Tíminn - 20.01.1966, Síða 5

Tíminn - 20.01.1966, Síða 5
FIMMTUDAGUR 19. janúar 1966. Útgefandl: FRAMSOKNARFLOKKURINN Framtvæmdastjórl: Krtstján Benediktsson Kitstjórar Þórarmn Þórarinsson (áb). Andrés Krlstjánsson lón Helgason os tndriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjómar Tómas Karlsson óug lýsingastj.: Steingrlmur GJslason Ritstj skrifstofur i Kddu húsinu, sjmar 18300—18305 Skrifstofur Bankastræti 7 Af greiðshrslmi 12323 Auglýsingaslmi 19523 Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr 95.00 á mán innanlands — í Iausasöltr kr. 5.00 eint — Prentsmiðjan EDDA b.l Hvað gerist í Hvalfirði? Alit bendir til þess, að stórframkvæmdir á vegum atlantshafsbandalagsins og bandaríska hersins séu í ^ann veginn að hefjast í Hvalfirði, þó e'kki heyrist orð mi það enn frá ríkisstjórninni. Er fullkomin ástæða til að krefja ríkisstjónnina nú þegar skýrra svara um það, hvaða framkvæmdir hún hafi leyft þar og hve mikið vinnuafl þær muni taka nú í sumar, ef ákveðnar hafa wrið. Eins og kunnugt er voru mál þessi rædd á Alþingi fyr ir alllöngu, og ríkisstjórnin krafin svara, sem þó reynd. ust óljós og ónóg. Af þeim var þó helzt að skilja að ríkis- stjórnin hefði fallizt á það — á bak við Alþingi eins og vant er — að leyfa legufæri og hafnargerð fyrir kafbáta, sem tiltaékt væri, ef á þyrfti að halda. Stjórnin gerði þó sem minnzt úr þessum framkvæmdum en varðist allra nákvæmra fregna af því, hve mikið ætti að gera. Framsóknarflokkurinn lýsti sig þá þegar algerlega and vígan þessum áformum og leyfum til þeirra á þeim grundvelli, að hann teldi ekki ástæðu til að leyfa meiri erlendan herbúnað hér miðað við horfur í alþjóðamál- um. Mótmælt flokkurinn algerlega fyrirhuguðum hern aðarframkvæmdum í Hvalfirði og leyfi til þeirra af íslenzkri hálfu. Síðan hefur málinu ekki verið hreyft af hálfu ríkis- stjómarinnar opinberlega og munu ýmsir hafa gert sér nokkrar vonir um, að stjórnin mundi hugsa sitt ráð bet- ur og jafnvel hætta við þetta. Allt bendir hins vegar til nú, að sú sé ekki raunin. Nú eigi að hefjast handa, jafn- vel í stórum stíl. Stjómin virðist ekki ætla að hika við að bæta þessu ofan á erlenda alúmínverksmiðju til þess að sópa vinnuaflinu frá íslenzkum atvinnuvegum, þótt ýmsum mikilvægustu greinum þeirri liggi við stöðvun af fólksskorti. Nú vantar þúsund menn á vertíðarbátana. Hvað segja útvegsmenn um þetta. Tíminn mótmælir enn fyrirhuguðum herframkvæmd um í Hvalfirði og krefst þess, að stjórnin geri þegar taf- arlaust fulla grein fyrir því hvað það er sem hún aetlast fyrir í þessu máli, og hvaða framkvæmdir hún hefur leyft þar eða ætlar að leyfa á næstunni. Þjóðin ætlast til, að dregið sé úr hersetunni hér, en hún ekki aukin. Þjóðin öll krefst skýrra svara um þetta. Einræðissvipunni lyft Forráðamenn Þingeyjarsýslna i sveitarstjórnarmálum og atvinnumálum hafa einróma gert merkilega samþykkt um hörð mótmæli gegn alúmínsamningnum og rökstutt áht sitt vel. Viðbrögð stjórnarblaðanna eru iærdómsrík. Bæði Morgunblaðið og Alþýðublaðið hafa rokið upp með ókvæðum og hrakyrða þá menn, sem leyfa sér að hafa aðra skoðun en ríkisstjórnin, og láta hana í ljós með rök- studdum fundaályktunum. Þau telja, að ekki sé tímabært að taka afstöðu til málsins, þar sem samnmgsuppkast liggi ekki fyrir. Ríkisstj. gaf skýrslu um málið fyrir jólin og sást þá gerla, hvert stefndi. AiþýðuflokKurinn tók af- stöðu með málinu þegar í vor, áður en nokkur skýrsla kom, og Sjálfstæðisflokkurinn einnig Þessir flokkar voru sem sé ákveðnir í því að vera með málinu fyrir fram, áður en vitað var um nokkur samningskjör. og nú beita þeir þeirri gömlu einræðissvívirðingn að hrakvrða þá og hóta þeim, sem dirfast að vera á móti málinu eftir málavöxtum. _ TÍMINN______________________ 5 r...... .............. ........... m umt C. L. SULZBERGER: Eflast Rússar í Asíu á kostnað Kínverja og Bandaríkjamanna? Gangur mála þar hefur bætt taflstöðu Rússa KOSIGIN EIN afleiðingin af ákafri ýtni Kínverja til áframhaldandi hernaðar í Vietnam og viðvar- andi ógnunum gagnvart Ind- verjum er endurvakinn áhugi Rússa og viðleitni til stjórn- málaafskipta í Suðaustur- og Suður-Asíu. Þessi endurvakti áhugi kom áþreifanlega fram á leiðtogafundi Pakistana, Ind- verja og Rússa í Tashkent, svo og í ferð sendinefndar Rússa til Hanoi, undir forustu Alex- anders Shelepins. Bandaríkin og Sovétríkin hafa hvort á sinn hátt og hvort í sínu augnamiði reynt að veita viðnám gegn viðleitni Kínverja til að auka áhrif sín. Fyrir ári var þessi viðleitni Kínverja tekin að teygja arma sína til Afríku og Suður-Ameríku, og beindist einkum gegn valdhöf- unum í Moskvu. Sú hefur samt orðið raunin, að þjóðernis- stefna Afríkumanna og komm- únisminn í Suður-Ameríku hafa heldur fjarlægzt hinar brenn- heitu byltingarkenningar Pek- ingmanna að undanförnu. Ætlunin var að halda í haust í Alsír ráðstefnu hlutlausra ríkja, og þar ætluðu Kínverjar að sanna, að þeir mættu sín meira en hinir, sem fylgdu stefnu valdhafanna í Moskvu. En þessi ráðstefna fórst fyrir. Castro hefur gengizt fyrir ráð- stefnu í Havana, og þar hefur komið í Ijós, að dregið hefur úr áhrifum Pekingmanna, jafn- vel meðal Kúbumanna sjálfra, sem höfðu þó gert sér sérstakt far um að sigla milli skers og báru í deilu Kínverja og Sovét- manna. FYRSTA áfallið, sem Kínverj ar urðu fyrir í ákafri viðleitni sinni í Asíu, fylgdi í kjölfar vopnaviðskiptanna milli Ind- verja og Pakistana. Valdamenn í Moskvu og Washington voru samtaka í stuðningi sínum við Indverja og Pakistanar létu sefjast, þrátt fyrir eggjanir og ýtni Pekingmanna. Leiðtogarn- ir í Sovétríkjunum fylgdu fast eftir í stjórnmálaviðleitni sinni og gripu tveim höndum tæki- færið, sem þarna bauðst. Með þegjandi samþykki Bandaríkja- manna boðuðu þeir til fundar til að reyna að ná samkomulagi í Kashmír-deilunni milli Shast- ris forsætisráðherra Indlands og Ayub Khan forseta Pakist- an. Áhrifaviðleitni Kinverja varð fyrir öðru áfalli í Indónesíu. Peking-sinnar í forustu komm- únista gerðu þar misheppnaða tilraun til stjórnarbyltingar, sem leiddi af sér gagnbyltingu Afleiðingin varð örugg forusta hersins og annarra afla, sem eru andstæð Kínverjum. Enn er að vísu jf snemmt að fullyrða, á hvora sveifina utan ríkisstefna Indónesíustjórnar hallast áður en lýkur. Enn hef ur ekkert komið fram. sem sýni svart á hvítu. hver áhrif atburðirnir hafa haft á sam band valdhafanna í Jakarta og forustunnar : Moskvu. en fram bessu hafs Sovétríkin eink um séð Indónesíumönnum fyr- ir vopnum. Hitt má fullyrða, að þessi framvinda hefur ekki skað að Bandaríkin. Og hvað sem öðru líður liggur í augum uppi, að Pekingmenn hafa beð- ið mikinn ósigur. SVO er að sjá sem máttur byltingaráfrýjunar Kínverja fari dvínandi meðal hinna van- þróuðu þjóða, meðan bardag- ar í Vietnam færast í aukana. Fram að þessu hefur öll stund leg blessun þessa alls fallið Sovétríkjunum í skaut, en ekki Bandaríkjunum. f baráttu forustuvelda marx- ista um völd og áhrif leggja Kínverjar höfuðáherzlu á hraða og öfluga einræðisbyltingu sem aðalaðferð til að bæta lífs- kjör fólksins, um leið og kapí- talismanum er veitt viðnám. Ákefð Kínverja óx um allan helming eftir að þeir sögðu skilið við Moskvumenn. Rússar áttu í nokkur ár i vök að verj- ast með alþjóðlega byltingar- afstöðu sína, en nú er svo að sjá sem þetta hafi snúizt við. Forráðamenn Sovétríkjanna stefna að því i stjórnmálasam- skiptum sínum að stuðla að þeirri skoðun í umheiminum, að þeir séu ákveðnir í að halda friði hvarvetna þar, sem kost- ur er, eins og til dæmis í Ind- landi, en hopi þó hvergi á hæii fyrir vesturveldunum, svo sem í Norður-Víetnam. Með stuðn- ingi sínum við valdhafana í Hanoi eru Sovétmenn fyrst og fremst að reyna að ná aðstöðu þar sem áhrifamesta erlenda veldið og sennilega vilja þeir halda ófriðnum í Suðaustur- Asíu innan ákveðinna marka. og ef til vill stuðla að samn- ingslausn að lokum. Þessu reið- ast Kínverjar ákaflega. í ASÍU dregur til keppni þriggja aðila um áhrif og hags- muni, eða milli Rússa, Kín- verja og Bandaríkjamanna. Hlutur Bandaríkjamanna í þessari þriggja velda keppni er ekki með öllu Ijós enn. Á því leikur þó enginn efi, að Banda- ríkjamenn eru hlynntir til- raun Rússa til að stilla deilur Indverja og Pakistana. Valda- menn í Washington hafa reynt í fimmtán ár að leysa Kashmír deiluna og eru því fegnir þeg- ar einhver annar fæst til að reyna. Einnig er ljóst, að Banda- ríkjamenn eru það illa klemmd ir eins og sakir standa, að þeir óska eindregið eftir að úr þeirri hættu dragi, sem af stríð inu í Víetnam stafar, sé þess á annað borð kostur án þess að hernaðarleg aðstaða versni. Stjórnin í Washington og sam- herjar hennar vona, að sendi- nefnd Shelepins finni ein- hverja útvegu, sem tryggt geti slfka takmörkun hættunnar, og reynist ef til vill fyrsta, var- færna skrefið í átt til endan- legrar lausnar. Hin sterka að- staða Sovétmanna hjá valdhöf- unum í Hanoi er vissulega ekki eins ill í augum Bandaríkja- manna og hinn kosturinn væri, að Pekingmenn hefðu þar tögl og hagldir. Ástæðan er ein- faldlega sú, að við Bandaríkja- menn trúum því, að Moskvu- menn séu andstæðir heims- styrjöld, þveröfugt við Peking- rnenn. Augljóst er þó, að hagsmun- ir Bandaríkjamanna yrðu fyr- Framhald á bls. 12

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.