Vísir - 17.11.1972, Side 9

Vísir - 17.11.1972, Side 9
V Visir. Föstudagur 17. nóvembcr 1972 IINIIM i w 1. S ÍDA im 1 ÞAR SITJA KVENMENN í HVERRI NEFND Rœtt við Guðfinnu Helgadóttur í stjórn Mólfundafélags V.í. Umsjón: Edda Andrésdóttir Verzlunarskólinn hefur verið talsvert i fréttum að undanförnu og nemendur skóians hafa óneit- anlega vakið á sér nokkra at- hygli, eftir að þeir hafa ákveðið að fara i setuverkfall innan skól- ans. Rætt hefur verið nokkuð við nemendur um það efni, og á Innsiðu i dag ræðum við einmitt við einn nemanda i Verzlunar- skólanum. Að þessu sinni þó um málefni sem viðkemur setuverk- falli eða öðrum óeirðum litið. Nemandinn heitir Guðfinna Helgadóttir, og hún er nemandi i fjórða bekk skólans. Guðfinna er einn af þeim kvenmönnum sem skipa nefndir i skólanum, en sennilega á skólinn met i þvi hversu margir kvenmenn hafa tekið að sér ýmis ábyrgðarstörf innan fjögurra veggja skólans. Þeim störfum fylgir vissulega ábyrgð, og ekki er öllum treyst- andi til að geta séð um að félagslif og skemmtanahald innan skólans fari þokkalega fram. I skólanum eru starfandi fimm nefndir og i hverja nefnd eru skipaðir fimm nemendur. t nefndum sitja nú niu stúlkur, en það er meira en tiðkazt hefur i skólanum áður og örugglega meira en tiðkazt hefur i öðrum skólum sömuleiðis. Að visu sátu 10 stúlkur nefndir á siðastliðnum vetri, en veturinn þar áður eða 1969—1970 áttu að- eins þrjár stúlkur sæti i nefnd. Vissulega er þarna spor i rétta átt, kunna margir að segja, og loks fer að bera á þvi að kvenfólk- ið stendur sig sizt verr i slikum störfum en karlmennirnir. — En rikir rauðsokkuandi i skólanum. Telurðu að kvenfólkið bjóði sig fram i nefndir út af jafn- réttisbaráttu og þviliku? ,,Nei, ég hef ekki orðið vör við mikinn rauðsokkuanda innan skólans. Einhvers staðar hlýtur hann þó að fyrirfinnast. En ég sjálf fyrir mitt leyti er ekki rauð- sokka. Oft finnst mér það sem hreyfingin berst fyrir dálitið of- stækisfullt, en það getur verið að maður reyni ekki að sjá góðu hlið- arnar en þær slæmu komi frekar fram. Hreyfingin hefur þó komið mörgu góðu til leiðar”. — Þú átt sæti i Málfundafélagi skólans. Buðu sig margar stúlkur fram i það félag þegar kosningar fóru fram innan skólans? ,,Já, i fyrstu bólaði ekki á nokkrum karlmanni, þvi að ekk- ert nema kvenfólk bauð sig fram. Það voru orðin vandræði vegna þessa, en loks buðu sig þó nokkrir fram. „Þetta verður sauma- klúbbur”, sögðu strákarnir og hnussuðu yfir kvenfólkinu. En ég held að það hafi komið i ljós að þetta varð enginn saumaklúbbur. Nú eru þrjár stúlkur i félaginu og tveir piltar. Samkomulagið er lika prýðilegt”. ,,Ég held að stúlkurnar hafi i rauninni meiri áhuga fyrir fé- lagslifinu. Eftir kosningarnar sér maður að minnsta kosti mjög vel hvar áhuginn er”. — Hvernig skiptast kynin niður i nefndir? „1 skemmtinefnd skólans eru þrir piltar og tvær stúlkur. lþróttafélag skipa fjórir piltar og ein stúlka. 1 ritnefnd sitja fimm piltar en engin stúlka. Og núna um nokkurn tima man ég ekki eftir að kvenfólkið hafi verið sér- staklega pennaglatt. Mig mir helzt að það hafi ekki nema ein stúlka skrifað i siðasta skólablað. 1 nemendamótsnefnd sitja svo loks tveir piltar og þrjár stúlkur”. — Eru stúlkur fremstar i flokki i einhverri þessara nefnda? ,,Já, i bæði nemendamótsnefnd og Málfundarfélagi eru stúlkur formenn”. — Þú ert i stjórn Málfundafé- lags skólans. Eru nemendur alls óhræddir við að láta áiit sitt i Ijós i ræðupúlti? Telurðu að taka þyrfti upp kennslu i framsögn i skólum almennt? „Það er að visu dálitið erfitt að fá fólk til að tala. En ef það einu sinni kemur upp i ræðupúltið og segir nokkur orð, þá er isinn brot- inn. Yfirleitt eru það þó alltaf þeir sömu sem koma upp og láta sitt álit i ljós, en þó birtast öðru hvoru ný andlit i púltinu”. „Viðvikjandi kennslu i fram- sögn i skólum, þá gefur mál- fundafélag skólans nemendum kost á að sækja mælskunámskeið i byrjun hvers vetrar. Þar er fenginn sérstakur maður til þess að kenna, og hefur það gefizt vel. Mér finnst það annars vel koma til greina að taka framsögn sem skyldugrein i skólum, en þó hef ég ekki hugsað nægilega mikið um það mál til þess að láta i ljós ein- hverja ákveðna skoðun”. „Það hefur reyndar komið til tals að hafa mælskunámskeiðið i lengri tima á hverjum vetri, en það hefur þó ekki orðið úr þvi enn. Annars finnst mér að það mætti taka leiklist sem grein i skóla. Eða að minnsta kosti gefa nem- um kost á að sækja leiklistar- tima”. — Æðsta starf i skólanum er forsetastarfið. Hefur kvenmaður boðið sig fram til þess starfs? „Nei, ekki að mér vitandi. Það starf er ákaflega erfitt, en ætli kvenmaður stæði sig ekki jafn vel þar og karlmaðurinn. Sá sem tekur það starf að sér þarf að vera vel gáfum gæddur og hann verður að vera þess vel vitandi að hann getur ekki eytt mjög mikl- um tima i námið”. „En i sambandi við þetta, þá man ég það að þegar kvenfólk bauð sig fram i Málfundarfélagið, þá sögðu karlmennirnir i skólan- um að þetta yrði sjálfsagt erfitt starf fyrir okkur, þvi að ræðupúlt- ið væri griðarlega þungt, en við þyrftum að bera það fram fyrir hvern málfund. En ég held að okkur kvenmönnunum hafi ekki gengið neitt siður að koma púltinu fyrir á réttum stað”. „Mjög áberandi hvað kvenfólkið tekur virkan þátt I félagsllf- inu”. „En það er mjög áberandi hvað kvenfólkið tekur virkan þátt i fé- lagslifinu, og nú held ég að við sé- um ekki minna virtar en karl- menn, við megum bjóða okkur fram i störfin, og við stöndum jafnfætis þeim. Annars skiptir ekki svo ýkja miklu máli hvort karlmenn eða kvenmenn eru i meirihluta i nefndum, fyrir mestu er að áhuginn sé fyrir hendi”. —EA Þegar dœturnar voru vandamól Róleg og feimin átti hún að vera, ef hún var komin af háum stigum og tilheyrði æðri stéttinni. i hinum lægri stéttum vissu stúlkurnar meira um lifið, og þær vissu jafnvel hvernig börn urðu til. En börn fæddust utan hjónabands þrátt fyrir það, og þar til árið 1772 voru börnin skráð i bækur prestanna sem skilgetin, aðeins ef foreldrarnir lofuðu að ganga í það heilaga. Þannig var það meðal þeirra i lægri stéttunum, en i hærri og æðri stéttunum gilti annað sjónarmið. Þar máttu börn ekki fæðast nema foreldrarnir væru þegar gengnir i hjónaband. Feðurnir urðu lika að passa dætur sinar mjög vel. Þær fóru ekki i sam- kvæmi nema i fylgd einhvers fullorðins, og stöðugt voru vak- andi augu i kringum þær. En samt fór það stundum svo, að þær lentu i litlum ævintýrum, — þó ekki lengur en samkvæmið stóð yfir. Þá var haldið heim á leið i fylgd föðurs, móður eða frænku. Ungu stúlkurnar máttu sitja við gluggann og horfa á fólkið ganga fram hjá. Þá tiðkaðist það að karlmenn gengu um götur arm i arm og einnig kven- fólk. En ungu stúlkurnar i gluggunum sem voru i hástétt- inni máttu ekki slást i hópinn með ungu mönnunum. Það þótti alls ekki sæma, og foreldrarnir höfðu stöðugar áhyggjur af þvi að dóttirin eða dæturnar kynnu að valda einhverri hneisu meðal fina fólksins. Ungu mennirnir áttu samt ekki i miklum erfiðleikum með að ná sér i konu, þvi að vændis- konur fundust i þá tið. Vinnukonurnar hjá heldra fólkinu áttu einnig að vera mjög siðprúðar. Þær máttu aldrei fá nokkurn karlmann i heimsókn til sin, þótt viðkomandi segðist vera frændi vinnukonunnar. Það tókst þó ekki alltaf að halda þeim i hæfilegri fjarlægð frá kærustum og „frændum”, en finustu heimilin voru mjög ströng á slikt. Þegar farið var i innkaupa- ferð, mátti stúlkan kannski spjalla við einhvern karlmann sem hún hitti, en i mörgum til- fellum kaus húsmóðirin að fara sjálf með i ferðina. Gekk hún þá þremur skrefum á undan vinnukonunni, og lét hana bera bögglana. Trúlofaðar stúlkur áttu stundum i erfiðleikum að fá vinnukonustöðu, og ef þær giftu sig kaus húsmóðirin að skipta um vinnukonu. Ógiftu dæturnar voru oft stórt vandamál fyrir foreldrana. Hjá heldri fjölskyldum þótti það ekki hæfa að dóttirin færi að vinna fyrir sér sjálf, hún varð að hafa fyrirvinnu. Allt var i lagi ef arfur var fyrir hendi, en annars mátti dóttirin vera samkvæmis- dama eða kennslukona, og ágætt þótti einnig að vera sima- mær. En ekki hæfði fyrir fina dömu að vinna á skrifstofu, þar áttu karlmennirnir að, halda sig. Margar dæturnar héidu sig aðeins i föðurhúsum og fóru út með föður og móður i stöðugri von um að finna hinn eina rétta. eldri og ráðsettari var i förinni til þess að sjá um að ekkert færi öðru visi en ætlað var. Fin stúlka sat heima og saumaði. Möguleikar til þess að öðlast menntun voru litlir, og lengi voru takmörk fyrir þvi að stúlka gæti tekið próf úr háskóla jafnt og piltar. Stúlkur urðu að láta sér næg.ja að leika á hljóð- færi, sauma út og dytta að ein- hverju i húsinu, á meðan þær biðu eftir biðlunum og faðirinn vann fyrir heimanmundinum. Slikir flokkar stúlkna og pilta sáust ekki oft meðal heldra fólksins. Það voru ekki allar dætur sem fengu leyfi til að skemmta sér með piltum eða fara i gönguferðir með piltum. Slikt henti ekki, nema einhver ——“«™——w—»

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.