Vísir - 26.09.1973, Blaðsíða 8

Vísir - 26.09.1973, Blaðsíða 8
Nú er aðeins vika i landsleikina við Norðmenn í handboltanum — þeir verða leiknir i Norcgi. Kin breyt- ing hefur verið gerð á islenz-ka landsliðinu — Auðunn Óskarsson, varnar- og linumaðurinn sterki i Fll, kemst ekki til Noregs og var Jón Sigurðsson, Viking, valinn i hans staö. Norðmenn hafa búið sig vel undir leikina og tclja sig hafa góða sigurmöguleika. Myndin hér að ofan var tekin á norska mcistara- mótinu i útihandknattleik — úrslitalcikurinn milli Oppsal og Bækkelaget var háður i Osló i þessum mánuði. Oppsal sigraði með 23-14. Moore ekki volinn í enska landsliðið! — sem leikur gegn Austurríki á Wembley í kvöld Fyrirliði enska landsliðs- ins undanfarin 9 ár— mað- urinn, sem á heimsmet hvað landsleikjaf jölda snertir, Bobby Moore, var ekki valinn i enska lands- liðið, sem leikur í kvöld gegn Austurríki á Wembl- ey. Stöðu hans í landsliðinu tekur Norman Hunter, Leeds, en þó enski lands- liðsþjálfarinn hafi tekið þessa afstöðu nú er þó ekki þar með sagt, að dagar Moore sem landsliðsmanns séutaldir. Hann hefur leik- ir 107 landsleiki — einum meira en Bobby Charlton. brátt fyrir mikil skrif enskra blaða, að nauðsyn væri á gjör- byltingu á enska liðinu heldur Ramsey sig við „gamla kjarn- ann”. Aðeins þessi breyting með Moore, og að Peter Storey, Arsenal, komst ekki i liðið. Fyrir- liði i stað Moore verður Martin Peters, Tottenham, sá eini, sem er i liðinu af gömlu heimsmeist- urunum frá 1966 — nema ef Alan Ball er i liðinu, þrátt fyrir, að hann geti ekki leikið i HM-leikn- um gegn Póllandi. Markvörður verður Peter Shil- ton, Leicester, — siðan Madeley, Leeds, og Hughes, Liverpool, sem bakverðir og Hunter og McFar- land, Derby, miðverðir. Tengilið- ir verða Peters og Bell, Manch. City, og annað hvort Ball eða Currie, Sheff. Utd. — 1 framlin- unni eru Martin Chivers, Totten- ham, Mike Channon, Southamp- ton, og Alan Clarke, Leeds. Moore og Storey eru i vara- mannahópnum — einnig til dæmis Osgood, Chelsea, Hector og Todd, Derby, og Watson, Sunderland. Heimsmet Burglinde Pollak, Austur- býzkalandi setti nýtt heimsmet I fimmtarþraut i Evrópukeppninni i Bonn á laugardag. Hinn 22ja ára Polla, sem varð 3ja á 01. i Munchcn hlaut, 4932 stig. Hún hafði einnig fyrr i sumar sétt heimsmet — hlaut 4831 stig i Em- keppninni i Sofia. Þau hafa drepið gœsina sem verpti GULLEGGJUNUM! — Enginn tilgangur með fleiri tennisleikjum í „baráttu kynjanna" Houston (AP). — Bobby Riggs heimtar að fá að keppa við Billy Jean King á ný og Billy Jean segist ætla að hugsa málið. Við skulum vona, að þau sjái að sér og gleymi þessu öllu saman. Hin svokallaða rBarátta kynjanna" í tennis var falleg og óvenjuleg í fyrsta skipti. Spennandi í annað skiptið, þegar Hollywood-mað- urinn Jerry Perrenchic setti svip sinn á keppnina og undir- búninginn. En þriðja keppni? oo o Ahorfendur á iþróttaleiki mundu ekki mæta. Hugmyndin er nú orðin út- þynnt. Enginn mundi borga fyrir, að sjá þau Billy Jean og Bobby i keppni á ný — nákvæmlega eins og enginn haföi áhuga á, að sjá Margréti Court mæta hinum 55 ára Riggs aftur. En hvað sönnuöu þessir leikir? — Bobby Riggs, miðaldra maður hvers hreyfingar eru orðnar hægar, sigraði frú Court 6-2 og 6-1, en árangur hennar undanfarin ár skipar henni þó óum- ræðanlega sæti sem „Drottningu tennisvallanna”. Frú Billy Jean, 29 ára og fimm- faldur sigurvegari i einliðaleik kvenna á Wimbledon-mótinu, lék sér hins vegar að karli sl. fimmtudag, 6-4, 6-3 og 6-3. Svo matið skýrsluvélarnar — þurr- ausið sérfræðingana — látið' fara fram þjóðarkönnun — og hvað kemur út? Það, að einn dag getur Riggs, sterkur og taktiskur, sigrað beztu tenniskonu heims — annan dag getur hann ekki haldið á spaða gegn ákveðnum kven-meistara. En ef Bobby Riggs fær annað tækifæri gegn Billy Jean, eða Margrét fær annað tækifæri á Bobby, eða jafnvel hin vin- sæla, litla Chris Evert, yndi áhorfenda frá Florida, mætir karli — hvern skiptir það máli? Bobby og Billy hafa leikið sitt hlut- verk. Fólk hreifst af þvi meðan það stóð yfir. Bæði fengu stórpeninga i sinn hlut — Billy Jean King ekki undir 200 þúsund dollurum, Riggs 100 þúsund dollara, En þau hafa drepið gæsina, sem verpti gulleggjunum. Látum þau nú snúa sér að öðrum mótherjum. Þau hafa gert iþrótt þeirri, sem þau leika og elska, gagn. Tennisiþróttin er nú i nýjum hæðum. Hún er nú „stór-iþrótt”. Hún getur keppt við fótbolta og hornabolta um bandariska áhorfendur — fyllt vellina. En ekki með leiðinlegum leikjum og endurleikjum milli gamals manns og þeirra beztu meðal kvenna. Það eru kannski yfir 300 menn i heiminum, sem geta sigrað Riggs, nokkrir á svip- uðum aldri og hann. Yngri og sterkari menn heföu ekkert fyrir þvi að sigra Billy Jean. Yfir 30000 áhorfendur komu til að sjá leikinn i Astrodome-iþróttahöllinni milli Bobby Riggs, litla mannsins, sem gengur eins og önd, og Billy Jean. Samkvæmt skýrslum þeirra, sem bezt þekkja til, sáu yfir 50 milljónir leik þeirra i sjónvarpi. Viða — utan Bandarikjanna — vakti fólk fram á nótt til að fá fréttir að úrslitunum. 1 Astraliu eyddi fólk matartima sinum i að horfa á sjónvarpssendingu af leiknum beint. Slikt heppnast kannski einu sinni á 100 árum i sporti. Þau birtust á vellinum. Bobby gaf Billy heljarmikinn spýtubrjóstsykur, sem endist i nokkra daga — en hún færði honum gris — manninum, sem látiö hafði þau orð falla eftir sigurinn gegn Margréti, að ef hann væri svin þá vildi hann vera svin nr. 1 i heim- inum. Skólahljómsveit Houston-há- skóla lék dillandi fjörug lög —- meðan ungar stúlkur sýndu listir sinar á vellinum. Ahorfendaskarinn var næmur fyrir öllu — eins og fólk á nautaati. Það var hrópað og kallað — aldrei þögn, mikill munur frá i eina tið i sambandi við þessa iþrótt „rika mannsins”. „Mér fannst það stórkostlegt” sagði Billy Jean eftir á. „Það var langþráður draumur að heyra fólk hrópa i tennis- keppni”. Billy Jean King meö tékkinn góða — hundrað þúsund dollara — sem hún fékk fyrir það eitt aö sigra karlinn Bobby Riggs. Ahorfendur skiptust i tvo hópa — enginn var hlutlaus. Eiginmenn voru á móti eiginkonum — strákar gegn stelpum. Bobby barðist til loka -- en allt kom fyrir ekki, þó hann hefði gleypt 415 vitaminpillur þann daginn — og talað stanzlaust dagana á undan. Þetta var góð skemmtun meðan hún stóð — en eins og hjá Muhamed Ali — þegar taparinn ætlaði að halda áfram að tala, þá hlustaði enginn. Hibernian býður 5000 pund Hooley hœtlur! — Keflvíkingar taka ákvörðun síðar í dag hvort þeir taka tilboði Hibernian Við tökum ákvörðum síðar í dag hvort við leikum gegn Hibernian aftur á Easter Road í Edinborg, sagði Hafsteinn Guð- mundsson, formaður IBK, þegar blaðið ræddi við han i morgun. Keflvikingum hefur borizt tilboð frá skozka liðinu, sem er reiðu- búið til að greiða IBK 5000 sterlingspund fyrir leikinn ef hann verður í Edinborg — en Keflvíkingar greiða af því ferða- og hótelkostn- að. Tilboð Hibs er því upp á 700 þúsund krónur fríar. Þetta tilboð Hibs barst i gærdag. Er Joe Hooley hættur hjá Kefl- vikingum, spurðum við Haf- stein. Ja, það er mikið vandamál. Hann kom ekki með okkur heim aftur eftir leikinn i Edinborg — og ég sé sannarlega eftir honum. Hann er afbragðsþjálfari — árangur liðs okkar sannaði það i sumar — og sá langbezti, sem STORLEIKIRIHM Nokkrir afar þýðingar- miklir leikir í HM-keppn- inni í knattspyrnu verða leiknir í kvöld. Meðal ann- ars leika Austur-Þjóð- verjar í Leipzig við Rúmena í 4. riðli. Ef Þjóðverjarnir vinna eru þeir sem gott komnir i úrslitakeppn- ina — þurfa þá aðeins aö vinna Albaniu. Rúmenia er með sjö stig eftir 4 leiki — vann A-Þýzkaland heima 1-0 — en Þýzkaland með 4 stig úr 3 leikjum. Rúmenia tapaði stigi gegn Finnum i Helsinki. Þá leika Pólverjar og Wales I Póllandi, en löndin eru i riðli ásamt Englandi. Sigri Wales með einu marki, þarf England að vinna Pólland með fjögurra marka mun á Wembley i október. Veröi jafntefli eða sigri Pólverjar ræður leikur Englands og Pól-, lands algjörlega úrslitum — Wales kemst áfram á betri markatölu en hin löndin ef jafn- tefli verður i báðum leikjunum. Þarna er spenna þvi mjög mikil. Wales er með sitt sterkasta lið — Mike England, Tottenham, leikur l > f ■ - '-mSCi f ' Billy Jean King nær lágum bolta rétt við netið i annarri lotunni gegn Riggs. Hún lék mjög vel allan timann og gaf Riggs aldrei tækifæri á þvi aö rétta sinn hlut. með að nýju, en bezta mann Pól- verja, Lubanski, vantar. I Moskvu leika Sovétrikin við Chile um réttinn I úrslitakeppn- ina og siðari leikur landanna verður i Santiago i Chile 21. nóvember. í Sheffield leika Norður-lrland og Búlgaria i 6. riðli. Sigri Búlgarar eru þeir komnir i úr- slitakeppnina næsta sumar. — eiga eftir leik gegn Kýpur heima. Búlgaria er með 6 stig úr 3 leikjum — Portúgal 5 úr fjórum leikjum og á eftir að leika við Búlgariu og Noröur-lrland á heimavelli. Jeffries til Palace Crystal Palace keypti I gær miðvörð Manch.City — Derek Jeffries — fyrir 110 þúsund sterlingspund. Hann mun leika sinn fyrsta leik fyrir Lundúna-lið- ið, sem er neðst i 2. deild, á laugardag gegn Sheffield Wed. þjálfaði hér. Við vorum búnir að ráða hann næsta sumar einnig, en maðurinn ér skapmikill og tók illa jafnteflinu við Breiðablik i sið- asta leiknum I Islandsmótinu. Nei, við erum ekki farnir að hugsa um eða leita eftir öðrum þjálfara. En það verður að viður- kennast, að þjálfunin hjá okkur i sumar, var nánast eins og hjá at- vinnumönnum. Já, ég sé eftir Hooley. Síðustu fréttir Forráðamenn Hibs höfðu samband vi^ IBK nokkru fyrir hádegi — sögðu þá tilboð sitt alls ekki endanlegt, og möguleiki væri á, að þeir hækkuðu það veru- lega. En hvaö með leikinn við Hibernian? — Við höfum nú fengið vilyrði fyrir Laugardalsvellinum 3. októ- ber, þó með þvi skilyrði að tið batni, þvi eins og völlurinn er nú er varla hægt að bjóða upp á leik þar. Þetta er I fimmta skipti, sem ÍBK tekur þátt i Evrópukeppni og liöið hefur alltaf leikið heimaleik sinn hér á tslandi. Auövitaö hálf- langar okkur til að leika heima — mér finnst að við séum svolitið að svikjast undan merkjum með þvi að taka tilboði Hibernian — það er gagnvart hinum tryggu áhang- endum liðs okkar. En það væri mikið happdrætti að ákveða leikinn hér heima — rigni eitt- hvaö að ráði næstu daga verður Laugardalsvöllurinn óleikhæfur. Við erum sem sagt milli steins og sleggju — og ekki að vita hvaö kemur út úr fundinum siðar i dag. Við þurfum að gefa ákveðið svar fyrir kvöldið. Ef við leikum úti færist leikurinn fram til þriðju- dagsins 2. október , þar sem hitt Edinborgarliðið Hearts á leik 3. október á leikvelli sinum. Við höfðum haft samband viö Albert Guðmundsson, formann KSl, og ef um breytingu verður að ræða er hann reiðubúinn að at- huga hvort Evrópusambandið samþykkir breytinguna, sagði Hafsteinn að lokum. Denis Law miðherji Denis Law, Manch. City, hefur jafnað sig af meiðslun- um, sem hann hlaut i siðustu viku, og verður miðherji Skotlands i hinum þýðingar- mikla HM-leik I kvöld á Hampden-Park i Giasgow. Skotar leika þá við Tékka — - og ef Skotar sigra i leiknum eru þeir komnir i úrslita- keppnina i Vestur-Þýzka- iandi næsta sumar. Ef önnur úrslit veröa i leiknum — jafntefli eða sigur Tékka — ræður siðasti leikurinn i riðl- inum úrsiitum. Tékkar og Skotar leika 17. október i Tékkóslóvakiu. Þetta verður 45. landsleikur Law. Einn nýliði er i skozka lið- inu, Hutchison, Coventry, en liðið er þannig skipað. Hunt- er, Ccltic, Jardine, Rangers, McGrain, Celtic, Holton Manch. Utd. Bremner, Leeds, Conolly, Celtic, Hay, Celtic, Morgan, Manch. Utd. Law, Manch. City, Dalglish, Celtic, og Hutchison, Coven- try. , EM Island Frá Stefáni Guðjohnsen, Ost- ende: E v róp u m eis tara m ótinu i bridge lauk i gær. islenzka sveitin varð I 14. sæti. Vann báða leiki sina i gær. Fyrst Noreg meö 12-8 og siðan Finnland meö 20 minus 3, og þá fyrst unnum við leik með fullu húsi stiga. Karl og Stefán spiluðu báða leikina — Jón og Páll gegn Noregi, en Ásmundur og Hjalti gegn Finnlandi. Leikur okkar gegn Noregi var verri en algjöri tapleikurinn gegn írum kvöldinu áður, þó svo okkur tækist að vinna með 12-8. Við höfðum 30 stig yfir i hálfleik 48-18. Þrjú spil kostuðu okkur 59 IMP- stig, en við töpuðum s.h. þó ekki nema 26-48. Leiknum er bezt lýst með þvi að kalla hann „martröð i slemmum”. Italir urðu EM-meistarar i báðum flokkum. í opna flokknum spiluðu Belladonna, Garozzo, Vi- valdi, Pedrini, dr Falco og Franco. t kvennaflokknum. Bi- anchi, Valenti, Jabes, Robaudo, Canessa og Venturini. Lokastaðan i opna flokknum var þessi. 1. ttalia 379 2. Frakk- land 329 3. Pólland 284 4. Sviss 281 5. Austurriki 281 6. tsrael 277 7. Noregur 271 8. Bretland 269 9. Svi- þjóð 256 10. Belgia 240 11. írland 231 12. Júgóslavia 228 13. Spánn í bridge í Ostende lokið: varð í 14. sœti 226 14. Island 221 15. Tyrkland 212 16. Holland 203 17. Danmörk 197 18. Tékkar 194 19. Þýzkaland 178 20. Finnland 176 21. Ungverjaland 155 22. Libanon 91 og 23. Portúgal 45. Kvennaflokkur. 1. ttalia 191 stig 2. írland 174 3. Bretland 157. Úrslit i 22. umferð. Tékkar—ttalia 1-19, Noregur—ts- land 8-12, Finnland-Libanon 20-0, Portúga 1 — H o 11and 9-11, Sviss—Ungverjaland 11-9, Frakk- land—Sviþjóð 17-3, Israel—Spánn 20-0, Bretland—Júgóslavia 14-6, Danmörk—Austurriki 8-12. Pól- land sat yfir. 23. umferð. Þýzkaland—ttalia 1-19, Irland—Tékkar h-3-20, Tyrk- land—Noregur 0-20, Is- land—Finnland 20-^3, Liba- non—Portúgal 17-3, Hol- land—Sviss 5-15, Ungverja- land—Pólland 3-17, Svi- þjóð—tsrael 14-6, Spánn—Bret- land 9-11, Júgóslavía—Danmörk 10-10, Austurriki—Belgia 11-9. Frakkland sat yfir. Alan Ball slapp augnablik frir á vítateigspunkti i ieiknum á Highbury — fékk knöttinn og skoraði sigurmark Arsenal gegn Stoke á laugardag. A myndinni sést hann senda knöttinn framhjá Farmer, markverði Stoke. Allan Bali er I enska landsliðinu — en hann má ekki leika hinn þýðingarmikla leik gegn Pólverjum 17. októ- ber, þar sem hann var rekinn af velli i HM-leiknum i Póllandi i sumar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.