Vísir - 23.01.1973, Blaðsíða 9
Visir. Þriöjudagur 23. janúar 1973
9
Herjólfsdalur
Kirkjubær
ilUrðarviti
HELGAFELL
Flugturn
Skarfatangi
metrar 0
aðstoðar við löggæzlu þar. Alls
um 20 lögregluþjónar.
Einnig voru gerðar ráöstaianir
til aðstoðar við brottflutning
fólks.en bátafloti Vestmannaeyja
var að sjálfsögðu strax nýttur i
þeim tilgangi. Varnarliðið sendi
þyrlur til flutnings sjúklinga.
Einnig sendi Flugfélag Islands
flugvélar sinar til Vestmanna-
eyja og fjölmargar einkaflug-
vélar fóru þangað. Skipum
Landhelgisgæzlunnar, svo og
nærtækum skipum Skipaútgerðar
rikisins og Eimskipafélags Is-
lands var beint til Vestmanna-
eyja, einnig öðrum skipum og
bátum á nálægum slóðum.
Gerðar voru ráðstafanir til að
senda tiltækar áætlunarbifreiðir
og strætisvagna í Reykjavik og
nágrenni til Þorlákshafnar til
flutnings á fólki til Reykjavfkur,
þar sem Rauði kross Islands ann-
ast skipulagningu á móttöku
fólksins i Árbæjarskóla, Mela-
skóla, Stýrimannaskóla, Hamra-
hliðarskóla og Austurbæjarskóla.
Einnig hafa læknar og annað að-
stoðarlið verið sent til Þorláks-
hafnar ti) aðhlynningar á fólki.”
Gott veður hjálpaði mik-
ið
Þess skal getið, að mjög gott
veður var i Vestmannaeyjum,
þegar gosið hófst i nótt og alveg
fram á morgun. Má nærri geta,
hve það auðveldaði mikið allt
björgunarstarf. Sérstaklega var
þetta mikilvægt við flutninga á
öllu veiku og lasburða fólki, sem
annars hefði orðið að fara sjóveg.
Flugvélarnar tóku alls um 60
sjúklinga, en margt af þvi fólki
var illa haldið, að sögn ólafs
Ólafssonar, landiæknis. — Sumt
af þessu fólki var ósjálfbjarga og
miður sin. Nokkrir þeirra voru
fluttir á Landakot, en annars var
sjúklingum skipt á Borgarspital-
ann og Landsspitalann, þar sem
aðrir sjúklingar minna veikir
voru látnir vikja fyrir þeim.
Töluverður viðbúnaður var hjá
heilbrigðisyfirvöldum. Þannig.
voru sjö læknar og hjúkrunarfólk
sent til Þorlákshafnar til að
annast fólk, þegar það kæmi i
land. Fyrstu bátarnir með fólk úr
Eyjum voru að koma þangað um
kl. 7.20 i morgun. Margt af þvi
fólki var miður sin, sjóveikt og
slæpt og var hlynnt að þvi. 34 rút-
ur voru tiltækar til að flytja fólkið
til Reykjavikur.
Vestmannaeyingum
komið fyrir
En það er ekki nóg að koma
ibúum Vestmannaeyja til lands.
Ekki er sennilegt, að þeir geti
snúið aftur til heimila sinna fljót-
lega. Þvi er fyrst og fremst ætlast
til þess að skólarnir fimm, sem
fólkið hefur verið flutt til, verði
dreifingarstöðvar. Reiknað er
með þvi að ættingjar og vinir hér
á höfuðborgarsvæðinu muni hýsa
mikinn meirihluta Eyjabúa.
Fyrir þá, sem ekki hafa slika að-
stöðu eru tilbúin um 500 rúm á
hótelum borgarinnar. Mikið starf
var þó augljóslega fyrir höndum
að koma öllum málum i höfn i
morgun. Þannig þarf að koma
upp skrá yfir alla Vestmannaey-
inga, hver hýsir þá o.s.frv. Rauði
kross Islands tekur þetta verkefni
að sér. Að þvi er stjórnarmenn
Almannavarna i morgun sögðu
blaðamönnum, fær Björn
Tryggvason, formaður Rauða
krossins, ýmsa starfsmenn bank-
anna og fleiri menn, sem vanir
eru skipulagningu til að taka að
sér þetta verkefni.
Mikill og
alinennur hjálparvilji
Stjórn Almannavarna lýsti yfir
sérstakri ánægju sinni yfir þvi,
hve auðvelt hefði verið að fá fólk
til hjálpar. Um leið og fréttist af
eldgosinu i Eyjum komu allar
björgunarsveitir borgarinnar
með allan sinn útbúnað,, en mikil
þörf var t.d. fyrir teppi, dýnur og
annan útbúnað til að hlynna að
fólki, þegar það kemur til borgar-
innar Auk skipulagðra hjálpar-
sveita hafði fjöldi almennra
borgara samband við almanna-
varnir til að bjóða fram hjálp
sina. Fyrrverandi Vestmannaey-
ingar voru þar sérstaklega áber-
andi.
Talsamband við
útlönd í hættu
Að þvi er Jón Skúlason, póst og
simamálastjóri, en hann á sæti i
Almannavarnaráði, taldi i
morgun, var allmikil hætta á þvi,
aö simasamband við útlönd rofn-
aði vegna gossins. Radióstöðin,
sem tekur við talsambandinu frá
Reykjavik, er i Sæfjalli, sem er
rétt við suðurenda gossprungunn-
ar. Stöðin sjálf er i mikilli hættu.
En auk þess er jarðstrengur, sem
liggur frá stöðinni að Klauf við
Stórhöfða i hættu. 1 morgun var
veriðað gera ráðstafanir til að ná
ritsimasambandi við útlönd. Ef
strengurinn eða stöðin skemm-
ast, verður ekki unnt að notast við
jarðstrengina, sem liggja bæði
austur og vestur um haf.
Neyðaráætlun
var tilbúin
Það er litill vafi á þvi, að það
var til mikils hagræðis við
björgunarstarfið i nótt, að
neyðaráætlun var til um það
hvernig bregðast skyldi við hættu
af völdum náttúruhamfara i
Vestmannaeyjum. — Þetta skipu-
lag á brottflutningi ibúa Vest-
mannaeyja er að visu ekki alveg
nýtt; en Jón Böðvarsson, iðnaðar-
verkfræðingur, gerði j)að á sinum
tima fyrir dr. Agúst Valfells, þeg-
ar hann var forstöðumaður Al-
mannavarna. I lokaorðum
skýrslunnar, sem var gerð i
febrúar 1964 segir m.a.:
„Likur fyrir brott-
flutningi litlar”
„Tilgangur þessarar skýrslu er
fyrst og fremst sá aö gera grein
fyrir nausynlegustu ráöstöfunum
og aðgerðum, ef flytja þyrfti ibúa
Vestmannaeyja brott. Likur fyrir
brottflutningi ibúanna vegna
náttúruhamfara eru, sem betur
fer, taldar mjög litlar. Skipulag
ráðstafana og aðgerða miðast við
þær aðstæður, sem helzt mætti
búast við. Ef þær tillögur, sem
hér eru settar fram, ættu að halda
gildi sinu, þyrfti að endurskoða
þær með vissu millibili.”
Við fljótan lestur á skýrslunni'
verður ekki betur séð en að þær
áætlanir, sem þar voru gerðar
hafi staðizt mjög vel. I skýrslunni
er gert ráð fyrir, að mest mundi
taka um 24 klukkustundir og
minnst 15 klukkustundir að flytja
alla á brott, frá þvi að hjálparkall
berst. Nú tók hinsvegar aðeins
fjórar klukkustundir að flytja alla
þá á brott, sem vildu fara.
Neyðaráætlun til fyrir
2 bæi og 2 flugvelli
Enginn vafi er á þvi, að Al-
mannavarnaráð hefur aflað sér
dýrmætrar reynslu i nótt. Til
allrar hamingju hefur þeirrar
reynslu verið aflað, ekki af mis-
tökum, heldur af farsælu starfi.
Þessi reynsla ætti að koma að
notum við neyðaráætlanir, sem
ekki eru til fyrir flesta staði
landsins. Aðeins eru til neyðar-
áætlanir fyrir Vik i Mýrdal
(vegna Kötlugoss) og Húsavik
(vegna jarðskjálftahættu) og svo
tvo flugvelli landsins, Reykja-
vikurflugvöll og Keflavikurflug-
völl (ef stórslys bæri að höndum ).
Hætta af eldgosum og öðrum
náttúruhamförum er þó auðvitað
á miklu fleiri stöðum og þá ekki
sizt hér á aðal þéttbýlissvæði
landsins. _yj
Mikið efnahagsáfall
Eldsumbrotin i Vestmannaeyj-
um er ekki aðeins mikið áfall
fyrir Vestmannaeyinga, heldur
gæti það einnig verið mikið efna-
hagslegt áfall fyrir landið i heild.
1 Vestmannaeyjum eru fjögur
stærstu frystihús landsins, en alls
eru húsin þar fimm. Útflutnings-
verðmæti hraðfrystra sjávaraf-
urða 1972 i Eyjum varð alls 1020
milljónir króna, eða einn fimmti
{af öllum útflutningi frystihúsanna
: innan SH, en öll frystihúsin i Eyj-
urri eru innan SH. Alls voru fram-
leidd þar i fyrra 12.719 tonn af
frystum sjávarafurðum, en alls
voru þá framleidd um 85 þús. tonn
á landinu öllu. Nú eru frystar
birgðir fyrir 134 milljónir i húsun-
um. Auk hraðfrystingarinnar er
töluverð saltfiskverkun i Eyjum
og þar er einnig helzta loðnuver-
stöðin.