Vísir - 17.11.1972, Page 8

Vísir - 17.11.1972, Page 8
8 Vísir. Föstudagur 17. nóvember 1972 Ekkert lát á útgáfu bóka um dulspeki — litið í tvœr þeirra og rœtt við þá er þœr skráðu Kormákur Sigurösson i störium heilbribrigöisiulltrúa. Hann er sonar- sonur llaralds Nielssonar, prófessors, sem tclja má höfund spiritis- inans á islandi. GLEÐJIÐ AUGUN LÍTIÐ INN ERUM AÐ TAKA UPP MIKIÐ AF FALLEGUM VÖRUM BJÓÐUM AÐEINS HINN HEIMSÞEKKTA BÆHEIMSKRISTAL vörur fyrir alla - verð fyrir alla é TÉKK - KRISTALL Skólavörðustig 16 simi 13111 Ekki færri en fimm bækur, sem komnar eru á jóiamarkaöinn snúast um dulræn fyrirbrigði. Sýnir það og sannar, hver áhugi almennings i landinu er á þessum málefnum — því, hvers vegna gefa bókaút- gefendur annars út enn og aftur slíkan fjölda dulrænna sagna, nema vegna þess að góð sala er í slíkum bókum? JónasJónasson, sá vinsæli útvarpsmaður, skrifaði eina bókina. Sú íjallar um anda- lækninn Einar Jónsson á Einar- stöðum i Keykjadal. ,,Eg kvnntist honum fyrst al- mennilega, þegar ég fyrir nokkuð mörgum árum heim- sótti hann með hljóðnemann. Siðar leitaði ég til h'ans vegna sjúkleika, sem hann réði bótá. Og upp frá þvi hef ég leitað oft og iðulega til hans og hann hjálpaði mér mjög mikið. Eins hef ég visað til hans fólki, sem hann hefur veitt aðstoð sina. Byggist bókin að mestu á reynslu minni, þessa fólks og annarra af dulrænum hæfileikum Einars”. Og Jónas heldur áfram: „Uppúr þvi, að ég hafði flutt um Einar erindi á fundi hjá Sálarrannsókn- arfélaginu fyrir um tveimur eða þremur árum, vaknaði hjá mér áhugi á að taka saman i bók nokkur sannindi um hann og lækningar hans. 1 þvi skyni leitaði ég viða fanga, en bókina lauk ég ekki við að skrifa fyrr en i sumar. Eiginlega ekki fyrr en i haust”. Jónas er fljótur til svars, þegar hann er spurður að þvi hver sé, að hans mati, athyglisverðasta lýsingin i bókinni:: „Það tel ég einna helzt vera lýsingu Sigurðar Jónssonar. Hann varð fyrir miklu slysi i Ártúnsbrekku, sem veitti honum hina verstu ákverka og er þeim lýst i bókinni. Læknar gerðu á honum miklar aðgerðir, en sáu ekki fram á að hann héldi lifi.Og var eiginkonu hans tilkynnt um það. En morguninn eftir var haft samband við hana af sjúkra- húsinu á nýjan leik og henni tjáð að Sigurður væri með óskiljan- legum hætti að ná bata. Sannleikurinn var sá, að kvöldið áður hafði verið hringt i Einar Jónsson og leitað á náðir hans eftir hjálp. Klukkan átta morgunin eftir vaknaði Sigurður alheill, nema hvað sárin áttu bara eftir að gróa”. Og Jónas eftir- lætur okkur að kynna okkur sögu þessa nánar við lestur bókar- innar. Kormákur á nóg í fleiri btekur En eftir að hafa hlýtt á frásögn Jónasar af andalækningumEinars Jónssonar kemur okkur i hug heilbrigöísfulltrúi vor, Kormákur Sigurðsson. En nýkomin er á markaðinn bók um DULSPAKT FÖLK eftir hann. „Hefur þú trú á anda- lækningum?" spyrjum við hann fyrst. „Ég ræði ekki um þær i bók minni, sökum þess að ég hef aldrei kynnt mér þær sérstak- lega. En mér finnst ekki ótrúlegt, að andalækningar eigi sér stað”, svarar heilbrigðisfulltrúinn. Og bætir þvi við, að sér þyki slikt jafnvel mjög líklegt. Við lestur bókar hans má finna eina sögu um andalækningar — eða hvaða nafni lesendur vilja nefna það, sem þar um ræðir. Rifjar Kormákur þar upp sögu, sem hann hefur frá fyrstu hendi og sögð var i viðurvist þrjátiu annarra. Hana hafði Joe nokkur Barry að segja. Miðaldra maður, ættaður frá Kanada. Joe þessi segir frá þvi, hvernig hann fór frá sérfræðing til sér- fræðings vegna veikinda sinna án þess þó að fá bót á krankleika sinum. Þeir sögðu honum allir, að hann gengi með alvarlegan hjartasjúkdóm. Lýstu þeir þvi yfir, að Barry gæti vart lifað i mörg ár. Einn spáði honum ekki nema ári ólifuðu og fyrirskipaði honum að hafa hægt um sig og ofreyna sig ekki. Með þessar óskemmtilegu upplýsingar hélt hann til Irlands — samkvæmt einu læknisráðinu. En þar var, áður en langt um leið, farið með hann á fund bónda eins, sem fékk að heyra um krankleika Barrys. Eftir að hafa þuklað hann i bak og fyrir sagði hann: „Það er ekkert að þessu hjarta i þér — það virðist alveg eðlilegt. Hins vegar er greinilegt, að þú annað hvort situr eða stendur við eitthvaðsem þú ert að vinna við á þann hátt að likamsstellingarnar eru óeðliegar, og hefur þetta áhrif á vissar taugar i bakinu með þeim afleiðingum, að engu er likara en að hjartað sé að gefast upp”. Joe Barry kvaðst hafa tekið ráðum bóndans — og ekki fundið til hjartakastanna siðan. „Mér finnst ég vera stálhraustur og gæti bezt trúað, að ég eigi eftir að lifa mörg ár enn”, hefur Kormákur eftir Barry i lokin. „Ekki nógu gamall til að þylja sögur af sjálfum sér" Frásagnir á borð við þessa kveðstKorm ákur eiga i dagbókum sinum i stórum stil. „Og enn hef ég af nógu að taka i nýja bók — já, jafnvel bækur”, segir hann. „Ég byrjaði að taka niður lýsingar manna fljótlega'.. Eins á ég skráðar eiginendurminningarUm dulræna reynslu i miklum mæli, þó ég hafi verið spar á þær við gerð .bókarinnar. Ég er ekki orðinn það gamall maður, að ég sé farinn að þylja sögur af sjálfum mér”. Margt það sérkennilegast i bók- inni telur Kormákur, að komi einkum fram i siðari hluta henn- ar, en þar er langt viðtal við VÖLVUNA ÞORBJÖRGU, sem raunar er ekki hið rétta nafn við- mælanda. Gefur valvan þar skýringar á árunni, áhrifum hennar, útgeislun og útstreymi. Margt virðist þar algerlega nýtt, en annað er þar skýrt á nýjan máta. „Telur þú áhuga fólks á dul- speki vera almennan?” spyr blm. Kormák næst. „Já, tvimælalust mjög almennan”, svarar hann ákveðið. „Það eru kannski helzt visinda- menn, sem ekki vilja taka ákveðna afstöðu til þessara mála, þar sem þau hefur ekki reynzt unnt að rannsaka til hlitar ennþá. Eins vilja prestar skiptast i tvo hópa i þessum efnum. Til eru þeir, sem ekki mega heyra á þau minnzt. og annars vegar þeir, sem i sinu starfi hafa kynnzt spiritismanum af eigin raun og geta þvi ekki afneitað honum”. „Hvað fékk þig til að ráðast i gerð bókarinnar um dulspakt fólk?” „Draumur, sem mig dreymdi,” svarar Kormákur. En visar annars til formála bókar sinnar. Og enn flettum við upp i bók hans. Þar segir ýtarlega frá draumi, þar sem Kormákur verður fyrir þvi að steypast út i læk. Hann gripur þá i einhvern hlut, sem við nánari athugun reyndist vera Jónas Jónasson hefur safnað sainan frásögnum af andalækn- ingum Einars Jónssonar i Keykjadal. Jónas er sonur Jónas- ar Þorbergssonar, fyrrum út- varpsstjóra, sem kunnur var fyr- ir skrif sin um duiræn fyrirbrigði. trékross, gerður úr fallegum viði. Kross þessi var á hæð við meðal- mann. Krossinn var sérkenni- legur i lögun, og var frágangur einkar vandaður. Eitthvert efni virtist hafa verið borið á hann til þess að forðast veðrun, en i þvertréhans var þessi útskurður: Op. 1,11. Fleira bar við i draumi Korm- áks, en þegar hann vaknaði um morguninn lét hann það verða sitt fyrsta verk að opna bibliuna og fletta upp i Opinberun Jóhannesar, 1. kapitula 11. versi, en þar standa þessi orð: „Rita þú i bók, það sem þú sér, og send söfnuðum sjö, til Efesus, og til Smyrna, og til Pergamos, og til Þýatiru, og til Dardes, og til Filadelfiu og til Laódieku”. Draumur þessi segir Kormákur, að hafi ýtt við sér. Hann geymdi hugmyndina og drauminn i átján ár. Þá ákvað hann að rita þá bók, sem um er rætt. Hafsteinn miðill með nýja bók Auk dulspekibókanna tveggja, sem getið er hér að framan, eru komnar út að minnsta kosti þrjár aðrar. Þar ber fyrst að geta bókar, sem hefur að geyma frásögn Hafsteins miðils af bernsku- og unglingsárum sinum, en bókin hefur auk þess að geyma sögur úr safni hans. Bók er komin á markaðinn um þann nafntogaða, bandariska miðil Cecey, sem látinn er. Og þá er komin út bók eftir Sviann Nils 0. Jacobsen. ER LIF EFTIR DAUÐANN heitir hún og kom fyrst út á sænsku vorið 1971, en er að koma út 1 fjölmörgum löndum um þessar mundir. —ÞJM

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.