Vísir - 13.11.1973, Qupperneq 9
Chile í
úrslit HM
— Hœtta austantjaldsþjóðirnar
einnig þótttöku í HM vegna
þess að FIFA dœmdi leik
Sovétríkjanna tapaðan?
Knattspyrnusamband Sovét-
rikjanna sendi alþjóöaknattspyrnu-
sambandinu/ FIFA, skeyti um helg-
ina, þar sem tilkynnt var, að Sovét-
rikin mundu ekki leika gegn Chile í
heimsmeistarakeppninni. Frestur,
sem Sovétrikjunum hafði verið
gefinn, var þá útrunninn. FIFA tók
málið strax fyrir og var leikurinn
dæmdur tapaður Sovétríkjunum
Chile er því komið í úrslitakeppnina
i Vestur-Þýzkalandi næsta sumar.
t 22. grein laga um heimsmeistara-
keppnina segir, aö mæti lið ekki til leiks verði
leikurinn dæmdur þvi tapaður, og lór FIKA
eftir þessum skýlausu ákvæðum, þegar það
dæmdi Sovétrikin úr keppninni.
Eins og kunnugt er af fréttum hér i
opnunni neituðu Sovétrikin að leika á leik-
vanginum i Santiago vegna þess, að
hann hafði verið notaður sem fangelsi i
uppreisninni á dögunum. Rétt lyrir helgi til-
kynnti knaltspyrnusamband Chile, að það
væri reiðubúið til að láta leikinn l'ara fram á
einhverjum öðrum leikvelli i landinu —
hvaða velli sem væri i landinu. Sovétrikin
neituðu þvi einnig.
Liklegt er að þetta mál dragi langan dilk á
eftirsérog öll löndin, sem unnið hafa sér rétt
i keppnina úr austurblokkinni, dragi sigi hlé.
Pað er Austur-Pjóöverjar og Pólverjar —
,r^
\1^2
WM
l>að er nú litil glcði hjá framkvæmdanefnd-
inni þýzku — heimsmeistarakeppnin i hættu.
einnig Búlgarar, sem nær öruggt er að ná
þeim áfanga, og Júgóslavar, sem um helgina
lýstu samstöðu með Sovétrikjunum i málinu.
Júgóslavar hafa ekki mikla möguleika á þvi
að komast i HM — þurfa að vinna Grikkland i
Aþenu með 3ja marka mun til þess. Fulltrúar
þessara fjögurra landa munu mæta á fundi i
Sofia 18. þessa mánaðar og verður þar tekin
ákvörðun um hvort löndin draga sig til baka
úr HM. — Ef til þess kemur á FIFA um tvo
kosti að ræða. I fyrsta lagi að þær þjóðir
sem urðu i öðru sæti i riðlum þessara þjóða
(Portúgal, England, Rúmenia) komist i loka-
keppnina eða i öðru lagi, að sérstakt mót
verði háð og til þess valdar nokkrar þjóðir.
Það að Rúmenar urðu i ööru sæti á eftir A-
Þjóðverjum setur FIFA i nokkurn vanda ef
til kasta þess kemur og austantjaldslöndin
hætt þátttöku.
Þeir skora mest
Hörður Sigmarsson, Haukum, er
nú markhæstur i 1. deild með 14
mörk — þar af fjögur víti. Næstur
kemur Axel Axelsson, Fram, með
13 mörk, einnig fjögur viti. Þeir
hafa báðir leikið tvo leiki.
Viðar Simonarson, FH, er með 11 mörk —
tvö viti — Stefán Þórðarson, Fram, 8 mörk i
tveimur leikjum, Einar Magnússon, Viking,
Gunnar Einarsson, FH, og Ólafur H. Jóns-
son, Val, allir með sjö mörk úr einum leik —
þar af er Gunnar með tvö viti.
Það var ekki alltaf nóg að
koniasl i færi — markvarzlan i
leik llauka og Ármanns var
i'ekkert grin. Að ncöan hcfur
nýliði I llauka-liöinu, Þórir
(iislason, sloppiö framhjá Vil-
herg Sigtryggssyni, en Itagnar
Gunnarsson varöi skot hans.
I.jósmynd Bjarnleifur.
V’iöar Simonarson var ÍR-ing-
um erfiður i gærkvöldi — ellefu
mörkin hans segja sina sögu.
Þarna horfir hann á eftir knett-
inum i markið. Ljósmynd
Bjarnleifur.
Þorsteinn Ingólfsson, linu-
maðurinn sterki hjá Armanni,
hefur sloppið framhjá Ólafi
ólafssyni og Sigurði Jóakims-
syni (til hægri) og sendir knött-
inn framhjá Ómari Karlssyni i
mark llauka. Það var sjöunda
mark Armanns — staðan 7-4 eft-
ir 23 mín. Ljósmynd Bjarnleif-
ur.
Haukar komust í eina skiptið
yfir eftir að leiktíma lauk!
Hörður Sigmarsson skoraði þó úr vítakasti og Haukar
unnu Ármonn 14:13. Snilldarmarkvarzla Ragnars
Gunnarssonar hafði nœstum fœrt Ármanni stig
Haukar voru heppnir i
gærkvöldi. Þeir komust
einu sinni yfir i ieiknum
gegn Ármanni — eftir að
leiktíma lauk — og það
nægði til sigurs i æsispenn-
Viðar lék aðalhlutverk Gejrs
og skoraði 11 mörk gegn ÍR!
— FH vann IR nokkuð örugglega með 21 marki gegn 18
Viðar Simonarson,
landsliðsgarpurinn
kunni, tók að sér aðal-
hlutverkið i FH-liðinu,
sem Geir Hallsteinsson
lék áður en hann fór til
Göppingen i sumar, og
kunni þá rullu ekki siður
en Geir. Viðar lék ÍR-
inga grátt i 1. deildar-
keppninni i gær i
Hafnarfirði — skoraði
ellefu mörk — og með
góðri aðstoð Gunnars
Einarssonar, sem skor-
aði sjö mörk, varð það
til þess að FH vann
nokkuð öruggan sigur i
leiknum með þriggja
marka mun, 21-18i í»að
er litil ástæða til að af-
skrifa FH — eins og svo
margir hafa gert — þó
Geir sé ekki með. Liðið
verður hættulegt hvaða
liði sem er i íslandsmót-
inu i vetur.
Það var hins vegar ekki neinn
stórleikur, sem FH og IR léku i
Hafnarfirðinum i gærkvöldi —
siður en svo — og að munurinn
varð ekki meiri FH í hag stafaði
fyrst og fremst af slakri mark-
vörzlu hjá liðinu allan leikinn.
Birgir Finnbogason stóð allan
timann i marki — og hefur oftast
staðið sig betur en að þessu sinni.
Markvarzlan hefur oftast verið
eitt af sterkustu vopnum FH — en
þarna brást hún.
IR-liðið brást mjög vonum
manna i þessum leik —• leikmenn
oft á tiðum ráðvilltir og hinar
furðulegustu villur áttu sér stað.
Aðeins snilldarmark-
varzla Geirs Thorsteinssonar,
allan fyrri hálfleikinn hélt IR-
ingum á floti — en hins vegar
brást hann i þeim siöari og fór úr
markinu. Þá var ekki að spyrja
að leikslokum.
ÍR-ingar höfðu frumkvæðið
framan af — höfðu oftast eitt
mark yfir, sem FH svo jafnaði, og
staðan i leikhléi var 8-8. IR-ingar
misstu af gullnu tækifæri til að ná
betri forustu i byrjun. Eftir að
Guðjón Marteinsson (áður Fram)
haföi skorað fyrsta mark leiksins
á 2. min. fékk IR vitakast, sem
Vilhjálmur Sigurgeirsson tók.
Skot hans var slakt og auðvarið —
og fleiri tækifæri misnotuðu IR-
ingar áður en Viöar fann i fyrsta
skipti leiðina i IR-markið. Það
var úr vitakasti. Guöjón svaraöi
strax fyrir 1R — en aftur skoraði
Viðar 2-2. Siðan skiptust liðin á að
skora — 1R ávallt á undan. 3-3, 4-
4, 5-5, 6-6, 7-7 og 8-8 komu á
markatöfluna — og Viðar og
Gunnar höfðu skorað sjö af átta
mörkum FH.
FH náði forustu strax i siðari
hálfleik — IR-ingar voru þá ein-
um færri, þar sem Þórarni
Tyrfingssyni var visað af leikvelli
— er Gunnar skoraði úr viti, en
leikurinn var jafn upp i 11-11.
Siðan fóru FH-ingar að siga
framúr — voru komnir tveimur
mörkum yfirá 15min. 14-12. Þann
mun tókst IR aldrei að brúa — og
á 22. mln. var munurinn orðinn
fjögur mörk, 22-18, og greinilegt
að hverju stefndi. Leikurinn varð
hálfgerð leikleysa i lokin — mörk-
in hlóðust upp — varnarleikur
lélegur, og dómarar misstu nokk-
uð tök á leiknum i öllum hama-
gangnum. IR tókst að minnka
muninn i tvö mörk, þegar tvær
minútur voru eftir, 20-18, en Viðar
átti svo siðasta orðið i leiknum.
LiðFH býggðistiof rikum mæli
á einstaklingsframtaki Viðars i
leiknum — og Gunnar kom
skammt á eftir. Þeir skoruðu 18
af 21 marki liðsins — þeir Þórar-
inn Ragnarsson, Birgir Björnsson
og Auðunn Óskarsson skoruðu eitt
mark hver. Þetta er
umhugsunarefni fyrir FH-inga.
Ólafur Einarsson var nú notaður
inn á linu með litlum árangri — en
áður hefur hann átt til að vera
hættuleg langskytta. Varnarleik-
ur FH var oft góður með þá Auð-
un og Birgi i aðalhlutverkum —-
en eins og áður segir mátti litið
„leka” framhjá varnarmönnun-
um.
Landsliðskappinn kunni i knatt-
spyrnunni, Asgeir Eliasson, var
bezti maður IR i leiknum — og sá,
sem bezt reyndi að dreifa spilinu.
Hann naut ekki mikillar aðstoðar
til þess — IR-liðið i heild átti einn
af sinum slæmu dögum. Furðu-
legt hvað IR-ingar reyndu litið að
dreifa spilinu út i hornin — rétt i
lokin var það reynt, og þá skoraði
Guðjón tvö mörk. En IR-liðið er
stemmingslið. Þar gekk litið —
og liðið lék undir getu.
Mörk 1R i leiknum skoruðu
Guðjón 5, Ágúst 4, Asgeir 3,
Gunnlaugur Hjálmarsson 3 (1
viti), Hörður Árnason, Hörður H.
og Vilhjálmur eitt hver.
Dómarar voru Hilmar Ólafsson
og Lúðvik Þorgeirsson.
andi leik!! Tveimur min.
fyrir leikslok tókst Svavari
Geirssyni aö jafna í 13-13
fyrir Hauka og nokkrum
sekúndum fyrir leikslok
braut Björn Jóhannesson
af sér. Var vikið af leik-
velli og Haukar fengu víti.
Leiktiminn rann út — en
víti verður að taka. Lands-
liðsmaðurinn ungi, Hörður
Sigmarsson, tók sér góðan
tima — tvö viti höfðu áður
brugðizt hjá Haukum — og
taugar hans voru i full-
komnu jafnvægi. Knöttur-
inn söng í netinu hjá hinum
frábæra markverði Ár-
menninga, Ragnari
Gunnarssyni, sem öðrum
fremur átti þátt i að skapa
hina miklu spennu.
Snilldarmarkvarzla hans i
leiknum átti vissulega að
uppskera stig fyrir Ár-
menninga.
Já, það var spenna i þessum
leik og Haukar voru vissulega vel
studdir af áhorfendum undir lok-
in. lþróttahúsið i Hafnarfirði
beinlinis nötraði undan köllum
áhorfenda, sem fylltu húsið. Og
þeir fóru ánægðir heim flestir,
Haukar sigruðu með 14-13.
En tapið var sárt fyrir Ármenn-
inga. Þeir léku prýðilega og höfðu
forustu nær allan leikinn — voru
aldrei undir i sjálfum leiknum.
Um tima hafði Ármann fjögur
mörk yfir — oft þrjú — og voru
marki yfir, 13-12, þegar rúmar
tvær minútur voru eftir. En samt
tapaðist leikurinn fyrir þá — það
var vissulega sárt.
Leikurinn sýnir vel þá spennu,
sem eftir á að vera i 1. deildinni.
Haukar, sem léku svo vel gegn
Fram á dögunum, og voru þá
jafnvel óheppnir að hljóta ekki
bæði stigin, lentu nú i kröppum
dans gegn liði, sem varð i sjöunda
sæti á Reykjavikurmótinu — og
voru vissulega heppnir að hljóta
bæði stigin.
Ármenningar komu á óvart i
byrjun — en Haukar voru seinir i
gang. Það minnti talsvert á leiki
þeirra framan af Islandsmótinu i
fyrra. Hörður Kristinsson skoraði
fyrsta markið i leiknum strax i
byrjun fyrir Ármann og á 2 min.
jók Vilberg Sigtryggsson muninn
i 2-0. Þá skoraði Ólafur Ólafsson
fyrir Hauka, en siðan liðu 10 min.
þar til Haukar komust aftur á
blað. Hörður Sigmarsson skoraði
þá frá eigin vitateig — fékk knött-
inn og var fljótur að hugsa. Sá, að
Ragnar hafði hætt sér úr Ár-
mannsmarkinu og sendi knöttinn
yfir endilangan völlinn i mark.
Slikt á ekki að-geta átt sér stað i 1.
deildarleik.
En Ármenningar fundu leiðina i
mark Hauka. Landsliðsmark-
vörðurinn Gunnar Einarsson var
ekki i „stuði” og fór úr markinu,
þegar staðan var 6-2 fyrir Ár-
mann eftir 17 min. leik. Þá virtist
allt benda til óvæntra úrslita.
Ómar Karlsson, sem áður lék
með KA á Akureyri, kom i mark
Hauka og varði mjög vel. Munur-
inn fór að minnka — komst i 7-6,
en Vilberg skoraði svo siðasta
mark hálfleiksins 8-6 fyrir Ar-
mann.
Gunnar kom aftur i mark
Hauka eftir hlé — og þá mátti sjá
stórkostlega markvörzlu hjá báð-
um liðum. Mörkunum beinlinis
lokað langtimum saman. Björn
Jóhannesson skoraði fyrsta mark
siðari hálfleik, 9-6 fyrir Armann,
og ekkert virtist bcnda til þess, að
Armenningar ætluðu að gel'a eft-
ir. En þá fóru Haukarnir heldur
betur á skrið — eftir 12 min. var
staðan orðin jöfn 10-10, en þá jafn-
aði Hörður Sigmarsson úr viti. Og
áhorfendur voru með á nótunum.
Hvilik læti. Gunnar varði og varöi
— einnig Ragnar. En svo uröu
Ólafi Ólafssyni á mistök, sem
kostuðu Hauka mark — Hörður
Kristinsson skoraði. Nafni hans
Sigmarsson jafnaði i 11-11, en aft-
ur var Höröur Kristinsson á ferö-
inni og skoraði eftir að Gunnar
haföi tvivegis varið á linu — og
auk þess viti frá Vilbergi. Ragnar
i Ármannsmarkinu lét einnig
hendurstanda fram úr ermum —
varði l'yrst viti frá Herði og siðan
Ólafi. En á 24. min. jafnaði Hörö-
ur Sigmarsson aftur mark nafna
sins — 12-12.
Jón Ástvaldsson, sem lék sinn
bezta leik með Armannsliðinu
hingaö til og var afar erfiður
Haukum i leiknum, skoraði 13
mark Armanns á 26. min. —
fimmta mark sitt i leiknum, 13-12,
en það na-gði Armanni ekki.
Lokakaflinn varð Hauka eins og
áður er lýst — en litlu munaði!
Armannsliðið kom vissulega á
óvart i þessum leik, þó ekki nægði
það til að hljóta stig. Liðið var
sterkt i vörn og það dreif Ragnar
áreiðanlega upp. ()g skotmenn á
Armann — já, marga góða, þó
Jón Ástvaldsson bæri af að þessu
sinni. Helzt að Björn væri of skot-
bráður —- og það reyndist dýrt.
Armannsliðið er vaxandi lið og
það er engu liði hollt að ganga að
þvi sem léttum andstæðingi.
Kannski helur það verið van-
mat llauka, sem orsakaði hinn
slaka leik liðsins lengi vel i lyrri
hálflcik. Skotnýting var þá afar
slæm — einkum þó hjá Herði Sig-
marssyni, sem ekki var i essinu
sinu framan af, en það lagaðist
mjög, þegar á leikinn leið. Stefán
Jónsson var heldur ekki i „stuði”
— langt frá sinu bezta. Það var
ágætur leikur Guðmundar
Haraldssonar framan af, sem
hélt Haukum öðru fremur á floti,
og vafasamt að Haukaliðið nái
aftur sigri i mótinu með þetta fá-
um mörkum og i þessum leik. En
Haukaliðið getur miklu betur —
þó það félli nú niður á það plan
lraman af, sem einkennandi var
l'yrir það i hauslleikjunum i fyrra.
Efniviðurinn cr l'yrir hendi — út-
færslan var ekki nógu góð.
Mörk ílauka i leiknum skoruðu
Hörður Sigmarsson 6 (tvö viti),
Guðmundur 4, Ólafur, Arnór Guð-
mundsson, Þórir úlfarsson og
Svavar eitt hver. Fyrir Armann
skoruðu Jón 5, Hörður Kristins-
son 3, Vilberg 2, Ragnar Jónsson,
Þorsteinn Ingólfsson og Björn eitt
hver.
Dómarar voru Gunnar
Gunnarsson og Sigurður Hannes-
son og komust vel Irá sinu hlut-
verki þó áhorlendur væru ekki
alltaf á sama máli. Meðal annars
voru þeir strangir á tafir.