Vísir - 11.10.1972, Page 2

Vísir - 11.10.1972, Page 2
2 V’ÍSIK iVliftvikudagur 11. október 1972. vísmsm: líaí'ið þér lent i umferðaróhapþi? hif'imar Porstcinsson,sjómaöur. Nei, ég hef aldrei lent i neinu um- ferðaróhappi. Ég keyri sjálfur en hef alltaf sloppið. Kristinn llafliðason, vélstjóri. Ég keyri ekki sjálfur, svo að ég hef aldrei lent i umferðaróhappi. Ég hef heldur aldrei verið larþegi i bil, sem lent hefur i árekstri. Magmis Marinósson, málari. Ekki nýlega. Ég lenli einu sinni i árekstri á Grensásvegi. Pá lenti ég i árekstri við annan bil, en það var ekkert alvarlegt. Svó var keyrl altan á bilinn minn á Laugarvatni. Kctill l.cóson, ljósmyndari. Nei, jú, annars, ég lenli einu sinni i smá árekstri, en það var ekkert alvarlegt. l’áll Sæmundsson, verkamaður. Nei ég keyri ekki sjálfur og hef aldrei verið farþegi i bil sem lent hefur i árekstri. Ég hef verið heppinn og alltaf sloppið. Gunnar Daniclsson, verkamaður. Nei, ég keyri ekki sjálfur, og sem betur fer hef ég alveg sloppið við öll óhöpp. Skyldi afi þcssa unga pilts hafa vcrið fæddur, þegar hugmynd koin Iram um, að vinna það verk sem pilturinn stundar nú. SEINT KOMA SUM HÚS . . . Er þetta dœmigert fyrir hraða í opinberum húsbyggingum Arið 190« kom fram hugmynd um að reisa skvldi iþróttahús fyrir Kcnnaraskóla íslands. Sá scm á þetta minntist var þáver- andi skólastjóri skólans Magnús Hclgason. Sextiu og fimm árum siðar, cða i september árið 197:1, rætist draumur hins liðna skóla- stjóra. Á grunni þeim, sem þeir, er um Háteigsveginn leggja leið sina, sjá á milli Kennaraskólans og æfingadeildar hans, mun risa eitt glæsilegasta iþróttahús borgarinnar. Að visu mun ekki allt húsið verða tilbúið á næsta ári, þá verður enn ólokið sund- laug, sem verður undir sama þaki. Helgi og Vilhjálmur Hjálmarssynir arkitektar teiknuðu húsið. Lesendur JS hafa . á 15-25 km. hraða lenda ÞEIR ekki í óreksrum. . . Ilallsteinn prentari skrifar: „llafið þið á Visi reynt að kom- asl milli Hafnarf jarðar og Keykjavikur á sunnudögum? — Nei, ykkur liggur sjálfsagt meira á en svo. Pegar allir afarnir eru komnir með afabörnin i sunnudagatúr- inn, (þetta óþolandi fyrirbrigði, sem ætti að banna með lögum ) þá leggja þeir — sýnist mér — allir leið sina á Hafnarfjarðarveginn. Pað er eins og bandormur á að lita, bilalestin eftir Hafnarfjarð- arveginum á sunnudögum. Og allir aka þeir á 15-25 km hraða. Ó, þetta eru varkárir ökumenn! Pað vantar ekki. — Og ekki lenda þeir i árekstrum fyrir að aka of hratt. —■ Sei, sei, nei! Peir lita vel i kringum sig — aðallega til beggja hliða, en minna fram á veginn og ALDREI aftur fyrir sig. Peir myndu heldur ekki sjá mikið merkilegt fyrir aft- an sig, nema ef vera skyldi 30-40 bila lest. Nei, það eru ekki þeir, sem lenda i árekstrum. — Það eru þessi ungu fifl og glannar, sem sifellt þurfa að þeytast fram úr öllum öðrum. Pað eru þeir sem lenda i árekstr- um fyrir bragðið, þegar þeir rembast við hættulegan Iramúrakstur við tvisýnar að stæður. Og hvað kemur það þessum sunnudagaökumönnum við? llvað varðar þá um það, þótt aðr- ir hafi öðrum hnöppum að hneppa en dúlla á veginum, og mega ekki við þvi, að láta timann liða við PRIGGJA STUNDARFJÓRÐ- UNGA akstur á leiðinni úr og i vinnu? Já, ég sagði þrjú kortér. Maður kemst ekki á milli Reykjavikur og Hafnarfjarðar á skemmri tima á sunnudögum. Nema lögreglan fari að láta sjá sig þarna á þeim dögum og GERI EITTHVAÐ!” Blikkbeljur á gangstéttum Kjölskyldufaðir einn i Breiðholts- liverfi hafði samband við þáttinn i gær: ,,Ég brá mér út i góða veðrið á sunnudaginn með krakkana, og fór að reyna nýju göngubrautirn- ar hérna i Bakka-hverfinu, hérna rétt hjá skólanum og inn á milli blokkanna. En dettur nokkrum i hug að maður sé óhultur fyrir blikkbeljunni á þessum nýju og finu gangstéttum? Ó, ekki. Ég var ekki langt kominn. þegar á móti okkur kemur fjölskylda i sunnudagskeyrslunni, — eftir miðjum gangstignum, sem ég hélt að væri. Pá mætum við öðr- um og loks kemur ungur töffi sem greinilega steig bensinið i botn, svo hratt fór hann þarna framhjá okkur, þar sem við stóðum við gangstéttina ,,okkar”. Ég vildi aö þetta kæmi fram, vegna þess að mér finnst eins og fleirum, að það sé vel gert og skemmtileg hugmynd að koma upp göngubrautum, þar sem hægt er að vera i friði fyrir fjárans ..blikkbeljunni". En hvar er það eiginlega hægt? Jafnvel úti i náttúrunni er það varla hægt, þvi um fjöll og firnindi æða jepparnir spólandi og spillandi umhverfinu. Ég vona bara að lokum að ráð- stafanir verði gerðar til að friða okkur, þessa sem enn ganga á báðum fótum, og að við fáum að ganga óáreittir um gangstigana okkar”. Símnotandinn segir: Okur — Bœjarsíminn segir: Ódýrt Bæjarsiminn i Reykjavik hefur sent þættiiuim svar við fyrirspurn frá ..gömlum simnotanda” um, hvers vegna krafizt væri fullra afnotagjalda af sima, sem lagður væri inn hjá Bæjarsimanum til geymslu, og hvi fiutningsgjaid væri haft svo hátt sem raun ber vitni. ,,Frá upphafi hafa simaafnota- gjöld — stofngjöld og flutnings- gjöld — verið byggð á svokölluðu jöfnunargjaldi. Þess vegna er simnotanda gert að greiða sama gjald i nýbýlahverfum borgarinn- ar, t.d, Breiðholti, sem innan Hringbrautar eða i gömlu hverfunum, þar sem simalagnir eru þegar til staðar. Má af þvi sjá augljósa kosti jöfnunargjaldsins, sem enda er hagnýtt i öbrum viðskiptagrein- um. Þegar skortur er á simanúmer- um i sjálfvirku stöðinni, er að sjálfsögðu ekki hægt að fella nið- ur afnotagjald af sima, þótt hann sé ónotaður. Væntanlegir simnot- endur sem beðið hafa eftir sim- um, mundu þá telja sig hafa rétt á að fá þann sima, fyrst hann væri laus. Ein af reglum Bæjarsimans, sem um getur i simaskránni, er lika sú.....Ef simi eða annar fjarskiptaútbúnaður, sem hefur verið tekinn á’ leigu, hefur staðið ónotaður i 6 mánuði eða lengur , er póst- og simamálastjórninni heimilt að taka hann til afnota fyrir aðra, jafnvel þótt leigutaki vilji greiða áfram afnotagjald af hinum ónotaða sima.....” ----Flutningsgjaldið er reikn að sem hálft afnotagjald eða 4000 krónur, og er ekki hægt að komast hjá sliku gjaldi, þegar tekið er tillit til þess, hve sima- flutningur til nýju hverfanna er tiður. Það má benda á, að kaupmátt- ur launa siðastl. 10 ár hefur vaxið mjög verulega miðað við sima- gjöldin. svo segja má, að sima- gjöldin hafi farið hlutfallslega lækkandi, þrátt fyrir fjárfrekar framkvæmdir i nýju hverfunum. Fjárfesting bæjarsimans fyrir árið 1972 nemur 140 milljónum króna. Enda kostar hvert númer i sjálfvirku stöðvunum með jarð- simalögn, húslögn og húsi, 80 til 90 þúsund krónur. Stofngjald af sima hér á landi er kr. 8000. 1 Danmörku, er það kr. 14.560. f Noregi er það kr. 13.290, og auk þess þarf simavið- takandinn að lána simamála- stjórninni aðrar 13.290 kr. til 8 ára með 5,5% vöxtum. — Svo að það er misskilningur hjá ,,göml- um simnotanda”, að þessi gjöld hjá okkur séu „meira okur” en þekkist i öðrum löndum.” . . . og svo giftust þau, úttu börn og runnu alveg í sama mótið . . . Jobbi skrifar: ,,Ég get ekki annað en hringt i dálkinn ykkar eftir að hafa horft á þennan blessaða leikþátt sem okkur var boðið upp á i sjónvarp- inu i gærkvöldi. Það er ekki orð- um aukið að sjónvarpsleikritin okkarséu frumstæð. Eða handrit- ið að þessu öllu saman, — frum- legt að taka þetta svokallaða „kynslóðabil” til meðferðar, eitt tilbúnu vandamálanna okkar. Mér fannst þetta svo hjákátlegt allt saman, svo fjarri lagi og óraunverulegt. Fyrir utan við- vaningsskapinn á öllu saman hjá leikurum og sjónvarpi. En vitið þið annars hvað varð um ung- mennin sem kútveltust niður brekkuna undir lokin? Jú, þau giftust, hann menntaðist ekkert og fór að vinna á Eyrinni. Þau áttu börn, og börnunum fannst „gömlu hjónin” afskaplega fúl og leið, sifellt blönk, skitug og skap- vond. Synirnir sóru þess dýran eið að verða lögfræðingar, tann- læknar og skurðlæknar, — og dæturnar að eignast oliumilla fyrir menn. En um þetta verður vist fjallað i næsta leikriti frá hendi sama höfundar, — og væntanlega mun sjónvarpsleik- ritagerðin okkar taka að sér, á sinn meistaralega hátt, að setja það verk á svið. Reyndar gæti það orðið islenzk Forsyth-saga, — þættirnir orðið milli 100 og 200 talsins, og seldir um öll lönd, — góð hugmynd, ha?” —

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.