Vísir


Vísir - 14.08.1972, Qupperneq 14

Vísir - 14.08.1972, Qupperneq 14
Dœma 4 leiki! tslenzkir dómarar munu dæma fjóra lciki i Evrópu- keppni i haust — i þessum fjóruin leikjum veröur is- lenzkt dómaratrió. Leikirnir eru Tottenham-Lyn i London i U EKA-bikarkeppninni. Ilvidövre, Kaupmannahöfn- HIK. Finnlandi i Kaup- mannahöfn. og irska liöiö Cork gegn annaö hvort Kýp- ur-liði eöa tyrkncsku. islend- ingarnir dæma báöa leiki C'ork, sem háöir veröa á ir- landi. Það var enginn olympíu- svipur ó Bikarkeppninni ^ — og árangurinn yfirleitt frekar slakur Visir Mánudagur 14. ágúst 1972 Þau minna sannarlega ekki hið minnsta á Olympiuleikana, sem framundan eru „afrekin" á bikarkeppni Frjálsíþrótta- sambandsins um helgina. Árangur varð afskaplega rýr á flestum sviðum og góöa veðrið á laugardag- inn virtist jafnvel ekki megna að breyta neinu þar um. Kannski vakti það mesta at- hyglina að Jón Þ. Ólafsson sem flestir héldu heillum horfinn mætti þarna og vippaði sér yfir 2 metra eins og að drekka vatn. Þar með færði hann ÍR-liðinu verðmæt stig, sem áttu sinn þátt i að vinna að yfirburðasigri ÍR, sem varð Bikarmeistari i frjáls- um iþróttum i ár. ,,Þetta er hægt”, sagði Jón eftir keppnina, ,,mæta æfingalaus og stökkva 2 metra, það sama og maður gerði i fullri æfingu mót eftir mót. Þaö er enginn vafi á að aðstaðan er allt önnur i hástökk- inu eftir að malbikið var lagt”. Margir gamlir kappar aðrir voru drifnir fram i dagsljósið til að safna stigum, en ekki náðu þeir þó að sýna neitt á borð við Jón Þ., sem eflaust hefði veriö nálægt OL-lágmarki, eða hefði e.t.v. náð þvi, ef hann hefði byrj- að æfingar strax i vor. En við töluðum um Olympiu- leika, — það er þvi ekki úr vegi að lita nánar á árangur Olympiufar- anna fjögurra, sem unnu sigra i 8 greinum i mótinu. Bjarni Stefánsson vann 200 metrana á 22,3 sek og 100 metr- ana i bullandi meðvindi á 10,6 i hörkukeppni við Sigurð Jónsson, sem hljóp á 10,7 sek. Þá var Bjarni i sveit KR, sem vann 1000 metra boðhlaupið 4.í>2'.0.4.5, og 4x100 metrunum sem KR vann á 43.5 sek. Þorsteinn Þorsteinsson átti keppinaut i 800 metrunum þar sem Ágúst Ásgeirsson var. Þor- steinn sigraði þó örugglega á 1.53.1, Agúst hljóp á 1.55.6 og er mjög vaxandi hlaupari, sem hlýt- ur að setja markið á næstu Olympiuleika. Þorsteinn var einnig sigurvegari i 1500 metrun- um. ’en timinn var svipaður hinu slæma veðri, 4.16.8 min. Þor- steinn hljóp með KR-sveitinni i 1000 metra boðhlaupinu. Erlendur Valdimarsson tók þátt i þrem kastgreinum og vann i öllum. Kúlunni varpaði hann 15.45, en Guðmundur Hermanns- son var i röðum áhorfenda. ,,Vit- anlega er ég sár yfir að komast ekki með til MUnchen" sagði Guðmundur, sem undanfarin ár hefur æft allt að 5 sinnum i viku til að ná sem beztum árangri, en kannski hefði verið betra að keppa að fararstjóraembætti? Þar eru þó mun færri um hvern farmiða. Sleggjunni kastaði Er- lendur svo 56.12 metra og i rokinu i gær sveif kringlan 56.92. Þá er það loks fjórði OL-farinn i frjálsum, Lára Sveinsdóttir, sem sigraöi i hástökkinu á aðeins 1.55 m stökki. — en hvað geröist svo þegar hún reyndi við 1.60 metra? Hún hljópþrivegis undir rána og gerði ógilt. Slikt má ekki henda i MUnchen, þvi þessi hæð ætti ekki áð þurfa að hræða Láru. 1 lang- stökkinu vann Lára á 5.44, en Hafdis Ingimarsdóttir stökk 5,33. 1 100 m grindahlaupi sigraði Lára á 15.2 sek. Sem sagt. alls ekki glæsilegur árangur okkar beztu manna. Kannski vakti það mestar vonir, þegar spjótið flaug úr hendi Eliasar Sveinssonar i 62.62. Þar vantaði þó enn 4.38 metra til að bæta nær aldarfjórðungs gamalt met Jóels Sigurðssonar. Stefán Jóhannsson kastaði 59.40. Þessir ungu menn ættu nú að taka sig til og æfa spjótkast eingöngu með það i huga að komast yfir 70 metra strikið. í langstökkinu var sentimetra- strið i algleymingi, og Ólafur Guðmundsson varð að sjá Friðrik Þór sigra með 6,99, en stökk sjálf- ur 6.98 metra. Friðrik vann svo þristökkið með 14.63 metra stökki. Helgi Hauksson stökk 14.09, en meðvindur var mikill, svo mikill að stangarstökks- keppni varð að fresta um sinn. Lengri hlaupin voru hlaupin á hinu alkunna islenzka „Maraþon- tempói”. — Halldór Guðbjörns- son vann i 3000 metrunum á 9.17.4 og Ágúst Ásgeirsson vann 5 kiló- metrana á 16.41.8 á ægimiklum endaspretti siðustu 3-400 metr- ana, — virtist eiga nóg eftir. Ein- hvern tima veröa langhlauparar að fara að hlaupa upp á góðan tima, ekki fáfengileg gullverð- laun, sem eru jafnvel ekki úr gulli? Loks er að geta 110 metra grindahlaupsins, sem Borgþór Magnússon vann á 15.2 sek i með- vindi. Ingunn Einarsdóttir vann svo spretthlaupin hjá konunum, 100 metrana á 12,7, sek, og 200 metrana á 26,3 sek. Sigrún Sveinsdóttir veitti henni skemmtilega keppni i báðum hlaupunum, hljóp á 12.8 og 26.5. Hinsvegar tókst Sigrúnu að sigra Ingunni i 400 metrunum á 61.0, hálfri sek. betri tima en hjá Ingunni. Spjótkast vann Arndis Björns- dóttir með yfirburðum, kastaði 37.73, Gunnþórunn Geirsdóttir vann kúluvarpið með 9.95 metr- um, kringlukastið Kristjana Guð- mundsdóttir með 30.62 m. Ár- mannsveit vann 4x100 metra boð- hlaupið. — JBP — „Fljótasti maður heims", Valery Borsov, Sovétrikjunum, er kom- inn til Munchen og þar hefur fólk þyrpzt að honum til að fá eigin- handaráritun. Appeal Tannkrem -er rautt Tannkrem og munnskolun samtímis. Appeal Tanrvkrem Colgate-Appeal - nýtt fluor-tannkrem, sem gerir tennurnar hvitar og hressir um leið allan munninn með nýju móti. Rautt og gegnsætt. Tannkrem af alveg nýrri gerð - hreinsar munninn, einnig þar sem burstinn nær ekki til. Bragðið? Ferskt og hressandi, svo að unun er að vera nálægt þeim, sem nota Colgate-Appeal að staöaldri. Colgate-Appeal treystir vináttuböndin. Colgate-Appeal. Tannkrem og munnskolun samtímis. Sigurlið ÍRi bikarkeppninni. Ljósmynd BB.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.