Vísir - 04.08.1973, Page 8

Vísir - 04.08.1973, Page 8
8 Visir. Laugardagur 4. ágúst 1973. KIRKJAN O 6r PJÓÐIW garðinum. Þetta er hvort- tveggja ákjósanlegur aðseturs — og áningarstaður þeirra, sem eru orðnir uppgefnir af spenn- ingum á iðutorgi mannllfsins, einnig þess, sem „þreyttur lendir úr þungaróðri heimsins” eins og Matthias kemst að orði i kunnum sálmi. — Hægt og hátiðlega göngum við upp afliðandi malborna og hálf- gróna heimreiðina, og erum innan stundar komin heim á hlaðið á þessu gamla prests setri. Ekkert rýfur hina miklu kyrrð nema ljúft lóukvak — ekki hundgá, ekki mal i kisu, ekki einu sinni suð i fiskiflugu. — Þessi knúsandi, ró tekur gestina mjúklega i faðm sinn. Hún er ekki voldug og sterk, heldur dul og aðlaðandi. Og I þögn, hennar verða höggin á dyrnar eins og barbariskur hávaði. Er enginn heima hér? Jú, ekki ber á öðru. Þegar við gerum vart við okkur kemur klerkur til dyra. Hann hefur setið niðursokkinn i fræði sinna mörgu, lærðu bóka i kyrrð og næði einsetunnar meðan allur fjöldinn flengist um landið I hraðskreiðum bilum sinum þvert og endilangt. Eftir skamma dvöl inni i bænum er gengið út i kirkjuna. Þetta er litið en viðkunnanlegt hús og lik þeim presti, sem henni þjónar aö hún lætur litið yfir sér, enginr. turn, sem ber við himin, aðeins látlaus kross. m Sr. Finnbogi í Hvammi. Keta og Hvammur Ketukirkja. t gamla daga var veiðiskapur á Skagaheiði hluti af grimmdar — lifsbaráttu fólksins. Þá var hann ekki stundaður af berlæruðum i sumri og sól. Til þess bendirþessi visa, sem Hallgrimur Jónasson tilfærir I ýtarlegri lýsingu á sinum kæra Skagafirði: Heldur vil ég heima i rúmi hátta minu en kúra hér við kalda veiði klökugri á Skagaheiði. Já margt er breytt frá þvi, sem áður það var. — ----O------ Harla litið sér maður af sér- kennilegri náttúrufegurö Skagans með þvi aö aka svo aö segja stanzlaust þessa 30 km. leið eftir ströndinni utan frá Skagatá og inn i mynni Ladxárdals. Að náttúruskoðun- inni slepptri er ekki úr vegi aö snúa sér að sögunni og staldra viö á kirkjustaönum Ketu, þessu forna höfuðbóli og aðaljörð sveitarinnar, 22,8 hundruð að dýrleika i jaröamatinu 1861. Hún var fyrr meir i eigu Hólastóls. Samkvæmt jarðabók Arna Magnússonar var landskuld 120 álnir (-1 kýrverð =ca. 50 þús. kr.) Fjögur kúgildi fylgdu jörö- inni. Eftir tvö þeirra féll leiga niöur „fyrir kost prestsins i Hvammi, sem hér embættar þriðja hvörn sunnudag á sumur, en fjóðra hvörn á vetur”. Túnið fóðraði 2 kýr, engjar I svarðleysuflóum, sauðfé vogaö á útigang, hrossum komið I vetrarbeit inn i Skagafjörð, torfrista lök, lyngrif og hrisrif I fjarska, hreppaflutningur langur inn aö Kleif. En þótt landið væri rýrt var sjórinn gjöfull, ef vel viðraði. Og eitt sinn bjó stórútgeröarmaður sins tima á Ketu. Það var árið 1518. Svo segir I Skarðsárannál: „Ketill Ingimundarson bjó þá I Ketu þar á Skaganum, hann var aflamaður mikill, og voru i þann tima aflaföng góð á þeim Skagatanga, tók þessi Ketill 80, stundum 90 hákarla á einu vori á sitt skip, er hann lá úti en lét annaö skip sitt i land flytja og gera tii aflann, og flytja fram til sin kost og drykk. Völdust menn til hans ungir og hraustir til aflatektar”. Ketill þessi var afi Björns annálsritara á Skarðsá. Mjög hefur fólki fækkað noröur hér undanfarin ár svo sem viðar i hinum strjálbýlli og afskekktari sveitum. Eru ibúar Skefilsstaðahrepps, sem nær yfir Skaga og Laxárdal nú Það hefur hitzt vel á. „Veðurguðirnir", sem nú eru á allra vörum, — jafnt trúmanna sem trúlausra — hafa verið oss náðugir og gefið oss einn heitasta dag þessa lághita sumars til að skoða oss um á svölum norðurslóðum Skagans — þ.e. skagans milli Húnaflóa og Skaga- fjarðar. Vér erum ekki komin I Skaga- fjörðinn enn, þ.e.a.s. sýsluna. Þegar þessi frásögn hefst, erum vér enn I Húnaþingi, þótt komin séum í prófastsdæmi Skagafjaröar, þvi að tveir yztu bæirnir I Skagahreppi, Vikur og Ásbúðir, heyra til Ketusókn i Hvammsprestakalli I Laxárdal ytri. t lognhita dagsins rennur billinn léttilega um nýheflaöa götuslóða, hann hvorki svitnar né þreytist. Hið næsta er land hrjóstrugt — grýttir melar. Heim aö bæjunum aö sjá blasa viö slétt, græn tún og reisulegar byggingar. Vér börn höfuð- borgar og hitaveitu dáumst að þessum útvörðum landsins, (án þess að leggja á þá mælikvarða grásleppuhrognaframleiðsl- unnar). Þaö getur ekki verið neinum heiglum hent að búa hér i strjálbýlinu og fámenninu. Skyldu atvinnuauglýsingar þéttbýlisins I kaupspennu nútlmans ekki freista þessa fólks? Hér er eflaust magurt undir bú- eða svo finnst manni við fyrstu sýn. En mikill er rekinn. Þaö sér maöur þar sem farið er næst bæjum. Þar liggja sums- staöarstórar breiður trjábola af ýmsum lengdum og aðskiljan- legum gildleika. Mikið myndi þessi sýn gleðja augu hinna girðingaglöðu bænda i góðsveitum landsins. Hvilikt stólpaefni! Hvilik stauramergö! ---O----- A vinstri hönd er heiðin grá og hrjósturleg að sjá. En eflaust er þar ekki ósnotur sumarbeit fyr- ir sauöfé. Samt er þaö ekki aðal- kostur þessa norölæga heiöar- lands heldur hitt, að þar ku „allt þakið i vötnum” og i þeim veiði allgóð. Við eitt vatnið, sem sjáanlegt er frá veginum hefur parkerað rauöur Moskvitch, sem blikar á i sólskininu. Nálægt honum hafa bilverjar slegiö gulu tjaldi sinu. Létt- klædd kona sýslar við tjald- dyrnar og tvö berrössuö börji eru þar að leik. Húsbóndinn? Eflaust við veiðar ein- hvers staöar inni á heiðinni með stöng sina. Ströndin sunnan við Ketu á Skaga. Ketubjörg í baksýn. biskupi þ. 11. júli 1967, er hún talin i góðu standi, enda þá fengið nokkrar endurbætur ekki alls fyrir löngu. Meðal gripa hennar er altaristafla, málverk e. Jóhann Briem, gefin af Guörúnu Kristmundsdóttur á Hrauni til minningar um mann hennar, Stein Sveinsson. Við guðsþjónustu þennan dag var kirkjan þétt setin. Voru þar viðstaddir allir sóknarmenn, utan tveir, og fjöldi aðkomu- fólks þ.á.m. 7 prestar. Er það talið fullvist, að aldrei hafi fieiri vigðir menn verið i Ketukirkju. Eftir þessu bauð kirkjubóndi öllum viðstöddum til kaffidrykkju á heimili sinu. ----O----- Nú er haldið inn ströndina og degi hallar. Þá er komið inn i Laxárdal, sem liggur vestan Tindastóls. Þar er staðnæmst móts við prestssetrið Hvamm. Bærinn og kirkjan og allt umhverfið er baðað i vestan sól. Að baki er Stóllinn, ábúðar- mikill en þó hlýlegur, með ávölum melabungum og græn- um rindum upp undir efstu eggjar. Við komumst ekki á bilnum heim, þvi áð áin — Laxá — er bara brúuð fyrir gangandi fólk. Sterklegir stólpar eru steyptir niður i árbakkana. Milli þeirra eru strengdir togaravirar, sem halda bitunum uppi. Brúar- gólfiö dúar mjúklega undir fæti, en undir henni liður áin fram og speglar þetta látlausa mann- virki I lygnum fleti sinum. Fyrir 15 árum lét presturinn á eigin kostnað byggja þessa 24 metra löngu brú. Þegar Emil samgöngumálaráðherra greiddi hana seinna úr land- sjóði, lét han svo um mælt, að þetta væri ódýrasta brúar- mannvirki á Islandi. Kyrrð siðsumardagsins, lygn áin, gróska landsins, túnsins dökkgræni dúkur, baldiraður með gullnu trafi sóleyjanna, allt minnir þetta frekar á dýrð þess eilifa heldur en fallvaltleik jarðarinnar. Og bærinn, prest- setrið i hvamminum, dökkur yfirlitum og dálitið þreytilegur eftir þunga snjóa langra vetra — hvit kirkjan i grasmiklum aöeins 67 á 16 bæjum. Svo var um tima komið, að Keta var i eyði. En nú er bærinn aftur kominn i byggð og þar skráðir 6 manns á 2 heimilum. Og i logninu berst upp á veginn ómur af smiðahöggum, sem votta um lif og starf á þessum kirkjustað norðursins. Á Ketu hefur kirkja staðið um aldaraðir. Sú sem nú stendur þar mun hafa verið byggö árið 1895. Vigði hana sr. Sigfús Jónsson, sem þá var prestur i Hvammi, sunnudag 8. september. Kirkjan var þá i bændaeign. Er af byggingu hennar allmikil saga, sem rakin er i bréfi prófasts, sr. Zophonia- sar i Viðvik, til biskups 5. sept. 1895. Hafði kirkjubyggingin valdið misklið og komin i óefni, en prófasti tókst að sætta og leiöa málið giftusamlega til lykta. Lýsir hann kirkjunni allýtarlega, telur hana taka um 60 manns I sæti og sé það mestur hluti sóknarmanna. Meðfylgjandi mynd var tekin af Ketukirkju fyrir nokkrum árum af Guðlaugi sál. Lárus- syni. Siöast er hún var visiteruö af

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.