Vísir - 17.09.1973, Blaðsíða 11
Lokastaðan
í I. deild
Úrslit i lokaleikjunum i 1. deild
urðu þessi:
KR-Akureyri 1-1
ÍBK-Valur 1-1
IBK-Breiöablik 4-4
Lokastaöan i deildinni 1973 varö
þessi: Keflav. 14 12 2 0 33-9 26
Valur 14 9 3 2 34-20 21
ÍBV 14 8 1 5 28-16 17
Fram 14 5 2 7 19-23 12
Akrancs 14 4 3 7 32-27 11
Akureyri 14 4 3 8 14-28 11
KR 14 3 3 8 14-27 9
Breiöab. 14 1 3 10 23-45 5
Markahæstu ieikmenn uröu:
llermann Gunnarsson, Val, 17
Matthias llallgrimsson, 1A 12
örn óskarsson, IBV 12
Steinar Jóhannsson, IBK 11
Teitur Þóröarson, 1A II
Bikarmeistarar KR i körfuboltanum, ásamt formanni KR, Einari Sæ mundssyni. Ljósmynd Bjarnleifur.
KR Bikarmeistari í
körfu í fimmta sinn
— Sigraði stúdenta í úrslitaleiknum í gœr með 71 stigi gegn 68
Það er erfitt að ráða
við KR-inga i Bikar-
keppni körfuknattleiks-
sambandsins. Liðið
komst i úrslit eftir sigur
meðal annars gegn
hættulegustu mótherj-
um sinum gegnum árin,
ÍR, og i úrslitaleiknum,
sem leikinn var i
íþróttahúsinu i Hafnar-
firði i gærdag, tókst
íþróttafélagi stúdenta
ekki að hefta sigurgöngu
KR. Það var skemmti-
legur leikur, en KR
sigraði með þriggja
stiga mun 71-68. Það var
fimmti sigur KR i
Bikarkeppninni — eða i
öll skiptin, sem keppt
hefur verið. Fyrsta
bikarkeppnin var 11969.
Úrslitaleikurinn i gær var afar
tvlsýnn lengi framan af. KR-ing-
ar þó alltaf yfir — þetta frá einu
upp I fimm stig framan af fyrri
hálfleiknum. Þegar þrjár minút-
ur voru eftir stóð 31-30 fyrir KR,
en leikmenn liðsins nýttu loka-
minútur hálfleiksins vel — skor-
uðu 10 stig gegn einu stigi stú-
denta. Gerðu þarna raunverulega
út um leikinn. Staðan I hálfleik
var þvi 41-32.
Framan af siðari hálfleiknum
juku KR-ingar forskotið — kom-
ust mest i 56-43. Sigurinn var i
höfn, þó svo stúdentar væru ekki
á þvi að gefast upp. Allan loka-
kafla leiksins smá sigu þeir á KR-
inga. En það nægði ekki. Þriggja
stiga munur var I lokin, 71-68.
Leikurinn var skemmtilegur og
allvel leikinn. Munaði þar mestu
fyrir KR framlag Kolbeins Páls-
sonar. Hann bar mjög af öðrum
leikmönnum i leiknum — jafnt i
sókn sem vörn — brauzt hvað eft-
ir annað upp eða komst inn i
sendingar mótherjanna og skor-
aði hvorki meira né minna en 28
stig i leiknum. Þá átti Birgir Guð-
björnssön — upprennandi lands-
liðsmaður hjá KR — einnig skin-
andi leik, og skoraði tuttugu stig.
1 liði stúdenta skoruðu þeir
Fritz Heinemann og Ingi Stefáns-
son mest. Fritz var með 19 stig,
og Ingi með fimmtán. I liði stú-
denta vantaði bezta manninn —
Bjarna Gunnar. . Hann á nú i
fangbrögðum við sildina i
Norðursjó, en Bjarni hefur verið
bezti maður ÍS undanfarin ár.
Ilermann Gunnarsson — marka-
kóngur 1973.
Hve lengi viltu
biða
ef tir f réttunum?
Viltu fá þærheim til þín samdægurs? Eóa viltu bíóa til
næsta morguns? VÍSIR flytur fréttir dagsins ídag!
Sigur Ármanns að
komast í höfn
Sigur Ármanns í
stigakeppni Reykja-
vikurfélaganna i frjáls-
um iþróttum er nú að
komast i höfn eftir
keppni i sleggjukasti.
Þá á aðeins eftir að
keppa i einni grein
4x1500 metra boð-
hlaupi, og ÍR vinnur
varla upp rúmlega þús-
und stiga mun i þeirri
grein.
Lyftingamenn Armanns
komu við sögu I sleggjunni á
laugardag og tryggðu raun-
verulega sigur félagsins. Met-
hafinn Erlendur Valdimarsson,
IR, gat ekki keppt sökum
meiðsla og munaði það miklu
fyrir IR — nokkrum þúsundum
stiga.
I sleggjunni sigraði lyftinga-
maðurinn kunni, Óskar Sigur-
pálsson, A, með 50.26 metra.
Jón Magnússon, 1R, varð annar
með 47.34. Þá kom Jón O. Þor-
móðsson, IR, með 35.36 m.
Stefán Jóhannsson, Á, með 33.16
og siðan lyftingamennirnir
Finnur Karlsson, Á, með 30.44
m. og Gústav Agnarsson, Á,
með 29.12 m. Guðni Halldórsson
keppti sem gestur og kastaði
41.86 m. sem er nýtt HSÞ-met.
Eftir þessa grein er Ármann
með 45.086 stig, IR er i öðru sæti
með 44.040 stig og KR i þriöja
sæti með 15.304 stig — en það
kom á óvart hve KR-ingar lögðu
litla áherzlu á keppnina.
abc
SKOLARITVELIN
yKUC^
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
\ + Hverfisgötu 33
Sími 20560