóttasta knœpan sprengd og 45 sœrðust Sjá bls. 5. ★ Skagamenn þegja enn islenzka landsliðið i knattspyrnu hélt utan til Belgiu i morgun — án Akur- nesinganna fimm, og enn hefur engin yfirlýsing borizt frá Knattspyrnuráöi Akraness um leikbannið, sem það setti á leikmenn Akraness i sambandi við landsliðsæfingarnar siðustu. Tveir islenzkir lyftingamenn héldu og utan i morgun og munu keppa á Evrópu- meistaramótinu I Rúmeniu á föstudag. Sjá nánar iþróttir I OPNU. að aka móti í Aðalstrœti Strœtó fœr straumnum — en aðeins í mónuð til reynslu Strax og gengið hefur verið fyililega frá götu og gangstétt fyrir framan nýja verzlunarhúsið hans Ragnars í Aðalstrætinu verður tveim leiðum SVR leyft að aka á móti ein- stefnuakstri þeim, sem erá götunni til suðurs. „Það á að reyna þetta i mánuð. Ef þessi leið gefst vel, verða leiðir 4 og 6 lausar við Garðastræti, sem hefur verið vögnunum svo erfitt,” sagði Eirikur forstjóri SVR. Hann benti á, að fram til þessa hefðu þessar tvær strætisvagna- leiðir legið eftir Garðastræti, niður Vesturgötu og inn á Hafnar- stræti. „Þetta á vart að vera meira en tveggja minútna akstur, en oft og iðulega hafa vagnarnir verið upp undir tiu minútur að komast frá mótum Garðastríetis og Vesturgötu niður i Hafnar- stræti,” sagði Eirikur. „Beygjurnar tvær, sem vagnarnir þurfa að taka viö nýju leiðina, eru ekki nálægt þvi eins erfiðar og eru ekki eins liklegar til að tefja strætisvagna- áætlunina”. Hvort af þessum akstri strætis- vagnanna á móti einstefnu- akstrinum leiddi ekki einhver hætta? Nei, Eirikur taldi engar likur á þvi. „Þessi gata er ekki neitt þrengri eða hættulegri en margar aðrar, sem strætisvagna- umferð er um. Og það er sjaldan eða aldrei svo óslitinn bila- straumur þarna um. -ÞJM Helgorvinna bönnuð í Eyjum — verkalýðsfélög hafa samþykkt að vinna ekki ó laugardögum — aðeins landað hér eftir fjóra daga vikunnar Verkalýðsfélögin I Vestmanna- eyjum hafa samþykkt að fella niður helgarvinnu framvegis, eða a.m.k. I sumar. Þetta aukavinnubann hefur i för meö sér, að i Eyjum verður aðeins hægt að landa fiski i fisk- vinnslustöövarnar fjóra daga vik- unnar. Við engum fiski verður tekið föstudaga, laugardaga og sunnudaga, að þvi er Ingólfur Arnarso'n, formaöur Útvegs- bændafélagsins i Vestmanna- eyjum tjáði VIsi I gær. Mun aukavinnubanniö hafa verið samþykkt á félagsfundi meö verkamönnum, og er til- gangur þess eigi annar en sá að lengja helgarfri verkafólks;menn vilja eiga fri um helgar yfir sumarið. „Við fengum i gærmorgun bréf þar sem okkur er skýrt frá þessu banni”, sagði Ingólfur Arnarson i morgun, „og er hér á ferðinni mikið vandamál fyrir sjómenn og útvegsbændur — þótt afli hafi brugðizt á vertiðinni í vetur, hefur landvinna við vinnslu verið mikil, þvi að mikill fjöldi báta leggur hér upp.” Sagðist Ingólfur vel skilja, aö fólk vildi ekki vinna um helgar ár og sið, en hins vegar yrði ein- hvern veginn að leysa þetta mál, t.d. meö vaktavinnu-fyrirkomu- lagi, ef mögulegt væri. „Þetta hefur ekki bætandi áhrif á gæöi vinnslufisksins — og hefur raunar undanfarin ár syrt mjög I álinn hvað snertir aflagæöin hér. Arið 1969 vorum við i Eyjum með um 64% aflans I 1. flokki A. Áriö 1970 var afli i þessum flokki sýnu minni, og I fyrra, 1971, var prósenttalan komin niður I um 49% ”, Gæöi vinnslufisksins fara vitan- lega eftir þvi, að fiskurinn komizt sem fyrst I vinnslu — og eru i húfi hagsmunir útgerðanna og sjó- manna. „Það var mjög léleg vertið I fyrra eins og i ár”, sagði Ingólfur Arnarson,” en góð aflabrögö seinni hluta maimánaðar i fyrra og I júnl og júli, hreinlega björguðu afkomu manna hér það áriö. Ef ekki aflast vel hér i vor og sumar.horfir illa fyrir mörgum”. Og helgarfriin bæta ekki um hvaö þetta snertir, en vonandi tekst að leysa vandann þannig, að báðir aðilar geti við unað. -GG Halldór Sig. Steingrimsson, sjóm. Mér lízt auðvitað illa á þetta og býst við að þetta hafi mikil áhrif á kosninga- baráttuna almennt. Hjördis Benjaminsdóttir, húsmóðir: Þetta er vægast sagt hörmulegt. Það er ekki hægt að segja neitt annað. Kúlurnar tala Enn var gripið til skotvopna til aö jafna um við pólitiskan andstæöing i Bandarikjunum i gærdag. Aður fyrr voru það hinir frjálslyndari, t.d. Kennedybræöurnir, sem fengu að finna fyrir byssu- kúlum leyniskytta, — en nú var það hinn ihaldssami George Wallace, sem skotið var á. Framboð hans til for- seta var greinilega ekkert spaug, það sýndu prófkosn- ingar viða um fylki Banda- rikjanna. Haukur Helgason ritar grein um Wallace i blaðinu i dag. SJA BLS 6 og Erlendar fréttir á bls 5. Blaðamaður Vísis rœddi við nokkra vegfarendur i morgun og spurði þó: Hvernig leggst banatilrœðið við Wallace í yður? Gottfreð Arnason, viðskiptafræðingur. Þetta er hörmulegt og mikill hnekkur fyrir Bandarikin. Það er brýn nauðsyn að efla gæzlu og lifverði stjórnmálamanna i lýð- Jóhannes Long, nemandi: Ég hef bara ekkert heyrf um þetta. ræðisrikjum, til að koma í veg fyrir að vissir brjálæðingar fái að at- hafna sig að vild. Björn Jóhannesson, nemandi: Það er orðið hálf óhugnalegt þegar stjórn- málamenn eru hvergi óhultir nema í glerbúrum þegar þeir þurfa að nálgast fólkið. Ha I Idór Sveinsson, skrifstofumaður: Ég hefði nú frekar búist við að svartur maður sýndi honum banatilræði, eins og hann hlýtur að vera óvin- sæll meðal þeirra. „Hann mun brótt velgja þeim undir uggum aftur" segir eiginkona Wallace Sjá bls. 5

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.