Vísir - 14.08.1972, Qupperneq 8
8
Visir Mánudagur 14. ágúst 1972
!
t!
t
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
2 Kennarastöður eru lausar til umsóknar:
1. Aðalkennslugrein: Efnafræði
2. ” Bókfærsla
Æskilegar aukakennslugreinar: Reikningur og enska.
Umsóknir um stöðurnar sendist til
Menntamálaráðuneytisins eða Iðnskólans
i Reykjavik sem allra fyrst. — Umsóknar-
eyðublöð fást á ofangreindum stöðum.
Skólastjóri.
Frá vöggu til grafar
Fallegar skreytingar
Blómvendir I miklu
úrvali.
Daglega ný blóm
Mikið úrval af
nýjum vörum. —
Gjórið svo vel að lita
inn.
Sendum um allan bæ
GLÆSIBÆ, simi
23523.
Hœttulegur leikur
Það var eftirvænting á bryggj-
unni, þegar Akraborgin lagði
að i Reykjavik eftir hádegið á
laugardaginn, en þá biðu knatt-
spyrnuunnendur þess að komast
upp á Akranes til að horfa á Fram
leika þar við heimamenn. Okkur
fannst þó fullmikil fifldirfska
þessara ungu manna, sem stukku
út í skipið áður en það hafði lagzt
að. I óðagotinu gat óhapp gerzt,
og erfitt hefði reynzt að koma i
veg fyrir slys, þvi skipið var að
leggjast upp að bakkanum með
öllum sinum þunga.
Nýtt millilandaskip
Nýtt skip hefur bætzt i milli-
landaflota Islendinga ,,Vestri”,
299 brúttólesta skip frá Fredriks-
havn, aðeins 7 ára gamalt.
,,Það eru skip af þessari stærð,
sem okkur hefur helzt skort, þvi
að þau henta miklu betur til þess
að sækja litla farma á smá-
hafnirnar”, sagði eigandinn, Jón
Franklin, þegar blaðamaður
Visis hitti hann um borð i Vestra
um helgina.
Jón Franklin hefur undanfarið
gert út annað skip, ,,Suðri”,
einnig til millilandasiglinga.
Vestri, sem i Fredrikshavn bar
nafnið „Bella Trix”, lestar um
550 tonna farm og mun á næstunni
sigla með fiskimjöl til Englands.
Gert er ráð fyrir, að honum sigli 7
manna áhöfn, en skipstjóri
verður Valsteinn Guðjónsson. —
GP
Sprengisandur vinsæll
Liklega hafa þúsundir manna
haldið norður eða norðan eftir
Sprengisandi i sumar. Úr
Bárðardal koma þær frettir að
umferð um sandinn hafi verið
mikil. Og nú hefur Noðurleið
auglýst áætlunarferðir þessa
leið, sem er mjög skemmtileg
og óvenjuleg. Þá á umferðin
eftir að vaxa enn að mun.
Tímanna tákn
,,Sá sem fékk lánað tafliðmitt
fyrir einu ári, er vinsamlegast
beðinn að skila þvi strax”.
Þannig auglýsir hinn kunni
skiðakappi Birgir Guðlaugsson
i Sigfirðingi á dögunum. Það er
timanna tákn þetta meö taflið.
Allir sitja yfir skák i
fritimanum, sama hvort sólin
skin i heiði, eða rigning og súld
grúfir yfir. Myndin, sem þessu
fylgir var tekin á menningar-
legasta útimóti verzlunar-
mannahelgarinnar, mótinu i
Galtalækjarskógi. Þar var taflið
tekið fram eins og annars
staðar.
HÚSGAGHAVERZLUN
6U9MUNDAR 6UDMUNDSS0NAR
Þetta vinsœla sófasett hefur verið
uppselt — en er nú fóanlegt aftur
C0MM0DA (Hið þægilega) Sótasettið. sem hannað er í samræmi við kröfur dagsins í dag. Formfagurt og sérstaklega pægilegt.
Eina sófasettið á markaðinum, sem hefur tvo púða i baki. - COMMODA (Hið þægilega) hefur nýstárlega lausn'á slitflötum: Það
er hægt að snúa þeim öllum, svo að þeir endast helmingi lengur, sem er einkar hentugt með armstykkin
C0MM0DA (Hið þægilega) er aðeins til sölu á einum stað. - Greiðist á tveimur árum.
SKEIFAN15
SIMI82898
Komið og skoðið
það er fleira
að sió