Vísir - 23.01.1973, Qupperneq 3
Vísir. Þriöjudagur 23. janúar 1973
3
Blaðamaður Vísis í Eyjum í morgun:
„EINS OG Í DRAUGABORG"
— þegar eldbjarminn lék um yfirgefínn athafnabœinn
Frá Eddu Andrésdóttur,
Vestmannaeyjum í morg-
un: Blaðakona Vísis var
víst eina kvenveran á ferli
á götum Vestmannaeyja í
morgun. Bærinn var einna
líkastur draugabæ, þegar
blaðamenn Vísis komu á
staðinn í morgunsáriö. Ibú-
arnir flestallir farnir, að-
eins um 500 manns voru
taldir eftir, en aðrir höfðu
yfirgefið heimili sín og
haldið til Reykjavíkur.
Yfir bænum hvilir einhver
undarlegur roði frá jaröeldunum i
útjaðri bæjarins og hér vellur og
smellur öðru hvoru með miklu
braki i gosstöðvunum. Göturnar
eru þaktar öskulagi, og ef komið
er nálægt gosstöðvunum, mætir
manni gosmökkur og eiturgufur.
Bóndinn i Kirkjubæ, sem er
skammt fyrir utan aðalbyggðina,
er verst staddur, en hann yfirgaf
heimili sitt núna fyrir skömmu,
eða um hálfátta. Var húsdýrum
sleppt, en talið er að hestar hafi
oröið fyrir hraunflóðinu og farizt i
morgun. Vitað var a.m.k. um
einn hest örugglega, en óttazt um
aö margir aðrir hafi jafnvel hlotið
sömu örlög.
Við hittum formann hafn-
arnefndar aö máli skömmu eftir
komuna. Hann var vongóður um
að skip og bátar gætu tekið fólk
frá Eyjum, ef svo skyldi fara að
hraunflóðið lokaðihöfninnieins og
vel gæti gerzt. Tehir hann að bát-
ar geti siglt inn á svokallað Eiði
og athafnað sig þar, eins og gert
var áður fyrr i Eyjum. t höfn i
morgun var Herjólfur og fyrir ut-
an lónaði Laxfoss, en á flugvellin-
um biðu 2 eða 3 flugvélar þess að
fyllast af farþegum, en raunar er
orðið fátt um fólk hér, og þeir sem
eftir eru, vilja ekki fara fyrr en i
lengstu lög.
Talað er um það hér að flytja
allt verðmætt, bila, verðmæta inn-
anstokksmuni og annað af hættu-
svæðinu, en ekki veit ég nánar um
hvaða áætlanir yfirvöld hafa á
prjónunum i þvi efni.
Ég hitti Sigurð Þórarinsson,
jaröfræðing, að máli áðan, en
hann var að koma hingaö. Hann
sagði, að hann þyrði ekki að spá
neinu um framhald gossins, en
hann kvaðst gizka á að sprungan
væri um hálfur annar kilómetri á
lengd, en rifan er fremur mjó að
þvi er viröist. Sagði Sigurður að
þetta mundi fyrsta gosið i Eyjum
i 5500 ár eða allt frá „fæðingu”
Eyjanna. Sagði hann og greini-
legt, að eldsvæðið væri að færast
til af Reykjanesskaganum að
Vestmannaeyjum. — EA —
Þessi ótrúlega sjón mætti Vfsismönnum er þeir komu fljúgandi til Eyja i nótt
jaröeldurinn bullar og kraumar rétt viö bæjarmörkin og varpar undarleguin roöa á byggöina.
(Ljósmynd Vfsis BG)
Bandaríkjamenn
bjóða aðstoð
Bandarikjastjórn
sendi samúðarkveðjur
til rikisstjórnar íslands
i nótt, eftir að fréttir
bárust viða um heim um
hamfarirnar i Vest-
mannaeyjum.
Bauð Bandarikjastjórn
bráðabirgðafjárhagsað-
stoð, ef islenzka stjórnin
þarf á að halda. Þá
bauð Varnarliðið hús-
næði og alla aðstoð sem
tiltæk var, en
Upplýsingaþjónusta
Bandarikjanna bauð
Rauða krossi íslands
húsnæði sitt við Nesveg
til umráða, ef á þyrfti að
halda. — JBP—
Um 70 manns yfir-
fara skýrslurnar!
Skattskýrslur, sem sendar eru
út aö þessu sinni, eru 100.133.00 að
tölu og er það i fyrsta sinnið sem
skattskýrslurnar fara yfir
hundraöiö, að þvf er rikisskatt-
stjóri, Sigurbjörn Þorbjörnsson
sagði i viðtali við blaðið. I fyrra
voru sendar út 97.600.00 skýrslur.
i Reykjavik eingöngu voru
sendar út 42.800 skýrslur í ár, en
41,800 í fyrra.
Nokkrar breytingar hafa orðið
á skattskýrslunni að þessu sinni
frá þvi sem áður var. Liðir sem
ekki eru lengur frádráttarbærir
hafa fallið úr, en einn nýr liður
kominn i staðinn, og á sá við sjó-
menn. Það er frádráttarliður, 8%
af beinum tekjum sjómanna af
fiskveiðum.
Fjórir frádráttarliðir hafa
fallið út, það eru gjöld sem ekki
eru lengur til i skattalögum. Það
er eigr.aútsv?'", almanna-
tryggingagjald, iúkrasamlags-
gjald og eignaskattur.
Eignaskattur er að visu ekki af-
numinn, en þar hafa orðið á
nokkrar breytingar.
Ekki hafa orðið breytingar á
formi skattskýrslunnar sjálfrar
og er hún sett upp eins og venju-
lega. Hins vegar hefur orðalagi á
stöku stað verið breytt. -EA.
— segja sjómenn svartsýnir í morgun
itt aö fá fólk bingað á ver-
tið”, sögðu sjómennirnir,
sem töldu jafnvei að Kyjabú-
um sjálfum mundi hér eftir
finnast erfitt aö búa á staö
þar sem búast mætti viö ööru
eins og þvi, scm þcir uppliföu
I nótt. ,,fig held aö þetta sé
allt búiö”, sagöi einn þeirra
armæöufullur. — Eitthvaö
mun hafa boriö á svartsýni
meöal þeirra, sem yfirgáfu
Eyjarnar í morgun, einkum
hinna eldri, sem höföu á oröi
að þeir mundu vart snúa
aftur. — EA —
Edda Andresdó 11 ir ,
Vestmannaeyjum:
Sjómenn I Vestmannaeyjum
voru heldur svartsýnir, þeg-
ar.ég talaöi viö þá niður viö
höfn i morgun „Við erum
hræddir um að þaö veröi erf-
,VILL NOKKUR KOMA
HINGAÐ EFTIR ÞETTA?'
Þannig þckkjum viö Eyjar, þannig eru þær, voru og verða vonandi áfram og áreiðanlega vona allir, aö
beimamenn geti aftur flutt til sins heima og aö náttúruöflin muni ekki fara eins óbliöum höndum um
byggð þeirra eins og margir óttast. (Ljósmynd Mats Wibc Lund)