Vísir - 26.09.1973, Blaðsíða 5

Vísir - 26.09.1973, Blaðsíða 5
Visir. Miðvikudagur 26. september 1973 5 AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson „Brauzt inn í góðri trú" í Watergate sagði Howard Hunt, sem lauk vitnisburði sínum fyrir Watergatenefnd þingsins í gœr Einn af innbrots- mönnunum i Watergate- bygginguna, E. Howard Hunt, lauk tveggja daga vitnisburði sínum fyrir þingnefndinni i gær með þvi að segja, að hann hefði unnið ,,með vitund, vilja og undir stjórn æðri embættismanna stjórn- arinnar”. ,,Af þvi leiðir”, segir hann um innbrotið i aðalstöðvar demókrata- flokksins i Watergate og skrifstofur sálfræðings Ellsbergs, ,.,að ég var að vinna að löglegum að- gerðum”. Hunt viðurkenndi, aB hann hefði stjórnað hópi Kúbuættaðra Bandarlkjamanna, sem hann hafði ráðið til starfa, i góðri trú um, að innbrotið i Watergate væri löglegt. Eins urri innbrotið i skrif- stofu sálfræðingsins i Los Angeles. Lowell Weicker öldunga- deildarþingmaður spurði Hunt, að hverjum rannsóknin ætti að beinast, fyrst hann teldi sig sak- lausan af ólöglegu athæfi. „John D. Ehrlichman, fyrrver- andi ráðgjafa forsetans, Egil Krogh, starfsmanni i Hvita húsinu”, svaraði Hunt að bragði þegar um var að ræða innbrotið hjá sálfræðingi Daniels Ells- bergs. (Ellsberg var eins og menn muna sóttur til saka vegna birtingarPentagonskjalanna svo- nefndu, en eftir nokkurt mála- vafstur var málið látið niður falla). — En vegna Watergateinn- brotsins? Þá tiltók Hunt John Mitchell, þáverandi dómsmálaráðherra, John Dean, ráðunaut i Hvita húsinu, Magruder og Gordon Liddy, sem þegar hefur hlotið dóm fyrir sinn hlut i Watergate- málinu, og „kannski Charles Colson, fyrrum ráðgjafa i Hvita húsinu”. Hann sagðist ekki hafa neitt, sem benti til þess, að Nixon forseti væri viðriðinn innbrots- samsærið. „FBI spurði mig ekki mikils, þegar það rannsakaði innbrotið”, sagöi hann i annan stað og lét þá fylgja, að upplýsingarnar um, að Ellsberg væri undir handleiðslu sálfræðings, hefðu verið fengnar úr skýrslu hjá FBI. Nauta- dráparar Lögreglan i bænum Janakpur i Nepal hefur hafið umfangsmikla leit að fjórum mönnum, sem grunaðir eru um að hafa drepið kýr, en einn félagi þeirra hefur játað á sig slika glæpi. Kúadráp þykir svivirðilegur glæpur meðal Nepalmanna, sem eru hindu-trúar, og likt og Ind- verjar lita á kúna, sem heilagt dýr. Sá, sem drepur naut i bif- reiðaslysi, á yfir höfði sér allt að ævilangt fangelsi. En flokkur manna er nú grunaður um að hafa siðustu tvær vikurnar eitrað fyrir nautgripi (5 kýr og 10 tudda) til þess að hirða húðirnar og selja fyrir 50 krónur stykkið. Syngja messu yfir Allende Samkvæmt fréttum, sem borizt hafa frá Chile, eru milli 5000 og 6000 manns hafðir i haidi á stærsta knattspyrnuvellinum i Santiago. Er það ýmist fólk, sem þekkt er að róttækni, eða menn, sem herinn hefur i hús- leit sinni fundið vopn hjá. Auk svo liklega fjölda, sem tekinn hefur verið i hita byltingarinnar i misgripum. Þessi mynd var tekin á leikvang- inum. Komnir að ofan Geimfararnir lentu í gœr með gögn sín Klyfjaðir myndum, skýrslum og gögnum, sem þeir hafa safnað síðustu 59 dagana, lentu geimfararnir þrír úr geimrannsóknar- stöðinni „Skylab” á Kyrra- hafi kl. 11 i gærkvöldi, og var þeim bjargað strax úr geimfarinu um borð í flug- möðurskipið „New Orle- ans". „Við skemmtum okkur vel uppi,” sagði Bean, sem var stjórnandi þeirra þriggja. En frekari orðaskipti uröu ekki við þá félaga, sem læknar tóku strax i sina vörzlu. Þeir voru sagðir likamlega vel á sig komn- ir, þrátt fyrir nær 15 vikna veruna úti i geimnum. Þó þurfa þeir tima til þess að llkami þeirra venjist þvi að koma úr þyngdarleysinu. Oti i geimnum, þar sem þyngd- arleysis gætir, vinnst likamanum allt léttar og þarfnast ekki alls þess vöðvaafls, sem maðurinn ræður yfir. Vilja vöðvar hans rýrna af þessum sökum og þar á meðal hjartavöðvinn. Miklar vonir eru bundnar meðal visindamanna viö þau gögn, sem þeir Bean, Lousma og Garriott hafa meö sér utan úr geimnum. Þar á meðal eru um 77.500 myndir af sólinni (teknar á sérstakar filmur) og á annað þús- und ljósmyndir af jörðinni. Telja menn, að af þessu megi i fyrsta lagi öðlast meiri þekkingu á leyndardómum sólarinnar og svo ennfremur frekari upplýsingar um litt könnuð svæði jarðar og auðlindir náttúrunnar. Ekkja Allende forseta, frú Hortensia Bussi de Allende, kom til Havana á Kúbu i gær til þess að vera viðstödd minning- arathöfn um mann sinn, en hún fer fram á föstudaginn. Minningarathöfn fór fram i Mexikóborg vegna fráfalls All- ende, og hefur þetta tvennt vakið nokkra athygli, vegna þess að ka- þólska kirkjan umber ekki sjálfs- morð og syngur ekki messur yfir fólki, sem látið hefur lifið fyrir eigin hendi. Þvi er greinilegt, að kaþólska kirkjan i Mexikó og Kúbu litur ekki svo á, að Allende forseti hafi framið sjálfsmorð. — Ekkja hans og nokkrir vinir halda þvi fram, að Allende hafi særzt i bardögun- um um forsetahöllina, og fyrstu herflokkar sem inn I höllina réð- ust hafi veitt honum banasár. Kaþólskir í Mexikó og Kúbu taka ekki sjálfsmorðið trúanlegt Myndin hér var tekin af föngum, sem leiddir eru inn á knattspyrnuleik- vanginn I Santiago til yfirheyrslu. Geimfcrðir til Skvlab-geimstöðvarinnar voru ekki einu sinni byrjaðar, þegar hafizt var handa við að leggja drög að geimskoti Bandarikja- manna til Mars. Þessi mynd er af likani af tæki, sem sent verður þangað til rannsóknar á yfirborði plánctunnar, en til þess þarf geiifi- farið að lenda mjúkri lendingu. Leitaði israel róða hjá þeim Johnson forseta og Nixon? i nýútkominni ísraelskri bók, sem ber titilinn „Jerúsalem — borg án múra", heldur höfundur bókarinnar, Uzi Benziman, því fram, að Israelsmenn hafi kynnt sér álit Banda- ríkjamanna, áður en þeir lögðu undir sig austurhluta Jerúsalemborgar. Höfundur heldur þvi fram, að leitað hafi verið álits Johnsons þáverandi forseta og Nixons, sem var liklegastur frambjóðandi repúblikana, og hafi þeir látið i ljós þá skoðun sina „að stjórn ísraels muni breyta heimskulega, ef hún ákvæði að sleppa hendi af austurhluta Jerúsalem”. Höfundurinn, Benziman, full- yrðir, að stjórn Israels hafi siðan ákveðið að iáta austurhluta borgarinnar ekki af hendi á grundvelli þessára upplýsinga.— Israelsmenn hertóku jórdanska hluta Jerúsalem 8. júni og spönnuðu siöan lögsagnarum- dæmi sitt yfir hann þrem vikum siðar. I annan staö segir bókar- höfundur, að Israelsmenn hafi boðizt til þess að bæta stöðu kaþólsku kirkjunnar i landinu helga f skiptum fyrir viður- kenningu Páls páfa á stjórn og yfirráðum tsraelsmanna yfir borginni helgu. — Páll páfi er I bókinni sagðúr hafa hafnað til- boðinu og svarað þvi til, að tsra- el væri riki án viöurkenndra landamæra, og þvi gæti Páfariki ekki gert við þaö samninga — Páfariki viðurkennir ekki enn tsrael, þótt páfi hafi veitt Goldu Meir móttöku i Páfagarði fyrir nær 9 mánuðum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.