Vísir - 07.01.1974, Síða 7
Visir. Mánudagur 7. janúar 1974
cTVIenningarmál
Þœr gerast
ekki betri
Atriði úr myndinni „Nútfminn” þar sem Chapiin á I höggi viö vélvæöinguna.
HAFNARBÍÓ:
„Nútiniinn”
I.eikstj. og aðalhlutverk:
Charlie Chapiin
Að fara að sjá „Nútímann” i
Hafnarhiói strax eftir að liafa
staðið upp frá sýningu myndar-
innar „What’s up, Doc?” i Aust-
urþæjarbiói gerir það að verk-
um. aö Chaþlin kemur manni
ekki fyrir sjónír sem alveg eins
mikili sþrelligosi og áður. Miklu
fremur finnst manni Chaplin
vera alvörugefinn i þessari
mynd.
t>að er rétt, ai) þessi gamla
kvikmynd kemur manni undar-,
iega fyrir sjónir á breiðtjaldi, en
breytir þvi ekki, að myndin er
hnitmiðuð ádeila og óvenju
geðþekk. Pær stórkostlegu
breytingar, sem orðið hafa á
kvikmyndatækninni siðan þessi
mynd var gerð, megna ekki að
varpa skugga á þetta mikla
listaverk. Ég leyfi mér að efast
um, að nokkurt kvikmyndahús-
ánna i borginni hafi i langan
tima sýnt jafn skarpa og heiðar-
lega kvikmynd sem þessi er.
ilér er sagt frá flækingi, sem
lendir i steininum fyrir mis-
skilning og uppgötvar, aö þar er
margfalt betra að vera en i öng-
þveitinu fyrir utan. Állt er lam-
að af verkfölluin og hvert fyrir-
ta'kið af öðru leggur upp laup- ''
ana og atvinnuleysið er gifur-
legt.
t>arna úti er stúlka, (Paulette
Goddard) setn hefur séð af báð-
.um foreldrum sinum og kemst i
umsjá barnaverndarnefndar
ásamt tveim yngri systrum sin-
um. Henni jekst að koinást und-
an og kemst þá f kynni við
Chaplin, sem er nýkominn úr
steininum, og ér að reyna allt,
sem hann getur, tií að komast
þangað aftur.- Þau tvö taka
höndum saman og finna sér lit-
inn og lúinn kofa, þar sem þau
hefja sinn búskap. Honum tekst
áð fá vinnu i verksmiðju og
henni á kaffihúsi, þar sem hún
skemmtir gestum með dansi.
Þar fær hann loks lika vinnu við
framreiðslustörf og söng, en það
er einmitt þá fyrst, sem hann
gefur frá .sér sitt fyrsta orð i
kvikmynd.
En þegar lifið virðist vera far-
ið að brosa við þeim birtast full-
trúar barnaverndarnefndar og
þá er eins gott að taka til fót-
anna.
Að sýningu lokinni reynir
maður að rifja upp fyrir sér
aðra ástasogu, sem kemst til
jafns við þessa, en án árang-
urs...,. —ÞJM
Streisand
breazt ekki
„WHAT’S UP, DOC?” heitir myndin i Austurbæjarbiói. Af-
bragðsgóð mynd fyrir þá, sem vilja skemmta sér duglega I eina og
hálfa kiukkustund. Hér eru þau I hiutverkum sinum i myndinni,
Streisand og Ryan O’Neal. Það er voniaust að ætla að reyna að
skýra efni myndarinnar i einum myndatexta — þess I stað leyfum
við okkur að mæia með þvi að lesandinn fari einfaidlega i Austur-
bæjarbió og kynni sér efni hennar sjálfur....
Það cr fyrst og fremst hinn
stórkostlcgi leikur og söngur
Barbru Streisand sem gerir
Hello Dolly að góðri skemmtun,
þótt leikur annarra leikara
myndarinnar sé ckki siður
góður, t.d. Walthcr Matthau.
Doily, leikin af Streisand, er
kát og lffsglöð ekkja i New
York, einhvern tima á árun-
um, þegar amma vár varla
fædd. Hún reynir að krækja sér i
geðillan hálfmilljónera fyrir
mann, en hann rekur hænsna-
fóðursverzlun i smábæ úti i
sveit. Við sögu koma einnig
tveir ungir starfsmenn hans, og
fleira gott i'ólk. Er söngur ungu
starfsmannanna ákaflega hugð-
næmur, og væminn á tiðum og
veita þeir þó nokkra skemmtun
með mjóróma röddum sinum.
Hálfmilljónerinn, leikinn af
Walther Matthau, er mjög svo
trúverðugur nöldurs- og fúl-
lyndisseggur, þangað til hann
tekur upp á þvi, að fara að
syngja.
Margt bráðskemmtilegt ger-
ist i myndinni, en atvikin i
hattabúðinni standa manni
ofarlega i huga sakir þess
hversu vel þau ýfa hláturtaug-
arnar'.
Þegar Dolly kemur aftur til
uppáhaldsmatstaðar sins, og
sungið er lagið liello Dolly,
vekja þjónar'matstaðarins sér-
staka aðdáun, sakir mikillar
fótafimi. Efast ég ékki um, aö
þjónar hér á landi fengju um-
svifaiaust launahækkun, ef þeir
kynnu að sveifla sér jafn stór-
kostlega og þessir. >án þess að
látá svo mikið sem eitt
kjúklingalæri falla útbyrðis af
bökkunum, sem þeir. halda á.
Hello Dolly sleppur að mestu
við væmni, nema i nokkrum
atriðum. T.d. þegar hattabúðar-
stúlkurnar eru að tala saman,
eintal Dollyar, rétt áður en hún
fer i skrúðgönguna, og svo
ástarjátningarnar i al-
menningsgarðinum. Finnst mér
sem hinn ferski og hressandi
blær myndarinnar missi sin að-
eins i þessum atriðum.
Litgæði þessa eintaks af
myndinni sem bióið sýnir, er lé-
legt, þótt það skáni aðeins i
seinni hluta myndarinnar.
-ÓH.
Peckinpah hefur gert betur...
TÓNABtÓ:
„Geta way”
Leikstj.: Sam Peckinpah
Aðalhlutv.: Steve McQueen og
Ali MacGraw.
Sam Peckinpah endurtekur
sig aldrei. Hann er vandvirkur
og myndir hans eru allar afar
litrikar og sérstæðar. Það verð-
ur þó ekki sagt um þessa mynd
hans, aö hún niarki einhver
timamót, en hún er fyllilega það
seni til var stofnað i upphafi:
nefnilega spennandi mynd og
blóðdrifin um bankarán og elt-
ingaleik.
Við fáum að fylgjast meö af-
brotamanninuni Doc, sem miö-
ur geðfelldur stjórnmálamaður
(Ben Johnson) fær leystan úr
haldi til að geta notað til aö
framkvænia bankarán.
Doc (Steve McQueen) nýtur
aðstoðar konu sinnar, Carol (Ali
MacGraw) við bankaránið, en
sömuleiðis þarf hann að hafa
með sér tvo skúrka, sem um-
ræddur stjórnmálamaður hefur
valið honum að aðstoðarmönn-
um. Annar þessara aðstoðar-
manna skýtur hinn og gerir sig
siðan liklegan til að kála Doc og
hirðá af honum peningana, sem
eru 500 þúsund dollarar. Doc er
fljótari að gripa til byssunnar og
skýtur þennan syndasel niður og
telur sig hafa gengið af honum
dáuðum. Svo er þó ekki og allur
i sárum eltir hann Doc og Carol
áleiöis til Mexico.
Lögreglan kemst loks lika á
slóð bankaræningjanna og
sömuleiðis bróðir stjórnmála-
mannsins og hans félagar. Hefst
nú hinn æsilegasti eltingaleikur,
sem endar með miklum byssu-
leik. Doc notar griðarmikla
haglabyssu, sem hann strádrep-
ur bófana með, og notar jafn-
framt til að gera nokkrar bif-
reiðar óökufærar.
Að visu alkunn saga, en Sam
Peckinpah kryddar þetta sögu-
korn ýmsum óvæntum atburð-
um og má þar m.a. nefna þau
óþægindi, sem þau Doc og Carol
verða fyrir þegar þau velja sér
stóra öskutunnu að felustað, en
hafna i öskubifreið,sem skilar
þeim af sér á öskuhaugunum
■
eftir mikið brölt. Atriöi, sem
maður fær ekki að sjá i hverri
bófamynd.
Ég verð að viðurkenna, að
mér finnst þessi mynd ekki
endilega vera þaö bezta, sem
Peckinpah hefur látið frá sér
fara, „Straw Dogs” verður t.d.
að teljast betri en „Getaway”.
Það, sem ég sé þessari mynd til
foráttu, er það, hversu ósam-
felld hún er. —ÞJM
Ali MacGraw og Steve McQueen I hlutverkum sinum I myndinni
„Getaway”. — Jú, þaö er rétt, þaö var einmitt við töku þessarar
kvikmyndar, sem þau urðu ástafangin....