Vísir - 25.09.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 25.09.1972, Blaðsíða 2
2 Visir Mánudagur 25. september 1972. vimsm: Ætlið þér að sjóða slátur nú i haust? Agústa Wium, húsmóöir: Já.eins og ég geri alltaf. Ég er nú búin að sjóða slátur i 40 ár og aldrei fallið úr eitt ár. Stcinvör Sigurðardóttir, húsmóð- ir: Já, eins og iðulega ætla ég að sjóða slátur núna. Ég er búin að gera það siðan ég fór að búa og held þvi áfram eins lengi og ég get. Valdis Danielsdóttir, húsmóðir: Ja, ég hugsa það. Ég hef oft soðið slátur — býst við ég geri það núna i haust. Stcingerður Þorsteinsdóttir, hús- móðir: Ég er nú hrædd um það. Búin að gera það i fjöldamörg ár. Ætli maður sjóði ekki svona 25 slátur núna. Málfriöur Einarsdóttir, hús- móðir: Já, já. Ég ætla að sjóða slátur núna eins og ég hef gert undanfarin 10 ár eöa svo. Hólmfriður Þorsteinsdóttir, hús- móðir: Nei. Ekki i Reykjavik. Gerði það meðan ég bjó uppi i sveit, en ekki nún'a eftir að ég fluttist suður. 600 vélritaðar síður um efnahagsvandann: Fjögurra milljarða viðskiptahalli — Slœm staða ríkissjóðs — Gjaldeyrisstaða betri en spáð ,, Viðskipta jöfnuður verður ef til vill ekki alveg jafn óhagstæður i ár og spáð var, en þó má gera ráð fyrir 4000-4500 milljón króna halla á árinu. 1 fyrra var hallinn um 4000 milljónir,” sagði Jón Sigurðsson hagfræðingur formaður efnahagsnefndar rikis- stjórnarinnar. „Staða rikissjóðs gagnvart Seðlabankanum, sem gefur nokkuð góða hugmynd um þróun mála, hefur verið mjög slæm. Þess ber að gæta, að staðan er breytileg eftir árstima, og mun hún vafalaust eiga eftir að batna nokkuð á siðasta ársfjórðungi,” sagði Jón Sigurðsson. Hann nefndi, að rikissjóður fær mestan hluta tekna sinna i lok ársins, og nú koma fram áhrif tilfærslu á skatttekjum frá sveitarfélögum til rikisins, og hækkun skatt- greiðslna á siðari hluta ársins, sem styrkir stöðuna miðað við fyrri hluta ársins. 10% minnkun sjávar- vöruframleiðslu Jón sagði, að efnahagsmálin væru mjög i deiglunni einmitt þessa daga, þegar skera yrði úr um vandamál sjávarútvegsins, nýtt fiskverð verði ákveðið og verðjöfnunarsjóði sett ný ákvæði frá 1. október. Aflatregðan ylli, að framleiðsla sjávarútvegs hefði minnkað um 10% til ágústloka, fyrir utan loðnu. Innflutningur hefði hins vegar ekki vaxið eins mikið og spáð hefði verið. Gjaldeyrisstaðan hefði versnað talsvert fyrstu mánuði ársins, en siðan verið stöðug, en þar skiptu lán mestu. Þess vegna mundi gjaldeyris- staðan sennilega ekki versna jafn mikið og spáð hafði verið. Rýrnun gjaldeyrisstöðunnar yrði hugsan- Hvað kostuðu Olympíuleikarnir okkur? R. Sigtryggsson simar: „Þá eru ólympiufararnir komnir heim aftur heilu og höldnu og urðu allir þvi fegnir. Ég ætla ekki að fjölyrða neitt um frammistöðu þeirra þar. Hún hefur sjálfsagt verið eins og búizt var við fyrirfram. En það er tvennt sem ég vil aðeins drepa á. Hið fyrra er það, að um likt leyti og leikarnir fóru fram var einnig keppt á „heimsmeistara- móti öldunga” þar sem okkar ágæti kúluvarpari Guðmundur Hermannsson sigraði með glæsi- brag. Á þetta afrek hefur litið verið minnzt i islenzkum fjöl miðlum, þótt ekki hafi skort pláss i þessu húsi skal vandinn leystur. Hús Framkvæmdastofnunar við Rauðarárstfg lega 1000-1200 milljónum minni en spár höfðu gert ráð fyrir snemma á árinu. Nefndin hefur safnað gögnum um ástandiö i efnahagsmálum og horfur, alls upp á 600 blöð. Nefnd- inni er falið aö hafa samráð við fulltrúa vinnumarkaðarins, og hún hefur ritað Alþýðusambandi tslands og Vinnuveitendasam- þegar sagt var frá þvi, að íslend- ingar hafi ekki orðið siðastir i öllum greinum á Olympiu- leikunum. Mér finnst Guð- mundur eiga það fullkomlega skilið að vakin sé meiri athygli á sigri hans en ósigri annarra. Hitt atriðið er kostnaðurinn við þátttöku okkar i Olympiu- leikunum. Þar sem þangað var farið með almennum stuðningi landsmanna og rikisins, finnst mér ekki nema sjálfsagt að gerö grein fyrir þvi opinberlega hvað kostnaðurinn var mikill og vona ég að það verði gert hið fyrsta. Maður sér svo sem ekki eftir þeim peningum sem ég og mitt fólk spanderuðum i kaup á happdrættismiðum, en það er alltaf skemmtilegra að vita bandi Islands og beðið þessi sam- tök aö tilnefna fulltrúa til við ræðna. Samtökin hafa enn ekki gert það. Fjárlagafrumvarp i byrjun þings Fjárlagafrum varp mun væntanlega koma fram strax i hvaða gagn happdrættismiða- salan gerði.” Ósanngjörn innheimta Bœjarsímans Gamall simnotandi skrifar: Hvers vegna er krafizt fullra afnotagjalda af sima, sem lagður er inn til geymslu hjá Bæjarsim- anum i þvi tilfelli, að flutt er milli húsa, og ennfremur tekið sérstakt flútningsgjald, kr. 4.400,-. Að krefjast fulls afnotagjalds af sima, sem er i geymslu er auð- vitað ósanngirni af hæstu gráðu, og flutningsgjald að upphæð kr. 4.400,- fyrir sima hjá viðskipta- upphafi þings nú, og drög að framkvæmdaáætlun rfkisins skömmu siðar. Af þessu væri fengur við úrlausn efnahags- vandamálanna. Jón kvaðst ekki geta fullyrt, hvenær nefndin skilaði niðurstöðum, en það verður að minnsta kosti að vera timanlega fyrir áramót. —HH manni, sem búinn er að vera sim- notandi áratugum saman er sömuleiðis okurgjald, sem þekk- ist hvergi i neinu hinna v^strænu rikja, sem við þekkjum til. Það skal tekið fram, að þetta eru lög- fest gjöld, en spurningin er einungis um það hve óréttlát þau eru og fjarri öllum venjulegum viðskiptamáta. Afsláttur mætti, að skaðlausu fyrir Bæjarsimann, koma til af öðru gjaldanna, flutningsgjaldinu eða afnotagjaldi fyrir sima, sem er lagður til geymslu i nokkra mánuði vegna flutnings i hús- næði, sem beðið er eftir, t.d. vegna breytinga. Hvernig er það annars með af- slátt afnotagjalda starfsfólks Bæjarsimans, og hvernig er hann tilkominn? Eða er afsláttur gefinn fleiri starfshópum i þjón- ustu hins opinbera? Eiga hinir almennu simnotendur að greiða afnotagjöld fyrir starfsfólk Bæjarsimans? Þetta er hliðstætt þvi, að starfsfólk rikisbankanna fengi t.d. hærri vexti af almenrr um bankabókum en almenningur, en það tiðkast auðvitað ekki. Það er ekki furða, þótt ýmsar Rikis- stofnanir þurfi að hækka verð á þjónustu sinni, ef starfsfólkið, sem oft skiftir tugum getur notið ókeypis þjónustu á ákveðnum liðum þeirra. Það heyrist litið um slikar ivilnanir þegar starfshópar hins opinbera gera kröfur um hærra kaup. Rökstuddar skýringar óskast sem fyrst frá viðkomandi aðilum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.