Vísir - 23.01.1973, Síða 17
Visir. Þriðjudagur 23. janúar 1973 17
| í DAG | í KVÖLD | í DAG | I KVÖLP | I DAG ~1
Sjónvarp í kvöld kl. 20.30:
Hlutabréfastríð Sheftons
,.,.V,V.V.,.V.V%W.,.V.V.W.V.V.,.V.,.V.V.V.,.VAV.V
í
I
"t*
M
*
Nl
Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 24. janúar.
Hrúturinn,21. marz—20. april. Það verða gerðar
vissar kröfur til þin i dag, ef til vill meiri en þér
þykir sanngjarnt, en þvi færðu vist ekki um
þokað eins og er.
Nautið,21. april—21. mai. Máltækið, að ekki séu
allar ferðir til fjár, kann að sannast i dag og
valda þér nokkrum vonbrigðum, þar eð þú munt
hafa reiknað með öðru.
Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Simtal eða bréf
færir þér góðar fréttir, en gerir þig um leið
dálitið undrandi. Yfirleitt mun þetta verða þér
notadrjúgur dagur.
Krabbinn, 22. júni—23. júli. Taktu ekki að öllu
leyti mark á hrósi og viðurkenningu manna i
■dag, þvi að ekki er óliklegt, að þar búi eitthvað
undir, er siðar kemur fram.
I.jónið, 24., júli—23. ágúst. Það getur komið sér
vel fyrir þig i dag, að þú munt eiga góðan að á
„hærri” stöðum, sem þú getur leitað til, ef þú ert
órétti beittur.
i
u
Meyjan.24. ágúst—23. sept. Það litur út fyrir, að
dagurinn verði þér á margan hátt notadrjúgur,
en um leið er liklegt, að það geti kostað þig erfiði
að ná tilsettum árangri.
Vogin,24. sept.—23. okt. Einhverra hluta vegna
muntu þurfa að láta sem þér sé meira kappsmál
að koma vilja þinum fram en þér er i raun og
veru. Varastu samt að ofleika.
Drckinn.24. okt.—22. nóv. 1 dag muntu sjá fyrir
endann á einhverri baráttu, sem þú hefur staðið
i að undanförnu. Þú færð þar varla fullan sigur,
en mikið til.
Bogmaðui inn,23. nóv,—21. des. Þetta mun varla
geta kallazt beinlinis notadrjúgur dagur, þvi að
ýmislegt mun verða til tafar og margt handar-
vikið verða til litils.
Stcingcitin,22. des,—20. jan. Það er ekki óliklegt
að þú vaknir upp við vondan draum i dag, i sam-
bandi við verkefni, sem þú hefur gleymt og
komið er i eindaga.
Vatnsbcrinn, 21. jan.—19. febr. Þetta verður þér
að mörgu leyti góður dagur, meðal annars fyrir
hugulsemi og skilning einhvers kunningja þins á
kjörum þinum.
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. Það virðist vera
margt, sem þú þyrftir helzt að koma af samtimis
i dag. Einhver nauðsynleg undirskrift lætur lik-
lega á sér standa.
í
Í'iWAW.W.V.W.WA'.V.V.'.V.W.V.V.V.W.V.V.W,
Það eru alltaf miklar
sviptingar og mikið um andleg
átök innan Ashton-fjölskyld-
unnar, og mun ekki verða brugðið
útfrá þeirri venju i sjónvarps
þættinum ikvöld, en hann kallast
„Frændur eru frændum verstir”.
Systir Shefton Briggs kemur i
heimsókn frá Ástraliu, og heldur
bróðir hennar veglega veizlu af
Margrét Jónsdóttir sér um
„Fréttaspegilinn” i kvöld, en
meðal annarra koma fram i
þættinum Haraldur Olafsson og
Þorsteinn Thorarensen.
Haraldur fjallarum Guinea og
morðið á Amilcar Cabral, en
hann var myrtur sl. laugardag.
Þorsteinn Thorarensen mun ræða
um fransk-þýzka vináttusátt-
málann, en sá sáttmáli átti lOára
afmæli i gær.
Vináttusáttmálinn var að veru-
legu leyti undanfari þess, að
Efnahagsbandalag Evrópu var
stofnað. Ovist er, hvort fleira
verður tekið fyrir i frétta-
speglinum að þessu sinni, enda er
þarna um stór og viðamikil mál
að ræða.
Þorsteinn Thorarensen fjallar um
fransk-þýzka vináttusáttmálann i
fréttaspeglinum i kvöld.
þvi tilefni. Þangað er lika allri
Ashton-fjölskyldunni boðið.
Shefton vill selja prentsmiðj
una, en þar sem hann á ekki
meirihluta hlutabréfanna og
Ashton-fjölskyldan er á móti
þessari ráðagerð, sérstaklega þó
Edwin, reynir Shefton sem mest
hann getur að kaupa upp hluta-
bréf þau, sem á vantar til að hann
geti komið söluáformi sinu i
framkvæmd. Jean heitin, sem
var sytir Sheftons, átti hlutabréf i
prentsmiðjunni, en að henni
látinni gengu þau til Edwins og
barna hans.
Systir Sheftons er haldin tak-
markaðri hrifingu á ráðagerðum
bróðurins. David — i fjárhags
kröggum að vanda — biður
frænda sinn um lán, en Shefton
gamli fær hann i staðinn til að
selja sér þau 5%, sem David átti i
fyrirtækinu. Ferþá liðiðaðvanta á
meirihlutavald Sheftons. En
sonur hans, Tony, á eftir að hafa
nokkur afskipti af málinu, og
geturþað ef til vill ráðið úrslitum.
—LTH
ÚTVARP #
Þriðjudagur
23. janúar
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.15 Til umhugsunar. Þáttur
um áfengismál i umsjá
Arna Gunnarssonar
(endurt.) 14.30 Frá sérskól-
um i Reykjavik: III:
Fóstruskóli Sumargjafar.
Anna Snorradótir talar við
Valborgu Sigurðardóttur
skólastjóra.
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
16.25 Popphornið.
17.10 Framburðarkennsla i
þýzku, spænsku og
esperanto.
17.40 Útvarpssaga barnanna
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Umhverfismál.
19.50 Barnið og samfélagið.
20.00 Lög unga fólksins.
20.50 íþróttir. Jón Ásgeirsson
sér um þáttinn.
12.10 Svita fyrir pianó op. 45
eftir Carl Nielscn.
21.35 Einfari á öræfum.
22.15 Veðurfregnir. Tækni og
visindi / Hinn hviti riddari
visindanna, Louis Pasteur.
Dr. Vilhjálmur G. Skúlason
prófessor flytur fyrsta
erindi sitt.
22.35 Harmónikulög. Franskir
harmónikuleikarar leika.
23.00 A hljóðbergi.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
| SJÓNVARP »
Þriðjudagur
23. janúar 1973
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Ashton-fjölskvídan
Brezkur. framhaldsmynda-
flokkur. 37. þáttur „Frænd-
ur cru frændum verstir”.
Efni 36. þáttar: Celia Porter
ákveður loks að láta til
skarar skriða og segja syni
sinum frá vixlspori eigin-
konu hans, meðan hann var
týndur og talinn af. Harry
sér að hverju stefnir og
hraðar sér á fund Margrét-
ar, til að aðvara hana. Hún
hyggst segja John allt af
létta, þegar hann kemur
heim, en það er of seint.
Hann hefur þegar hitt móð-
ur sina. Hann tekur þó frétt-
inni öðruvisi en Margrét
hafði búizt við, afsakar
hegðun Margrétar, en snýst
öndverður gegn móður
sinni.
21.20 Vinnan. Þegar clli sækir
að. Þátturinn fjallar um
vandamál fólks á aldrinum
66—85 ára, þátttöku þess i
almennum störfum, ef
kraftar leyfa, verndaða
vinnustaði og dvöl á elli-
heimilum. Barði Friðriks-
son, Guðmundur J. Guð-
mundsson, Jóhann Þor-
steinsson úr Hafnarfiröi,
sem helur gert könnun á
högum aldraðra þar, og
Oddur Ölafsson ræða þessi
mál i sjónvarpssal. Umræð
um stýrir Baldur Öskars-
son.
22.10 Jólatónleikar i Rottcr-
dam. Hollenzka útvarps-
hljómsveitin og „Groot ()m-
rocp Koor” flytja verk eftir
Stoelzel, Palestrina, Bach,
Telemann o.fl. Stjórnandi
Kurt Redel. Einsöngvarar
Elly Ameling, Ria Bollen,
Theo Altmeyer og Mareo
Bekker. Einleikari á hörpu
Vera Badings. (Evrovision
Hollenzka sjónvarpið).
23.10 Dagskráriok.
Hann er sleipur I viðskiptum, gamli maðurinn, og gefst ekki upp við
smáandvara. En kannski bognar hann eða brotnar, ef stormur skellur
á.
Hljóðvarp í kvöld kl. 19.20:
TÍU ÁRA
AFMÆLI VIN-
ÁTTUSÁTTMÁLA