Vísir - 13.11.1973, Blaðsíða 3
Vísir. Þriðjudagur 13. nóvember 1973.
3
EKKI
BEIN-
LÍNIS
VERK-
FALL
Athugasemd við grein um, að
hjúkrunarnemar hóti verkfalli i
næstii viku.
Þetta er ekki alveg rétt meö farið,
þvi að af hálfu hjúkrunarnema
hefur ekkert verið ákveðið með
verkfall, né aðrar mótmælaað-
gerðir i næstu viku. Komi hins
vegar ekkert nýtt fram i næstu
viku, sem skýrir betur afstöðu
yfirvalda til fjármála og mennt-
unarmála skólans, munu hjúkr-
unarnemar efna til aðgerða en
ekki verkfalls, þegar að þvi kem-
ur. Hvað varðar 50 nemendur i
kennslustofu, þá eru 50nemendur
i einni stofu skólans, en um 30-35 i
hinum. Búið er að taka
sjónvarpsherbergið til afnota i
prófum, en ekki setustofuna, þó
það hafi komið til tals i sambandi
við próf.
t framhaldi af þessu má geta
þess, að hér á landi er starfandi
annar hjúkrunarskóli, Nýi hjúkr-
unarskólinn, sem var stofnaður
árið 1972 til aðbætaúrhjúkrunar-
kvenna/manna skortinum. Hann
hefur ekki enn tekið inn
nemendur fyrir utan ljósmæður,
sem eru i hjúkrunarnámi. Nýi
hjúkrunarskólinn er þvi enn
ekki farinn að þjóna tilgangi
sinum. A meðan Hjúkrunarskóli
íslands tekur inn 100 nemendur á
ári, fær einungis 2 kennara til við-
bótar og er að sprengja húsnæðið
utan af sér.
Með vinsemd og virðingu
Björg ólafsdóttir
formaður H.N.F.t.
ÍSLCNZKUR LÆKNIR
VÍKUR HCIMSATHYCLI
- M»r unnid ai ranatiknum 6 trumu- „SJKS SSrSE,-'•«
bundnu snami — Sunday Tintts birtir KSTVÍÍ
lorsiSufrtgn af stöHum hans *T?.Í íWniT'i "*" "
Dr. VakUmara- talla Caadl4a ná •• M n w .Z * 'm"“ln.»nuSS
OF MIKIÐ
GERT ÚR
FRAMLAGI
HELGA
Þriðjudaginn 23. október sl.
birtist i blaði yðar fréttagrein um
hlutdeild mina i nýrri meðferð á
sveppasjúkdómi.Grein þessi ger-
ir of mikið úr framlagi minu i
sambandi við þessa meðferð.
Látið er i veðri vaka, að ég hafi
fundið upp aðferð til þess að flytja
frumubundið ónæmi milli manna.
Sú uppgötvun var hins vegar gerð
fyrir 20 árum af bandariskum
lækni Dr. Lawrence. Aðferð þessi
var einnig fyrst reynd til
lækninga i Bandarikjunum árið
1965 gegn banvænni teguna kúa-
bólusóttar. Þá tilkynntu banda-
riskir og kanadiskir læknar, að
þeir hefðu náð árangri i meðferð
á illvfgum sveppasjúkdómi með
þessari aðferð, um svipað leyti og
viö birtum grein um niðurstöður
okkar.
Með þökk fyrir birtingu,
Helgi Valdimarsson
London, 4. nóvember, 1973
„Erum voðalega leiðir"
— segja Vestfjarðaskipstjórar um samningana
— ,,bara diplómatatal - gœzlan má ekkert gera"
,,Við erum voðalega leiðir yfir
þessu samkomulagi sem manni
skilst að verði undirritað i dag.
Og við erum ákaflega leiðir yfir
framkomu Landhelgisgæzlunnar.
Þeir liafa ekkert mátt gera hér
fyrir vestan, það er eins og liafi
verið eitthvert þegjandi sam-
komulag milli hennar og Bret-
ans”, sagði Ilermann Skúlason,
skipstjóri' á Júliusi Geirmunds-
syni, skuttogara frá isafirði, en
Visir ræddi við hann i morgun.
,,Við komum inn i nótt”, sagði
Hermann, ,,það var komið
hávaðarok i gærkvöldi og
Bretarnir sóttu i var undir
Grænuhlið. Ég reikna með að þeir
séu komnir þangað flestir eða all-
ir núna”.
— Nokkur varðskip á svæðinu?
„Jú, Ægir var þarna utan við þá
og Þór. Þeir voru að veiðum á
svæðinu frá 30-20 milum frá landi.
Ægir bað þá kurteislega að færa
sig — hvað þeir gerðu vitanlega
ekki. Þetta er bara diplómatatal.
Og við hérna erum ákaflega
daprir yfir þessum samningum.
Manni skilst, að útlendingarnir
fái að veiða upp að tuttugu milum
hérna. Og jafnvel, að okkur verði
lika haldið utan við tuttugu milur.
En það er ekki svæðið innan við
tuttugu milurnar, sem við þurfum
að fá, heldur Halinn og veiðisvæð-
ið út af friðaða svæðinu við Kög-
ur.
Almenningur heldur vist, að sé
skipum haldið utan við friðaða
svæðið, þennan skáp út af Kögri,
þá sé allt i lagi. En þvi miður er
það ekki svo.
I sumar vorum við yfirleitt
einir á Halanum og þar um slóðir.
Þá gerðum ’við það gott — en
núna, þegar fyrirsjáanlegt er að
þarna verði fjöldi útlendinga,
Breta og Þjóðverja næstu tvö ár-
in, þá verður engan fisk að hafa
þarna”.
Hermann kvaðst óttast, að
þannig yrði samið, að togskipum
yrði haldið utan við tuttugu milur,
en linubátar fengju að vera fyrir
innan.
„Þannig samkomulag skapar
aðeins úlfúð hér vestra. Viö á tog-
skipunum höfum reyndar komið
okkur saman við þá á linubátun-
um, þannig að ekki sé verið pð
mismuna mönnum eftir skipum.
Ef þeir fá úthlutað svæði, t.d
innan við tuttugu milur, þá fynd-
ist manni skitt, að þeir væru svo
að leggja linuna fyrir framan nef-
ið á okkur fyrir utan. Vitanlega
hliðrar maður til fyrir þeim, en
þetta veldur úlfúð”.
Sagði Hermann að stóru, is-
lenzku togararnir væru ekkert
nær landi en Bretinn, „þeir
standa i stappi við þá suður af
Hvalbak. Við á minni togskipun-
um höfum fram undir þetta feng-
ið frið. Nú er hann úti”.
— GG.
Fengu glœsi-
bíl í
happdrœtti
Þann 13. október var dregið i
Landshappdrætti R.K.I., og
vinningshafi Ford Mus_tang
Grandé bifreiðarinnar var frú
Lovisa Bjargmundsdóttir, og er
myndin af henni og eiginmanni
hennar, er framkvæmdastjóri
R.K.t. afhendir vinninginn.
Fisher hljómburðartækin
fengu Sverrir Bergmann og
Steinar Friðgeirsson.
Rauði kross Islands þakkar
landsmönnum veittan stuðning.
4m m m r ^ < m m m
Dularfullt
mál
sparisjóðs
Seðlabankinn rannsakar nú
ákveðin atriði í rekstri Spari-
sjóðsins i Keflavík. Sparisjóðs-
stjórinn hefur vikið úr starfi, frá
siðustu mánaðamótum. Ýmsar
sögur ganga í Keflavik um þetta
mál, en frá yfirvöldum Seðla-
bankans fæst ekkert um málið.
Þvi verður ekki fullyrt, i hverju
Seðlabankinn telur.að sparisjóðs-
stjórinn hafi orðið brotlegur.
Málið er ekki komið í hendur
bæjarfógeta i Keflavik. Er okkur
tjáð, að i slikum tilvikum fari
fram rannsókn i bankaeftirliti
Seðlabankans og kæra muni
berast frá þvi, ef það telji ástæðu
til.
Kæra gæti einnig borizt frá
stjórn sparisjóðsins. Þessir aðilar
hafa málið nú i athugun, og hvilir
yfir þvi leynd, enda starfsmenn
bankaeftirlitsins bundnir þagnar-
heiti um öll siik mál.
-HH.
Slökkviliðið
leitaði að eldi
um alla borg
— enginn eldur fannst, því um
gabb var að rœða
Karlmaður gabbaði slökkvi-
liðið á laugardaginn og olli þvi,
• að slökkvibilarnir fóru á marga
staði I bænum, til að leita af sér
allan grun.
Maðurinn hringdi i slökkvi-
liðib og sagði, að kviknað væri i
á Kambsvegi. Slökkvibilar fóru
af stað þangað. Slökkviliöinu
tókst á meðan að rekja hvaðan
simtalið var
Þegar slökkvibilarnir komu á
Kambsveg, var þar ekki um
neinn eld að ræða. Þá var haldið
I Kambsgerði, þvi talið var
mögulegt að maðurinn hefði
mismælt sig. Enginn eldur var
þar. Slökkviliðið hélt viðar, á
þær götur, sem höfðu nöfn, sem
hljómuðu likt og Kambsvegur.
Enginn eldur reyndist vera laus
neins staðar.
Maðurinn, sem hringdi,
fannst stuttu siðar. Hann viður-
kenndi að hafa gabbað slökkvi-
liðið. Þess má geta að refsing
við þvi getur verið allt að 3ja
mánaða fangelsi.
-ÓH.
JÓUN SNEMMA
Á FERÐINNI
Ekki virðist jólaundirbúning-
urinn ætla að taka styttri tima
með aukinni tækni og framför-
um, þvi strax í byrjun þessa
mánaðar mátti sjá fyrstu merki
jólanna i verzlunargluggum.
Yfirleitt hefur ekki borið á jóla-
útstillingum i verzlunum fyrr cn
undir lok þessa mánaðar, en
minjagripaverzlanir hafa þó
jafnan verið mjög snemma á
ferðinni með jólavörur sinar.
Silli og Valdi hafa þcgar sett
upp sinn árlega jólamarkað i
kjallaranum i Austurstræti 17,
með jólakertum, skrauti og
leikföngum. Bókaverzlanirnar
eru nú sem óðast aö taka fram
jólakortin og jólabækur og þeir
sem vilja hafa nægan tima, gcta
þvi faiiðað undirbúa jólin nú
strax einum og hálfum mánuði
fyrir jól.
— ÞS.
„Of
lítið um
leikrit
fyrir
börn"
— segir ungt fólk sem
frumsýnir barnaleikrit í
Hafnarfirði ó föstudag
„Við erum öll mcð svo gcysi-
legan áhuga á leiklist, að við
ákváðum núna i septcmbcr að
setja upp leikrit. <)g af þvi okkur
l'innst svo litið um sýningar fyrir
börnin, þá ákváðum við að setja
upp barnaleikrit”.
Þetta sögðu tvö kát og hress
ungmenni sem heimsóttu blaðið i
gær. Þau heita Þóra Lovisa Frið-
leifsdóttir og Gunnar Magnússon.
Þau tvö, ásamt átta öðrum,
ætla að frumsýna barnaleikritið
„Sannleiksfestin” á föstudaginn.
Þau sýna það i Bæjarbiói i
Hafnarfirði.
„Þrjú okkar eru úr Hafnarfirði,
og okkur fannst alveg eins gott að
setja leikritið upp þar. Leiklistar-
lif hefur legið þar niðri i niu ár.
Þegar við vorum að byrja, var
okkur boðið nafnið Leikfélag
Hafnarfjarðar, og við tókum það,
og heitum eftirleiðis Leikfélag
Hafnarfjarðar”, sagði Þóra.
Aðspurð sögðu þau Gunnar og
Þóra, að Þóra væri titluð leik-
stjóri.
„Hún ræður samt engu i raun
og veru. Við hin ráðum alveg eins
miklu og hlustum bara ekkert á
hana, ef hún er eitthvað að þykj-
ast ráða”, sagði Gunnar og hló.
Leikritið, „Sannleiksfestin”
fjallar um lygina.
„Ég held, að leikritið sé ákaf-
lega lærdómsrikt fyrir krakka,
um leið og það er bráðskemmti-
legt”, sagði Gunnar.
Að sögn þeirra er mikið um
söng og spil i leikritinu. Atján ára
piltur i hópnum hefur samið öll
lögin og textana. Hann heitir
Gunnar Friðþjófsson.
Nokkur þeirra, sem standa fyr-
ir hinu nýupprisna Leikfélagi
Hafnarfjarðar, hafa numið i
leiklistarskólum, bæði Þjóð-
leikhússins og hjá Ævari Kvaran.
„Nú, svo ef leikritið gengur vel,
sem við erum reyndar viss um,
þá höfum við geysilegan áhuga á
að ferðast með það um landið. En
auðvitað fer það eftir móttökun-
um hérna”, sögðu Gunnar og
Þóra.
Barnáleikritið „Sannleiksfest-
in” verður frumsýnt i Bæjarbiói
kl. 17 á föstudaginn.
„Og við erum viss um, að
fullorðnir myndu læra ýmislegt á
þvi að sjá þetta leikrit um lyg-
ina”, sögðu Gunnar og Þóra að
lokum. — óG.