Vísir - 26.08.1972, Side 2
2
Visir Laugardagur 26. ágúst 1972
TÍSB SPIB:
Finnst yöur rétt aö Land-
helgisgæzlan bæti hval-
veiðiskipunum við varð-
skipaflotann þegar þorska-
striðið hefst’,
Svanborg Pórmundsdóttir, hús-
móðir: Ég hef svo litið hugsað út
i þessi mál. Jú er ekki sjálfsagt að
allir hjálpi til og þvi ekki að bæta
nokkrum skipum við varöskipin.
Páll Kristjánsson, verkamaður:
Já. Mér finnst alveg sjálfsagt að
sýna eins mikla vörn og mögulegt
er .
Sólrún Jónsdóttir, nemandi: Já,
já. Ætli við verðum ekki að reyna
að verja okkur eins og hægt er.
Arni Sverrisson.nemandi: Ja, ég
veit það nú eiginlega ekki. Það
má kannski reyna það af þvi að
það eru byssur á hvalbátunum,
Við verðum minnsta kosti að gera
eitthvað.
Guðjón Klemenzson, læknir: Þaö
er vel athugandi Annars er um að
gera að láta togarana aldrei hafa
frið, þá gefast Bretar upp að
lokum.
Tryggvi Björnsson, bóndi: Ég
veit ekki. Ætli það sé ekki til-
gangslaust. Verðum við ekki
bara aðreyna að fara samninga-
leiðina og leysa málið þannig?
Brúin yfir
Hvalfjörð
„Allt er reyndar enn á rann-
sóknarstigi hvað viðvíkur brú-
argerð og vcgarstæði i Hval-
firðinum, en mjög liklega
verður það vegaleiðin frá
Kattarhöfða yfir á Þyrilsnes
sem brúuð verður”, sagði Sig-
l'ús örn Sigfússon, deildar-
verkfræðingur, i viðtali við
blaðið i morgun. „Annars er
varla hægt að tala um brú i
þessu tilfelli, brúin yröi ekki
mikið stærri en sú sem er nú
innst i hotninum yfir Botnsá.
Ilitt yrðu allt uppfyllingar, og
er nú verið aö vinna að könnun
á þessum stað.”
Mundi vegurinn þá tengj-
ast liparítnámu Sementsverk-
smiðjunnar, og yrði þetta 6 km
stytting. Stytting kemur ekki
til með að verða meiri, en gæti
hugsanlega orðið styttri. En
veriðer að kanna hve mikið af
lausum lögum er i botninum,
en framkvæmdirnar geta
jafnvel haft i för með sér
slæmar afleiöingar i sam-
bandi við lax.
Vegurinn yrði fyrst lagður
út i Þyrilsey en frá höfðanum
og þangað er einn kilómetri.
Þó hefur ekki verið ákveöið
hvort vegurinn muni lenda
þar, hann gæti jafnvel lent
fyrir innan.
Yfir Brynjudalsvog yrði
vegur gerður frá svonefndum
Einbúa yfir i Múlafjall.
Brú sem kæmi i sjálfum
Botninum yrði að sjálfsögðu
að vera nokkuð há, eða um
4 1/2-5 metrar yfir sjó. Þessar
framkvæmdir yrðu mjög
kostnaðarsamar, en ekki
sagði Sigfús örn að hægt væri
að segja nokkuð um það á
þessu stigi málsins, þótt upp-
hæö hafi auðvitað verið slegið
fram.
4 menn vinna nú við boranir
og rannsóknir á þessu svæði
og 2 eftirlitsmenn eru þarna
einnig staddir. Áætlun verður
að vera tilbúin snemma á
næsta ári að þvi er Sigfús örn
sagði.en ekkert verður gert i
sjálfum Botninum fyrr en árið
1974. Framkvæmdum við
Brynjudalsveg yrði hins vegar
að vera lokið sumrinu áður.
— EA
Könnun á áfengis-
neyzlu unglinga
,,Ég er reglulega ánægð með
það hvernig þessi könnun hefur
gengið. Við sendum út 500
spurningalista til unglinga og
höfum fengið tæp 78% aftur,
sem má telja reglulega gott”,
sagði Hildigunnur ólafsdóttir,
afbrotafræðingur i viötali við
blaðið, en Hildigunnur hefur
gert könnun á áfengisvanda-
máli unglinga og sendi hún út
spurningalista til unglinga hér i
Kcykjavik.
Könnunin fór i gang i mai-
mánuði siðastliðnum og voru
þeir spurningalistar semkomu,
allir komnir inn i júni. Könnunin
er gerð á unglingum fæddum á
árunum 1955-1958, og voru þeir
valdir af handhófi eftir fæðing-
arskrá.
„Svörin á listinum virðast
mjög góð og greinileg, og þau
fengu sérstakt pláss þar sem
gátu skrifað eigin athugasemd-
ir, og það hafa þau notað sér
vel", sagði Hildigunnur
ennfremur. Með þessari könnun
er verið að grennslast eftir
áfengisneyzlu meöal unglinga,
hve hún er útbreidd.og hvenær
neyzlan virðist vera mest. Eru
spurningar mjög persónulegar,
að þvi er Hildigunnur sagði, en
þær eru 60 á tölu.
,,Það tekur sinn tima að fá
niðurstöður úr þessari könnun,
en sá sem vinnur úr töflunum er
Asmundur Jakobsson. Að sjálf-
sögðu er ekki komin nein endan-
leg lausn á áfengisvandamálinu
með þessari könnun og hún er
of litil til þess að hægtsé að
segja með vissu iivað beri að
gera.” —EA
BEKKJARKERFIÐ FELLT NIÐUR í MH
Menntaskólarnir hefjast
óvenju snemma að þessu
sinni . Menntaskólinn í
Hamrahlíð verður settur
annan september en
Menntaskólinn í Reykjavík
og Menntaskólinn við
Tjörnina byrja um miðjan
september.
Ekki er um lengingu á námstima
að ræöa þar sem skólarnir munu
hætta þeim mun fyrr á vorin.
Menntaskólinn i Hamrahlið er
aðtaka upp nýtt námsfyrirkomu-
lag sem nefnist áfangakerfi og
hefur það i för með sér, að hið
hefðbundna bekkjarkerfi verður
fellt niður.
Guðmundur Arnlaugsson rekt-
or sagði i viðtali i morgun, að
áfangakerfið væri i raun og veru
áframhald á valfrelsi þvi sem
heföi rikt. Bekkjarkerfið verði
lagt niður i fyrsta og öðrum bekk
skólans en i stað þss verður
námsefni skipt niöur i áfanga og
lýkur nemandinn áföngum i eins
mörgum greinum og honum er
fært. Náminu lýkur, þegar viss-
um fjölda áfanga er lokið. Sá sem
ekki stenzt áfanga i einni grein
fer i sama áfanga aftur Próf
verða eftir hvern áfanga tvisvar á
ári.
Fjórði bekkur mun ljúka hinu
hefðbundna stúdentsprófi i vor og
hið sama mun gilda fyrir þriöja.
Skólinn byrjar svo snemma til
þess að hægt sé að skipta vetrin-
um i tvær jafnlangar annir og
jólafriið notist til að undirbua
seinni önnina.
Þegar þetta kerfi verður komið
af stað mun skólanum ljúka
snemma i mai.
1 hinum menntaskólunum er
einnig veriö að jafna annirnar, en
bekkjarfyrirkomulagið er þar
enn sem komið er.
— SB —
Klippa á víra landhelgisbrjóta
Arni Gislason úr San-gcrði
hringdi:
..1 fréttum af landhelgismálinu
að undanförnu hefur komið upp
kvittur um það, að brezkir
hyggist ganga þannig frá tog-
urum sinum, að landhelgisgæzl-
unni verði erfitt um uppgöngu á
skip þeirra.
Mér þykir rétt að vekja athygli
landhelgisgæzlunnar okkar á þvi,
að það er sko ekki nokkur nauö-
syn á þvi að þvælast um borð i
þessa kláfa.
Það er til mjög einfalt ráð og
aðferð til þess að klippa á togara-
virana hjá þessum skipum, og til
þess þurfa varðskipin ekki annað
en sigla aftur fyrir landhelgis-
brjótana — yfir virana. (Ég skal
með ánægju útbúa fyrir þá klipp-
urnar, ef þeir vilja)
— Þeir þurfa aldrei að stiga um
borð.
Þetta yrði lika áreiðanlega
áhrifarikasta meðalið, þvi að
hver botnvarpa kostar þá varla
minna en tvær milljónir króna,
og tvær slikar klippingar mundu
áreiðanlega duga til þess aö gera
þá alveg afhuga öllu brölti hér á
okkar miðum”.
Við komum þessari hugmynd
fyrir þig á framfæri Arni, en
okkur minnir, aö þeir á Mariu
Júliu á sinum tima hafi gripiö til
hennar i þorskastriöinu ’58 Þeir
voru með sióða i eftirdragi og
drógu yfir togvirana hjá
Bretunum, ef okkur minnir rétt,
og fyrir vikið óttuðust brezku
landhelgisbrjótarnir hana mest
af öllum varðskipunum.
HRINGIÐ [
SÍMA 86611
KL13-15