Vísir - 18.12.1973, Síða 11
Yisir. Þriðjudagur 18. desember 1973.
11
Hetja þorskastríðs-
ins forseti F.F.S.Í.
Guðmundur Kjærnested,
skipherra á varðskipinu Ægi, var
kjörinn forseti Farmanna- og
fiskimannasambands tslands á
laugardag til tveggja ára.
Yfir 50 fulltrúar sátu þingið að
þessu sinni og var fjöldi sam-
þykkta gerður i kjaramálum,
vitamálum og öryggismálum sjó-
manna. Forseti þingsins var
Guðmundur Oddsson, skipstjóri.
Fyrrverandi forseti,
Guðmundur Pétursson vélstjóri,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs,
en hann hafði verið forseti sam-
bandsins undanfarin fjögur ár.
Voru honum þökkuð ágæt störf i
þinglok, en þinginu var slitið á
laugardag.
—EA
Gleymdi að kveikja
á þjófabjöllukerfinu
— 150 þús. fátœkari
Það er ekki alltaf nóg að
hafa fullkomið þjófabjöllu-
kerfi, ef það er ekki sett i
gang.
Kjartan Ásmundsson gull-
smiður varð fyrir slæmu
skakkafalti af þess völdum á
föstudagsnóttina. Þá fór raf-
magnið af allri borginni i
fimmtiu minútur, og á meðan
notuðu þjófar tækifærið og
brutust inn i skartgripa-
verzlun gullsmiðsins. Brutu
þeir sýningargluggann og
stálu þaðan armböndum,
trúlofunarhringum og háls-
festum fyrir um 150 þúsund
krónur.
Þrátt fyrir að rafmagnið
hefði farið, þá átti það ekki að
koma að sök fyrir þjófabjöllu-
kerfið sem gengur fyrir raf-
magni. En i þetta sinn hafði
láðst að setja það i gang, og
þvi fór sem fór.
—ÓH
Glœnýr /eppi
gjöreyðilagðist
— ökumaður og farþegi stungu af,
eit hringdu daginn eftir
Glænýr Bronco-jeppi gjör-
eyðilagöist aðfaranótt sunnu-
dagsins. er honum var ekið út af
sjö metra háum kanti i Artúns-
brekkunni.
Jeppinn fór út af vinstra
megin brekkunnar. þannig að
hann hefur ekið þvert yfir gang-
stæöu akreinarnar áður.
Jeppinn fór á hvolf út af
veginum. Þegar lögreglan kom
á staðinn, var ökumaður bif-
reiðarinnar hvergi nálægur, en
þetta var um klukkan fjögur um
nóttina. Klukkan ellefu næsta
morgun hringdi eigandi bif-
reiðarinnar til lögreglunnar.
Sagðist hann hafa verið farþegi
i bifreiðinni, en kona hans hefði
ekið. —ÖH
ftyrstur með
fréttimar
vtsm
HAGST^>ði^greiðsluskilmXlar
.j%udjámson hf.
V ShtOagötu 2Ó
í O ssJsbÉw!
0 □ Electrolux
Komdu
ogkysstu
mig
Nú er yöur óhætt. Þér getiö komiö meö hvers-
kyns litaprufur til þeirra málningarsala, sem verzla
meö Sadolin.
Sadolin, heimsþekkt málning fyrir gæöi og end-
ingu, blandar 1130 litbrigöi eftir yöar eigin óskum.
Sadolin er einasta málningin, sem býöur yöur
þessa þjónustu í lakkmálningu, olíumálningu og
vatnsmálningu.
Reyniö Sadolin og sannfærizt, - kossinn má bíöa
þangaö til þér eruö búnar aö sjá árangurinn.
Sadolin