Vísir - 04.06.1973, Blaðsíða 24

Vísir - 04.06.1973, Blaðsíða 24
Mánudagur 4. júni 1973. „Orðin langeyg eftir svari" — segir Guðrún Jónsdóttir, form. Torfusamtakanna Enn voru menn úr Torfusam- tökunum á ferðinni um helgina viö lagfæringar á Bcrnhöfts- torfu, en samkvæmt upplýsing- um Guörúnar Jónsdóttur, for- manns samtakanna, var veriö aö vinná viö turninn á læknis- húsinu. ,,Við höföum bil meö krana i gærkvöldi, og tókum þvi allt sem gera þarf meö krana, en giuggarnir eru ennþá eftir. Þetta starf tekur í rauninni aldrei enda, og nú blðum viö eftir svari um, hvort við fáum aö fara inn i húsin. Viö höfum sótt um aö fá aö gera eitthvert húsanna upp aö innan, og erum satt aö segja oröin anzi langeyg eftir svari frá rikisstjórninni um þetta mál”, sagöi Guörún. ÞS Maður drukknar við Geldinganes Þaö slys varö skammt utan viö Geldinganes aö maöur, sem ætlaöi aö sundriöa yfir i Gufunes, féll af baki og drukknaði. Hann hét Jóhann Finnson, tanniæknir, til heimilis aö Hvassaieiti 77 I Reykjavik. Nánari málsatvik voru þau, aö Jóhann haföi farið meö þrjá til reiðar yfir f Geidinganes á fjöru, en þá er alveg þurrt þarna á milli. Er hann ætlaöi aö koma til baka, var háfióö og stórstreymi, sem er á hálfs mánaðar fresti, og veröur þá aildjúpt þarna á milli. Fóru hestarnir á sund, og samkvæmt uppiýsingum sjónarvotts, sem sá siysiö f kiki, féll Jóhann þá af baki. Sjónvarpsfólk var þarna á ferö er hestarnir komu renn- blautir upp i fjöruna og var strax byrjað aö leita á fjörunum. Sá, sem sá siysiö i kikinum, hringdi þegar á lögregluna sem kom strax á staöinn, ásamt slysa- varnarsveitum og sjúkraliði. Var fariö út á bát, en rétt eftir miönættiö um nóttina fundu slysavarnarsveitir lik Jóhanns á fjörunni skammt fyrir norðvestan Korpúlfsstaði. —ÞS Fengu nýjan skuttogara á sjómannadaginn Sjómenn fögnuöu degi sinum I hinu ákjósanlegasta veöri meö útihátíöahöldum i gær. Einhvcrs staöar á landinu þurfti raunar aö skjóta skólshúsi yfir hátiöahöldin vegna veöurs, en á Stór-Reykja- vfkursvæöinu var ekki hægt aö kvarta undan veörinu, enda var mikiö fjölmenni viö hátföahöid dagsins. Þá einkum og sér I lagi i Nauthólsvik. Þar fór m.a. fram hörku- spennandi kappróður I bæði karla- og kvennariðli. Þar var jafnframt á dagskrá björgunar- og stakkasund að ógleymdum koddaslag. Þyrla Landhelgis- gæzlunnar sýndi sig yfir Nauthólsvikinni og svo voru að sjálfsögðu nokkrir ræðumenn. Fyrr um daginn hafði veriö lagður blómsveigur að styttu Hannesar Hafstein, en fyrir framan styttuna hafði „fyrsta varöskipinu” verið komið fyrir og þar fyrir framan þrem blóm- sveigum. Einum fyrir hvern þeirra, sem fórust með þvi, er Hannes hugðist á sinum tfma snúa fyrstu landhelgis- brjótunum frá landi. 1 Hafnarfirði setti það mestan svip á hátiðahöldin, að Júni, sá nýi skuttogari Hafnfirðinga sigldi I höfn, fánum skreyttur. Hann var smiðaður á Spáni og var að koma þaðan, en á heimleiðinni hafði verið komið við i Frakklandi og Noregi. Sérstök hátiðardagskrá var að sjálfsögðu i Firðinum. Vakti þar mesta athygli sýning varnarliðsþyrlunnar, en hún sýndi m.a. björgun úr höfninni og annað af þvi taginu. —ÞJM bátnum reri kvenfólk frá Is- félaginu i Vestmannaeyjum. Þaö eru Isbirnurnar, sem viö sjáum á efri myndinni, en þær hafa áöur unniö sér bikar til eignar i kappróöri. Farand- bikarinn er veittur af Hraö- frystistööinni. og þœr sigruðu Sigurvegarnir Þær hafa ekki tapaö niöur neinu af róörasnilld sinni frá I fyrra, stúlkurnar frá tsbirninum. Annaö áriö I röö sigruöu þær i kappsiglingu kvenna á sjó- mannadaginn, en aö þessu sinni kepptu ekki nema tveir aöilar um farandbikarinn. Hinum rVono oð ég verði íslenzk- um ferðamólum að liði' — segir Sigurður Magnússon, blaðafulltrúí Loftleiða, sem hefur verið skipaður forstjóri Ferðaskrifstofu rfkisins — Ellefu sóttu um starfið Siguröur Magnússon, biaöa- fulltrúi Loftleiöa hefur veriö skipaöur forstjóri Feröaskrif- stofu ríkisins frá 1. september n.k. aö telja. Umsóknarfrestur um stööuna rann út 31. mai s.l., og voru umsækjendur 10 talsins. Blaðið haföi samband viö Sigurö i morgun og sagöi hann aö hann gæti litið sagt um áform sin i starfi þessu aö svo stöddu. „En ég vona aö ég geti oröið ísienzk- um feröamáium aö iiöi,” sagöi Siguröur. Sigurður hefur veriö blaða- fulltrúi Loftleiða frá 1951 og kvaðst hann vissulega myndu sakna starfs sins þar. Sigurður er kennari aö mennt og hefur áður unnið við ýmis störf, auk mikilla afskipta af ferðamálum. Hann hefur skrifað fjölda greina um margvisleg efni I blöð og timarit og átt sæti I stjórn Nor- ræna félagsins. Aðrir sem sóttu um stöðuna voru: Asbjörn Magnússon, deildarstjóri hjá Loftleiðum, Charlotta M. Hjaltadóttir, Full- trúi hjá Ferðaskr. rikisins, Bjarni Bjarnason, form. Leið- sögumannafél. Islands, Har- aldur Jóhannsson, hagfræð- ingur, Kristján Jónsson, framkvstj. Kynnisferða. Ludvig Hjálmtýsson, form. Ferðamálaráðs, Ragna Samúelsson , skrifstofustjóri hjá Ferðaskrifstofu rikisins, Steinar Berg Björnsson, starfsm. Iðnþróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, Þorgeir Halldórsson, forstöðumaður Þrastalundar. Þorleifi Þórðarsyni hefur að eigin ósk verið veitt lausn frá starfi frá 1. september n.k. að telja. Lœra í margföldum meðalhóvaða íbúðarhverfis Meðalhávaði i stofum þeim, sem snúa út að Frikirkiuveginum, er 50 til 70 decibel, sagði Björn Bjarnason, rektor Menntaskólans við Tjörnina, i ræðu sinni við slit skólans. Til samanburðar gat hann þess, að meðalhávaði i ibúðarhverfi i Sviþjóð hefði reynzt vera 7,5 decibel. MT var slitiö á miövikudaginn var, og I fyrsta sinn voru braut- skráðir þaöan stúdentar. I skóla- slitaræöunni gat rektor þess, hversu mjög af vanefnum skólinn hefði verið stofnaður og hve illa væri búið aö honum. Sem dæmi mætti nefna, að hver einasta smákompa væri fullnýtt frá morgni til kvölds. Og svo hefðu verið þar til skamms tima alls konar námskeið og samkomur öll kvöld og jafnvel um helgar. Litill áhugi virðist vera hjá mennta- málayfirvöldum, til að bæta þar úr, þvi aöeins 2 milljónir voru veittar til nýbyggingar skólans á núverandi fjárlögum, en ráðgert er, að skólinn kosti a.m.k. yfir 50 milljónir. Sem dæmi um féleysi skólans má geta þess, að ekki hefur reynzt unnt að gefa út skólaskýrslu, þar sem peningar eru ekki til fyrir1 prentuninni-ÓH-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.