Vísir - 16.02.1974, Síða 16
16 Visir. Laugardagur 16. febrúar 1974.
n □AG I D KVÖLD | r í DAG | D KVÖLD | □ □AG |
Sjónvarp, laugardag, klukkan 20,50:
Dunandi Dixieland
Ugla/sat á kvisti, skemmti-
þáttur sjónvarpsins, seiin Jónas
R. Jónsson stjórnar, verður á
dagskrá i kvöld.
Að venju verður sitthvað
skemmtilegt að sjá hjá ,,ugl-
unni”.
Brugðið verður upp mynd frá
litlum dansstað, eins og hann
hefði getað litið út á árunum
fyrst eftir strið, þ.e. 1945-1950.
Og eins og menn vita, var það
fyrst og fremst Dixielandinn,
sem dunaði þá auk annarra
gerða af jassi.
Hljómsveit Björns R.
Einarssonar ætlar að blása
þann gamla Dixieland af krafti i
kvöld, og verður hún skipuð
hljóðfæraleikurum frá þessum
gullaldarárum jassins.
Auk jassins verða fluttir stutt-
ir skemmtiþættir eða skemmti-
atriði.
— GG
Dansað við dunandi Dixieland i
sjúnvarpssal.
I
Þetta er slðasta myndin, sem
náðist af Ailende hinum látna
forseta Slle. Hann stendur
þarna úti á svölum stjórnar-
byggingarinnar. Skömmu eftir
að ljósmyndarinn hafði smellt
af, hvarf hann inn I húsið. Sfðan
hóf herinn stórskotaárás á hús-
ið. ótal vélbyssur geltu og AIP
ende skaut á móti úr vélbyssu.
Sögusagnir voru fyrst á kreiki
uin aö forsetinn hefði framið
sjáifsmorö meö þeirri vélbyssu,
sem Castró á Kúbu haföi gefiö
honum. Nú mun þaö aimennt
hald manna, aö Ailende hafi
falliö fyrir skotum herforingj-
anna.
Sjónvarp,
sunnudag,
klukkan 17,00:
Um valda-
rónið
í Síle
Valdarániö I Sile, sænsk
heimildarkvikmynd, sem fjall-
ar um þá voðaviðburði sem
urðu, er herforingjar i Sile not-
uðu her landsins til að steypa
rikisstjórn marzistans Allendes
og drepa hann sjálfán.
Þessi sænska mynd var sýnd i
sjónvarpinu fyrr í vetur, en
veröur endursýnd á morgun.
Þýðandi og þulur er Þrándur
Thoroddsen. — GG
Útvarp, sunnudag, klukkan 20,15:
RIFIZT UM
HERINN
Varnarmálin verða mjög til
umræðu i útvarpinu á morgun,
sunnudag.
Undanfarna daga hafa ýmsir
menn úr báðum fylkingum, her-
námsandstæðingum og þeirra,
sem herlið vilja, komið I útvarp-
ið og haldið erindi byggð á eigin
röksemdum með her eða móti
her.
Nú ætlar Hjörtur Pálsson
dagskrárstjóri að efna til alls-
herjar umræðufundar með þeim
sömu mönnum sem erindi héldu
i siðustu viku.
Kannski er þetta hættulegur
leikur hjá Hirti. En hann hlýtur
að hafa gert viðeigandi ráð-
stafanir, þannig að hann þurfi
ekki að óttast um lff sitt, sitjandi
1 miðjum hópi skapmikilla al-
vörumanna, sem ætla að rifast
um varnarmál landsins.
Það er ekki vist, að allt leysist
upp i slagsmál, en það er senni-
legt, að það hitni i kolunum.
Þátttakendur i umræðunum
sem Hjörtur stýrir verða
Kristján Friðriksson, Ólafur
Gislason, Ólafur Ragnar
Grimsson, Styrmir Gunnarsson,
Þorsteinn Eggertsson og Þor-
steinn Vilhjálmsson. — GG
Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri
— hættir sér I ljónabúrið.
ÚTVARP •
Laugardagur
7.00 Morgunútvarp. VeðurT
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Vilborg Dagbjarts-
dóttir heldur áfram að lesa
söguna „Börn eru bezta
fólk” eftir Stefán Jónsson
(11). Morgunleikfimi kl.
9.20. Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög milli atr. Morgun-
kaffið kl. 10.25: Hjörtur
Pálsson dagskrárstjóri og
gestir hans ræða um út-
varpsdagskrána. Auk þess
sagt frá veðri og vegum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga.
14.30 tþróttir, Umsjónarmað-
ur: Jón Asgeirsson.
15.00 tslenzkt mál.Jón Aðal-
steinn Jónsson cand. mag.
flytur þáttinn.
15.20 Útvarpsleikrit barna og
unglinga: „Litli refur” eftir
Lineyju Jóhannesdóttur.Áð-
ur útv. i marz 1961. Leik-
stjóri: Baldvin Halldórsson.
Persónur og leikendur:
Rödd/Þorsteinn 0. Stephen-
sen, Litli refur/Bessi
Bjarnason, Lágfóta/Jó-
hanna Norðfjörð, Jón
Flóki/Jón Sigurbjörnsson,
Drengurinn/ Erlingur
Gislason, Litla lág-
fóta/Kristbjörg Kjeld, Stóri
refur/Jón Aðils, Fjósa-
Grimur/Ævar R. Kvaran.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. TIu á
toppnum, örn Petersen sér
um dægurlagaþátt.
17.20 Framburðarkennsla i
þýzku
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. FréttaspegiII,
19.20 Framhaldsleikritiö:
„Sherlock Holmes” eftir
Sir Arthur Conan Doyle og
Michael Hardwick (áður
útv. 1963). Áttundi þáttur:
Heimavistarskólinn. Þýð-
andi og leikstjóri: Flosi
Ólafs.son. Persónur og leik-
endur: Holmes/Baldvin
Halldórsson, Wat-
son/ Rúrik Haraldsson,
Dr. Huxtable/Gestur
Pálsson, Roberts/Jón M.
Arnason, Reuben Hays/Jón
Sigurbjörnsson, Holder-
nesse/Brynjólfur Jóhannes-
son, James Wilder/Gisli
Alfreðsson.
20.05 Atriði úr söngleikjum
eftir Emmerich Kalman.
Sari Barabas, Herta Staal,
Rudolf Schock og Rubert
Clawitsch syngja með kór
og hljómsveit; Wilhelm
Schuchter stj.
20.30 Frá Bretlandi. Ágúst
Guðmundsson talar.
20.50 „Þúsund þakkir, Lee”,
smásaga eftir John D.
Salinger. Þýðandi: Unnur
Eiriksdóttir. Jón Sigur-
björnsson leikari les.
21.15 Hijómplöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP •
Laugardagur
17.00 tþróttir. Meðal efnis eru
myndir frá innlendum
Iþróttaviðburðum og mynd
úr ensku knattspyrnunni.
Umsjónarmaður ómar
Ragnarsson.
19.25 Þingvikan.
19.45 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Söngelska fjölskyldan.
Bandariskur söngva- og
gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Heba Júliusdóttir.
20.50 Ugla sat á kvisti. 1 þess-
um þætti verður enp. rifjuð
upp dans-og dægurlagatón-
list frá liðnum árum.
Brugðið verður upp mynd
frá litlum dansstað, eins og
hann hefði getað litið út á
árunum 1945-50. Hljómsveit
Björns R. Einarssonar,
skipuð hljóðfæraleikurum
frá þeim tima, leikur jass-
og Dixielandtónlist, og
einnig verða flutt ýmis
skemmtiatriði. Umsjónar-
maður Jónas R. Jónsson.
21.30 Alþýðulýðveldið Kina.
Breskur fræðslumynda-
flokkur um Kinaveldi
nútimans. 6. þáttur. Þýð-
andi og þulur Gylfi Pálsson.
21.55 Heilsa fylgir hófi. Stutt
teiknimynd um heilsusam-
lega lifnaðarhætti.
22.05 í skóla lifsins (Le
chemin des écoliers).
Frönsk biómynd frá árinu
1959, byggð á sögu eftir
Marcel Ayme. Leikstjóri
Michel Boisrond. Aðalhlut-
verk Francoise Arnoul,
Alain Delon og Jean-Claude
Brialy. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. Myndin gerist i
Parisarborg i heims-
styrjöldinni siðari. Ungur
skólapiltur kemst i kynni
við svartamarkaðsbrask-
ara, og I hópi þeirra er ung
og tælandi stúlka, sem hon-
um fellur afar vel i geð.
23.35 Dagskrárlok.