Vísir - 17.11.1972, Blaðsíða 13
Visir. Föstudagur 17. nóvember 1972
13
Fermingarbörnin
i /,næturiífi" meö
prestinum
Nýstárleg næturvaka var hald-
in i Skagafirði i sumar með ferm-
ingarbörnum þar nyrðra. Segir
frá þessu i nýútkomnu Kirkjuriti.
Mótið var sett kl. 10 á laugar-
dagskvöld i júlimánuði og stóð
fram á morgun. Umsjón með
mótinu höfðu prestarnir sr. Sigfús
J. Arnason og sr. Tómas Sveins-
son, en með þeim störfúðu Sigur-
páll Óskarsson, sr. Ágúst Sig-
urðsson og frú Unnur Halldórs-
dóttir. Rætt var um frelsi kristins
manns, leikin hljómplatan um
Jesúm súperstjörnu og farið var i
innileiki á árdagsstund, en pylsu-
veizla mikil var að sjálfsögöu
stórt atriði i vökunni. Þá var ekið
i Viðimýrarkirkju og haldin guðs-
þjónusta með altarisgöngu. Alls
36 fermingarbörn tóku þátt i vök-
unni og þótti hún takast hið bezta.
Myndin er af þátttakendum við
Viðimýrarkirkju.
Veröa eigendur að viö-
skiptabankanum
Samvinnubankinn er nú að auka
hlutafé sitt úr 16 milljónum króna
i 100 milljónir og var samþykkt á
aðalfundi bankans að gefa öllum
félagsmönnum samvinnufélag-
anna kost á að eignast hlut i bank-
anum. Verða hlutabréfin seld i
bankanum og útibúum hans og i
kaupfélögum um allt land. Mikil
innlánsaukning hefur verið hjá
bankanum á þessu ári, eða rúmur
þriðjungur, Innlánin eru orðin 350
milljónir króna. Bankinn hefur á
liðnum starfstima yfirtekið 12
innlánsdeildir hjá kaupfélögun-
um og 2 sparisjóði með alls 94
milljóna innlánsfé.
Fimm sækja um verðlags-
stjórann
Viðskiptaráðuneytið auglýsti
fyrir nokkru stöðu verðlagsstjóra
lausa til umsóknar. Fimm um-
sóknir bárust. Þessir sóttu um
starfið: Arsæll Júliusson, fulltrúi
i rikisbókhaldi, Haraldur
Jóhannsson, hagfræðingur, Högni
Helgason, fulltrúi hjá Rafmagns-
veitum rikisins, Sigurður Elias-
son, verzlunarmaður og Ægir
Ólafsson, framkvæmdastjóri.
Stærsta frimerkjasýningin
til þessa
Hluti af hinu fræga Hans Hals-
safni verður á stærstu frimerkja-
sýningu, sem haldin hefur verið
hér á landi, en hún verður á næsta
ári haldin i tilefni af 100 ára af-
mæli fyrsta islenzka frimerkis-
ins. Sýndir verða um 300 rammar
og verður sýningin i sýningarhús-
inu á Mikiatúni. Verður hún opn-
uð 31. ágúst og stendur i 10 daga.
Form. sýningarnefndar er Jón
Skúlason, póst og simamála-
stjóri.
☆
KVEÐJA
Sigurliðí Kristjánsson
Urúpir dagur
með duldan svip,
fiytur oss fregn,
sem fæðir kviða.
Brugðið er birtu
á borgarstrætum.
Sefur nú sveinn
svefninum langa
Fallinn er frækinn
forystumaður,
iþróttum efidur
og athöfnum stórum.
Mun hans merki
mönnum geymast,
setti hann svip
á sjálfan bæinn.
Hófst af sjálfum sér
svipmikili drengur,
framdi fimleika
af fegurð og snilli.
Valdist valmenni
til vegs og forystu
ungrar æsku
IR-inga
Flytja félagar
forystumanni
þúsund þakkir,
þrungnir harmi
Lék hann þá list
með léttum hætti:
tvinna og treysta
tryggðaböndin
aldinna og ungra
iþróttamanna.
Rétti hjálparhönd
er hans var leitaö!
Far þú heill og hreinn
um himinbrautir!
Lýsa lofstir þinn
leiftrin blikandi!
iþróttafélag
Reykjavfkur.
RUGGUSTOLAR
komnir aftur í ýmsum litum
OPIÐ TIL KL. 10 I KVOLD
SÍMI 11940
HÚSGAGNAVERZLXJN REYKJAVTKUR
BRAl TARHOI.Tl 2
Þessir vinsœlu
BÚNAÐARBANKINN
Annar stœrsti viðskiptabanki á íslandi
Veitir alla almenna bankaþjónustu:
SPARI-INNLÁN
VELTI-INNLÁN
ÚTLÁN
INNHEIMTA víxlo og verðbréfa
LAUNAREIKNINGAR
GÍRÓÞJÓNUSTA
GEYMSLUHÓLF
NÆTURHÓLF
SPARIBAUKAR
Varanleg innlónsviðskipti opna
leiðina til lónsviðskipta
BANKINN ER BAKHJARL
Bónaðarbanki íslands
5 útibú í Reykjavík — 12 afgreiðslur úti ó landi.