Vísir - 30.08.1972, Side 2
2
Visir Miövikudagur 30. ágúst 1972
nsntsm:
Finnst yður vanta
skemmtistað i Reykja-
vik fyrir ungt fólk?
Kagnhciöur Jónsdóttir, nemandi:
Já, það finnst mér. Annars hef ég
ekki verið i bænum i sumar svo ég
hef litið út á það að setja þótt
skemmtistaðirnir séu of fáir i
Reykjavik.
Itagna Egilsdóttir, bankamær:
Já alveg tilfinnanlega fyrir fólk á
minum aldri 17-20 ára. Þeir
eru allt of fáir skemmtistaðirnir
sem við getum farið á hér i bæn-
um.
Vilbcrg llclgason, starfsm.
Kassag.: Já. Eini staðurinn sem
ég hef tækifæri til aö sækja er
Þórscafé og þar eru engar vin-
veitingar.
Krisljana (1 uðlaugsdóttir, af-
greiðslust.: Já það mættu vera
fleiri staðir fyrir ungt fólk sem
ekki kemst inn á vinveitingastað-
ina. En ekki fleiri vinveitinga-
slaði takk, það vantar ekki svo-
leiðis skemmtistaði.
Uafdis Agústsdóttir, kennari: Já.
Ég fer nú aðallega i Klúbbinn.það
er ágætur staöur en það vantar
fleiri staði i likingu við hann þ.e.
diskótek.
Kúnar Jónsson, afgreiðslu-
maður: Fyrir ungt fólk yfir tvi-
tugt þá vantar ekki fleiri
skemmtistaði, en tilfellið er, að
krakkar á aldrinum 16-20 ára eiga
ekki um marga staði aö velja, til
að skemmta sér á.
Þ.II. skrifar:
,,Það má furðu gegna hvað
mikið hefur gengið á i Laugar-
dalshöllinni út af alls kyns
tæknilegum atriðum. Stólar
eru myndaðir i bak og fyrir og
siðan rifnir i sundur og þar
fram eftir götunum. Samt eru
allflestir sammála um, að
furðu gegni hve allur tækni-
búnaður er góður i Höllinni.
En það er langtum meira
mál, að það er þar sáralitill
friður til einbeitingar. Á þvi
eiga áhorfendur sök. Ókurteisi
og tillitsleysi islenzkra sem
erlendra áhorfenda er með fá-
dæmum. Hvenær myndu
áheyrendur góðrar tóníistar
beinlinis keppast við að fá t.d.
einleikara eða einsöngvara til
að taka eftir sér eða vekja
athygli á að hún eða hann séu
með barkahósta eða kitli i
hálsinn?
Á 19. skákinni sem ég sá,
kvað við heill lúðrablástur úr
kverkum áhorfenda. Hugsið
ykkur 3.000 áhorfendur þar
sem þriðjungur hóstar og
snýtir sér i einu. Falleg tónlist
það! Auk þess hraðhlaup á
stóla og sætaraðir i hálf-
myrkvuðum sal. Jafnvel fær-
ustu bridgesþilarar þyldu ekki
slikt. Að tæpri klukkustund
liðinni hvarf ég úr salnum,
vegna þess hve þessi læti
höfðu óþægileg áhrif á mig. Ég
tefli ekki skák sjálf en fylgist
með henni eins og ég hlusta á
tónlist. Þegar ég kom aftur inn
i salinn að stundu liðinni tók
ekki betra við. Dómararnir
léku mállausa hvislara með
handapati en það var til
einskis, nema hvað þeir hefðu
getað vakið hlátur aímennings
Bahai hyggjast
svara
,,Við hyggjumst svara þess-
ari árás Guðfinnu Helgasóttur
einhvern tima á næstu dög-
um”, sagði ungur Bahái-mað-
ur, sem hringdi i þáttinn i gær-
dag. „Þetta eru rakalausar
fullyrðingar og eiga enga stoð
i veruleikanum,” sagði hann.
,,Við viljum bjóða öllum þeim,
sem vilja kynna sér hið sanna
i málinu að koma á kynn-
ingarkvöldið, sem við höldum
að Óðinsgötu 20 á sunnudags-
kvöldið kl. 20.30”.
Sjónvarpið og
Olympíu
leikarnir
LESENDUR
HAFA
ORÐIÐ
og ekki væri það til bóta.
Þögn, þögn — þögn birtist á
skerminum með stuttu milli-
bili án þess að það bæri
árangur.
Þetta sýnir að Fischer hefur
alveg rétt fyrir sér hvað það
snertir að aðstæður eru ekki
fullkomnar hvað næði viðkem-
ur. Spassky er að öllum likind-
um alveg sammála um að það
vanti meira næði til einbeit-
ingar. Prúðmennsku Spasský
á alla lund og persónuleik
hans véfengir enginn en
hvorugt nægir eingöngu til
sigurs i skák. Persónufrelsi
þarf til kvartana og getur af
sprottið virðing, þegar um list
er að ræða, og hefur þegar
sýnt sig að kvartanir eru
nauðsynlegar og hafa borið
árangur. Skáksambandið
hefur lyft Grettistaki i áræðni
og vilja með þvi að halda ein-
vigið. Nefndir á nefndir ofan,
dómarar frá hægri og vinstri,
meðhjálparar og lögregla, það
liggur við að allt þetta lið liggi
i valnum sökum ofþreytu og
vanþakklætis vegna truflana
utanaðkomandi aöila.
Áður en skákinni lauk stóð
skýrum stöfum að hún fengist
fjölrituð á eftir. En aldrei voru
kvefaðir áhorfendur beðnir að
yfirgefa salinn meðan þeir
hóstuðu og snýttu sér. Slikt
væri sjálfsögð tillitssemi við
listamennina sem háðu einvigi
hugsuða.
Áhorfendur geta sjálfir tek-
ið á sin breiðu og þunnu bök
mestan hlutann af amstri og
leiða, sem upp hefur komið i
sambandi við einvigi aldar-
innar.”
Húsmóðir slmar:
,,Það er mjög óþægilegt fyr-
ir okkur húsmæður að sjón-
varpið skuli senda út myndir
frá Olympiuleikunum kl. 18 á
daginn. Þessar útsendingar
Kraninn ó frimerkinu
standa yfir einmitt þegar viö
erum að undirbúa kvöldmat-
inn, og þvi er það erfitt að setj-
ast niður og fylgjast með þótt
maður feginn vildi. Þar íyrir
utan eru það margir karlmenn
sem vinna fram til kl. 19 á
kvöldin og missa þvi af stórum
hluta á hverjum degi.
Ég held að það væri mun
heppilegra ef hægt væri að
senda út fréttir af Olympiu-
leikunum eftir að venjulegri
dagskrá er lokið og þá gætu án
efa mun fleiri fylgzt með
þeim.”
E.S. Það skal tekið fram að
plássins vegna birtum við hér
aðeins eitt bréf af mörgum
sem hafa borizt um þetta
sama atriöi. Siminn hefur vart
þagnað undanfarna dag. Hús-
inæður, verzlunarfólk iðn-
aðarmenn, svo dæmi séu
nefnd, hafa hringt og kvartaö
sáran undan þvi að geta ekki
horft á myndirnar þar sem
vinnu þcirra sé ekki lokið nógu
timanlcga. Margir taka fram
að þeir hafi kcypt happ-
drættismiða Olympiunefndar-
innar eða á annan hátt styrkt
för islcnzka liösins og þvi eigi
þeir rétt á að fá eitthvaö aö
sjá.
Smurning sem
ekki fékkst
Óánægð hringir:
,,Ég hringdi um daginn i
Saab-umboðiö til þess að fá
tima fyrir smurningu á biln-
um okkar hjóna. Jú, jú, það
var allt i lagi, ég mátti koma
kl. 4-5 um daginn en maðurinn
sem svaraöi á verkstæðinu
varaði mig við þvi að það gæti
orðið nokkur bið, samt sem
áður. Jæja, svo kem ég á um-
sömdum tima með bilinn og
ætla að láta smyrja hann en þá
kom bobb i bátinn. Maðurinn
sem ég hafði talaö við fyrr um
daginn setti upp hundssvip og
sagði blátt áfram að hann gæti
ekki smurt bilinn. Ég fékk
engin önnur svör frá honum
þótt ég gengi á hann, maður-
inn virtist jafnvel engan tima
hafa til þess að tala við mig,
og með það fór ég.
Hvernig er það, er bilaþjón-
ustan virkilega svona alls
staðar? Það væri gaman að fá
svör bilaumboðsmanna á
þessu og það sem fyrst.”
Frimerkjakarl skrifar:
,,Nú hefur ein serian i viðbót
komið fyrir sjónir okkar, yl-
ræktinni gerð skil. Óþarfa læti
hafa orðið við tilkomu hvers
nýs merkis, mönnum sýnzt
merkin svona sitt á hvað.
Margir álita skákmerkin núna
hin viðkunnanlegustu, vel
heppnuð merki, nógu vinsæl
hafa þau i öllu falli orðið. Mér
finnst ylræktin koma vel út, —
nema að einu leyti. Það er 12-
krónu merkið. Þar finnst mér
alveg forkastanlegt að sjá
þennan krana á hægri hlið
merkisins. Þetta er einna lik-
ast auglýsingu á krönum og
fittings frá byggingavörubúð,
— nú eða að merkið hafi verið
gefið út i tlefni stórafmælis
pipulagningafélagsins. Dálitið
klúr myndskreyting þetta, en
hin tvö merkin eru góð”.
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15
Hósti og rœskingar óhorfenda í
Höllinni á við heila lúðrasveit