Vísir - 22.12.1972, Blaðsíða 9
Yisir. Köstudagur 22. desember 1!)72
9
Gleymdist að kaupa
merkimiðana? Eða nægja
þeir gömlu ekki frá því
um síðustu jól? Það ætti
þá ekki að gera svo mikið
til, og einhver ráð má
finna þvi til bjargar.
Þessir skemmtilegu
merkimiðar hér á síðunni
ættu að hjálpa til með að
gera jólapakkana skraut-
lega.
Þá má gjarnan klippa út og
lima siðan á þykkan pappa eða
þá að lima miðana beint á pakk-
ann, eftir að búið er að pakka
honum inn i jólapappirinn.
Einnig er hægt að leggja gegn-
sæjan pappir á myndirnar og
teikna þær upp og siðan á litrikt
karton.
Nú, og sjálfsagt er hug-
myndaflugið nógu vel starfandi
til þess, að ekki þarf einu sinni
að styðjast við þessa merki-
miða, heldur teikna einhverjar
skemmtilegar myndir sjálfur á
jólagjafirnar.
-Klippið litið gat efst i merki-
miðana, eftir að búið er að
ganga frá þeim, svo hægt sé
einnig að þræða þá upp á band,
ef slikt er sett á pakkann.
Liklegast eru engin takmörk
fyrir þvi sett, hvað gera má við
jólapakkann. Við höfum nú þeg-
ar komið með nokkrar
skemmtilegar hugmyndir um
það, hvernig pakka má gjöfun-
um inn, til dæmis i skókassana, i
teiknimyndasögur Visis og fleiri
og fleiri. Og það má lika koma
með fleiri hugmyndir um það
hvernig merkja má pakkana til
og frá, i stað þess að setja á
merkimiða.
Ef einlitur pappir er settur ut-
an um pakkann er hægt að
skrifa einfaldlega utan á
pappirinn og þá t.d. með ein-
hverjum skrautstöfum. Glimm-
er fæst i verzlunum hér i bænum
i lausu, og þó að oft geti verið
ákaflega erfitt að eiga við það
og koma þvi þokkalega fyrir,
má gera tilraunir til þess að
mynda úr þvi stafi og lima það
snyrtilega utan á pappirinn eða
pakkann.
Úr garni má svo gera stafi,
eða til hvers pakkinn er og frá
hverjum hann er. Garn er til i
svo miklu úrvali, að hægt er að
gera stafina i öllum breiddum
og lengdum i öllum litum.
Og kosturinn við það að
föndra sjálfur, og kosturinn við
merkimiðana hérna á siðunni er
svo sá að sáralitill kostnaður,
ef þá nokkur, ætti að vera við
þá, og þeir eru ákaflega fljót-
gerðir.
Þrátt fyrir litið jólaskraut i
bænum virðist jólaundirbúning-
ur almennings ekki vera með
minna móti en undanfarin jól.
Þó að það sé básúnað öðru
hverju, að jólagjafir séu hrein
og klár vitleysa og allt dinglum-
danglið hreinn óþarfi, þá kemur
það i ljós núna siðustu dagana
fyrir jólin, að jólatréssalan er
sifellt að aukast, og spilar þar
sjálfsagt inn i fleiri heimili, en
fólk vill um leið fá stærri jólatré
i stofuna til sin en áður tiðkað-
ist.
Sölumennskuæðið svokallaða
og þá liklegast um leið kaupæðið
hefur gripið um sig nú sem
endranær og náð tangarhaldi á
hverjum og einum. Laufa-
brauðsbaksturinn heldur áfram
sinn vanagang, jólagjafirnar
eru skreyttar áfram, og i skól-
unum tiðkast nú orðið sá siður,
að börnin kaupi jólagjafir fyrir
einhverja vissa upphæð og gefi
hvert öðru.
Skyldi jólahaldið og þeir jóla-
siðir, sem skapaðir hafa verið,
nokkuð breytast á komandi ár-
um , enda ætti reyndar að vera
undir hverjum og einum komið,
hvernig jólin eru haldin á hverjú
heimili. Eftir allt saman eru jól-
in einu sinni fremur öðrum dög-
um sá timi, sem við leyfum okk-
ur flest að lifa i vellystingum og
hrista okkur upp frá hversdags-
leikanum. —EA
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Hér koma merki-
miðarnir ó iólapakkann!
KARLMANNA
SKÓR
nýkomnir
DRENGJASKÓR
NÝJAR GERÐIR
SlMl
17345
SKÓGVERZLUN
Péturs Andréssonar
Laugavegi 17
SALAMANDER
Karlmannaskór
fyrir þá vandlátu
Skóverzlunin
Framnesvegi 2
Gjafavörur
Dönsku borðóróarnir
C'ampagne Bubbles —
llaindrop
Iljartaglösin
Kertastjakar
Sænski Kkenos
kristallinn
Vasar-Bakkar-
Kertastjakar
Kerti
Norðurljós
llreinskerti
Japönsk kerti
Pólsk kerti
Jólatrésskraut
Toppar og kúlur i
ö 11 u m 1 i t u m,
stærðum og gerð-
um.
A1 d r e i m e i r a
úrval.
Blóm og
skreytingar
Jólastjarna
Aðventukransar
Krossar
Leiðisgreinar
Kertaskreytingar
frá 190/-
Jólatré
(ireni-Sypres-Fura
Nœg bílastceði —
góð aðkeyrsla.
Opið í kvöld til kl. 10,
aðfangadag tii kl. 14.
SENDUM HEIM
ooöSflfía
_ _GLw
& Q Q & ©ö