Vísir - 15.08.1973, Síða 5
Vísir. Miðvikudagur 15. ágúst 1973.
5
AP/INITB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Hermaður Kambódiustjórnar ber son sinn með sér á bakinu á leið á
vörðinn, en hann nýtur ekki lengur við berflugvéla Bandarikjamanna.
12 ára loft-
hernaði lokið
Bandarikjamenn hættu i nótt
sprengjuárásum sinum i
Kambodiu, og þar með er lokið
nær 12 ára beinni þátttöku þeirra i
Indókinastyrjcldinni. Er það
lengsti lofthernaður sögunnar.
Stöðvun sprengjuárásanna er
samkvæmt málamiðlun, sem
Nixon Bandarikjaforseti og
Bandarikjaþing gerðu, eftir að
samþykkt var að hætta fjár-
veitingu til lofthernaðar i
Kambodiu um miðjan þennan
mánuð.
Golda Meir lœtur
ekki deigan síga
w
Segir Israelsmenn ekkert hafa að
skammast sín fyrir gegn skœruliðum
„ísrael mun halda á-
fram verndarhendi yfir
borgurum sinum, heima
og að heiman, með öll-
um tiltækum ráðum,
þrátt fyrir mótmælin
vegna herferðai* ísraels
á hendur arabiskum
skæruliðum”, sagði
Golda Meir forsætisráð-
herra i gær.
Frú Golda Meir nefndi engar á-
kveðnar aðgerðir ísraelsmanna
gegn skæruliðum, en augljóslega
hafði hún i huga fordæmingu um-
heimsins á töku libönsku farþega-
flugvélarinnar i siðustu viku.
,,Við höfum ekkert til þess að
skammast okkar fyrir”, sagði
hún og hélt áfram: „Gyöingar
hljóta samúð heimsins einungis,
þegarþeir eru fórnardýr ofsókna.
Verji þeir hendur sinar, leika þeir
ekki hlutverk hins aumkunar-
verða Gyðings og vekja þá
gremju fólks.”
Aðeins nokkrum stundum áður
en hún flutti ræðu sina á 25 ára ?.f-
mæli samyrkjubús eins i gær,
haföi borizt tilkynning um að
Norðmenn hefðu visað úr landi
öryggisverði israelska sendiráðs-
'ins i Osló, sem „persona non
grata.”
Tveir Israelsmenn, sem grun-
aðir eru um morð á Arabanum
Bouchiki i Osló, voru handteknir i
herbergi öryggisvarðarins, Yigal
Eyal. Þeir hafa verið ákærðir fyr-
ir hlutdeild i morðinu og njósnir
um útlendinga i Noregi.
Svœðamótinu að Ijúka
Lajos Portisch sat einn um for-
ystuna i svæðamótinu i Petropolis
i Braziliu eftir gærdaginn með
ellefu vinninga.
í öðru sæti er þá Mecking frá
Braziliu með 10 vinninga og ó-
teflda biðskák, en hann tefldi ekki
i gær.
1 þriðja sæti er Hort með 9 1/2
vinning, og fast á hæla honum
með niu vinninga eru þeir Geller
og Polugaievski með ótefldar bið-
skákir.
1 dag verða einungis tefldar
biðskákir, eins og i gær. Eru þvi
enn eftir tvær umferðir af mótinu.
Pakistanar kalla á
hjálp vina sinna
Vatnið virðist fara rénandi þrátt fyrir rigningar
Forsætisráðherra
Pakistans, Ali Bhutto,
skoraði á alla vini Pak-
istans að aðstoða þjóð-
ina við að komast yfir
erfiðleika „verstu flóða
landsins i 40 ár.”
Útvarp Pakistans
skýrði frá þvi, að hann
hefði i hyggju að heim-
sækja flóðasvæðin i vik-
unni.
Milljónir manna hafa orðið fyr-
ir barðinu á flóðunum. Ekki að-
eins i Pakistan, heldur einnig á
Gangessléttu á Norður-Indlandi
og indverska hluta Kasmir.
13 millimetra úrkoma var að-
faranótt þriðjudagsins i Kasmir,
en samt hækkaöi vatnsborðið i
Jhelum-ánni, sem mestu tjóninu
hefur valdið litið eitt. 1 Punjab-
landshlutanum virtist vatnið hafa
rénað, jafnvel i Sutlej og Beas-án-
um.
Flóðunum valda annars bæði
monsúnrigningarnar og leysingar
i Himalayjafjöllum, þar sem
flestar árnar eiga upptök sin.
Mátti heita, að hver lækjar-
spræna úr Himalayafjöllum væri
orðin að stórfljóti.
I Pakistan eru nær 100 taldir
hafa látið lifið i flóðunum, og i
Kasmir er tala látinna 68.
Þriðja Watergaterœða
Nixons forseta í kvöld
Richard Nixon forseti
mun flytja sjónvarps-
ræðu um miðnætti i nótt
um Watergatehneykslið.
Verður ræðu hans út-
varpað og sjónvarpað
samtimis beint úr hring-
herberginu i Hvita hús-
inu.
Þess hefur verið vænzt, að
Bandarikjaforseti ávarpaði þjóð
sina vegna þessa hneykslismáls,
sem varpað hefur skugga á æðsta
mann Bandarikjanna, og kvisað-
ist út fyrir helgina, að Nixon
mundi flytja ávarp núna i þessari
viku.
Talsmenn Hvita hússins skýrðu
frá þvi i morgun, að Nixon mundi
láta verða af þvi að flytja ræðuna
i kvöld. Sögðu þeir, að ávarpið
væri hálfrar klukkustundar langt
eða svo. Um efni þess vildu þeir
þó ekkert segja annað en að Nix-
on mundi þar itreka fyrri neitanir
sinar um að hafa nokkuð vitað um
ráðagerðirnar til að njósna i aðal-
skrifstofum demókrataflokksins
eða um tilraunirnar til þess að
hylma yfir þær eftir á.
Tóku verksmiðjuna
af starfsfólkinu
Um 200 franskir lögreglu-
menn réðust í fyrrinótt inn f
úraverksmiðjuna LIP í
Besancon og handtóku 50
næturverði um leið og þeir
tóku verksmiðjuna á sitt
vald.
Þar með var endi bundinn á
rúmlega þriggja mánaða rekstur
starfsmanna verksmiðjunnar á
fyrirtækinu, sem þeir' yfirtóku,
eftir að hún varð gjaldþrota. —
LlP-úraverksmiðjan er ein af tiu
stærstu i heiminum, og eiga
Svisslendingar i henni itök.
Eftir að lögreglan hafði yfirtek-
ið verksmiðjuna i fyrrinótt,
streymdu starfsmennirnir þús-
undum saman að verksmiðjuhlið-
inu til þess að mótmæla þessu. En
þegar siöast fréttist, haföi ekki
komið til neinna átaka milli hinna
5000 starfsmanna verksmiðjunn-
ar og þeirra 3000 lögreglumanna,
sem settir höfðu verið til gæzlu
hennar.
Þegar starfsmennirnir tóku
verksmiðjuna i sinar hendur og
hófu framleiðslu, eftir að eigend-
ur höfðu lýst hana gjaldþrota,
komust þeir um leiö yfir umtals-
verðar birgðir af framleiðslunni,
úrum. Eigendurnir kröfðust aö-
gerðar lögreglunnar gegn þvi,
sem þeir kölluðu þjófnaö, en það
hefur dregizt, meðan reynd var
samningaleiðin fyrst.
Bíða síns dóms
Elmer Wayne Henley (horfir i
myndavélina) og David Brooks,
sem hér sjást baka sig i sólinni,
meðan lögreglan grefur upp
fórnardýr þeirra úr fjöldagröf-
unum i Houston, biða nú þess,
að réttur verði settur i máli
þeirra. Annar cr kærður fyrir 5
morð og hlutdeild i fleirum, en
hinn fyrir 3 morð.