Vísir - 11.03.1974, Qupperneq 1
64. árg. — Mánudagur XI. marz 1974 — 59. tbl.
Gengislœkkun og
vaxtahœkkun?
Vegar-
spotti
sem
ríkið
grœðir
drjúgt á
Trúlega gefur enginn
vegarspotti á landinu af sér
jafn rikulegar tekjur og sá
vegur, sem Hafnfirðingar
aka, þegar leiðin liggur til
eða frá höfuðborginni. Af
almannafé hefur undanfarin
ár verið veitt 0 krónum. En
vegfarendur hafa hinsvegar
dælt drjúgum i rikiskassann.
— Sjá bls 2
Vill flytja
íslendinga
sunnar
— lesendabréf
bls. 2
Maraþondansarar:
Dönsuðu
í rúma
þrjó
tíma ún
hvíldar
- bls. 3
Þrír sprútt-
salar jótuðu
Þrir af fjórum leigubil-
stjórum i Grindavik voru látnir
lausir um helgina eftir að hafa
játað á sig óleyfilega sölu vins.
Þeir voru allir teknir á
föstudagskvöldið, hver á fætur
öðrum, þar sem þcir voru að
selja vin cða höfðu vinbirgðir i
bilum sinum.
Niu manna lögreglulið sá um
aðgerðirnar, og gat enginn
lcigubilstjóranna varað hina
við. Fjórði lcigubilstjórinn i
Grindavik hcfur aldrei svo
kunnugt sé staðið fyrir vinsölu.
Leigubflstöðin i Grindavik var
stofnuð i haust, og hafa
bilstjórarnir þrir verið grunaðir
um vinsölu frá upphafi. Þeir
hafa sclt mikið, enda eftirspurn
mikil frá vcrbúðarfólki og
sjómönnum.
—ÓH
i . j
Þessi sumarbústaöur er rétt vestan viö Hafravatnsrétt, og þar fann lögreglan lik mannsins á laugardaginn. Hvita örin, hægra megin á
myndinni, bendir á staðinn, þar sem jakki mannsins fannst, úlpa hans og fjármunir. Mynd:-BG.
FANNST LATINN
VH> HAFRAVATN
— ósennilegt að maðurinn hafí komizt á staðinn af sjálfsdáðum
Maður fannst látinn
við Hafravatn á laugar-
daginn.
Piltar, sem leið áttu
um veginn meðfram
Hafravatni, tóku eftir
úlpu og jakka, sem lágu
á veginum. Þeir fóru
með fötin til lögreglunn-
ar i Árbæjarhverfi, og
kom þá i ljós, að i fötun-
um voru tvær banka-
bækur og tennur
mannsins.
Lögreglan fór á staðinn að svip-
ast um eftir manninum, og var i
fyrstu óttazt að hann hefði fallið i
vatnið, sem reyndar er lagt isi.
Fljótlega fannst lik mannsins.
Hann lá rétt við sumarbústaö
einn. skammt ofan við veginn
vestan við réttina.
Engir sérstakir áverkar voru á
h'kinu aðrir en þeir. sem hugsan-
lega hafa komiö við það að falla
til jarðar. Lögreglan taldi. aö
sennilega hefði maöurinn oröiö
úti, þar eð hann var fáklæddur —
jakkinn og úlpan lágu á veginum.
Af kvittunum. sem á manninum
fundust. var Ijóst, að hann haföi
ekki legið lengi við bústaðinn.
Maður sá.sem hér ræðir um. var
45 ára að aldri. bæklaöur. þannig
að ljóst þykir, aö hann hafi ekki
komizt af sjálfsdáöum upp að
bústaðnum viö Hafravatn.
t jakka hans voru tvær banka-
bækur. önnur var innstæðulaus.
en i hinni voru 745 þúsund krónur.
Auk þessa var maðurinn með
nokkur hundruð krónur i lausu fé.
Lögreglan vinnur nú aö könnun
þessa máls. — GG
Sex
slösuðust
Fjórar konur og tveir ungir
menn slösuöust i hörkuárekstri,
sem varð milli tveggja bíla i
gærkvöldi.
öll voru flutt á Slysavarð-
stofuna, flest talsvert slösuð, og
eitt þurfti að setja á gjörgæzlu-
deilcf
Areksturinn varð á mótum
Laugavegar og Höfðatúns.
Piltarnir voru i .litlum Fiatbil,
sem kom upp Höfðatún. Billinn
mun hafa farið viðstöðulaust inn
á Laugaveginn, og beygt upp
vinstri akbraut. Volvobill kom á
móti á fullri ferð vestur
Laugaveg, og lentu bilarnir
saman með framendana.
Litli billinn lagðist alveg
saman að framan upp að
farþegahúsinu. ökumaðurinn i
honum festist i sætinu.
Lögreglumenn, sem komu á
staðinn, notuðu krafta sina á
litla bilinn og gátu rifið hann
upp, þannig að ökumaðurinn
losnaði.
Konurnar, sem voru i
Volvonum, slösuðust allar, og
sú, sem sat i framsætinu við
hliðina á ökumanni,kastaðist i
framrúðuna með höfuðið.
ökumaður litla bilsins er
grunaður um að hafa ekið
ölvaður. Tóm ginflaska fannst i
bilnum. —ÓH
I.itli billinn gekk algjörlega saman að framan I árckstrinum. Hins vegar Volvoinn ekki mikið
ncma fremst. Bilstjórinn I minni bilnum festist, en tókst að losa hann. Ljósm. V'isis: BG.
28 togaraskipstjórar reiðir vegna friðunar
28 togaraskipstjórar
mótmæla með yfir-
lýsingu, aö svæðinu við
Vikurál hefur verið
lokað fyrir togurunum.
h’réttir voru fyrir helgi um
veiði Breta á þessum slóðum.
Togaraskipstjórar segja. að
þarna hafi að undanförnu ekki
verið neta- og linubátar og
friðunin sé fráleit. Þeir kref jast
þess, að svæðið verði opnað að
nýju fyrir togurunum.
Þeir gagnrýna þau vinnu-
brögð. sem hafi verið viðhöfð
við friðunina. Ekki hafi verið
við þá talað. áður en ákvörðun
var tekin. og auk þess hafi verið
óvandvirknislega tilkynnt um
staðarákvörðun hins’ friðaða
svæðis. — II ii