Vísir - 29.08.1973, Blaðsíða 1
63. árg. Miðvikudagur 29. ágúst. 1973 197. tbl.
GRUNUR UM AÐ SPRENGT
HAFI YERIÐ FYRIR í EINNI
BEZTU LAXYEIÐIÁNNI baksíða
HVER
ÞEIRRA
FER TIL
SPÁNAR?
GRAN HOTEL EL CID
stendur stórum stöfum á
byggingunni, og þangaö fer
væntaniega ein af sumar-
stúlkum Vfsis á næstu vik-
um. En fyrst þurfa lesendur
blaðsins að kjósa eina stúlku
úr hópnum. Við birtum
myndir af ölium keppendun-
um á bls. 8-9idag. Og á bls. 3
segjum við frá hótelinu, sem
mun hýsa þá heppnu.
V.V.W.WA
Frjáls og
óhrœdd
á íslanái
„Við kunnum bezt að meta
það að geta verið alveg frjáls
og óhrædd”, sögðu irskir
unglingar, sem komu i
heimsókn til höfuðborgar-
innar i morgun til að gera
ferð i verzlanir og skoða
borgina. Sjá BAKSÍÐU.
.v.v.v.v.w
PÓLSK FLUG
VÉL SKADD-
AÐI LOFT-
LCIÐAÞOTU
Vængbroddurinn bakborðs-
megin á pólskri flugvél frá
Polish Air lenti á ratsjárhlif á
nefi Loftleiðavélar á Keflavik-
urflugvelli i gærdag um fimm-
leytið.
Pólsku vélinni, sem var á
leið til Chicago, var leiðbeint á
stæði, en af einhverjum ástæð-
um fór flugstjórinn ekki eftir
leiðbeiningunum.
Loftleiðavélin, sem var
að koma frá Skandinaviu á
leið til Bandarikjanna tafðist
fram á kvöld, vegna þess að
viðgerð fór fram á ratsjárhlif
vélarinnar. — EVI.
ESJA BJARGAÐISJÓMÖNNUM
AF BRENNANDIBÁTI í NÓTT
— einn skipverjanna
„Það var um kl. 2 i
nótt að það kom upp eld-
ur um borð hjá okkur og
sendum við þegar út
brenndist lítilsháttar
neyðarkall”, sagði Erl-
ingur Ævarr Jónsson
skipstjóri á Sólfara AK
170, sem gerður er út frá
Þorlákshöfn, er við
ræddum við hann um
borð í Esju. Átta manns
voru um borð i bátnum
Þegar Visismenn flugu yfir Sólfara og Esju I morgun, voru skipin stödd milli Vikurog Alviðruhamra. Sól-
fari er mikið brunninn i brúnni og að aftan til. Virðist sem hús skipsins sé gjörsamlega ónýtt. Gott veöur
var, og veifuöu skipverjar af Sólfara til okkar frá Esjunni. Ljósm. VIsis: Björgvin.
KRÖFUR UM 50% LAUNA-
HÆKKANIR í HAUST?
Kjaramálaráðstefna Alþýðu-
sambands Islands sem lauk i gær
setur jöfnun launakjara með
verulegri hækkun láglauna fram
sem helzta kröfuatriöið við
væntanlega samningagerð.
A ráðstefnunni kom fram mikill
stuðningur við þá skoðun sem for-
ystumenn Bandalags starfs-
manna rfkis og bæja settu fram i
sumar að lægstu laun ættu ekki að
vera minni en 35 þúsund krónur á
mánuði.
Samkvæmt þvi má vænta þess
að kröfur um 50% launahækkun
komi fram við væntanlega kjara-
samningagerð nú i haust, þar sem
lægstu laun samkvæmt töxtum
verklýðsfélaganna eru nú um það
bil 22 þúsund krónur.
„Þaö kom fram i umræöum á
fundinum, að menn töldu alls ekki
óeðlilegt að miða viö, að lægstu
laun veröi eftir samninga 35.000
krónur,” sagöi Runólfur Péturs-
son formaður Iðju, félags verk-
smiðjufólks i Reykjavik.
„Einnig var samstaða um, að
lægstu laun yrðu að hækka hlut-
fallslega meira en hærri
flokkarnir en það tel ég að visu
ekki nema stundarlausn fyrir þá
láglaunuðu miðað við núverandi
visitölufyrirkomulag.
„Þeir, sem mestan hafa haginn
af núverandi kerfi eru þeir hæst-
launuðu en hinir bera skarðari
hlut frá borði.
Við eigum þvi að minu áliti að
krefjast þess að almennar launa-'
hækkanir verði mestar i lægstu
launaflokkunum og einnig að visi-
töluhækkanir i framtiöinni veröi
hlutfallslega hæstar til hinna
tekjulægstu,” sagöi Runólfur
Pétursson að lokum.
Aðrar kröfur sem ákveðiö var
að leggja áherzlu á eru kaup-
trygging timakaupsfólks, full
yfirráð verkalýðsfélaga yfír lif-
eyrissjóðum | betri og hærri
tryggingar vegna slysa og dauða,
verðtrygging lifeyrissjóða, gagn-
ger breyting á skattakerfinu og
umbætur á sviði húsnæöismála.
Alyktanir kjararáðstefnunnar
verða nú ræddar hjá einstökum
félögum i ASt en siðan mun
Alþýðusambandið boða til
annarrar ráðstefnu til að sam-
ræma enn frekar kröfur aðildar-
félaganna. —óG
og eru þeir allir komnir
um borð i Esjuna og lið-
ur vel. Aðeins einn skip-
verji brenndist og var
það aðeins litilsháttar.
Þeir voru staddir fyrir utan
Skaftárós , þegar slysið varð og
kl. 3.20 i nótt var Esjan komin til
þeirra. Skipverjar fóru um borð i
gúmmibát og voru komnir um
borö i Esju kl. 3.45 i nótt.
Erlingur sagöi að björgunin
hefði gengið mjög vel. Við eldinn
hefðu þeir litiö ráðið, hann hefði
magnazt svo fljótt og báturinn
væri mikiö skemmdur. Stýrishús-
ið væri falliö að framan, en nú
væri búið að slökkva eldinn að
mestu leyti, en ennþá rjúki úr
bánum.
Esjan er komin meö bátinn i tog
og höföu skipverjar á Sólfara ver-
iðbúnir að koma fyrir taug i bátn-
um.
„Sennilegast hefur kviknað i út
frá rafmagni”, sagði Erlingur.
„Við vorum um það bil 10 milur
i burtu frá þeim þegar við heyrð-
um neyðarkallið”, sagði Tryggvi
Blöndal skipstjóri á Esjunni.
Það var leiðindaveður á þess-
um slóðum i nótt en nú er komið
ágætis veður.
„Allt gekk vel með björgunina,
en töluveröar sprengingar heyrð-
ust i bátnum eftir að búið var að
bjarga mönnunum . Það hefur
veriðsprautað á hann og nú erum
við komnir með hann i tog, en enn
rýkur úr honum”, sagði-Tryggvi
að lokum. — EVI.
Nýtt varðskip
ó 416 milljónir
Samningar um smiði nýs
varðskips fyrir Landhelgisgæzl-
una voru undirritaðir I gær.
Smiðaaðilar eru Aarhus Værfl
og Aalborg Flydedokk i Dan-
mörku.
Hið nýja varðskip verður I öll-
um meginatriðum eins og varð-
skipið Ægir og á það aö vera
tilbúið I desember árið 1974.
Smíðaverð skipsins er tæp-
lega 30 milljónir danskra króna
eða rúmlega 416 milljónir Is-
lenzkra króna samkvæmt nú-
vcrandi gengi.
Samningana undirrituðu Pét-
ur Sigurðsson forstjóri Land-
helgisgæzlunnar og Egill Sigur-
geirsson hrl., en þeir eiga sæti i
smiðanefnd skipsins ásamt
Óttari Karlssyni skipaverk-
fræöingi og Guðmundi Kjærne-
sted skipherra. _
Erkibiskups
boðskapur
hafður aðengu
Borgarlöginaður, Páll Lin-
dal, kveður sér likt farið og
Jóni Loftssyni forðunt er
hann sagði hin fleygu orð:
„Heyra má ég erkibiskups
boöskap, en ráðinn er ég i að
hafa hann að engu”. Sjá frétt
um bilskúrsmálið i Gnita-
nesi. — BAKSÍÐA.