Vísir - 22.12.1972, Blaðsíða 20

Vísir - 22.12.1972, Blaðsíða 20
Föstudagur 22. desember 1972 Skuttogar- arnir hœkka um 650 milliónir Gengislœkkunin bœtir myndarlega við skuttogaraverðin Fiskveiðasjóð skortir ó annan milljarð Ljóst er, að gengis- lækkunin bætir myndar- lega við verð skuttogar- anna 49, sem koma munu til landsins, eða smiðaðir verða og þegar eru komnir til landsins. Af þessum 49 togurum eru 39 erlendis frá fyrir samtals um 4.782 mill- jónir króna á gamla genginu, að þvi er Bjarni Bragi Jónsson hjá Framkvæmdastofn- un rikisins sagði Visi. Skuttogararnir, sem áætlaö er að smiða innanlands, voru áætl- aðir um 1230 milljónir króna. Gengislækkunin mun bæta við um 575 milljónum við verð logaranna erlendis, en ei' reiknað er með þvi, að um helmingur verösins á inn- lendu togurunum sé ai' erlendum toga spunninn, hækkar gengis- lækkunin verð innlendu skuttog- aranna 10 um 75 milljónir króna. Alls hækka þvi skuttogararnir um 650 milljónir króna vegna gengis- lækkunarinnar. Ekki verður þetta til að bæta úr íyrir Fiskveiðasjóði islands, sem ætlað er að íjármagna i'lesta þessa togara að verulegu leyti. Ljóst var i'yrir gengislækkun, að sjóðinn skorti eitthvað á annan milljarð króna i'yrir gengislækk- un tilaðgeta staðið undir væntan- leguni skuldbindingum sinum á næsta ári, en enn er óljóst, hvaðan sjóðurinn ætlar að ná i þetta fjármagn. —VJ Elding skall á þotu ,,Við vorum yfir Keflavikur- i'lugvelli uin sexleytið i gærdag, þegar eldingin skall á okkur,” sagði llenning Bjaruason l'liig- stjóri i morgun, þegar Visir hafði samband við liaiin. Henning kvað enga hættu vera á ferðum þó eldingu slægi niður i flugvél, þær væru allar byggðar þannig, að elding getur ekkert ai' sér gert, sagði hann. ,,Það kemur býsna mikill há- vaði, þegar eldingin skellur á vél- inni og bjart ljós, svo að maður hálfblindast i smá tima á eftir. Það er lika talsverður hnykkur sem kemur á vélina, en það furðulega er, að það koma sjaldn- ast nema smá rispur á vélarnar eftir að þær hafa fengið á sig eldingar.” Og Henning talar um vélarnar i fleirtölu vegna þess, að þetta er ekkert einsdæmi. Hann sagði okkur, að hann hefði nýlega blaðað i gegnum skýrslur varð- andi þetta efni, og komst að þvi, að hver flugvél, sem á loft fer, verður að meðaltali fyrir tveimur eldingum á ári. Hœsti mögulegur vind- stigafjöldi ó Stórhöfða 10 og 11 vindstig víða um landið Þaö, sem orsakaöi þetta mikla hvassviöri i gærkvöldi og i nótt, var kröpp lægð, sem iór noröaustur yfir landiö og var yfir Ilvammsfirði um mið- nætti i nótt. Hvassast varð á stórhöfða, en þar voru 89 hnútar sem teljast 12 vindstig, en það er hæsta tala yf'ir vindstig, sem hér er notuð á Veðurstoi'unni. 60 hnútar óg allt þar yfir er kallað vindstig. Af öðrum stöðum mætti nefna 77 hnúta á Rauíarhöfn og 70 i Nýjabæ. Hér er um að ræða lölur yfir stöðugan vind. Stöðugur vindur var mestur 59 hnútar i Reykjavik, en i vind- hviðum komst hann upp i 85 hnúta. Tvær flugvélar Flugfélags tslands urðu að lenda i Keflavik 3g láta þar fyrir berast. Einnig rarð ein önnur flugvél i innan- landsflugi innlvksa á Akurevri. —LÓ Kauplagsnefnd og hagstofa eiga að höggva á hnútinn Ný lög heimila að reikna út vísitölu fró 1. janúar Kauplagsnelnd og nagstoiu- stjóra er uú að ætlað að skera úr iiin, livort 2.5 visitölustig, scin Irestað var að greiða vegna verð- stöðvunarinnar, skuli borguð frá 1. janúar, þegar núverandi verð- stiiðvun rcnuur út, að þvi er llannihal Valdimarsson, félags- málaráðberra, sagði Visi i morgun. Kauplagsnei'nd og hagstofu- stjóri töldu sig ekki hafa heimild lil þess að reikna út visitöluna aftur i'yrr en ei'tir 1. febrúar fyrir visitölu, sem gilda átti frá 1. marz, en bundið er samkvæmt lögum, að visitöluna skuli reikna út á þriggja mánaða fresti. Þess vegna var i gærkvöldi samþykkt á alþingi með hraði ný lög, sem gera kauplagsnei'nd skylt og kleift að reikna framíærslu visitöluna út núna með tilliti til þessara 2.5 visitölustiga, sem frestað var. Hannibal sagði, að algjör samstaða hefði náðst milli verkalýðshreyfingarinnar, at- vinnurekenda og rikisstjórnar- innar að láta kauplagsnefnd og hagstofustjóra skera úrum, hvort þessi 2.5 visitölustig skyldu koma til greiðslu að fullu nú 1. janúar, en rikisstjórnin telur, að ýmsar ráðstafanir sem gerðar voru, valdi þvi, að eðlilegt væri að draga 1/2 til 1 1/2 stig frá. Þarna mun helzt hafa komið til verð á búvöru, eða það atriði, að frestað var að endurskoða búvöruverð. — Þetta þýðir það, að kauplags- nefnd er falið að taka hreina, faglega afstöðu til málsins. — -VJ AÐALVANDAMÁLIN AÐ META EIGNAHLUTFÖLL FÉLAGANNA segir Hannibal Valdimarsson, samgöngurúðherra um sameiningarmúl flugfélaganna llel/.ta vandainálið i samein- ingarviðræðum flugfélaganna er l'yrst og fremst að mcta rétt eignahlutföll félaganna við sameiiiiiigu. sem nú er helzt tal- að uin, sagði llannibal Val- dimarsson, samgönguráðberra i viðtaii við Visi i morgun uin sameiningar- og samstarfsvið- ræður þær, sem fram fara á veguni ráðuneytis hans milli Flugl'élags islands' og Loftleiða. Ilaniiibal sagði, að vel horfði með viðræðurnar og vilji sé hjá háðum aðilum. að þær leiði til árangurs. Fyrst var talað um, að sameining flugfélaganna tveggja i eitt flugfélag gæti orð- ið á sjö árum, en nii væri talað um, að það gæti orðið á miklu skemmri tima. Siðasti viðræðu- fundur flugfélaganna verður lialdinn i dag. —VJ Allir vegir — en fúir fara úr bœnum fyrir þessa stuttu jólahelgi ,,Við hér á Umferðarmið- stöðinni erum satt að segja að furða okkur á þvi, hversu rólegt ætlar að verða hér fyrir þessi jól,” sagði afgreiðslustúlka þar i viðtali við Visi skömmu fyrir hádegi. Þá kvað hún ekki fleiri en 100 manns hafa lagt upp frá stöðinni, sem væri harla fátt miðað við þann fjölda, sem búizt hafði verið við, að þar færu um i dag. ..Kannski svona mörgum finnistekki taka þvi að leggja á sig langferðir fyrir svo stutta jólahelgi sem nú”, stakk afgreiðslustúlkan upp á. Hún sagði hópferðabila hafa lagt af stað strax upp úr klukkan átta i morgun og þá samkvæmt fullri ákvörðun. ,,Að þvi er Vegagerðin segir, eru allir vegir færir um landið”, sagði stúlkan, en bætti þvi við, að Holtavörðuheiðin væri sögð eitthvað varhugaverð — en þó ekki ófær. Meðfylgjandi mynd sýnir nokkra þá fyrstu sem búast til brottferðar frá Umferðarmið- stöðinni i morgun. ______ÞJM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.