Vísir - 04.06.1973, Blaðsíða 7

Vísir - 04.06.1973, Blaðsíða 7
Vísir. Mánudagur 4. júni 1973. 7 IIMIM I i S ÍÐAIM J Umsjón Edda Andrésdóttir „Mér sýnist sem heil- brigöisástand tanna sé betra í börnum og einnig að minna hafi veriö dreg- ið úr af fullorðinstönnum, en ég átti von á", sagði Þórður Eydal Magnússon tannlæknir, þegar við röbbuðum við hann i til- efni þess, að hann hefur nú gert könnun á faralds- fræði tann- og bitskekkju ásamt beinþroska hjá 6 ára til 17 ára börnum í barna- og gagnfræðaskól- um í Reykjavík, en einnig voru skoðuð nokkur 5 ára gömul böm. Þórður er sem kunnugt er sér- fræðingur i tannrétting- um og prófessor í tann- réttingum við tannlækna- deild Háskólans. Á 17. hundrað börn voru skoð- uð og voru valin börn sem fædd eru 7. 17. og 27. hvers mánaðar. Könnun þessari er nú lokið, en niðurstöður hafa þó ekki fengizt ennþá, og eru liklegast ekki væntanlegar fyrr en i haust. Aðferð sú sem beitt var, er samin af prófessor dr. odont Arne Björk við Tannlæknaskól- ann i Kaupmannahöfn ásamt tveimur aðstoðarmönnum hans. Prófessor Björk bauð ókeypis aðstoð Tannlæknaskólans i Kaupmannahöfn við úrvinnslu þeirra upplýsinga sem fengust við rannsóknina, en hún fer fram i tölvu skólans. Könnun þessi er fólgin i þvi, að skoðaðar voru tennur barn- ann, en einnig var tekin röntgenmynd af hægri hendi þeirra til mats á beinþroska. Einnig voru teknar tann- röntgenmyndir af hluta barn- anna til könnunar á tannvöntun, rými o.fl. Þetta er i fyrsta sinn sem framkvæmd er slik könnun hér á landi, en sams konar rann- sóknir hafa verið gerðar viöa erlendis, svo sem i Danmörku og Grænlandi. Einnig hafa verið gerðar sams konar rannsóknir á minni hópum á mjög ólikum stöðum i heiminum, svo sem á Astraliunegrum, á Indiánum i Perú, á Japönum og Kinverjum. Með þessu fæst samanburður á tannskekkju mismunandi þjóð- flokka i heiminum, og til gam- ans má geta, að niðurstöður Tannskekkja skólabarna í Reykjavík könnuð í fyrsta sinn — Rœtt við Þórð Eydal Magnússon prófessor um könnun sem hann gerði ó tann- og bitskekkju ósamt beinþroska barna og unglinga ó undanförnum 6 mónuðum Snuð og ýmiss konar ávanar, svo sem fingursog, geta valdið tannskekkju. Með góðu viðhaldi á tönnun- um svo og að losna við ávana, má koma i veg fyrir skekkju I tönnum. slikrar rannsóknar i Grænlandi leiddu i ljós að meiri þrenglsa gætir I efri góm Eskimóa og að þeir hafa meiri tilhneigingu til undirbits en titt er meðal Evrópubúa, og þannig koma fram hin mismunandi einkenni ólikra kynstofna við þessar rannsóknir. Tilgangurinn með þessari könnun er meðal annars sá, að fá upplýsingar um komutima og röð fullorðinstanna i Islending- um, sem er mjög gagnlegur fyr- ir tannlækna i starfi þeirra. Einnig fást gagnlegar upp- lýsingar um beinþroska Is- lendinga sem er nauðsynlegur til ákvörðunar á æskilegasta tima til tannréttinga. Merki- legur samanburður fæst við tiöni tann- og bitskekkju og beinþroska hjá Dönum, Græn- lendingum og ýmsum öðrum þjóðum þar sem sömu aðferðum hefur verið beitt. Gagnsemi þessarar könnunar er ennfremur fólgin i þvi, að tann- og bitskekkja hinna ýmsu aldursflokka kemur i ljós um leið og þörf þeirra á fyrirbyggj- andi aðgerðum og tannrétting- um. Loks fá svo heilbrigðisyfir- völd og tannlæknar glögga mynd af þörf borgarbúa og landsmanna allra á sér- fræðingsþjónustu i tannrétting- um. Tilgangurinn meö hand- röntgenmyndatökunni, sem fyrr er frá greint, er meðal annars sá, að fá samanburö á likams- þroska islenzkra barna við jafn- aldra þeirra á Norðurlöndum. Þórður sagði, að þau gögn, sem nú hefur verið safnað, gæfu tannlæknum ýmsar fróðlegar og gagnlegar upplýsingar viö störf þeirra að barna- og skólatann- lækningum. Hann kvað einnig skólatann- lækningar hafa farið ört batn- andi siðustu ár og væru komnar i mjög þokkalegt horf. Þó sagði hann, að skipulegar tann- lækningar á börnum þyrftu að hefjast á 2ja-3ja ára aldri, en mættu ekki biða þar til I skóla er komið. En það mun vera ætlun forráðamanna skólatannlækn- inga að fikra sig niður i yngri aldursflokkana eftir þvl sem skólatannlækningum vex fiskur um hrygg. Þórður tjáði okkur, að skemmdir i barnatönnum og ótimabær missir þeirra væri ein algengasta orsök bitskekkju og þvi væri það ekki siður nauðsyn- legt að gera viö barnatennurnar en fullorðinstennurnar. Ýmsir ávanar, notkun á snuði og fingursog til dæmis, geta einnig orskað tannskekkju, en ef ávananum er hætt snemma, er skekkjan sjaldnast orðin meiri en svo, að hún lagfærist af sjálfu sér. Nauðsynlegt er að þrifa tennurnar reglulega og gera strax við skemmdir ef þær koma i ljós og foröast ávana til þess að koma I veg fyrir skekkju I tönnum. Ráðlegt þykir að hætta að nota snuð og pela fyrir 2ja ára aidurinn, en hvaö fingursog snertir.er oft öllu erfiðara fyrir foreldra að venja börn sin af þvi. Ráðlegt er að leita til tann- læknis ef ávönum er ekki hætt áður en 4-6 ára aldri er náð, en hann getur ofthjálpað á stuttum tima. Það verður án efa fróölegt aö sjá hvaða niöurstöður fást úr þessari könnun, og eflaust á hún eftir að verða til góðs hvað snertir viðhald tanna okkar Is- lendinga. Heilbrigðismálaráö Reykjavikurborgar heimilaði þessa könnun og ber meginhluta kostnaðar i sambandi við hana, en auk þess var hún styrkt af Visindasjóði. —EA SUMARHARTIZKAN I PARIS: Rennislétt eða mjög hrokkið! Hárgreiðslurnar i Paris I sumar eru tvennskonar. önn- ur er rennislétt hár, siddin er . rétt niður fyrir höku og hárið jafnsitt allt um kring, og toppur. j Hin hárgreiðslan er öllu Hskrautlegri. Þar er hárið alit P gífurlega hrokkið og nær rétt niður fyrir eyru. Hárið er úfið og lifandi en feiiur ekki að höfðinu. Sítt hár sést ekki og ekki heldur alveg stutt hár. Slétta hárið er liklega öliu þægilegra fyrir flestar konur. Þá er ekki annað að gera en að þvo hárið, greiða það og siðan er það samkvæmt nýjustu tízku. Engar rúliur, ekkert háriakk eða-annað slikt. Hrokkna hárið er öllu erfið- ara viö aö eiga, nema þá fyrir þær sem hafa sjálfliðað hár, þarna fá þær loks eitthvað við sitt hæfi! —EA HAUSTHARTIZKAN I PARIS: Eins og Monroe eða Dietrich! Heizt viljum við losna við að þurfa að hugsa um haust og allt semþvi fylgir, rigninguna, rokiö og þar fram cftir götun- um. Viö erum rétt að segja skiliö við veturinn og búumst viö sólriku sumri. En hvaö um það. Eriendis eru þeir farnir að hugsa til næsta vetrar. Að minnsta kosti þeir, sem ailtaf eru minnst hálfu ári á undan hin- um aimenna borgara. Það eru tizkufrömuðurnir. Haustfatnaður er farinn að sjást sums staöar I tfzkusýn- ingarsölum, og Ifldega Hður ekki á löngu áður en vélarnar fara að snúast og haustfram- leiðslan sést i búöargluggum. Meðfyigjandi mynd sýnir hausthárgreiðsluna i Paris. Nú er hárið greitt eins og við sjáum það á gömlum myndum af Marlyn Monroe eða Mar- lene Dietrich. örlitlir liðir, og* hárið greitt I bylgjur upp frá . enninu! I —EAl

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.