Vísir


Vísir - 09.10.1972, Qupperneq 1

Vísir - 09.10.1972, Qupperneq 1
NORÐURLANDAMET ÍSLENDINGS Gústav Agnarsson, tvitugur menntaskólanemi, setti á laugardag nýtt Noröurlandamet unglinga i lyftingum i þungavigt — og setti einnig islandsmet — lyfti samtais HOO kg. i tviþraut. Vestmannaeyingar, Keflvik- ingar, Valsmenn og FH-ingar leika i undanúrslitum Bikar- keppni KSÍ eftir sigra i bikar- leikjum helgarinnar. Reykja- víkurmeistarar Vals i handbolta áttu i erfiðleikum I gærkvöldi og i ensku knattspyrnunni var Aian Ball rekinn af velli. Sjá iþróttir bls. 11, 12, 13, og 14. 02. árg. — Mánudagur 9. október 1972. — 230. tbl. Islendingar á hœlum á enskum Þrátt fyrir heldur erfiðan róður i siöustu umferðunum á Oly mpiuskákmótinu i Skopje er islenzka sveitin þó alveg á hælum efstu sveitar- innar i 2.riðli. England er með 27.5 vinninga og bið- skák, en ísland hefur 26.5 vinninga og tvær biðskákir og i 3ja sæti er Kanada meö 26 vinninga. t níundu umferð tapaði island fyrir Kanada, gerði jafntefli við Filipseyjar i þeirri tiundu, en stendur höllum fæti gegn Noregi i 11. umferð, sem tefld var I gær- kvöldi. —Sjá nánar iþróttir i opnu. Hinn sameiginlegi óvinur Bandaríkja- manna og Rússa Rússar og Bandarikjamenn eru hinar kuldalegu and- stæður á jarðarkringlunni okkar. Þeir eru óvinir, strið- andi aðilar, sem eiga sér þó ■ sameiginlegan óvin, sem hugsanlega gæti orðið til þess að sameina þessi tvö stórveldi til átaka gegn óvin- inum. — Sjá bls. 6. Vandrœðaforeldrar eðavandrœðabörn? Lögreglustjórinn i C'amden County i New Jersey i Bandarikjunum hefur kunnuglegt nafn, Joe Walcott, en hann var fyrrum heimsmeistari i þungavigt. Ilann hefur ýmsar athyglis- verðar skoðanir á vanda- málunum sem fyrir hann eru lögð daglega. Eru börn sem lenda upp á kant við lögin vandræðabörn, — eða eiga þau bara vandræðaforeldra? — Sjá bls. 17. Barnið þrasar — Mamma, má ég fara i strigaskóna? — Nei, farðu heldur i stig- vélin, þvi það rignir svo mikið. — Ég vil ekki fara i þessi ljótu stigvél.. Hver kannast ekki við það, þegar börnin taka upp á þvi að þrasa við foreldrana. Og hvað hafa sérfræðingar svo um þetta „þras" að segjá. — Sjá INN-siðuna á bls. 9. Tíu ára og tók forystuna Það er talsvert útbreidd skoðun hér á landi að enginn komist áfram i viðskiptum nema með þvi að niða aðra, niður, pota sér áfram með braski og svindli. En þetta þarf alls ekki að vera svona og er svona sjaldnast. Fyrir tiu árum stofnuðu tveir félagar með sér samtök um að opna búð. í dag er búðin þcirra flutt úr „koti i höll” og er sú stærsta á íslandi i sinni grein — Sjá bls. 2. Lusitania flutti vopn — segir brezkur höfundur um mesta sjóskaðann SJA BLS5 — dauðaleit gerð að ungum manni, sem Kvarf frá félögum við björgunarœfingar Olafur Valur Sigurðsson, stýrimaður á þyrlu landhelgisgæzlunnar er hér að ráðfæra sig við Tryggva Pál Friðriksson, formann hjálpar- sveitar skáta (Ljósm. Visis BG) treysti Sighvatur sér ekki áfram yfir fjallið. Hann snéri heldur við, og fékk vanan mann meö sér að fylgja sér niður af f jallinu. En á einum stað á leiðinni var full glæfralegt yfirferðar loft- hræddum manni, og treysti Sig- hvatur sér alls ekki framaf. Sá þá fylgdarmaður hans ekki annáð ráð vænna, en fara sjálfur niður og sækja félagana, sem þar biðu, til að aðstoða. Skildu þeir þar á brúninni, en er hinn hafði náð I hjálpina, og hún kom upp á fjallsbrún aftur, var Sighvatur hvergi sjáanlegur, hvert sem litið var. Þegar stundarlöng leit bar ekki árangur, var neyðarkall sent út til annarra meðlima sveitar- innar. t gærkvöldi var svo hafin af fullum krafti skipulögð neyðar- leit og i alla nótt gengu skátar um Esju að leita Sighvatar. Þrátt fyrir aðstoð sporhunds virtist leitin engan árangur ætla að bera, og hafði liðsauki verið kvaddur til i morgun, þegar menn loks komu auga á hinn týnda uppi i fjallinu um kl. hálfellefu i morgun. —GP Hundrað manna leitar- sveitir skáta og björgunar- sveitir hafa leitað frá því i gærkvöldi 29 ára gamals manns, Sighvats Birgis Emilssonar, semtýndist uppi á Esju síðdegis i gær. En rétt um kl. hálfellefu i morgun fannst maðurinn heillá húfi, staddurefstupp á Esju á stað, sem nefndur er Þverfellshorn. Sáu þá leitarmenn til hans úr fjarska, og gáfú honum merki með blysum. Héldu þeir siðan upp til þess að sækja hann. Voru þeir ekki komnir niður af fjallinu , þegar blaðið fór i prentun. Þegar Hjálparsveit skáta fór i æfingarferð upp á Esju i gær var Sighvatur með i ferðinni sem byrjandi og viðvaningur, en honum lék hugur á þvi að slást i lið með hjálparsveitinni. En gangan upp á Esju var erfið óvönum manni, og þegar skáta- flokkurinn var kominn upp á fjall, VAR HEILL A HUFI EFTIR KALDSAMA NÓTT Á ESJU BÖRN MEÐ HRÍFUR í MILLJONA KRÓNA LAGFÆRINGUM VIÐ BREIÐHOLTSBLOKKIRNAR — Sjó frétt um skaðabótamól gegn Framkvœmdanefnd byggingaócetlunar Ófullkomin bilastæöi, eld- gildrur, hriplek húsþök, sigin parketgólf, móðugler og fjöldi sprunginna ofna. Alla þessa galla hafa ibúar fimm Fram- kvæmdanefndarblokka gert árangurslausar eða-litlar til- raunir til að fá bætta. Nú eru bráðum liðin fjögur ár frá þvi flutt var inn i fyrstu blokkirnar og allur kröfuréttur ibúanna að fvrnast, en ibúarnir hafa verið hunzaðir við beiðni um fund með Félagsmálaráði i marga mánuði. Þolinmæðin er þvi að verða á þrotum og í blaðinu i dag skýra þeir einn þátt kröfu- máls sins, lóðarmálin, en mat opinberra aðila leiðir i Ijós, að enn á eftir að kosta nokkrum milljónum til framkvæmda áður en Framkvæmdanefndin geti talizt hafa lokið að fullu þeim frágangi, sem henni ber sainkvæmt afsali. - BLS. 3 Skemmdarverk í Sundlaugum Einhverjir sund- laugavandalar óðu uppi um helgina og gerðu mikinn usla i Sundlaugunum i Laugardalnum og i Sundlaug Vesturbæjar. Hvort heldur hér var um að ræða mann eða menn i peningaleit, — eða svona heita anti- trimmara, var ekki vit- að i morgun. Enginn hafði verið handtekinn vegna innbrotanna. En á innbrotsstöðunum var ótrúlegt um að lit- aSt—SJÁ BAKSÍÐUNA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.