Vísir - 16.02.1974, Side 6
6
Vísir. Laugardagur 16. febrúar 1974.
VISIR
(Jtgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Fréttas^j. erl. frétta:
Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiðsla:
Ritstjórn:
Askriftargjald
i lausasölu kr.
Blaðaprent hf.
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
llaukur Helgason
Björn Bjarnason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Ilverfisgötu 32. Simi 86611
Siðumúla 14. Simi 86611. 7 línur
kr. 360 á mánuði innanlands.
22 eintakið.
40.000 landráðamenn
eða landvarnamenn?
Þeir hafa verið kallaðir svartur blettur á
þjóðhátiðarárinu, djúpt sokknir i spillinguna,
leiguþý alþjóðaauðvaldsins og óþjóðhollir menn,
svo að örfá dæmi úr yfirlýsingum og ályktunum
séu nefnd.
Mennirnir, sem þannig er lýst eru ekki fá-
mennur hópur landráðamanna. Þeir eru 40.000
talsins, þátttakendurnir i undirskriftasöfnun
„Varins lands”. Þetta er miklu meiri fjöldi en
nokkru sinni áður hefur tekið þátt i undirskrifta
söfnun hér á landi, og er þá meðtalin undir-
skriftasöfnun hernámsandstæðinga fyrir rúmum
áratug.
Ýmis samtök undir áhrifavaldi Alþýðubanda-
lagsins hafa gert harða hrið að þessu fólki og
gefið út yfirlýsingar með ruddalegu orðbragði.
Þessi óvönduðu meðul hafa ekki haft áhrif. Menn
hafa ekki látið hræða sig frá þvi að standa við
skoðun sina og taka þátt i undirskriftasöfnuninni.
Það er traustvekjandi, að mikill hluti þjóðar-
innar skuli sjá i gegnum ódýr slagorð um, að við
séum ekki frjáls þjóð, meðan erlendur hér sé á is-
lenzkri grund, og fleira i þeim dúr, sem höfðar i
senn til afbakaðrar þjóðernishyggju og einfaldra
tilfinninga. Þessi slagorð hafa ekki haft umtals-
verð áhrif, þótt þau hafi verið rikur þáttur is-
lenzkra bókmennta á undanförnum áratugum.
Þessi 40.000 manns vita betur. Þau þekkja sitt
eigið sálarlif og hugarfar og kannast ekki við, að
það hafi spillzt af völdum varnarliðsins. Þau
telja varnarliðið ekki vera þátt i lifi sinu. Þau
vita, að þjóðin verður fyrir miklum erlendum
áhrifum af ferðalögum erlendis, innflutningi er-
lendra vörutegunda, kvikmynda og efnis fyrir is-
lenzka fjölmiðla, en ekki af dvöl varnarliðsins á
Kef lavikurflug velli.
Þetta fólk litur 4 sig sem landvarnamenn. Það
telur landvarnir vera eðlilegan og nauðsynlegan
þátt i að halda uppi sjálfstæðu riki hér á landi á
þeim viðsjárverðu timum, sem nú eru. Þetta fólk
þráir álheimsfrið eins og aðrir, en lifir ekki i
þeirri blekkingu óskhyggjunnar, að friðurinn sé
þegar kominn. Þetta fólk sér raunveruleikann að
baki hástemmdra yfirlýsinga á friðarfundum
herveldanna.
Skoðanakannanir undanfarinna ára hafa bent
til þess, að tveir af hverjum þremur íslendingum
væru landvarnamenn og aðeins einn af hverjum
þremur væri hernámsandstæðingur. Velgengni
undirskriftasöfnunar „Varins lands” er stað-
festing á liðsstyrk landvarnamanna og mun
vafalaust herða kröfur margra þeirra um þjóðar-
atkvæðagreiðslu um framtið varnarliðsins.
Velgengni „Varins lands” stuðlar einnig að
þvi, að landvarnamenn um allt land geti setið
rólegir undir rógi og ruddaskap hernámsand-
stæðinga. Orðljótar yfirlýsingar um meirihluta
þjóðarinnarhljóta aðmissa marks og þynna enn
raðir þeirra, sem hingað til hafa talið sig her-
námsandstæðinga. Straumarnir i þjóðlifinu eru
landvarnamönnum i hag um þessar mundir.
-JK ((
Keppinautarnir: Harold YVilson, leiðtogi Verkamannafiokksins (t.v.) og Edward Heath, forsætisráö-
herra. Hvor myndin um sig er tekin af þessum höfuöpaurum flokkanna þegar þeir hófu kosninga-
slaginn, hvor i sinum höfuðstöðvum.
MED KOSNINGAR
í AÐSIGI
ólikt þvi, sem hér gildir
á íslandi, þá er ekki kveðið
á um neinn ákveðinn kjör-
dag til þingkosninga í
Bretlandi, aðeins tiltekið,
að kjörtímabilið sé fimm
ár.
Hvenær, sem honum
sýnist, getur forsætisráð-
herrann efnt til kosninga
og þarf ekki einu sinni að
hafa samráð við ráðamenn
flokks sins, hvað þá einu
sinni leita samþykkis
þeirra, Því aðeins missir
hann úr höndum sér mögu-
leikana á að ráða, hvenær
kosningar fara fram, að
vantraust hafi verið
samþykkt i þinginu og
stjórn hans felld. Það leiðir
þegar í stað af sér kosning-
ar.
Engin ríkisstjórn á
friðartímum síðan 1918
hefur setið fullt fimm ára
kjörtímabil að völdum.
Flestar hafa enzt þrjú til
fjögur og hálft ár, en
fóru frá, þegar viðkom-
andi f orsætisráðherra
fannst tíminn líklegastur
til þess að færa sér og
flokki sínum sigur í
kosningum. — Á vissan
hátt forskot fram yfir
stjórnarandstöðuna.
Þingkosningarnar, sem
Edward Heath hefur boöað til 28.
febrúar, eru sérstæðar með
tvennum hætti. Þær verða þær
fyrstu, sem efnt hefur verið til,
þegar neyðarástand stendur yfir,
eins og núna vegna námamanna-
verkfallsins. Um leið hefur aldrei
verið eins naumur timi gefinn til
kosningaundirbúnings, aðeins sá
lágmarkstimi sem tilskilinn er
milli þess, að stjórnin segi af sér
og kosningar fari fram — nefni-
lega þrjár vikur.
Forsætisráðherrar siðustu
stjórna hafa til hægðarauka gefið
aðminnsta kosti viku fyrirvara á
þvi, að stjórn þeirra ætlaði að
segja af sér, og þingið yrði rofið.
Þetta árið rauf Heath þingið
sama daginn sem hann fyrir
siða og forms sakir hlaut
samþykki drottningar fyrir af-
sögn sinni og stjórnar sinnar.
Þrátt fyrir nauman tima, voru
allir flokkar undir það búnir að
þreyja sitt kosningastrið, enda
hafði legið svo sem i loftinu allt
frá þvi i byrjun desember, að
skyndilega kynni að verða efnt til
kosninga.
Um leið og þingið hefur verið
rofið, er skyldum þess sem lög-
gjafa lokið. Forsætisráðherrann
og rikisráð hans gegna áfram
embættum, þar til þeir hafa
annaðhvort beðið ósigur i
kosningunum eða þá þær staðfest,
að þeir sitji áfram.
mmmm
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
Á kjörskrá eru að þessu sinni
um 40 milljónir, átján ára og
eldri, og kjósa þær 635 fulltrúa til
neðri málstofunnar. Fulltrúar
efri málstofunnar, lávarðadeild
arinnar, hljóta sæti sin að erfðum
eins og kunnugt er, eða sakir
tignar sinnar, en eru ekki kjörnir.
Frambjóðendur eru venjulegast
valdir af flokksdeildum viðkom-
andi kjördæma, og ráða lands-
samtök viðkomandi flokks litlu
um.
ökjörgengir eru fulltrúar
lávarðadeildarinnar, klerkar
Englandskirkju, dæmdir afbrota-
menn, þjónar krúnunnar, gjald-
þrotamenn og vottaðir
geðsjúklingar. Væru þeir kosnir
yrði kosning þeirra gerð ógild.
Frambjóðendum er ekki skylt
að búa i þeim kjördæmum, sem
þeir vonast til að ná kjöri i, eins
og er þó viða. Og i reyndinni búa
fæstir þeirra i sinum kjördæm-
um.
Að einu leyti munu
kosningarnar 28. febrúar draga
dám af Watergatehneyksli
Bandarikjamanna, sem sprottið
er upp af kosningahneyksli.
Vegna alls umtalsins i tilefni
framlaga til kosningasjóða
stjórnmálamanna i Bandarikjun-
um og vegna fjárausturs þar i
kosningabaráttu einstakra
manna.þá var borin upp tillaga i
brezka þinginu núna um eyðslu
frambjóðenda og hún samþykkt.
Má hver verja 3,5 milljónum
króna i kosningaslaginn, auk svo
15 króna á hverja 8 kjósendur i
dreifbýliskjördæmi en sex
kjósendur i þéttbýliskjördæmi.
Auk þess má hann svo verja
ágóðanum af bingó, spilakvöldum
og nokkrum slikum fjáröflunar-
samkomum.
Rétt eins og aðrir frambjóðend-
ur mun Heath forsætisráðherra
berjast fyrir þvi i sinu kjördæmi
að ná endurkosningu til þings.
Kjördæmihans er BexleyiKent,
en það hefur verið stækkað eftir
útþenslu þéttbýliskjarna og talið
liklegt, að Verkamannaflokknum
hafi aukizt fylgi i kjördæminu. Þó
er Heath ekki fremur en Harold
Wilson, leiðtogi Vekamanna-
flokksins, talinn i neinni fall-
hættu. Wilson býður sig fram i
Yuton i Lanchashire.
Wilson yrði arftaki Heaths, ef
Ihaldsflokkurinn tapaði hreinum
meirihluta sinum i neðri málstof-
unni og Verkamannaflokkurinn
bæri hærri hlut frá borði. Yrði
hins vegar eins konar jafntefli, þá
kæmi til kasta Frjálslyndra
undir forystu Jeremy Thorpe.
Þeir fara núna út i kosninga
baráttuna með ellefu þingsæti að-
eins, en ganga engu að siður til
kosninganna bjartsýnir mjög.
Um leið og þetta þing var rofið,
lauk þingmennsku 3ja litrikra
stjórnmálamanna, þeir hafa til-
kynnt, að þeir bjóði sig ekki fram.
Þeir eru Enoch Powell, Richard
Crossman og Duncan Sandy. —
Þeirra kunnastur er sennilega
Enoch Powell, sem náð hefur
sinni frægð utan Bretlandseyja
fyrir skoðanir sinar á ótak-
mörkuðum innflutningi hörunds-
dökkra manna til Bretlandseyja.
Spáði hann á sinum tima að af þvi
mun leiða i framtiðinni likt
vandamál fyrir Breta og
kynþáttavandamálið hjá Banda-
rikjamönnum — en heima fyrir
er hann kunnastur fyrir að vera
litt fylgispakur flokksforystu
sinni og óhlýðinn flokksaganum i
íhaldsflokknum.
Þar með er ekki sagt, að stjórn-
málasól Enochs Powells sé
hnigin til viðar. Þvert á móti gæti
nann náð virðulegasta þrepi sins
stjórnmálaferils. Hann þykir
flestum öðrum liklegri til þess að
verða eftirmaður Heaths sem
formaður thaldsflokksins, tapi
flokkurinn kosningunum. Það
þykir litlum vafa undirorpið, að
Heath yrði að vikja, ef flokkurinn
biði ósigur. Þá kæmi til kasta
Enochs.
Skoðanakannanir benda þó
ekki til þess, að thaldsflokkurinn
beri þar lægri hlut frá borði.