Vísir - 09.10.1972, Qupperneq 13
\
Knötturinn i marki Vals — en mark var ekki dæmt vegna rangs innkasts löngu áöur. Ljósmynd BB
Valsmenn „flióta"
undanúrslit í Eyjum
var notaður til að dœma jöfnunarmark af þeim
innkastið hafði boltinn gengið tals- undanúrslitin að þessu sinni.
vert á milli manna eða þar til Teitur Satt að segja verður það að teljast
Þórðarson skoraði laglegt mark. Úr lélegt að sjá ekki góða knattspyrnu um
þvi dómarinn hafði ekki tekið eftir þetta leyti árs, þegar lið eiga með
veikburða tilburðum linuvarðarins réttu að vera i sinni beztu æfingu.
strax virtist „brotið” sannarlega Skilyrðiigærvorumeðágætum, veður
fyrnt. gott og völlurinn prýðilegur. Sagt er að
En þetta nægði. Skagamenn áttu liðin séu mörg hætt æfingum að mestu
sæmilegar tilraunir til að jafna, eða jafnvel öllu fyrir mánuði siðan.
einkum var Teitur Þórðarson drjúgur Getur þetta verið sanngjarnt gagnvart
og átti lofsverð skot, sem dugðu þó hinum tryggu áhorfendum, sem enn
ekki til að skila Skagamönnum i horfa á knattspyrnu? — JBP—
undanúrslitum gegn Vest-
mannaeyingum i Eyjum.
Verða þeir létt bráð fyrir
Eyjaskeggja, ef ekki verður
tekið betur á en verið hefur að
undanförnu, þarsem liðin hafa
„flotið i gegn" á hreint
óskiljaniegan hátt. „Þreyta",
emja leikmenn liðanna. „En
eftir hvað eru menn svona
þreyttir", spyrja áhorfendur,
sem geta ómögulega séð neina
ástæðu til þreytu hjá liðunum.
Reyndar geta Valsmenn aðallega
þakkað þeim Hermanni Gunnarssyni,
sem aftur er með liðinu eftir meiðsli,
Þóri Jónssyni og Jóhannesi Eðvalds-
syni fyrir sigurinn. Hermann er
stöðugt hættulegur leikmaður, og þeir
eru ekki margir leikirnir, sem hann
skorar ekki i eitt eða fleiri mörk, eða
ógnar þá verulega
Hermann skoraði fyrsta mark leiks
ins gegn Akranesi nokkuð snemma i
leiknum eftir allgóða sókn Valsmanna.
Það verður þó að telja liðunum til
hróss frá fyrri leikjum, þegar Vals-
menn og Skagamenn unnu heppnis-
sigra gegn 2. deildarliðunum Þrótti og
Teitur Þórðarson var sókndjarfastur leikmanna Akraness. Hér sækir hann að
Sigurði Dagssyni, sem slegið hefur knöttinn frá marki. Ljósm. BB.
íslenzka skáksveitin á
Olympiumótinu hefur
ekki beint verið sigursæl
í siðustu umferðunum i
Skopje, en er þó alveg á
liælum efstu sveitar-
innar, i öðrum riðli,
Ivnglands, eftir ellefu
umferðir. England er
með 27.5 vinninga og
biðskák, island er með
2(».5 og tvær biðskákir,
sem ekki standa vel,
Kanada er i 3ja sæti
með 2(1 og biðskák og
siðan kemur ísrael með
25 vinninga og biðskák
og einn leik ótefldan —
við Albani.
I gærkvöldi tefldi Island við
Noreg og lauk tveimur skákum.
Jón Kristjánsson vann Wibe og
hefur hlotið 10.5 vinninga i 15
skákum og er við aö hljóta alþjóð-
legan meistaratitil út á frammi-
stöðu sina. Hins vegar tapaði
Jónas Þorvaldsson fyrir Svein
Johannesen, en tvær skákir fóru i
bið. Þetta var 11. umferðin. 1
niundu umferð tapaði Island fyrir
Kanada 1.5-2.5, og i þeirri tiundu
gerði sveitin jafntefli viö Filips-
12
Línuvörður
mœtti
ekki,
áhorfendur biðu í 30
mínútur eftir leiknum
Flinhver óánægja og
kergja virðist vera yfir
dómaraliðinu okkar þessa
dagana. Raddir eru uppi um
óánægju vegna skipan al-
þjóðadómaramálanna og
cinhvers annars. Hvað um
það, i gær mætti einn af
þessum hofðingjum ekki til
leiks Vals og Skaga-
manna á Melavellinum.
Guðmundur Sigurbjörns-
son átti að vera linuvörður i
lciknum, — en mætli ekki,
hver sem ástæðan nú annars
var. Bardúsið við að leita að
nýjum linuverði ásamt þvi
að útvega honum réttan bún-
ing, varð þess valdandi að
áhorfendur urðu að biða I 2(1
minútur eftir að leikur
hæfist.
Svona framkoma er vita-
skuld óafsakanleg með öllu
og sc það rctt að linuvörður
þcssi hafi áður gcrzt sekur
um að mæta ekki til bnðaðs
lciks — þá væri rétt að gefa
lionum fri. Að sögn Jóns
Magnússnnar, formanns
mótanefndar hafði afboðun
ekki boriz.t frá linuvcrðinum.
—.1BP—
VÍSIR. Mánudagur 9. október 1972.
VÍSIR. Mánudagur 9. október 1972.
iQrTlUcluxdJ
Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer
FÁST HJÁ OKKUR
Fatnaóur á alla fjölskylduna.
Vörurnar, sem eru þekktar og rómaöar
um víöa veröld.
Framleiddar undir strangasta gæóaeftirliti.
AUSTURSTRÆTI
w Olympíuskákmótið í Skopje
Island á hœlum
enskra í 2. riðli
Sovétríkin hafa orðið góða forustu i 1. riðli
Gústav Agnarsson, hinn
tvitugi menntaskölanemi,
setti é laugardag nýtt
Noröurlandamet unglinga í
tviþraut i þungavigt. Hann
náöi mjög athyglisverðum
árangri —samtals 300 kg.
í snörun lyfti hann 132.5 kg.,
sem er nýtt Islandsmet, en
sjálfur átti hann eldra metið 127.5
kg og er það til dæmis mun betra
en óskar Sigurpálsson hefur náð.
1 jafnhendingu lyfti Gústaf 167.5
kg. og þvi samtals 300 kg, og ekki
var vitað i gær, að betri árangur
hafi náðst i unglingaflokki á
Norðurlöndum, en staöfesting á
þvi mun fást frá sænska lyftinga-
sambandinu i dag.
Þessi árangur Gústavs er enn
athyglisverðari fyrir þá sök, að
keppnin fór fram i KR-húsinu við
afar lélegar aðstæður. Gústaf
hefði þarna náð milli 470-480 kg. i
þriþraut, en sem kunnugt er hefur
pressan veriö felld út.
Norðurlandamet
í þungavigtinni!
eyjar 2-2.1 biðskák, sem þar varð
i stöðunni 2-1 fyrir Filipseyjar,
vann Magnús Sólmundarson og
jafnaöi þar með stöðuna.
Miklar deilur hafa risið i sam-
bandi við þá ákvörðun Albana að
mæta ekki til leiks gegn tsrael á
dögunum og Israel var i fyrstu
dæmdur sigur i öllum skákunum.
Hins vegar mótmæltu aðrar
þjóðir i riðlinum þeim úrskurði
Málinu var skotiö til dr. Euwe,
aðaldómara mótsins, og ákvað
hann, að Albaniu skyldi vikið úr
keppninni. Þvi mótmæltu Albanir
og sögðu, að „tæknilegar
ástæöur” hefðu legið til grund-
vallar þvi, að sveit þeirra mætti
ekki gegn tsrael. Afrýjunarnefnd
mótsins tók rök þeirra til greina
og ákvað að nýr leikur skuli fara
frammilli Albaniuog tsrael hinn
13. október.
t gær tefldu tvær efstu
þjóðirnar i l.riðli saman, Sov-
étrikin og Júgóslavia. Smyslov
vann Ljubojevic á 1. borði, en Tal
og Matanovic gerðu jafntefli.
Tvær skákir fóru i bið. önnur
úrslit urðu þau, að Sviþjóð og Hol-
land hafa 1.5 vinninga hvor þjóð.
Pólland hefur 2 gegn 1 vinning
Sviss. Danmörk-Búlgaria 1.5-1.5,
Vestur-Þýzkaland-Bandarikin 2-
1, Spánn-Ungverjaland 0.5-2.5,
Argentina-Rúmenia 0.5-3.5.
Eftir 11 umferðir var staðan
þannig i 1. riðli. Sovétrikin 30
vinninga og 2 biðskákir. Ung-
verjaland 28.5 (1), Júgóslavia 27
(2), Rúmenia 25.5, Vestur-Þýzka-
land 24.5 (1), Tékkóslóvakia 23
(2), Búlgaria 22.5 (1), Holland 21
(1) , Spánn og Bandarikin 20.5 (1),
Pólland 19 (2) Austur-Þýzkaland
18 (3), Sviþjóð 18 (1), Argentina
17.5, Danmörk 15 (1), og Sviss 12
(2) .
t B-riðli urðu þessi úrslit i gær-
kvöldi. Mongólia-Filipseyjar 1-1,
Perú-Grikkland 2-2, Albania -
Kolombia 1.5-1.5, Belgia-Austur-
riki 0.5-2.5, Indónesia-Italia 2.5-
0.5. Kúba-lsrael 1.5-1.5, Kanada -
England 1.5.-1.5.
t tiundu umferð urðu úrslit
þessi i 1. riöli. Ungverjaland -
Bandarikin2.5-1.5, Sovétrikin-Dan-
mörk 3.5-0.5, Pólland-Sviþjóð 2-2,
Austur-Þýzkaland-Sviss 2-1 og ein
skák fór aftur i bið. Þá vann
Argentina Holland 2.5-1.5, og
Spánn vann Rúmeniu 2.5-1.5.
Það vakti athygli i þessari um-
ferð, að Hug, Sviss, vann
Uhlman, Austur-Þýzkalandi.
Vestur-Þýzkaland og Júgóslavia
gerðu jafntefli og þar vann
Hilbner Cligoric á 1. borði og
hefur Gligoric staðiö sig lakast
júgóslavnesku skákmannanna.
Hins vegar náði Matanovic jöfnu
meö þvi að sigra Hecht. Sovét-
rikin juku þá enn forskot sitt i
riðlinum. Eftir 4-0 sigur gegn
Sviss i 9. umferð unnu þeir svo
Dani með 3.5 vinningum i þeirri
tiundu. Loksins er nú kominn
skriður á sovézku skáksveitina á
sama tima og Júgóslavar hafa
gefið eftir.
t riðli 2 er okkur kunnugt um
þessi úrslit i 10. umferð. Filips-
eyjar-lsland 2-2, Kanada-Noregur
2.5-1.5, (Þar vann Yanofsky
Wibe), tsrael-Indónesia 3.5-0.5,
Austurríki-Albania 2-1 og ein skák
fór aftur i bið.
Eftir elleftu umferð i 3.riðli er
Astralia efst með 32 vinninga og i
riðli 4 er Frakkland efst með 34
vinninga. Færeyingar eru þar i
miðjum hóp með 21 vinning og
tvær biðskákir.
Þing Alþjóðaskáksambandsins
stendur nú yfir i Skopje og þar
hlaut Guðmundur Arnlaugsson i
gær viðurkenningu sem alþjóð-
legur dómari i skák.
KR-ingar léku illa af sér i
bikarleiknum viö ÍBK á laugar-
dag. Eftir að hafa verið betri
aðilinn i leiknum náöi KR marki
yfir, 2-1, i byrjun siöari hálfleiks
og þá lagðisi liðið I vörn og ætlaði
að reyna að halda þvi, sem náðst
hafði. En það brást illa. Keflvik-
ingar mögnuðust, þegar þeim
voru færð yfirtökin á miöjunni —
skoruðu þrjú slðustu mörkin i
leiknum og unnu verðskuldað 4-2 I
bráðskemmtilegum leik.
KR-ingar voru miklu ágengari
framan af og fengu nokkur góð
tækifæri áður en Atli Þór Héðins-
son, sem var mikill ógnvaldur
fyrir vörn IBK, skoraði fyrsta
markið á 19. min. Hann lék lag-
lega i gegn frá miöjum vallar-
helmingi tBK og renndi svo knett-
inum framhjá Þorsteini. En að-
eins min. siöar jafnaöi Steinar
Jóhannsson fyrir tBK. Litlu
munaði að KR næði aftur forustu,
þegar Sigmundur bakvörður átti
hörkuskot i þverslá af 30 metra
,færi. Staðan i hálfleik var 1-1 og
á 2. min i siðari hálfleiks tókst
Jóhanni Torfasyni, að ná forustu
fyrir KR, þegar hann skallaði i
mark fyrirgjöf Atla. Rétt á eftir
fékk Atli inn I vitateig tBK og
voru margir á þvi, aö þar hefði átt
að dæma vitaspyrnu, en svo var
ekki gert — og aftur voru Keflvik-
ingar heppnir, þegar Einar
Gunnarsson bjargaði á marklinu
á 16. min.
En eftir þetta fóru KR-ingar að
draga sig i vörn og þeir misstu þá
Jóhann útaf vegna meiösla, sem
var skaði fyrir liðið — en Friðrik
Ragnarsson kom inn hjá IBK og
voru það góð skipti, þvi hann
hleypti nýju lifi i framlinu IBK. A
23. min. jafnaði Jón Ólafur fyrir
IBK og eftir markiö náðu
Keflvikingar yfirhöndinni. Einar
Gunnarsson skoraði 3ja mark
liðsins eftir hornspyrnu á 27. min.
og ólafur Júliusson innsiglaöi
sigurinn með góðu marki á 41.
min. eftir sendingu Friöriks.
Fast var fylgt eftir. Jöhann Torfason hefur skoraö annaö mark KR
gegn Keflavik og hann hangir i þverslánni eftir afrekiö. Ljósmynd
Bjarnleifur.
LEIRTAU UNGA FOLKSINS
Sœnsk úrvalsvara
SERSTAKLEGA AFERÐAFALLEG MATAR
OG KAFFISTELL. ALLIR HLUTIR SELDIR 1
STYKKJATALI TIL AÐ SAFNA UPP 1 STELL.
TILVALDAR BRÚÐAR- OG TÆKIFÆRIS-
GJAFIR, SEM KOMA UNGA FÓLKINU VEL.
SENDUM í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT.
Sími
12527
GLERVORUR
Laugav. 22 - Hafnarst. 1 - Bankast. 11 - Reykjavík
Margir með
11 rétta!
Þegar starfsfólk getraun-
anna hafði farið yfir um helm
ing seðlanna laust fyrir
hádegi höfðu 10 seölar með
11 réttum fundizt og 51 með
10 réttum lausnum. Hins
yegar hafði þá enginn með
12 komið i Ijós eða verið til-
kynnt um tólf rétta.
Misheppnaður varnar-
leikur gaf ÍBK sigur