Vísir - 04.06.1973, Síða 13
13
Þurfti 72 holur
og bróðabana
til að fá úrslit
sem fyrr vinnur holu, er
sigurvegari
A fyrstu holunni urðu þeir
jafnir með 4 högg en par
holunnar er 4. Þeir léku báöir af
sér á 2. holu, sem er par 3, en
komu báðir út með 4 högg. Eins
fór á þeirri þriðju, þar sem þeir
slógu báðir 5 högg, þaö er að
segja eitt högg yfir pari, og það
var ekki fyrr en þeir léku fjóröu
holuna, sem er 18. holan og liggur
hún heim að golfskálanum, sem
úrslit fengust, og Jóhann Ó. Guö-
mundsson tryggði sér sigurinn.
Og nú er
það golfið
fyrir
konurnar
Golfklúbbur Reykjavíkur
gengst fyrir námskeiði og
æfingum fyrir konur á öllum aldri
i golfi, og hefst námskeiðið á
morgun klukkan 13.30 á golfvelli
félagsins i Grafarholti. Þar
verður kennsla fyrir þær konur,
sem eru að byrja og annast hana
Þorvaldur Asgeirsson, golfkenn-
ari. Einnig gefst þeim konum,
sem þess óska kostur á þvi að
leika með konum, sem starfa i
klúbbnum og nokkra æfingu hafa
hlotið.
Að sjálfsögðu er nauðsynlegt
fyrir kvenfólkið að hreyfa sig úti
við ekki siður en karlmennina og
ein leiðin til þess er að leika golf
eins og sá fjöldi, sem hafið hefur
golfiðkun á siðustu árum, bezt
veit.
Þessi starfsemi er á vegum
kvennanefndar Golfklúbbs
Reykjavikur og veitir Gyöa
Jóhannsdóttir, formaður
nefndarinnar, allar nánari
upplýsingar um námskeiðin i
sima 82090.
Þessir kappar, Björgvin Þorsteinsson, Einar Guðnason og óttar
Yngvason, eru taldir öruggir i landsliðiö f golfi, sem tekur þátt I
Evrópumótinu i Portúgal um næstu mánaðamót.
Það var mikil spenna,
þegar þeir léku til úrslita i
Coca Cola keppni Golf-
klúbbs Reykjavíkur,
Jóhann O. Guðmundsson
og Einar Guðnason nú um
helgina. Þeir voru jafnir
eftir 72 holur, sem voru
leiknar á fimmtudag,
föstudag og laugardag, og
urðu því að leika svo-
kallaðan „bráðabana" til
þess að fá fram úrslit. En
því er þannig hagað, að sá,
Jóhunn Ó. Guömundsson, sem
sigarði i Coca Cola keppninni.
STJÖRNU ★ LITIR sh
Armúla 36 Málningarverksmiðja Sími 8-47-80
Þarna berjast þeir um boltunn, Bergsveinn og Ólafur, en Magnús, markvörður KR, er tilbúinn til að grípa inn i, ef þörf er á.
Valur ekki ó
skotskónum
— sigraði þó KR
Það var sannarlega vonum
seinna, sem Hermann skoraði
fyrra mark Valsara í leik
þeirra í gærkvöldi gegn KRing-
um. Á 20. mínútu sendi Birgir
Einarsson knöttinn til Jó-
hannesar Eðvaldssonar, sem
lék upp að endamörkum og gaf
hann siðan alveg fyrir markið
og þar afgreiddi Hermann
knöttinn beint í mark með lag-
legri kollspyrnu yfir Magnús
markvörð KRinga.
Yfirburðir Valsara voru
miklir i fyrri hálfleik og það lá
stöðugt í loftinu, að Valsarar
mundu skora, en það varð ekki
fyrr en á 20. mínútunni, og
fleiri urðu mörkin ekki í þeim
hálfleiknum og þótti sumum
Valsmanninum súrt í broti.
Nær allan hálfleikinn fengu Vals-
menn tima til þess að byggja upp sókn
sina á þann hátt, sem þeim hentaöi.
Mikill munur var nú fyrir þá frá þvi,
sem var i leiknum á móti Keflvik-
ingum, sem aldrei létu þá hafa nokk-
urn frið til að athafna sig. Hin frekar
þunglamalega sóknaruppbygging
Valsmanna, sem svo lengi hefur loöað
viö Valsliðið, fékk þvi að njóta sin i
þetta skiptið, þó markauppskeran yrði
ekki eins og efni stóðu til.
KRingum tókst aldrei aö ná tökum á
miðjunni og þvi fór leikurinn að miklu
leyti fram á þeirra vallarhelmingi i
fyrri hálfleiknum. Mikið mæddi á
vörninni, sem virkaði opin og litt sam-
stæö.
Fyrsta góða marktækifæri Valsara
kom á 8. minútu, þegar Helgi Bene-
diktsson komst einn innfyrir KRvörn-
ina.enbrenndigróflega af og fór knött-
urinn framhjá Magnúsi, sem kom á
móti Helga og langt fram hjá. Hörður
Hilmarsson lék nú sinn fyrsta leik með
Valsliðinu þetta sumar og var af
honum mikill styrkur, en Hörður hefur
dvalizt við kennslustörf á Akureyri
siðastliðinn vetur. Hann átti mjög fall-
egt skot á 12.'minútu af um það bil 30
metra færi, sem lenti ofan i þverslá
KRmarksins og aftur fyrir. Strax á
eftir lék Hermann laglega á tvo
KRinga og var kominn einn innfyrir,
en Magnús Guðmundsson markvörður
kom út úr markinu á réttum tima og
lenti knötturinn i honum og siðan fram
á völlinn aftur. Fyrra mark Valsara
kom siöan eins og áður sagöi á 20.
minútu en KRingar ná sókn þar á eftir,
sem lauk með lausu skoti fram hjá
marki.
2-0
Hermann Gunnarsson fékk gullið
tækifæri til að bæta við 2. marki á 29.
minútu, þegar hann fékk knöttinn, þar
sem hann var einn og óvaldaður á
vitapunkti — en svo bregðast krosstré
sem aðrir raftar og Hermann kiksaði,
satt að segja fremur óvenjulegt. —
Atli Þór var kominn inn á vitateig
þeirra Valsmanna á 33. minútu, þegar
Bergsveinn hindraði hann, og dómar-
inn, Guðjón Finnbogason, dæmdi
óbeina aukaspyrnu. Ekki voru allir
ánægðir með þennan úrskurð dómar-
ans, töldu, aö ekki hefði átt að dæma
annað en vitaspyrnu, þar sem brotið
vár framið innan vitateigs. Svipað at-
vik kom fyrir i siðari hálfleik, en þá
var það varnarmaður KR, sem braut
af sér innan eigin vitateigs. Þá var
einnig dæmd óbein aukaspyrna.
Annars átti dómarinn Guðjón Finn-
bogason nokkuð góðan dag, að visu má
kannski segja, að Guðjón hafi sleppt
leikmönnum of mikið við dóma vegna
ýmissa smábrota, sem setja leiðinleg-
an svip á leikinn, en hann kann þá list,
sem er mörgum dómurum hulin — að
dæma leikinn og halda honum i réttum
skorðum, án þess að verða of áberandi
á vellinum. 1 knattspyrnuleik á nefni-
lega að vera sem mest af knattspyrnu,
en flautukonsertar aðeins, þegar
brýna nauðsyn ber til.
Rétt fyrir lok hálfleiksins komst
Halldór Björnsson inn á vitateig Vals-
manna hægra megin, gefur að mark-
inu og ætla Atli Þór að afgreiða knött-
inn áfram i rietið, en i sama mund
kemur Sigurður Dagsson út úr mark-
inu og varpar sér á knöttinn, en svo
fór, að þeir rákust illa saman, og
meiddist Sigurður nokkuð á hendi og
varð að yfirgefa leikvöllinn. 1 stað
hans kom Sigurður Haraldsson, sem
betur er þekktur úr badminton iþrótt-
inni. Stóð hann sig nokkuð vel, ef frá
eru talin eitt eða tvö ævintýraleg
„ferðalög” hans út úr markinu, sem
þó settu aðeins hroll að Valsmönnum,
en mörk urðu ekki.
Botninn datt algjörlega úr spili Vals-
manna stóran hluta siðari hálfleiks og
einnig áttu KRingar öllu meira i leikn-
um, þó fáum raunverulegum mark-
tækifærum væri til að dreifa. Þó átti
Jóhann Torfason gullið tækifæri til
þess að jafna, þegar hann skaut laus-
um bolta innan á stöng Valsmarksins
og hrökk knötturinn siöan fyrir mark-
ið, en ekkert varð meira úr þvi tæki-
færi.
Valsmenn innsigluðu sigurinn á 33.
minútu, þegar Guðjón Harðarson átti
góða sendingu A Hörð Hilmarsson,
sem var kominn inn fyrir vitateig
vinstra megin og skaut að marki —
Magnús virtist hafa hendur á knettin-
um, en samt sem áður fór hann i
markið, enda var skotið mjög fast.
Það voru þvi þeir Hliðarendamenn,
sem hirtu stigin 2 i þessum leik erfða-
fjendanna og fluttust þar með úr 4.
sæti i annað i 1. deildar keppninni.
13 ./
*
« m
Þarna gripur Sigurður Haraldsson, markvörður Valsmanna, inn á réttu augnabliki. Hann kom inn á i stað Sigurðar
Dagssonar, sem meiddist, og stóð Sigurður sig meö prýði.
2. deild
Völsungar unnu
á Norðfirði og Ármenn-
ingar unnu á Selfossi
Völsungar sigruðu
Þrótt á Neskaupstað i
fyrri leik liðanna í 2.
deildar keppninni á
laugardaginn. úrslit
leiksins voru 4 mörk
gegn tveimur.
Það voru þó Þrótt-
arar, sem skoruðu
fyrsta mark leiksins og
var það gert eftir horn-
spyrnu á 10 minútu
fyrri hálfleiks.
Það var ekki fyrr en á 31.
minútu hálfleiksins, að
Völsungar jafna með laglegu
marki Hreins Elliðasonar, sem
siðan lét sig ekki muna um að
bæta 2 mörkum við á næstu
tveim minútum og þannig stóðu
leikar i lok hálfleiksins 3 mörk
gegn 1 Völsungum I vil.
Arnar Guðlaugsson bætti
siðan 4. markinu við úr vita-
spyrnu, en Þróttarar áttu
siöasta orðið og gerðu siðasta
markið. Bæði liðin áttu fleiri
tækifæri til að skora, en úrslit
leiksins voru sanngjörn eftir
gangi hans.
Ármenningar bættu stöðu
sína í 2. deildinni nú um
helgina, þegar þeir unnu
Selfoss með 4 mörkum
gegn engu i rykmekkinum
á Selfossi. Að sögn leik-
manna sáu þeir ekki nema
stundum til hvors annars,
en logn var og gleymzt
hafði að vatnsbera völlinn
fyrir leikinn.
Smári skoraði fyrsta markið á
20. minútu fyrri hálfleiks og stóðu
leikar 1-0 i hálfleik. Hann gerði
siöan annaö mark á 10. minútu
siðari hálfleiks og Viggó annað
strax á eftir. Sigurður Leifsson
bætti siöan þvi 4. við rétt fyrir
leikslok.
Sigur Armenninga var verö-
skuldaöur eins og reyndar
markatalan gefur til kynna.
Þarna er Kristinn Jörundsson, I
búningi IR og heldur hann á vcrð-
launagripum fyrir körfuknatt-
leik. 1 sumar er Kristinn aftur á
inóti búsettur á Iiúsavik og
þjálfar og leikur þar nieð Völs-
unguin i 2. deild.
mni
bctri
malning
(VIALIMIIMQ HF