Vísir - 17.11.1972, Page 4

Vísir - 17.11.1972, Page 4
4 Visir. Föstudagur 17. nóvember 1972 Í s^idi Á vií) marga togara Þessir menn eru á við marga skuttogara, — þ.e. hvað tekur til gjaldeyrisöflunar fyrir þjóðarbú- ið. Þetta eru umboðsmenn Flug- félags Islands innanlands og ut- an, en þeir voru að þinga á dögun- um og þá var myndinni smellt af hópnum fyrir utan aðalstöðvar Fl i Bændahöllinni. Það eru blikur á lofti i flugmálunum eins og al- kunna er, og forstjórar margra stórra og stæltra flugfélaga ugg- andi. En áfram er haldið og nú liggur fyrir að skipuleggja sölu- starfið á farmiðum til landsins og frá fyrir næsta sumar. Margir l'ara og skoða liús Jóns Sigurðssonar Að sögn Sigurðar Bjarnasonar, ambassadors tslands i Kaup- mannahöfn hafa talsvert margir íslendingar á leið um Kaup- mannahöfn lagt leið sina i hús Jóns Sigurðssonar, m.a. komu 40- 50 konur frá Slysavarnafélagi Islands þangað i heimsókn. Póst- kort hefur nú verið prentað með mynd af húsinu, ásamt likönum af Hrafnseyri við Arnarfjörð, þar sem Jón forseti fæddist. Ilömlur betri en Iræðsla? Áfengisvarnaráð bendir á hand- bók hins sænska geð- og félags- læknis, Niels Bejer að nafni um likniefni og fikniefnaneyzlu og segir, að greinilega megi þann lærdóm draga af henni að hömlur séu haldbetri en fræðsla i þessum efnum. Bejer álitur fræðslu um áhrif efnanna gagnlega, en hann bælir við að það séu aðrir þættir, sem gegna mikilvægara hlutverki i þessu sambandi, — þ.e. hversu auðvelt er að ná i efnið. Bendir hann m a. á að einn hundraðshluti læknastéttarinnar i Bandarikjun- um er háður fikniefnum, jafnvel læknismenntun veiti þannig ekki vernd gegn neyzlu fikniefna. Telur hann að minnstar skað- legar afleiðingar fikniefna séu þar sem löggjöf er ströng og dreifingahömlum beitt. l'á tunnlækni á IIvols- volli Kangaúngar eiga von á nýrri þjónustu i byggðarlagið innan skamms. Þar er að risa tann- læknastofa og hafa notuð en ágæt tannlækningatæki verið keypt i stofuna. Tannlækni á að fá frá Reykjavik öðru hvoru. Skólabörn munu þá fá viðgerðar tennur sin- ar i nýju stofunni og þurfa nú ekki lengur að leita út fyrir héraðið eítir þessari sjálfsögðu þjónustu. Slökkvibil komið fyrir i Skógum Blaðið Þjóðólfur á Selfossi greinir frá þvi að nú verði mikil bót á slökkviliðsmálum undir Eyja- fjöllum. Þangað er kominn glæsi- legur slökkviliðsbill, og leysir hann af hólmi heldur ófullkomin tæki, sem voru á jeppakerru. Bill- inn verður staðsettur i Skógum, þar sem verið er að reisa vandað hús yfir hann. KEA opnar kjörbúð á. Siglufirði Þegar Kaupfélag Siglfirðinga hætti störfum vegna greiðslu- erl'iðleika i hitteðfyrra var ákveð- ið að Kaupfélag Skagfirðinga og Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri (KEA), sem áður höfðu annazt mjólkursölu á Siglufirði, settu upp almenna matvöruverzlun á staðnum. Hefur svo verið siðan. En á siðasta vetri skoruðu 120 fjölskyldur á Siglufirði á KEA að stofna útibú i bænum. Var orðið við þessum óskum og ákveðið að eftir 2 ára reynslu yrði ákv. tekin um stofnun félagsdeildar. Verzlunin hefur nú verið opnuð i húsakynnum sem áður tilheyrðu Kaupfélagi Siglfirðinga, að Suðurgötu 2-4, en frá þessari verzlun er útibú að Hvanneyrar- braut 42 Myndin er úr nýju verzl- uninni, en verzlunarstjóri er Guð- mundur Jónasson, en með honum starfa 6-7 manns. Nýtt hverf i -ný verzlun KRON VERZLUN Með þessari nýju verzlun við Norðurfell í Breiðholti, stækkar enn verzlunarsvæði KRON - og þjónustan nær til enn fleirri. KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.