Vísir - 14.08.1972, Blaðsíða 5
Visir Mánudagur 14. ágúst 1972'
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLOND
UMSJÓN:
HAUKUR HELGASON
Time segir:
Nixon œtlar nú
að fórna Thieu
— fyrir samninga — tillaga um tvœr stjórnir í S-Víetnam
Nixon ætlar að leggja
fram víðtækar tillögur um
Vietnam, sem gerir
„ Norður-Víetnömum
mögulegt að losna við
Thieu forseta Suður--.
Víetnam," segir tímaritið
Time i gær.
Timaritið segir, að enn sé
leyndarmál hvað farið hafi á milli
Henry Kissingers og aðal-
samningamanns N-Vietnama, Le
Duc Tho, er Kissinger fór með
leynd til Parisar fyrir skömmu.
„Þetta er eins konar daður”, var
þó haft eftir einum embættis-
manni Nixons.
Time segir, að ,,N-Vietnamar
hafi sýnt nægilegan áhuga á
vopnahléi og málamiðlun”, til
þess að bandarisk stjórnvöld hafi
farið að leita viðtækari grund-
vallar málamiðlunar, sem gefi N-
Vietnömum vonir um að koma
Thieu frá i framtiðinni.
N-Vietnamar setji það skilyrði
fyrir samningum, að Thieu verði
vikið. Bandarikjamenn séu hins
vegar að leita formúlu, sem geri
þeim kleift að fara frá Vietnam
með her sinn, en láti stjórnir i
Hanoi og Saigon um að finna
stjórnmálalega lausn. Banda-
rikjamenn vilji ekki „vinna skit-
verkin fyrir Norður-Vietnama”
en gefa þeim þó vonir um að geta
unnið „skitverkin" segir i Time.
Timaritið segir, að siðustu til-
lögur Bandarikjamanna gangi út
á, að tvær rikisstjórnir verði i
Suður-Vietnam og hafi önnur
yfirráð yfir svæðum, sem and-
kommúnistar halda nú, en hin
væri yfir svæðum, er kommún-
istar ráða. Hin siðarnefnda yrði
þá kommúnistastjórn, en slikt
ástand yrði til bráðabirgða og
gert ráð fyrir samningum milli
þessara stjórna.
Ennfremur yrði hernaðarað-
stoð Bandarikjanna við stjórn
Suður-Vie t n am eingöngu
„varnarvopn”, sem mundi i
reyndinni neyða Thieu forseta til
að segja af sér, að sögn timarits-
ins.
Hermdarverkum IRA
hefur fœkkað mjög
— síðan Bretar tóku virki þeirra — en óttast nýja öldu
Mikiö hefur dregið úr
hermdarverkum á Noröur-
irlandi, siðan brezki herinn
tók virki skæruliða fyrir
tveimur vikum, að sögn
brezka hersins.
Talsmaður hersins segir, að
tölur fyrir þessar tvær vikur sýni
að sprengingum hafi fækkað um
helming og skotárásum um þrjá
fjórðu hluta.
Herinn hefur einnig fundið
mikið magn riffla og skamm-
byssa, mörg þúsund skot og 13
þúsund pund af sprengjuefni, eft-
ir að hann tók virki IRA i London-
derry og Belfast.
„Vegna meira svigrúms, sem
herinn hefur,” sagði talsmaöur-
inn,” var einn af foringjum IRA
handtekinn i gær. Terence
Clarke, sem hafði farið huldu
höfði, var handtekinn i rómversk-
kaþólsku hverfi i Belfast.
Clarke, 21, árs, á að koma fyrir
rétt i dag, og verður hann ákærð-
ur fyrir að hafa brotizt út úr fang-
elsi i fyrra, en þá komust margir
IRA-menn undan.
IRA hótar að myrða for-
ystumenn jafnaðarmanna.
Hermenn segjast hafa hæft
leyniskyttu i bardögum i Belfast.
Eélagar hans drógu manninn
brott, eftir að hann féll, að sögn
hersins.
Þrátt fyrir minni athafnir IRA
að undanförnu óttast herinn, að
hreyfing muni gangast fyrir
„sprengjuhrið” tilað spilla fyrir
fundi stjórnmálaflokka um
framtið Norður-Irlands.
Lögreglan telur, að IRA muni
ekki sitja auðum höndum, þegar
ráðstefna flokkanna verður, sem
William Whitelaw ráðherra hefur
boðað 25.-27. september.
Forystumenn kaþólks-sinnaða
jafnaðarmannaflokksins stað-
festa, að þeim hafi verið hótað
illu. IRA hóti að myrða þá og
„kenna mótmælendum um morð-
in”, er sagt.
IRA mislikar, að flokkurinn
hefurrætt við Whitelaw ráðherra.
Tímanna tókn
Kinkennandi fyrir limann cru
vandamál þcirra lugþúsunda,
scm l'erðast „á þumal-
fingrinum". Margt þarf á sig að
lcggja til að fá vinátlu ökumanna,
cins og þcssi stúlka gcrir, þcgar
luín málar á l'ótlcgginn „nice”,
„vingjarnlcgur”.
Þeir gerast nú
gamlir í Hanoi
Norður-Vietnam er algerlega
undir stjórn fárra gamalla
kommdnista, sem hafa helgað
sig „frelsisstriði” til að sameina
Vietnam, segja bandariskir em-
bættismcnn.
Duan, 65 ára formaður
kommúnistaflokksins siðan
19(i0, er sagöur vera aöalpersón-
an i samvirkri forystu kommún-
istaflokksins og frumkvöðull
innrásarinnar i Suður-Vietnam.
(iögn. sem safnað hefur verið
Le Duan, höfuðpaurinn.
um breytingar á stefnu
stjórnarinnar i Hanoi, gefa til
kynna, að breytingarnar hafi
verið á sviði aöferöa fremur en
að gefizt hafi vcrið upp við til-
raunir til sigurs i Suður —
Vietnam.
Kissinger sagði i júni, að
endurskoðun væri á döfinni i
Hanoi, en ekki hefur það komið
l'rani i viðræðunum i Paris að
minnsta kosti ekki opinberlega.
Niu menn æðsta ráösins i
Norður-Vietnam eru sagöir
vcra atvinnuflokksmenn sföan
upp úr 1930, þegar aðalmark-
miðið var að reka Frakka úr
landinu.
Meðalaldur þeirra er sem
næst 02 ár. Engir nýir menn
liafa komiö i æðsta ráðið siðan
1900, en um það leyti var breytt
stefnunni og bardagar hófust að
inarki i Suður-Vietnam.
Le Duan liefur orðið aðalleið-
toginn, siðan Ho Chi Minh iézt
árið 1909. Hann hefur hvergi
nærri sömu yfirburði og Ho yfir
félaga sina.
Aðrir þekktir foringjar eru
Nguyen Giap, 00 ára hermála-
ráðherrann sem varð heims-
frægur fyrir sigurinn yfir
Frökkum, og Le Duc Tho, 02ja
ára, samningamaður i Paris.
Verra en í Þýzkalandi
í stríðslok
##
Nefndarmenn alþjóðlegrar nefndar
lýsa afleiðingum loftórósanna
í N-Víetnam
Tyeir Frakkar i alþjóð-
legri rannsóknarnefnd,
sem hefur verið i Norður-
Víetnam, segja, að enginn
vafi sé á, að Bandaríkja-
menn séu visvitandi að
sprengja áveitukerfi
landsins.
I nefndinni er meðal annars
Ramsey C’lark, fyrrum dóms-
málaráðherra Bandrikjanna.
„Mér kom persónulega á óvart,
hve viðtækar visindalegar sann-
anir við gátum fundið um málið”,
segir Yves Lacoste, samkvæmt
AP-frétt.
„.Aðeins litill hluti, kannski um
tiu af hundraði, af þessum
sprengingum geta verið af tilvilj-
un”, segir hann. Margir mikil-
va'gustu staðir i áveitukerfinu
hefðu orðið fyrir sprengjum.
Bandaríkjastjórn segir, að þaö
sé einungis tilviljun, ef sprengjur
hadi áveitukerfi, flóðgarða og
slikt. Oft hafi Noröur-Vietnamar
hernaðarmannvirki á eða i
grennd flóðgarða, og þvi komi
fyrir, að sprengjur hæfi þá.
Danskur þingmaður, Frode
•Jacobsen, segir i sjónvarpsvið-
tali, að loftárásir Bandarikja-
manna á Norður-Vietnam séu
„alger ógn”. „Það sem ég sá i
Norður-Vietnam”, segir hann,
„er verra en þaö, sem ég sá i
Þýzkalandi árið 1945”.
Jakobsen er þingmaður jafn*
aðarmannaflokksins. Hann kom
til Danmerkur i gær eftir ferð um ,
N-Vietnam með alþjóðlegu nefnd-
inni.
Jakobsen segir, að stjórn
Bandarikjanna hafi ekki aðeins
„þagað heldur sagt ósatt um loft-
árásirnar á áveitukerfi N-Viet-
nam”. Hann kveðst hafa séð af-
leiðingar 50 sprengja, sem féllu
„kerfisbundið” á einni milu
áveituskurða og flóðgarða.
Rotterdam:
Stríð gegn tyrkn-
eskum verkamönnum
Þrjátiu manns, þar af 10
tyrkneskir verkamenn,
hafa veriö handteknir i
Rotterdam eftir götubar-
daga milli tyrkneskra
verkamanna og ungra
Hollendinga.
Til margra götubardaga kom i
fyrri viku, eftir að ibúar verka-
mannabúða höfðu kvartað yfir
ágengni verkamanna frá Tyrk-
landi. Reiðir Rotterdambúar réð-
ust siðan inn i ibúðir Tyrkja og
köstuðu húsgögnum út á götu.
Lögreglan horfði á en aðhafðist
ekkert „vegna manneklu”, að
sögn.
Rúmlega tvö hundruð Tyrkir,
karlar, konur og börn, fóru i gær
kröfugöngu til aðalræðismanns
Tyrklands. Hann ráðlagði fólkinu
að fara friðsamlega til skála
sinna og treysta á hollenzku lög-
regluna.
Hins vegar mættu hópar, sem
lögreglan kallar „unga bófa”,
Tyrkjum á heimleiðinni og réðust
á þá með bareflum og grjótkasti.
Lögreglan skarst nú i leikinn.
Æskumenn þessir réðust þá á
lögreglu, en hún hafði betur.