Vísir - 17.09.1973, Blaðsíða 9
«.*¥•( a ttkt.n.i.'iX .tUi t
Vlsir. Mánudagur 17. september 1973
.*,~m****' %jx£'
' -<5
Áður flaug hugurinn og farfuglarnir.
Nú flýg ég suður — í sól og hvíld —
þangað leitar hugurinn í skammdeginu.
Fleiri og fleiri átta sig á hve einstök
tækifæri bjóðast nú til að njóta
sumarblíðu, hressingar og skemmtunar
meðan veturinn ríkir hér í norðri.
Eftir sex tíma þotuflug í hásuður erum
við komin til Kanaríeyja úti fyrir
Afríkuströndum.
Þar er sumarveður allt árið —
synt í sjónum og legið á baðströndum.
Og ótal margt annað um að velja:
Skoða mannlífið, náttúruna eða
næturlífið, eða verzla — kaupa á
spönsku verði.
Eyjarnar hafa um langan aldur verið
mikil viðskiptamiðstöð og til þess tekið
hve verðlag er þar hagstætt. Og svo
er einnig hægt að skreppa til Afríku.
Við höfum þrjá íslenzka fararstjóra á
Gran Canaria og sex mismunandi
dvalarstaði til að velja um í 15 eða 22
daga. Flogið er tvisvar í mánuði, frá
nóvemberbyrjun til miðs maí.
Verð frá 21.500.— krónum.
FARPANTANIR HJÁ SKRIFSTOFUM
FLUGFÉLAGSINS OG
UMBOÐSMÖNNUM