Vísir - 26.08.1972, Side 7
Visir Laugardagur 26. ágúst 1972
7
Sænsku þjóðbúningarnir eru
margir og fjölbreyttir, en i Svi-
þjóð er algengt að fólk safni
þjóðbúningum frá ýmsum
héruðum, eins og sumir safna
frimerkjum.
Sænska smiðajárnið er mjög
fallegt og vandað. Langflestar
vörurnar á sýningunni eru með
„gæðastimpli” sem þýðir að
þær hafa verið reyndar af gæða-
eftirliti og staðist allar kröfur.
Hér fá börnin að spreyta sig á vefnaðinum Guðrún Baldvinsdóttir
heitir þessi stúlka, sem er að byrja á renningnum, sem vonandi
verður orðinn langur og fallegur þegar sýningunni Iýkur.
Ingrid Arlenborg sýnir okkur hvernig Lappar vinna fallegustu hluti
úr þunnum trjáberki.
Umsjón:
Þórunn
Sigurðardóttir
Sænskur heimilisiðnaður
verður næstu tvær vikurnar
kynntur tslendingum i Norræna
húsinu og er það i fyrsta sinn
sem slik sýning er haldin utan
Sviþjóðar. Landssamband
sænskra heimilisiðnaðarfélaga
er geysilega vel skipulagt og
afkastamikið, og framleiðir
útflutningsvörur fyrir yfir 30
inillj. sænskra króna árlega.
Innan þess eru um 50 félaga-
samtök sem eru í senn
hugsjónasamtök til eflingar og
varðveizlu sænsks heimilis-
iðnaðar, og vezlunarf . tæki sem
njóta mikillar virðingar innan
Sviþjóðar og utan.
Það er Norræna húsið og
Heimilisiðnaðarfélag tslands
sem hefur boðið sænsku lands-
samtökunum að halda
sýninguna hér á landi
Það leynir sér ekki, þegar
gengið er um þessa sýningu, að
sænskur heimilisiðnaður er
mjög þróaður og innan hans
hafa fjöldamargar listgreinar
dafnað og náð mikilli
fullkomnun. Nægir þar að nefna
sænskan vefnað,_ útskurð,
smiðajárnsvinnu og tágavinnu.
Reynt er að leggja áherzlu á að
halda einkennum hvers héraðs
og viðhalda hinum fornu vinnu-
brögðum.
Auk þess er mikil nýsköpun i
heimilisiðnaðinum og reynt er
jafnframt þvi, sem gömlum
handbrögðum er haldið, að
koma með ný munstur og fyrir-
myndir. Einkunnarorð sænsks
heimilisiðnaðar er: Erfða-
venja nýsköpun — gæði.
Þessi sýning, sem hingað er
komin, er sölusýning og eru allir
hlutirnir til sölu, nema þjóð-
búningarnir en þá er hægt að
panta að utan. Ekki tókst
forstöðukonum fyrir þessari
sýningu að fá neina „tolla-
ivilnun” á þessum vörum hér og
eru þær með allt að 100%
tollum. Ingrid Arlenborg, frkst.
heimilisiðnaðarfélagsins i
Gautaborg, hefur haft veg og
vanda með uppsetningu
sýningarinnar, og er ekki hægt
að segja annað en að það hafi
tekizt með mikilli prýði.
erf ðavenja — nýsköpun—gœði
Þessi fallegi hani og fjölskylda
hans eru unnin úr björk i
héraðinu Kaimar f Sviþjóð.
Ljósm. A.M.)
Sýningin er ákaflega smekkleg
og falleg . Þarna er meðal
annars hægt að sjá hvernig
unnið er úr þunnum trjáberki i
Lappalandi. Vefstóll er einnig
fyrir börnin og fá þau að
spreyta sig.
Ingrid sagði i stuttu spjalli við
blaðið að hugmyndin að þessari
sýningu hefði kviknað er
islenzkur heimilisiðnaður var
sýndur i Gautaborg. „Nú ætlum
við að reyna að hafa alltaf
islenzkan heimilisiðnað til sölu i
verzlun heim ilisiðnaðar-
félagsins i Gautaborg, og siðan
væntanlega viöar i Sviþjóð.”
Islenzki heimilisiðnaðurinn er
mjög fallegur, einkum ullar-
vörurnar, sem ég held að
tslendingar eigi að leggja sér-
staka áherzlu á.
„Gætu Islendingar ekki selt
meira til útlanda af þessum
vörum?”
„Jú það gætu þeir áreiðan-
lega, einkum af ullinni, sem
virðist vera komin hvað
lengst”. sagði Ingrid. Gerður
Hjörleifsdóttir, hjá tslenzkum
Heimilisiðnaði sagði blaðinu að
tslendingar gætu margt lært af
þessari sýningu.
■ „Fyrst og fremst sér maður
af þessum vörum, að höfuð-
áherzla er lögð á vandvirkni og
handverkið er hafið til vegs og
virðingar”.
„Hvað getum við Islendingar
gert til þess að ná sömu gæðum i
okkar vörum?”
„Sviar veita miklu meiri
styrki til himilisiðnaðar en viö,
en við þurfum fyrst og fremst
að fá fleiri leiðbeinendur, sem
geta ferðzt um landið og kynnt
heimilisiðnað” sagði Gerður.
Sýningin verður opnuð i dag
og opin daglega frá 14.00 - 22.00
til 10. september.