Vísir - 25.09.1972, Qupperneq 20
vísm
Mánudagur 25. september 1972.
Aðsókn aldrei jafn
góð ó bílasýningar!
'73 árgerðirnar
drógu að sér
f jölda gesta
Svo virftist scm aldrei hafi verið
jaln góð aðsókn að bilasýningum
cins og nú um hclgina. 4 bila-
sýningar voru, þar sem sýnd var
árgcrð ’7:i af Volvo og Volkswag-
en. og svo voru sýningar á Datsun
og Mazda af sömu árgerð.
Hjá Volkswagen fengum við
þær upplýsingar, að mjög góð að-
sókn hafi verið, og rúmlega 3.000
manns hafi séð sýninguna.
Övenjulega margar pantanir
komu á sjálfri sýningunni, en
yfirleitt koma þær ekki fyrr en
eftir á. Pantanir voru 13, og virt-
ist fólk taka bilunum mjög vel.
Hjá Volvo var aðsókn mjög góö
og var okkur tjáð að hún hefði
aldrei verið betri. Lauslega
reiknað er búizt við að á milli 7 og
10.000 manns hafi séð sýninguna
og komu 10-12 pantanir, en yfir-
leitt koma pantanir ekki fyrr en
eftir að fóík hefur séð sýningarn-
ar, eins og áður segir. Aðsókn var
einnig mjög góð á laugardag,
þrátt fyrir slæmt veður.
Hjá Datsun og Mazda biíreið-
unum var aðsókn einnig góð, en
svipaöar sýningar hafa verið nú
að undanförnu á þeim bifreiöa-
tegundum. 250 manns sáu
sýningu Datsun bifreiðanna, og
um 6 bilar seldust. Aðsókn var
betri en búizt var við, en á Mazda
bifreiðum var sölusýning, eins og
verið hefur á laugardögum að
undanförnu.
— EA
Með bilaða
vél á Faxaflóa
Vélbáturinn Guðrún SH-32
scndi frá sér hjálparbeiðni um kl.
I aðfaranótt sunnudags, en þá var
bálurinn staddur á Paxaflóa meö
bilaða vél.
SVKl sendi beiðni til skipa, sem
stödd voru á Faxaflóa um að fara
bátnum lil aöstoöar, og um kl. 4
uin nóttina var flutningaskipið
Vestri BAliSsem var á siglingu 1G
mllur suður af Malarrifi, koininn
meö vélbátinn i tog.
Iléldu skipin til Akraness, þar
sem þau komu i höfn heilu og
höldnu kl. 10.30 i gærmorgun. —
GP
„HEF ALDREI BOÐIÐ
KVÓTAKERFI í AFLA"
Ólafur Jóhannesson neitar að hafa rœtt við Observer
„Detta er rangt. Ég hcf ekki
talað við ncinn blaðamann frá
brez.ka blaðinu Obscrvcr. Ég
hcf ekki i viðtali við ncinn er-
lcndan blaðamann gcfið i skyn,
að samningar byggðir á kvóta-
kerfi eða ákvcðnu aflamagni
við island kæmu til greina.
l>vert á móti hef ég jafnan tekið
fram, að samningar yrðu að
taka til tiltekins skipafjölda á
tilgreindum veiðisvæðum um
ákveðinn tima árs. Aflamagn
yrði siðan að ráðast eftir þvi
hver aflinn yrði á þessum
svæðum og með þessum hætti.”
Þetta sagði Ólafur Jóhannes-
son forsætisráðherra í viðtali
við blaðið i morgun. Hann bar
bannie til baka viðtal, sem
Observer kveðst hafa átt við
hann, þar sem eftir honum átti
að vera haft, að hann byði
Bretum að afla „75% af þeim
afla er þeir hlutu á íslands-
miðum i fyrra”.
Ólafur sagðist harma að
fréttastofur útvarps hefðu „ekki
haft svo mikið við” að bera
undir sig ummæli sem eftir sér
væru höfð.
Ólafur sagði. að engar breyt-
ingar væru i aðsigi i störfum
landhelgisgæzlunnar. Skorið
yrði á togvira erlendra togara,
ef þeir hlýddu ekki fyrirmælum
og aðvörunum landhelgis-
gæzlunnar. Að þvi gæti komið að
togarar yrðu teknir ef þeir
hlýddu ekki,
HH
Sterkasti maður í heimi?
Brauzt út úr „mannheldum" fangaklefa
„Það voru ferleg um-
brot, þegar maðurinn
var að brjótast út úr
fangaklefanum. Menn
urðu varir við það alla
leiðyfiri hinn endann á
húsinu, sem nötraði,”
sagði fréttaritari Visis i
Keflavik. Iiann var við-
staddur, þegar Reynir
Leósson brauzt út úr
rammbyggðasta fanga-
klefa hérlendis i lög-
reglustöðinni á Kefla-
vikurflugvelli á laugar-
daginn.
„Hann gekk alveg berserks-
gang, þegar hann var að brjóta af
sér þrenn fótjárn og þrenn hand-
járn, svo að ekki sé nú talað um
keðjurnar, sem hann var vafinn i.
Stunurnar, sem íylgdu átökunum,
bárust út i gegnum þykka klefa-
veggina,” sagði fréttaritarinn.
Reynir Leósson lét til skarar
skriða á laugardaginn við eitt
helzta at'riði kvikmyndarinnar,
„Sterkasti maður i heimi”, sem
Vilhjálmur Knudsen hefur unnið
að.
Hann þurfti að fá leyfi hjá
dómsmálaráðherra, áður en hann
fengi að ganga á klefann og stór-
skemma hann i hamaganginum.
„Ég fékk leyfið með þvi skil-
yrði að ég borgaði skemmdirn-
ar,” sagði Iteynir, sem elur með
sér þá von, að verða aldrei rukk-
aður um kostnaðinn af þvi að
sýna framá, að „mannheldur
klefinn” var ekki mannheldur.
Það tók þrjá lögreglumenn
klukkustund og stundarfjórðung
betur að fjötra Reyni. Fyrst með
þrennum járnum bæði á höndum
og fótum og svo vefja hann sver-
um keðjum frá hálsi og niður á
fætur.
En það tók Reyni ekki nema tvo
tima að brjóta þessa fjötra af sér
inni i læstum fangaklefanum. Þá
tók hann sér smáhvild, áður en
hann réðist i að brjótast út.
Arnbjörn Ólafsson læknir, sem
skoðaði Reyni, bæði áður en hann
var f jötraður og eins eftir að hann
var kominn úr hlekkjunum sagð-
ist ekki hafa fundið neitt athuga-
vert við Reyni. — „Nema ef vera
skyldi, að blóðþrýstingurinn er
iviö lægri hjá honum heldur en
eðlilegt er talið.”
Seinni hluti þrautarinnar tók
lengri tima hjá Reyni heldur en
sá fyrri. Fyrst réöst hann á
hliðarvegg klefans með keðjurn-
ar að vopni og hafði myndað
heljarsprungur i vegginn, þegar
hann sá sig um hönd. Hann reyndi
einnig við að brjótast út meö dyr-
unum, og hafði veggurinn hjá
dyrakarminum látið mikið á sjá,
þegar hann hætti við þar.
Hann fór aö hugsa um kostnað-
inn af viðgerðinni, og valdi þá
þann vegginn, sem hann hélt að
auðveldast væri að gera við, út-
vegginn með glugganum. Þar
braut hann úr glugganum skot-
helt glerið, en með þvi að
glugginn var alltof þröngur til
þess að hann gæti skriðið út um
hann, þá braut hann einnig úr
karminum og vikkaði út glugga-
opið. Þá var klukkan orðin um
átta að kvöldi dags.
Reynir kvartaði undan þvi, að
súrefnisskortur hefði gert sér
erfiðara fyrir. „Ég þarf svo
óhemju mikið súrefni við þetta,”
sagði hann.
Hann sagðist ætla norður til
Akureyrar, til þess að jafna sig
eftir átökin. „Þar finn ég, að mér
liður mjög vel, og mér finnst sem
mér aukist þróttur, þegar ég er
þar,” sagði Reynir.
Einhverntima á næstunni ætlar
hann að reyna við enn eina þraut
vegna myndatökunnar, og liggur
hún i þvi, að hann ætlar að taka
heilan hest upp á bakið og bera
um götur Keflavikur. — GP
Hér er Reynir aðbrjóta sér leiðina út úr fangaklefanum, gegnum
gluggann, sem á að halda manni mjög örugglega. (Ljósmynd
Visis EMM)
Jónas og Einar til söngvahátíðar í Tokyo:
„LÍTIÐ 0G LJÚFT LAG EFTIR EINAR"
VALIÐ ÚR LIÐLEGA ÞÚSUND TÓNVERKUM
„Þetta er bara litið og ljúft
lag, sem liann Einar liefur sam-
ið. Lag sem við liölöúm gert okk
ur vonir um að koma á plötu viö
tækifæri, en aö það ætti cftir að
spjara sig svona vel það höfðum
við ekki látiö okkur dreyma um.
Þannig komst Jónas R. Jóns-
son að orði, er Visir leitaði hjá
honum upplýsinga um lag það,
sem hann ásamt Einari Vilberg
mun fara með til þátttöku i al-
þjóðlegri söngvahátið I Tokyo i
næsta mánuöi.
„World Popular Song Festi-
val” er heiti keppninnar, sem
Yamaha stofnunin um tónlistar-
kennslu gengst fyrir, ásamt ut-
anrikis- og menntamálaráðu-
neyti Japan.
Þetta er i þriðja sinn, sem há-
tiðin er haldin. Fyrsta árið
sendu tónlistarmenn frá 45 lönd-
um samtals 541 tónverk i undan-
keppnina, i fyrra bárust 754
verk frá 54 löndum og nú fyrir
þessa keppni bárust liðlega eitt
þúsund tónverk.
Lag Einars heitir „When I
Look At All Those Things” og
hefur aldrei verið flutt opinber-
lega áður. Við flutning þess
Tokyonjóta þeir Jónas og Einar
aðstoðar 64 manna hljómsveitar
og sjö manna kórs. Halda þeir
félagar utan 13. næsta mánaðar
til æfinga, en keppnjn sjálf fer
fram dagana 17. til 19. i Budo-
kan-tónlistarhöllinni, sem rúm-
ar 10.000 áheyrendur.
Verður tónlistarhátiðinni
sjónvarpað um Japan og ná-
grannalöndin, og að keppninni
lokinni verður gefin út hljóm-
plata með 28 efstu lögunum i
keppninni, sem seld verður um
allan heim. Hljómplatan frá sið-
ustu keppni seldist i milljónum
eintaka.
Þátttakendur i úrslitakeppn-
inni, sem Jónas og Einar halda
nú til, eru i kringum 40 talsins,
en úr hópi þeirra verða valdir
beztu flytjendurnir, beztu laga-
smiðirnir og svo verður að sjálf-
sögðu valið bezta lagið i keppn-
inni. Og verðlaunin eru ekkert
slor, þau hæstu eru rúmlega
kvart milljón islenzkra króna.
Svo óneitanlega er til mikils að
vinna hvað það snertir, auk þess
sem tónlistarhátiðir af þessu
tagi eru hin bezta kynning fyrir
skemmtikrafta.
—ÞJM