Vísir - 21.10.1972, Blaðsíða 13

Vísir - 21.10.1972, Blaðsíða 13
Vlsir Laugardagur 21. október 1972 13 BURTON OG DELON í MYND UM TROTSKY Nei, þeir eru ekki tveir um að leika Trotsky I kvikmyndinni, sem lokið er að gera um ævi þess fyrrum nánasta samstarfsmanns Lenins. Richard Burton fer með hlutverk hans i myndinni, en það er aðeins vaxbrúða, sem situr á hnjám hans.... i vikulegum þætti brezka útvarpsins BBC, sem fjall- ar um leikhús og kvik- myndir, var i síðustu viku viðtal við leikstjóra kvik- myndarinnar um Trotsky, Joseph Losey, og einnig mátti heyra kafla úr mynd- inni þar sem Richard Burton fór með hlutverk Trotskys. Sagði Losey að sér hefði verið boðið handritið að kvikmyndinni fyrir þremur árum en ekki haft áhuga á þvi þá. Seinna hefði hug- myndinni skotið upp á ný, og hann farið að hugsa málið af alvöru. Þegar gerð myndarinnar fór að mótast i huga hans, hefði honum strax dottið Alain Deioni hug sem morðinginn og Burton i gervi Trotskys. t myndinni er aðallega fjallað um sjálft morðið á Trotsky og at- burðirnir, sem leiddu til þess að hann var ráðinn af dögum, eru raktir. Sagði Losey að hann hefði reynt eins og hægt var að fylgja sögu- legum staðreyndum, með þvi að skoða bréfaskipti Trotskys skömmu fyrir morðið og annað sem sagnfræðingum hafi tekizt að grafa upp um það. Lev Davidovich Trotsky var á sinum tima einn nánasti sam- starfsmaður Lenins og ritstýrði þekktasta blaði byltingarmanna ISKRA (Neistanum). Seinna varð hann utanrikisráðherra bylting- arstjórnarinnar. Eftir lát Lenins fór að halla undan fæti fyrir honum og Stalin. Zinoviev og fleiri réðust harðlega gegn honum. Hann missti stöðu sina sem varnarmálaráðherra og svo kom að lokum, að hann var rekinn úr flokknum fyrir and- flokkslega starfsemi. í janúar 1928 var hann rekinn úr landi. Eftir það bjó hann i Tyrk- landi, Noregi 1936 og til Mexico fór hann i janúar 1939. Hann var ráðinn af dögum 20. ágúst i húsi sinu i útjaðri Mecico- borgar, af „vini” sem talinn var útsendari stalinista. LÍKUR SÆKIR LÍKAN HEIM....... Maður einn sótti um starf hjá dýragarðinum, en fékk þau svör, að hans væri ekki þörf þá stundina. Hann var aftur á móti beðinn um að koma aftur vikuna eftir —- en þá fékk hann sömu svör. I þann mund, að hann var að hafa sig á brott kom forstjórinn á harðaspretti og kvartaði undan þvi, að görilla dýragarðsins hefði dáið rétt i þessu. — Og þar sem garðurinn opnar eftir aðeins tiu minútur, eru góð ráð dýr. Skyndilega flaug honum sú hugmynd i hug, að sá er þarna var staddur i aivinnuleit brygði sér einfaldlega i ham górillunnar og yrði lokaður inni i apabúrinu. Maðurinn gekk að þessu, og honum var umsvifalaust brugðið i górillu-gerfið og hann læstur inni i búrinu. Fljótlega fór fólk að tinast inn i garðinn og vakti þá górilluapinn einna mestu athyglina fyrir sakir ólátanna og óhljóðanna, sem hann lagði sig allan fram um aö gera sem eðlilegust. Svo mikill var bægslagangurinn að skyndilega féll hann niöur úr gólfinu — og i ljónabúrið. Vitstola af hræðslu byrjaði manntetrið að hrópa á hjálp þegar ljóniö ýfði makkann og æddi af stað i áttina til hans. Maðurinn hélt að ævi hans væri öll. þegar ljónið hvislaði allt i einu að honum: — Góði bezti, þegiðu. Annars verðum við báðir reknir! Auglýsing: Páfagaukur til sölu strax — sökum þess að ég er orðinn leiður á að rifast við hann um fjárlaga- frumvarpið og skattana.... ÖKUÞÓRINN BRESJNEV! Fremsti maður Sovétrikjanna, Leonid Bresjnev, sem nú er orðinn 65 ára gamall, er hinn mesti ökuþór. Hann liefur sex bifreiðar i takinu: svartan Rolls- Royce, Kádilják, Citroén og þrjár tegundir rússneskra bif- reiða. Lconid Bresjnev á veiðum i Ung- verjalandi. Þegar hann situr sjálfur undir stýri er hann i essinu sinu — og hann hefur yndi af þvi að aka hratt. „Þegar ég geysist eftir vegunum fyllist ég sjálfsöryggi,” segir Bresjnev. „Og þvi hraðar sem ég ek, þeim mun öruggari verð ég með sjálfan mig.” Bresjnev fer oftlega I langar veiðiferðir. Og ökuferðanna til veiðisvæðanna nýtur hann engu minna en sjálfra veiðanna. Annars eru það helzt villisvin og hreindýr sem hann eltist við. I Moskvu ekur Bresjnev aldrei sjálfur, það gerir einkabilstjóri hans. Einkabilstjóri Bresjnev er sami ökuþórinn og hann, og knýr öku- tækið ætið vel áfram á leiðinni með hann til Kreml. Slik er keyrslan á þeim þá, að yfirvöldin hafa bannað alla keyrslu inn á leið þeirra frá hægri á þeim tim- um, sem þeir eru á ferðinni Kádiljákur Bresjnevs er gjöf frá Nixon, Citroénbifreiðina færði Pompidou honum að gjöf, en enginn veit hvaðan hann fékk svarta Rolls-Roysinn. OTTO SIGVALDI hefur flutt inn i nýtt hús i Gentofte ásamt konu sinni, Kirsten Delholm, eftir að hafa selt sinn helming villunnar sem hann bjó i áður. Og bókaútgefandinn með barnavagninn er ekki auralaus fremur en fyrri daginn: hann gaf sem næstfimm milljónir isLkróna fyrir nýja húsið. ,/RAUÐA SKIKKJAN" var frumsýnd i Bandarikjunum, nánar tiltekið á Broadway, i miðri þessari viku. Gitte Hænning var viðstödd frumsýninguna — og sneri svo strax heim til Danmerkur að lokinni sýning- unni. „Mér likarekki New York”, sagði hún við komuna til Kaup- mannahafnar. Hvers vegna ertu svona viss um að það sé Ólafur, sem hafi iogið þvi i alla, að það hafi verið þú, sem stalst kartöflum úr kjallara nágrannans? — Hann var sá eini, sem sá tii min. JAPÖNSKU KOKKARNIR BEZTIR m ibb. * ¥ S í * JÍl%; K\ v 1 J 1 Þeir eru alvörugefnir yfir matseldinni þessir fjórir matreiöslumenn, enda er til óvenju mikils að vinna aö maturinn verði nú sem beztur, nefnilega gull- verðlaun. Myndin er tekin i siðustu viku i risastóru eldhúsi, sem slegið var upp i Frankfurt, til aö hægt væri að halda þar i borg „Olympiu- kokkakeppni”. Kokkarnir á myndinni eru frá Noregi, en þeir komust i fjórða sæti með veizlu sina. Fyrsta sætið skiðuðu Japanir, og opnuöu þann ig austurlenzkum mat greiðari lcið á borð Evrópubúa. Vestur-Þjóðverjar nældu sér i annað sætið, en það voru samtals 23 lönd, sem sendu matreiðslu- menn i keppni þessa.semer sú fyrsta af þessu tagi. Rollsvagninn dró alla athygli fró lúxus-Benz Playboy-kóngsa sina var sá hinn sami og segja má aö hrundiö hafi Buggy-æðinu af stað. Nefnilega Joe Troiani, sem orðinn er leiöur á' að aka um á buggy-krili og ekur nú um á Fólksvagni, sem hefur á sér yfir- bragö heldrimanna-bila. Joe segir frá þvi, þegar hann eitt sinn sá sér færi á að leggja Rollsvagninum sinum á bilastæði við hlið hinnar heimsfrægu Mercedes-limo-luxuskerru PLAY-ritsljórans Hugh Hefners, sem búinn er öllu þvi markverð- asta, sem einn bil má pr.ýða. „Þegar ég kom til baka ætlaði ég ekki að komast að bilnum minum fyrir forvitnu fólki, sem hópazt hafði utan um hann”, rifjar Joe upp. „Aftur á móti hefði ég auöveldlega getað ekiö burt á vagninum hans Hefners. Það hefði enginn veitt þvi athygli, þó að honum hefði verið stolið þarna afstæöinu”. En lalsmenn Rolls-Royce eru ekki eins hrifnir, þegar þeir lýsa áliti sinu á fyrirbrigðinu. Þeir virðast miklu fremur sármóðg aðir: „Húdd af Rolls-Royce á Volkswagen er rétt eins og herða- slá af risa komin yfir herðar dvergs.” Þeir hjá Rolls-Royce cru ekkert hrifnir af þessu fyrirbrigði. Nú þegar hafa Rolls- vagen-húdd selzt í þúsundavís í Bandaríkjun- um og víðar. Hér um götur borgarinnar er meira að segja einn slíkur á ferðinni. Það er að segja: Folks- vagen með húddi með sama lagi og er á Rolls Royce. Sá sem var einna fyrstur til að setja Rolls-húdd framan á bifreið

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.