Vísir - 14.08.1972, Qupperneq 11
Landsliðsvörnin keflvíska réð
ekki við landsliðsframlínuna
— og Vestmannaeyingar unnu sinn stœrsta sigur í sumar á laugardaginn 6-1 í Eyjum
Kristján Sigurgeirsson (nr. 6) skoraöi fyrsta mark IBV.
Landsliðsframlina Vest-
mannaeyja lék landsliðs-
vörn Keflvikinga grátt i 1.
deildarleiknum í Eyjum á
laugardaginn og áður en
yfir lauk hafði ÍBV skorað
sex mörk gegn einu marki
iBK og unnið sinn stærsta
sigur á sumrinu, auk þess
sem úrslitin voru nokkur
sárabót fyrirtapið í úrslita-
leik islandsmótsins sl.
haust.
Vestmannaeyingar hófu leikinn
af miklum krafti, en Keflvikingar
tóku djarflega á móti i fyrstu, en
virtust svo dofna, þegar Kristján
Sigurgeirsson skoraði á áttundu
min. fyrsta mark tBV — gott
mark eftir skalla frá Haraldi
Júliussyni.
tBK fékk tækifæri til að jafna á
14.min, þegar Karl Hermanns-
son skaut framhjá, og siðan fékk
liðið tvö horn, sém ekkert varð úr.
En Vestmannaeyingar voru i
ham. A 24. min. gaf Ásgeir Sigur-
vinsson fyrir og örn Óskarsson
skallaði fallega i mark — og á
sömu min. skoraði Tómas Páls-
son eftir skalla frá Erni, en
Guðjóni Finnbogasyni, dómara,
fannst eitthvað athugavert við
markið og dæmdi það af.
En Tómas lét ekki biða lengi
eftir þriðja markinu og á 28 min.
lék hann upp völlinn, framhjá
Guðna Kjartanssyni og spyrnti á
markið frá vitateig. Knötturinn
lenti i bláhorninu vinstra megin,
óverjandi. 3-0.
Vestmannaeyingar sóttu stanz-
laust og i eitt sinn — eða á 31 min.
reyndi Grétar Magnússon að
verjast á þann hátt að senda
háan bolta frá vitateig að eigin
marki, en Þorsteinn Ólafsson
fraus i markinu og boltinn datt i
markið.
Á 34. min skoraði Ásgeir
fimmta mark fBV —■ lék glæsi-
legan einleik framhjá Einari
Gunnarssyni og Guðna — og átti
siðan hörkuskot á mark.
Þorsteinn sleikti boltann með
fingurgómunum en tókst ekki að
verja. Þrátt fyrir, að hann fékk
mörg mörk á sig átti hann oft
mjög góðar tilraunir til varnar og
varöi vel.
Eftir þessi ósköp fyrir Kefl-
vikinga sóttu þeir nokkuð um
tima — en þetta var ekki þeirra
dagur, og þeir skutu annað hvort
framhjá eða varnarmenn
IBV, sem unnu mun betur saman
en áður i sumar, hreinsuðu frá.
Þó hefði Hörður Ragnarsson átt
að geta lagað stöðuna aðeins á 40.
min.. þegar hann uppgötvaði að
hann stóð einn og óvaldaður með
boltann rétt innan vitateigs — þó
með bakið i markið, snéri sér við,
og skaut vel á markið, en Arsæli
Sveinssyni tókst að verja.
Eftir hlé kom Friðrik Ragnars-
son inn á hjá Keflvikingum i stað
Steinars Jóhannssonar, og virtist
mönnum furðulegt, að Friðrik
skyldi ekki íeika allan leikinn, þvi
hann reyndist fjörugasti íeik-
maður tBK i siðari hálfleik.
Keflvíkingar gerðu
örvæntingarfullar tilraunir til að
jafna eitthvað metin framan af
hálfleiknum, en uppskeran var
engin og svo á 20 min. með enn
einu þrumuskoti sjötta mark tBV
— knötturinn lenti i slá og inn,
Loks á 25. min. tókst Kefí-
vikingum að finna leiðina i mark
tBV. Þar var Friðrik að verki
eftir varnarmistök tBV. Loka-
kafla leiksins voru Vestmanna-
eyingar ákveðnari, en fleiri urðu
ekki mörkin.
Keflvikingar voru frekar daufir
i þessum leik og réð vörn liðsins
ekkert við hina ungu og fljótu
framlinumenn tBV. Samstaða
tBV-liðsins hefur sennilega aldrei
verið meiri i sumar, sérstaklega
hjá vörninni, en miðjumenn
liðsins voru lakastir. Beztu menn
liðsins voru Örn, Tómas og
Ásgeir, sem áttu allir glæsilegan
leik, Ólafur Friðfinnsson og
Arsæll i markinu. Hjá IBK voru
Hörður og Friðrik Ragnarssynir
beztir, og Þorsteinn i markinu,
þrátt fyrir nokkuð mörg mörk.
Ólafur Júliusson átti góða spretti,
en hvarf svo alveg á milli, en Jón
Ólafur komst vel frá leiknum i
heild.
Dómari var Guðjón Finnboga-
son frá 'Akranesi og dæmdi
nokkuö vel og veður var gott,
sólskin i fyrri hálfleik en smá
kaldi af austri.
GS
Ólafsvíkur-
Víkingarnir
í úrslit!
Ungmennafélagið Vikingur i
ólafsvik er komið i úrsiit i 3.
(Icildarkeppninni — i fyrsta
skipti, sem félagið tekur þátt i
dcildakeppninni.
Á laugardaginn léku Ólafsvik-
ur-Vikingarnir við Strandamenn i
Ólafsvik og sigruðu með 5-1 og
tryggðu sér þar meö sigur i B-
riðli 3. deildar. Mörk þeirra skor-
uðu Atli Alexanderson tvö, Guð-
mundur Gunnarsson tvö, og Frið-
áll'ur Karlsson eitt. Leikurinn var
lieldur stórkallalegur, en Óli Ol-
sen dæmdi vel.
IR bikarmeistari
í frjálsum íþróttum
í fyrsta sinn
IR varö bikarmeistari i
fyrsta sinn i Bikarkeppni
FRi, sem að visu er ekki
lokiö enn því stangarstökk-
inu var frestaö vegna veð-
urs. Endanleg úrslit uröu
þessi:
ÍR 131 stig
UMSK H2 sfig
KR 106 stig
Ármann 100 stig
HSK 80 stig
KR vann þessa keppni
fyrstu fimm skiptin, en í
fyrra vann Ungmennasam-
band Kjalarnesþings, sem
aö mestu leyti er skipaö
Kopavogsfólki og nokkrum
Garöhreppingum. Og nú
sigrar ÍR i fyrsta sinn, og
það með glæsibrag.
Tómas Pálsson, á miðri mynd, lék framhjá Karli og Guðna og skoraði þriðja mark ÍBV. Ljósmynd
Guðm. Sigfússon.
stöng og 3-2 kom á markatöfluna.
En -Akurnesingum tókst ekki að
jafna, þrátt fyrir sæmilegar til-
raunir, og i lokin munaði sáralitlu
að Elmar bætti við marki fyrir
Fram. Hann lék einn upp frá
miðju — brauzt inn i vitateiginn,
en Hörður hirti knöttinn af tám
hans.
Já, Framliðið er gott lið á is-
lenzkan mælikvarða, leikmenn
eins og Ásgeir, Elmar og Mar-
teinn eru ekki á hverju strái, og
sennil. verðskuldar það nú Is-
landsmeistaratitilinn öðrum lið-
um fremur. Þaðer okkar jafnasta
lið — ekki veikur hlekkur. Karl-
mannlegar voru viðureignir Mar-
teins og Teits i þessum leik og
gekk á ýmsu milli þessara
skemmtilegu leikmanna. Teitur
varbeztur Skagamanna, Eyleifur
góður meðan hann var heill, Karl
leikinn og duglegur i meira lagi —
og Jón Alfreðsson og Þröstur voru
sterkir. Sem sagt allt annað
Skagalið, en lék i Reykjavik ‘fyrr i
vikunni.
Magnús Pétursson dæmdi leik-
inn mjög roggsamlega — ekkert
smáatriði fór framhjá honum —
en vissulega notaði hann flautuna
of mikið. Góður dómari þarf ekki
aö leika neitt aðalhlutverk. Til
þess eru leikmenn.
— hsim.
steel power
heildsala - smása/a
HELLESENS
RAFHLÖÐUR
.’Z\vz r£'3*2 rz ■%r i>2 2rz-*x- 4.■£
RAFT/EKJADEILD HAFNARSTRÆTI 2 • REYKJAVIK • SIMI