Vísir - 29.08.1973, Síða 3

Vísir - 29.08.1973, Síða 3
Vlsir. Miðvikudagur 29. ágúst 1973. 3 r Þennan jeppa áttu menn að fá fyrir næsta lftið verð, og sfminn varð rauðglóandi hjá þeim i jeppadeiid- inni hjá Agli. Séðinn ieina hinna glæsilegu setustofa hóteisins. Þari er hægt að setjast niður og skrifa póstkortin heim á meðan hvað heitast er útifyrir. „Frímerkið eina gullið sem við eigum eftir — segir Gísli Sigurbjörnsson forstjóri og frímerkjasafnari „Það eru svo mikiar upphæðir sem liggja i sumum frimerkj- anna og umslaganna, að maður þorir ekki að nefna upphæðina sem fengist fyrir þau á uppboð- um,” sagði Gisli Sigurbjörns- son.forstjóri .Eiliheimilisins Grundar, er hann fylgdi blaða- mönnum Visis um salarkynni Kjarvalsstaða i gær. A föstu- daginn verður þar opnuð Fri- merkjasýning i tilefni 100 ára afmælis islenzka frimerkisins. Gisli Sigurbjörnsson er sem kunnugt er mikill frimerkja- safnari, og Var hann um skeið einn helzti frimerkjakaup- maður á íslandi. „Sýningin er tryggð fyrir 100 milljón krónur. En verðmæti þess er hér er inni, er langtum meira. Mér finnst þessi sýning vera mikill viðburður. Hérna eru samankomin stærstu og dýrustu söfn af islenzkum frimerkjum, sem til eru. Það verður aldrei tækifæri til að sjá þetta allt á einum stað aftur.” Það er bara verst ef einhver kemur hingað á sýnininguna og sér þar frimerkið eða umslagið sem hann fleygði um árið, en er nú tugþúsunda virði”. Iðnaðarmenn voru i óða önn að ganga frá fyrir sýninguna, þegar við gengum þarna um i gær. Hátt á annað hundrað rammar eru á sýningunni, og er þar allt á milli fyrstu is- lenzku frimerkjanna, og upp i það nýjasta. Ekki ber minna á alls konar umslögum og stimplunum. Sigurður sem er sýningarinnar H. Þorsteinsson, blaðafulltrúi kom aðvifandi, og sagði okkur að ef örkin af fyrstu islenzku frimerkjunum lenti á uppboði, þá væru boðnar hátt upp i 30 til 40 milljónir fyrir örkina. 540 frimerki hafa verið gefin út á íslandi i þessi 100 ár, og segja fróðir menn að þaö sé ekki mikið. -ÓH. Gisli stendur þarna við frumteikningar af frimerkjum, sem allir þekkja, flugfrimerkjunum. A fri- merkjasýningunni cr mikið af frumteikningum af ýmsum merkilegum frimerkjum. SIMINN VARÐ RAUÐ- GLÓANDI FARA VEL UM SUMARSTÚLKU VISIS Einhvcr stúlknanna á bls. 8-9; kemur til með að fara með Sunnu til Mallorca i haust og búa á þvi stórglæsilega hóteli Gran llotel El Cid, scm stendur við Aren- al-ströndu. 011 herbergin eru með sér bað- herbergi, svölum og sima. Og öll snúa þau út að ströndinni. Setu- stofurnar eru einstaklega þægi- legar og skemmtilegar, en þeir sem ekki vilja dvelja innan dyra geta stundað bowling, tennis eða mini-golf fyrir utan hótelið. Hótelið býður gestum sínum líka aðgang að eigin sundlaugum, sem eru þrjár talsins. Annars eru ekki nema fáeinir metrar niður á hina frægu sandströnd, Arenal. Og á kvöldin er ekki heldur langt að leita skemmtunar: Veitingastaðirnir á fyrstu hæð hótelsins eru hver öðrum glæsi- legri og á hverju kvöldi leikur stór hljómsveit fyrir dansi. Að sjálfsögðu má búast viö þvi, að Sumarstúlkuna okkar langi til að skoða sig um á þessari spönsku eyju. Standa henni þá ókeypis til boða allar skoðunarferðir, sem Sunna fer með sitt fólk. Og að lokum má geta þess, að Sumarstúlkan fær vasapeninga frá Visi. Það eru 60 pund eða sem svarar 14 þúsund islenzkum krón- um. — ÞJM. ,,Já, það er öruggt að einverjar auglýsingarnar í Visi eru lesnar. Um daginn, þegar þessi aug- lýsing birtist, var síminn hjá okkur rauðglóandi, og látunum linnti ekki næstu daga á eftir. Það hefur aldrei áður gerzt i sögu fyrirtækisins, að svona mikið hafi verið hringt á svona stuttum tima,” sagði Matthias Guð- mundsson framkvæmdastjóri hjá Agli Vilhjálmssyni h.f i viðtali við Visi. Astæðan fyrir þvi að siminn varð svo rauðglóandi hjá Agli, var sú, að þriðjudag einn fyrir nokkru kom auglýsing i Visi, þar sem Jeppster-jeppar voru auglýstir á 489 þús. kr. Kannski er ekki alveg rétt að segja að það eitt að auglýsa jeppann hafi skapað þessa miklu eftirspurn eftir honum. Það urðu nefnilega einhver mistök við birtingu auglýsingarinnar, sem ollu þvi að verð jeppans var auglýst á 2. hundrað þúsund krónum of, lágt. Matthias sagði að sumir hefðu sem vonlegt var, orðið óánægðir þegar þeir heyrðu það rétta i málinu. „En flestir skildu það að hér var um mannleg mistök að ræða.” Það var þvi enginn, sem gekk út frá Agli Vilhjálmssyni þann dag, með jeppa, sem kostaði stórri summu minna en daginn áður. „Ég vona að enginn viðskipta- vina okkar hafi firrzt við þetta. Annars er verðið á jeppanum, eins og það er raunverulega, alls ekki svo hátt. Þeir kosta núna 610 - 620 þúsund, sem égtel vera mjög gott verð,” sagði Matthias að lokum. Og það þarf varla að taka það fram að Visir biðst margfaldlega afsökunará þessum leiðu mistök- um. En það fer ekki á milli mála að einhverjir hafa lesið aug- lýsinguna. Annars berast daglega sannanir um áhrifamátt auglýsinga okkar á Visi. Einn auglýsti tveggja dálka auglýsingu og óskaði eftir fólki til að þýða greinar i timarit. Hann fékk á einum degi 88 tilboð, og þá var ekki um annað að gera en að stöðva flóðbylgjuna, en hringt var þann dag allan og þann næsta,og eitthvaðkom marga daga á eftir. Þá auglýsti einn Benzinn sinn til sölu. Tilboðin urðu yfir 30, enda þótt hér væri aðeins um smá- auglýsingu að ræða. Fyrsti maðurinn, sem kom á staðinn fór akandi á fina Benzinum og haföi gengið frá samningnum. -ÓH. Eitt hinna 156 herbergja hótclsins, Hér ætti ekki að væsa um neinn. Og frá svölunum er útsýni yfir ströndina. ÞAÐ ÆTTI AÐ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.