Vísir - 11.03.1974, Síða 9
Visir. Mánudagur 11. marz 1974.
Þvert ofan í allar spár
urðu Rúmenar meistarar!
Frá Magnúsi Gíslasyni
Austur Berlín:
/,Engin spurning-Þjóð-
verjar heimsmeistarar"
stóð á stóru spjaldi, sem
nokkrir heimamenn héldu
á lofti i leik þýzka alþýðu-
lýðveldisins gegn Júgó-
slövum fyrir tveim dögum.
Þannig var þess beinlinis
krafizt af heimamönnum,
að lið þeirra sigraði i HM-
keppninni 1974. Augsýni-
lega þrúgaðir af að geta
staðið við óskir sinnar
íþróttalegu sinnuðu þjóðar,
náðu hinir annars frábæru
ieikmenn DDR sér aldrei
fyllilega á strik í úrslita-
leiknum gegn sínum fornu
fjendum, Rúmenum, sem
þvert ofan i spár flestra
sigruðu Þjóðverja með 14
mörkum gegn 12 í æsi-
spennandi leik.
Werner Seele-iþróttahöllin i
Austur-Berlin var troðfull af
áhorfendum löngu áður en
teikurinn hófst, og komust færri
að en vildu. Og ekki höfðu dönsku
dómararnir Rodil og Ovdal fyrr
blásið i flautur sinar en hrópin
hófust i húsinu. Allt ætlaði um koll
að keyra á áhorfendapöllunum,
og flestir stóðu meö heima-
mönnum.
Sagter, að fall sé fararheill. En
að þessu sinni virtist sá máls-
háttur ekki eiga við. Þjóð-
verjarnir byrjuðu með knöttinn —
en fyrsta skot þeirra geigaði. Þá
tóku Rúmenar við og áður en
varði voru þeir búnir að skora 2
mörk, Catu það fyrra af linu, en
siðan Birtalan með glæsilegu
uppstökki.
Þjóðverjar sækja fast eftir
þessar hrakfarir, en Rúmenar
svara i sömu mynt- kannski um of
— tvö viti fá þeir á sig — og
KShlert skorar úr þeim báðum.
Við þetta færist enn fjör i leikinn,
en Rúmenar láta ekkert trufla sig
og brosandi halda þeir baráttunni
áfram.
Káhlert skorar fyrir Þjóðverja,
en Birtalan”-hinn nýi Gruia”,
svarar og þeir halda áfram að
skora sitt á hvað. Rúmenarnir
eru þó öllu drýgri. Þeir ná 2ja
rríarka forustu 7:5 en þá er Licu
visað af leikvelli i 5 min. Með
einum manni fleira ná Þjóð-
verjar að jafna og komast yfir
fyrir leikhlé með marki
,,goðsins”-Lakenmacher- sem
reyndar brást i leiknum-8:7.
En þrátt fyrir góða byrjun i
siðari hálfleik — mikla festu og
fallegt mark hins frábæra
Káhlerts er þetta einhver
lélegasti hálfleikur, sem þýzka
liðið hefur leikið.
Þegar staðan er 9:7 fyrir þá fór
allt i baklás hjá þeim.
Rúmenarnir náðu yfirtökunum og
réðu hraðanum. Þrátt fyrir að
enn einum þeirra var visað út af i
5 min. tekst Þjóðverjum ekki að
ráða við þá.
Þeir skora 6 næstu mörk — 12:9
— og það er ekki fyrr en á 22. min
. siðar hálfleiksins, að Þjóðverjar
skora sitt annað mark.
Þegar 2 min. eru til leiksloka,
er staðan 14:12 og sigur Rúmena
svo að segja i höfn. Þá komast
Þjóðverjar inn i sendingu og
Lakenmacher brunar upp. En
fyrir opnu marki missir hann
boltann úr höndum sér og þar
með eru sigurmöguleikar Þjóð
verja i þessari HM-keppni orðnir
að engu.
Þetta var örlagarikt, þvi ef
Þjóðverjar hefðu skorað þarna,
er ekki útilokað að þeir hefðu náð
að jafna, enda voru þeir þarna á
lokaminútunum komnir i mikinn
ham.
1 þessum leik voru varnir
beggja liðanna mjög sterkar.
Sigur Rúmena byggðist mest á
geysilegri skothörku.
Birtalan,sem var markhæsti
maður keppninnar með 43 mörk-2
mörkum meir en Japaninn Sato-
svo og frábærum markverði,
Penu, sem alltaf var brosandi,
hvort sem hann var að verja
hörku skot af linu eða sækja
boltann i netið. Hann varði m.a. 2
viti i þessum leik auk fjölda
annarra skota, sem margir hefðu
ekki átt möguleika á að verja.
Markvarzlan hjá Þjóðverjum i
þessum leik var ekki góð. Voigts,
sem hefur staðið sig vel i öðrum
leikjum, varði litið sem ekkert.og
Tékkar urðu að
,gúmmí-tékkum'
Frá Magnúsi Gislasyni,
Austur-Berlin.
Júgóslavar, sem margir töldu
liklegasta til aö sigra á IIM, en
beir féllu fyrir Austur-Þjóð-
verjum, léku um 3.-4. sætið gegn
Pólverjum. Siavarnir, með aila
sina þekktu leikmenn, áttu i
erfiðleikum með Pólverjana,
sem langmest hafa komið á
óvart. Pólverjarnir leika mjög
hratt — hraðar en önnur lið i
keppninni.
Staðan i háifleik var 10-9 fyrir
Pólland, en i s.h. tókst
Slövunum að draga niður
hraðann, jafnhliða þvi.að kerfi
Pólverja, sem ekki niega
bregðast, fóru að riðlast.
Júgóslavar komust yfir og
sigruðu 18-16 — en markvörður
Pólverja Szimzka var stórkost-
legur. Slik markvarzla hefur
aldrei sézt fyrr.
Sovétrikin og Tékkóslóvakia
spiluðu um 5.-6. sætið. Það varð
50 marka leikur og Tékkarnir
urðu að „gúmmitékkum” i
höndum rússneska bjarnarins.
Þeir rússnesku voru miklu betri
i skemmtilegum leik, en sigruðu
þó ekki nema með 26-24 eftir 14-
11 i hálflcik.
Eina landið i Vestur-Evrópu,
sem komst i úrslit, var Dan-
mörk. Danir léku við Ungverja
um 7.-8. sætið. Sé sá leikur það
bezta, sem Vestur-Evrópa hefur
upp á að bjóða i handknattleik,
er sú iþrótt ekki upp á marga
fiska i þeim heimshluta. Það er
af, scm áður var, þegar Norður-
löndin voru i fremstu röð.
Danir byrjuðu sæmilega, en
fljótt fór vindurinn úr þeim.
Ungverjar komust i 12-6 og
sigruðu 22-15. Ekki vcrður þó af
Dönum skafið að þeir hafa yfir-
lcitt lcikið af skynsemi og fengið
út úr liðinu það, sem i þvi bjó og
stundum töluvert betur.
Grimmdina skorti dönsku leik-
mennina ekki eða sigurviijann
— nokkuð, sem islenzkir hand-
knattleiksmenn mættu gjarnan
taka upp og fara eftir.
sama er að segja um Veiss, sem
kom inná fyrir hann. Af útileik-
mönnunum bar mest á Káhlert,
sem skoraði 4 mörk og var mark-
hæstur Þjóðverja. Hjá Rúmenum
var Birtalan markhæstur með 7
mörk.
Dönsku dómararnir dæmdu
sérstaklega vel þennan erfiða leik
og létu áhorfendur ekkert á sig fá.
Ahorfendaskarinn stóð vel og
dyggilega með sinum mönnum,
en sýndi sannan iþróttaanda,
þegar Rúmenum voru afhent
verðlaunin að leik loknum með
þvi að fagna þeim vel og innilega.
• •
ROÐIN
Röðin i heimsmeistara-
keppninni i handknattleik
varð þannig:
1. Rúmenia
2. A-Þýzkaland
3. Júgóslavia
4. Pólland
5. Sovétrikin
6. Tékkóslóvakia
7. Ungverjaiand
8. Danmörk
9. V-Þýzkaland
10. Sviþjóð
11. Búlgaria
12. Spánn.
Sama röð á þremur efstu
og á IIM 1970.
Vörukynnins
á morgun
Kaupgarður
á leiðinni heim
Smiöjuvegi 9 Kopavogi
Nú bjóðum við
áfangastaði um allan heim
British airways
British airways
BEA OG BOAC SAMSTEYPAN"