Vísir - 17.11.1972, Blaðsíða 17
Visir. Föstudagur 17. nóvember 1972
□ □AG | Q KVÖLD | Q □AG | 0 KVÖI L Q □AQ |
Sjónvarp í kvöld kl. 20,55
Útlitið svart, en . . .
i kvöld eru „Fóstbræður” aftur
á ferð, en i þetta sinn eiga þeir i
höggi við gullræningja. Þessi
þáttur nefnist „Ilættuspil”, enda
komast þeir félagar i hann
krappann.
Brezkur glæpaflokkur ætlar að
stela miklu magni af gulli, ekki
fyrir sig, heldur fyrir annan
ameriskan glæpaflokk. Brezku
þrjótarnir eiga að hafa samband
við einn skúrkanna úr ameriska
hópnum, en áður en til þess
kemur handtekur lögreglan þann
ameriska. Nú er annar fóst-
bræðranna sendur og glæpa-
mennirnir taka hann i mis-
gripum sem ameriska glæpa
manninn. Hann á að hjálpa
til við ránið. Nú eru komin upp
smá vandræði hjá glæpa-
mönnunum, þvi að þá vantar
flugmann til þess að fljúga með
fenginn á brott. Þeir höfðu drepið
sinn eiginn flugmann, og kemur
nú hinn fóstbróðirinn og býður
sig fram sem flugmann, i stað
þess sem var drepinn. Hann er
ráðinn i starfið og svo virðist að
þeim fóstbræðrum ætli að reynast
auðvelt að taka allan hópinn
fastan. En þá kemur babb i
bátinn, þvi að rétta ameriska
glæpamanninum tekst að sleppa
frá lögreglunni og hafa samband
við hina brezku kollega sina.
Kemst nú upp um þá fóstbræður-
na, en glæpamennirnir ákveða að
nota þá áfram við fyrirætlanir
sinar.
Þeim er sagt, að ef annar
þeirra félaga reyni einhver
brögð, verði hinn drepinn. Útlitið
er þvi orðið nokkuð svart fyrir
fóstbræðurna. En á siðustu
stundu tekst þeim að koma i veg
fyrir ránið með hinni djarflegu
framgöngu sinni, og handtaka
alla skúrkana.
Þýðandi er Vilborg Sigurðar-
dóttir. —ÞM
Sjónvarp í kvöld kl. 21,50
SAUÐNAUT OG SÍAMSKETTIR
- I „SJONAUKANUM
//
í KVÖLD
í „Sjónaukanum" i sjónvarpinu
i kvöld, eru ýmis efni á dagskrá,
sem eru nú ofarlega á baugi.
Meðal annars verður fjallað um
þýzku kosningarnar sem verða
um næstu helgi. Kosninga-
báráttan hefur verið i al-
gleymingi i Þýzkalandi að undan-
förnu. Talið er að Brandt sé lik-
legur til sigurs, en ekki er alltaf
hægt að treysta skoðana
könnunum og hefur margur
stjórnmálamaðurinn farið flatt á
þvi.
Þá verður fjallað um fyrir-
hugaða sauðnautarækt á tslandi.
Búnaðarfélagið mun hafa uppi
áætlanir um að flytja sauðnaut
til Hriseyjar og rækta þar.
Fjallað verður um umsvif Hita-
veitu Reykjavikur á Stór—
Reykjavikursvæðinu. Hitaveitan
ætlar að taka að sér að hita upp
Kópavog og önnur sveitarfélög á
Reykjavikursvæðinu. Komið hafa
upp miklar deilur um þessar
fyrirætlanir og eru ekki allir jafn
hrifnir af þeim.
Þá verður Guðrún Á. Simonar,
óperusöngkona heimsótt, og
rabbað við hana um ýmis mál,
þar á meðal um kettina hennar,
en eins og kunnugt er, þá er
Guðrún mikill kattavinur, og á
heimili hennar eru margir kettir.
Auk þessa sem hér hefur verið
talið,verða nokkur önnur mál
einnig á dagskrá Sjónaukans.
Það eru fréttamenn sjónvarps-
ins sem sjá um þáttinn að vanda.
—ÞM
Útvarp í kvöld kl. 21,35
„Sagnfrœðilegur
karikatúr"
í þætti útvarpsins i
kvöld, „Einvigi aldar-
innar”, mun Guð-
mundur Danielsson, rit-
höfundur, lesa kafla úr
nýrri bók sinni um skák-
einvigið.
Bókina skrifað Guðmundur i
september og október, en hún er
gefin út af bókaútgáfu tsafoldar
og er væntanleg á markaðinn
næsta miðvikudag.
Kaflar bókarinnar bera nöfnin
Skák I, Skák II o.s..f. Efni bókar-
innar er sagnfræðilegur karika-
túr um einvigið séð með augum
höfundar. Guðmundur mun lesa
hluta úr þrem „Köflum” bókar-
innar.
Bókin er skreytt með 20
myndum eftirHalldór Pétursson,
og aftast i bókinni eru skákskýr-
ingar eftir Gunnar Gunnarsson.
—ÞM
Guðrún A. Simonar, óperusöng-
kona, er mikill kattavinur. i
þættinum „Sjónaukinn” verður
spjallað við hana um kettina og
fleira.
Guðmundur Danielsson, rit-
höfundur, les upp úr nýrri bók
sinni um skákeinvigið i útvarpinu
i kvöld.
m
Ni
—• - rn
&
Hrúturinn, 21. marz-20. april. Það er allt útlit ý
fyrir aö heldur veröi dauft yfir ýmsu i dag, án .■
þess þó, aö beinlinis alvarlegir og neikvæöir at- ■*
burðir gerist I þvi sambandi. 1«
Nautib21. april-21. mai. Heldur atburöalitill
dagur, og margt sem gengur heldur seinlega, en *■
allt mjakast þó heldur i rétta átt. Semsagt, ekki
neinn stórkostlegur árangur. ■■
Tviburanir22. mal-21. júni. Að mörgu leyti
ágætur dagur. Einkum má gera ráö fyrir aö '.
vinir þinir veröi þér hjálplegir, og jafnvel þeir,
sem þú þekkir aö ráöi, veröi þér innan handar. J.
Krabbinn, 22. júni-23. júli. Þótt þú leggir þig
allan fram um aö eitthvaö nái fram aö ganga, er
hætt viö aö árangurinn láti nokkuö á sér standa .*
og allt gangi seinna en þú vildir.
újónið.24. júli-23. ágúst. Ef þér verða ekki á ein- J«
hverjar skyssur sökum fljótfærni, litur út fyrir ■!
aö þetta veröi þér góöur og notadrjúgur dagur,
þótt sumt gangi seinlega. ■!
Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Ekki er óliklegt aö I*
róöurinn verði i þyngra lagi fram eftir deginum, J.
en svo ætti eitthvaö að léttast fyrir, en þó þarf
naumast aö gera ráö fyrir asa á hlutunum. *.
Vogin, 24. sept.-23. okt. Rólegur dagur yfirleitt, Ij
aö þvi er séö veröur. Góöur dagur til aö ljúka viö J.
eitt og annað, en ekki heppilegur til að fitja upp á .J
neinu nýju. J.
■I
Drekinn, 24. okt-22 nóv. Þú hefur að öllum J.
likindum I ýmsu aö snúast, en hætt er við að ekki
verði mikill árangur I þvl sambandi, aö minnsta J.
kosti ekki fram eftir deginum. ■[
Bogmaðurinn, 23. nóv.-21. des. Þetta verður að J.
mörgu leyti góður dagur og notadrjúgur, sér i .J
lagi hvaö snertir þaö, sem þegar er komiö vel á J.
veg, eöa ef ekki vantar nema herzlumuninn. .J
Steingeitin,22. des.-20. jan. Þaö getur fariö svo í
aö þú veröir fyrir einhverri heppni I dag, að ■!
öllum llkindum koma peningar eitthvaö þar viö !■
sögu, þegar eöa þá slöar. J.
Vatnsberinn.21. jan.-19. febr. Það lítur út fyrir J*
aö búast megi viö einhverjum átökum innan ‘J
fjöldskyldunnar, nema þú gætir þess aö fara J*
mjög gætilega I orði og ákvörðunum. ■!
Fiskarnir, 20. febr.-20. marz. Þú færð aö öllum
likindum gott tækifæri I dag, sem þú ættir ekki
að láta ónotað. Aö öðru leyti bendir allt til þess
að þetta veröi notadrjúgur dagur.
IÍTVARP #
12.00 Dagskráin, Tónleikar.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.15 Við sjóinn. Ingólfur Stef-
ánsson ræðir við Hjálmar
Vilhjálmsson fiskifræðing
um ioðnumerkingar o.fl.
(endurt.)
14.30 Siðdcgissagan: „Gömul
kynni” cftir Ingunni Jóns-
dóttur Jónas R. Jónsson á
Melum les (2)
15.00 Miðdegistónleikar:
Sönglög. Dorothy Waren-
skjold syngur lög eftir ýmsa
höfunda. Nicolai Gedda
syngur sænsk lög við undir-
leik Filharmónisveitarinnar
i Stokkhólmi sem Nils Gre-
villius stj.
15.45 l.esin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphornið Orn Peter-
sen kynmr.
17.40 Tónlistartimi barnanna.
Þuriður Pálsdóttir sér um
timann.
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Þingsjá. Ingólfur Kristj-
ánsson sér um þáttinn.
20.00 Tónleikar Sinfóniu-
liljómsveitar islands frá
kvöldinu áður. Stjórnandi:
Dr. Róbert A. Ottósson.
a. Sinfónia nr. 39 i ES-dúr
(K543) eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart.
b. Sinfónia nr. 1 i D-dúr
„Titan” eftir Gustav
Mahler.
21.35 Einvigi aldarinnar Guð-
mundur Danielsson rithöf-
undur les úr nýrri bók sinni.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir
Ctvarpssagan: „Otbrunnið
skar” eftir Graham Grecnc
Jóhanna Sveinsdóttir les
þýðingu sina (12)
22.45 Lög unga fólksins
Sigurður Garðarsson kynn-
ir.
23.45 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP •
FÖSTUDAGUR
17.nóvember 1972
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Róöur . Kvikmynd, gerð
af Þorgeiri Þorgeirssyni, i
veiðiferð með litlum fiski-
báti.
20.55 Fóstbræður. Brezkur
sakamálaflokkur. Ilættu-
spil. Þýðandi Vilborg
Sigurðardóttir.
21.50 Sjónaukinn Umræðu- og
fréttaskýringaþáttur um
innlend og erlend málefni.
22.50 Dagskrárlok