Vísir - 11.10.1972, Qupperneq 12
12
VÍSIR Miðvikudagur 11. október 1972.
Tengdasonur Churchills
í mikla stððu
Tengdasonur Winston heilins Churchills, Christopher Soames
lávarður, er annar þeirra bóga, sem verða fulltrúar Breta hjá Efna-
hagsbandalagiuu.
Tíu fórust í hótelbruna
1 eldsvoða i Gráfinburg gistihúsinu I bænum Traben-Trarbach i V-
Pýzkalandi týndu tiu lifi og áttta brenndust illa.
Stúlkumyndin á
nóttborði Heath
Þessa mynd tók ljosmyndari Visis, B.G. þegar Heath hélt blaðamannafund i brezka sendiráðinu
fyrir nokkrum árum. Heath var þá hingað kominn þeirra erinda að sitja „pressu-ballið” sem
heiðursgestur.
Bók, sem er nýkomin
út i London, segir frá
einu stúlkunni, sem
virkilega hefur komið
við sögu i lifi Edward
Heaths forsætisráð-
herra. Hann mat stúlk-
una svo mikils, að hann
lét mynd af henni standa
á náttborðinu hjá sér i 13
ár, eftir að hann hafði
séð af henni i hendur
annars manns.
Söguna er að finna i bókinni
„Edward Heath: forstæisráð-
herra”, sem rituð er af Margréti
Laing. Stúlkan, sem um getur, er
Kay Raven, dóttir læknis í heima-
bæ Heaths, Broadstairs. Þau tvö,
Heath og Raven hittust fyrst árið
1930 þegar Heath var i höndum
föður hennar eftir slys.
Fundur þeirra hafði meiri áhrif
á lif Heath’s, en nokkurn hefur
grunað. Samband þeirra stóð yfir
i nær 20 ár. En skömmu eftir að
Heath var i fyrsta sinn kjörinn á
þing, sem var árið 1950, varð ann-
ar herramaður á vegi ungfrú
Raven og giftust þau ekki löngu
seinna. I þrettán ár frá þvi eða
þá er hinn stórbrotni stjórnmála-
maður var á leiðinni upp á topp-
inn, hafði hann mynd af Raven
sinni á náttborðinu.
1 bókinni varpar Laing fram
þeirri spurningu: hvers vegna
þau tvö hafi ekki gifzt? Samtimis
leiðir hún hugann að hugsanleg-
um svörum (sem kannski kemur
ekki svo á óvart, þár eð hún er
kvenmaður). Hún veltir þvi fyrir
sér hvort Heath hafi ekki raun-
verulega haft fullan hug á að
ganga að eiga Raven, en sjálfsör-
yggi hans verið slikt, að hann
teldi margra ára vinskap þeirra
á milli tryggja honum stúlkuna.
Karlmenn, sem veU hafa
þessari spurningu fyrir sér, hall-
ast hins vegar fremur að þeirri
hugmynd, að Heath hafi bara ein-
faldlega komizt að raun um, að
hann hvorki væri tilbúinn til að
giftast eða heföi áhuga i þá átt.
Hann hafi séð, aö hann gæti ekki
staðið sig i stykkinu sem fyrir-
myndar eiginmaður og þvi slitið
sambandi við stúlkuna.
Einn af helztu ráðgjöfum
Heath’s leggur bókinni orð i belg.
Fer hann þar orðum um viðhorf
forsætisráðherrans til kvenna: —
Það er stórkostlegt að sjá til ráð-
herrans þegar hann oft og iðulega
situr veizlur með dömur sitt til
hvorrar handar. Dömur sem hafa
ekki átt sér æðri ósk en þá, að fá
krækt i hann. En Heath aðeins
lygnir aftur augunum — og notar
svo fyrsta tækifærið til að komast
undan.
Ótal margar sögur eru til af
kvenhylli Heath’s engu siður en
annarra piparsveina — eins og
t.d. Trudeu og Henry Kissinger —•
en fæstir þeirra geta státað sig af
sömu „hófstillingu” i viðskiptum
við hitt kynið og Edward Heath.
Seldu tréspiritus sem
brennivin
Lögreglan i Stokkhólmi leitar
nú þriggja manna, sem um
siðustu helgi seldu tréspiritus
sem brennivin i Ballmora, sem er
skammt fyrir utan Stokkhólm.
Sex manns hafa verið lagðir inn á
sjúkrahús eftir að hafa drukkið
tréspiritusinn og eru tveir þeirra
enn i lifshættu.
Hefur lögreglan hafið umfangs-
mikla leit að bifreiðinni, sem
mennirnir þrir voru á þegar þeir
óku um götur Ballmora og seldu
tréspiritusinn.
Annar mannanna, sem verst
urðu úti eftir tréspiradrykkjuna
hefur misst sjónina. Hinn var enn
meðvitundarlaus þegar siðast
fréttist.
OTTO SIGVALDI
sá eljusami bókaútgefandi
hefur ekki i hyggju að draga
fram lifið án þess að fá nóg
smjör ofaná brauð sitt, eins og
danskt dagblað orðaði það,
þegar það skýrði frá þvi, að Is-
lendingurinn undarlegi væri
búinn að draga saman seglin og
selja helminginn af villu sinni i
Gentofte. Sambýlisfólk þeirra
Sigvaldahjóna eru kennarinn
Jens Bagger og uppeldis-
fræðingurinn Ulla Lehman.Þau
keyptu helming villunnar fyrir
sem svarar 2,3 milljónir isl.
króna. Sú upphæð hefur ábyggi-
lega ekki verið greidd fyrir
hreysi — og ber með sér að
Sigvaldi hefur búið betur en út-
gangurinn á honum hefur
kannski gefið til kynna.
Otto Sigvaldi ekur verzlun sinni
eftir Strikinu.
OG Nú á að fara að gera nýja
kvikmynd um Mafiuna. Sú á
að heita „The Godmother” og
verður aðalhlutverkið i hönd-
um brezku leikkonunnar
Hylda Baker.
JOHNNY SPEIGHT
tilkynnti siðastliðinn föstu-
dag, að hann væri hættur að
skrifa fyrir sjónvarp. Þættir
þessa grinista hafa um langt
skeið verið eitthvert vinsælasta
sjónvarpsefnið i Bretlandi.
Astæðan fyrir hinni skyndilegu
ákvörðun Johnnys er reiðialda,
sem dundi á honum eftir hug-
leiðingar hans um kynlif Mariu
Meyjar. Milljónir brezkra sjón-
varpsáhorfenda saup hveljur
yfir samræðum, sem fram fóru i
einum þátta hans um það, á
hvern hátt Kristur hafi verið
getinn og hvort Maria hafi ekki
mátt teljast mey eftirsem áður,
ef Guð hafi verið faðirinn. Þá
spunnust einnig um það um-
ræður i þættinum, hvort Maria
hafi ekki átt fleiri börn vegna
„pillu” töku.