Tíminn - 03.03.1966, Blaðsíða 7

Tíminn - 03.03.1966, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 3. marz 1966 ÞINGFRETTiR TÍMINN ÞINGFRETTIR i>að er búið að taka níu ár að koma málinu á þetta stig" Eggert G. Þorsternsson, félags- málaráðherra gaf í Sameinuðu þingi í gær all- ítarlega skýrslu um lífeyrissjóS fyrir alla lands- menn. Hann skýrði frá þáltill. frá árinu 1957 um lffeyrissjóð fyrir alla lands- rnenn, fyrst og fremst bændur, verkamenn, sjómenn og útvegs- menn og alla aðra, sem væru aðil- ar að lífeyrissjóðum. Fimm manna nefnd hefði verið skipuð, en í henni áttu sæti_ Guðmundur J. Guðmundsson, Ólafur Jóhannes- son, Sverrir Þorbjarnason, Hjálm- ar Vilhjálmsson og Gunnar Möll- er. Þessi nefnd hefði skilað áliti í nóvember 1960. Tillögur nefnd- arinnar voru: a) Sett verði löggjöf um al- mennan lífeyrissjóð sem allir landsmenn eiga kost að tryggja sig hjá. b) Slíkur almennur lífeyristrygg ingasjóður veiti tryggingu, sem aðeins verði viðbótartrygging við almannatryggingar. c) Unnið verði að breytingu á núverandi sérsjóðum, svo að þeir allir veiti framvegis aðeins við- bótartryggingu við almannatrygg- ingar. Með lögum 40/1963 verður að telja að þriðji liður tillögu nefnd- arinnar hafi verið framkvæmdur. Fyrsti og annar liður voru lengi í athugun og að lokinni síðustu endurskoðun almannatrygginga- laganna þótti tímabært að taka málið á ný til athugunar og með- ferðar. Haraldi Guðmundssyni fyrrv. ráðherra var falíð í júní 1964 af félagsmálaráðherra að semja álits- gerð um, hvort ekki væri tímabært að setja löggjöf um almennan tryggingasjóð, sem allir lands- - sagði Ólafur Jóhannesson í umræðum um lífeyrissjóðsmálið menn, sem ekki eru nú þegar að- ilar að lífeyrissjóðum, geti átt að- gang að. Haraldur Guðmundsson skilaði álitsgerðinni í ágúst—sept- ember 1965. í niðurstöðunni seg- ir m.a.: Það er fallkomlega tímabært að setja löggjöf um eftirlaunasjóð og eftirlaunatryggingar fyrir allt vinnandi fólk. til viðbótar við gild andi lífeyristryggingar. Eftirlaun- in séu miðuð við fyrri vinnutekj- ur og starfstíma, kaupmáttur þeirra tryggður og upphæð þeirra ákveðin með það fyrir augum, að ellibæturnar (þ.e. iffeyrir og eftir- laun samtals) nægi til þess að af- stýira tilfinnanlegri kjaraskerð- ingu að loknu ævistarfi. > Jafnframt lít ég svo á, að sam- tímis þessari lagasetningu þurfi að gera breytingar á gildandi líf- eyristryggingum, svo að þær verði hæfilegur grundvöllur og undir- staða eftirlaunatryggingarinnar og lágmarksbætur við hæfi. Eftir samanburð við Norðurlönd in, Danmörku, Svíþjóð og Noreg virðist mér, að fslendingar séu þess ekki síður megnugir fjárhags lega að auka eftirlaunatryggingu við gildandi lífeyristryggingar. Efnahagsþróun síðustu ári bendir í þá átt, að greining þjóðarinnar í aldursflokka virðist mjög hag- stæð í þessu. Miklir möguleikar virðast og vera til áframhaldandi framleiðsluaukningar. Þessir möguleikar mundu enn aiukast ef fyrir hendi væri öflugur sjóður. er veitt gæti undirstöðu- atvinnuvegunum aðstoð til að efla framleiðslustarfsemina með bætt- um vélakosti, aukinni tækni 02 margháttaðri vinnuhagrœðingu, svo að afköst hvers vinnandi manns fari enn vaxandi. Jafn- framt virðist mér ljóst, að óhjá- Á ÞINGPALLI Jón Skaftason dró fyrirspurn sína til baka um lífeyrissjóðinn fyrir alla landsmenn þar sem henni væri fyllilega svarað í skýrshi féiags- málaráðherra. Geir Gunnarsson talaði örfáuim orðum um dánar- og örorkutoætur til sjómanna en hann flutti fyrirspurn um það efni. Fannst honum lítið hafa verið framkvæmt, hann hefði áður verið búinn að flytja frum- varp og þingsályktunartill. um sama efni og skipuð hefði verið nefnd, sem hefði átt að skila áliti fyrir þingslit 1965 en þá hefði efckert legið fraimmi. Nauðsynlegt væri að semja frumvarp um slysatryggingu fyrir sjómenn. Eggert G. Þorsteinsson kvaðst hafa fengið skýrslu nefndar þessarar í hendur sínar fyrir tveim dögum og honum hefði ekki unnizt tími til að rannsaka hana nákvæmlega, en þó væru í skýrslunni talað um tvær hugsanlegar leiðir til úrbóta. Þetta væri mikilvægt mál og þyrfti að athugast vel. Fyrri umræðu um endurskoðun á aðild íslands að Norður-Atlants- hafssamningi og Atlantshafsbandalaginu var frestað, er Gils Guð- mundsson hafði haldið sína framsögu fyrir tillögunni. hann taldi, að málefnalegar umræður um utanríkismál þyrftu oftar að fara fram á Alþingi. Upplýsingar þyrftu að liggja fyrir um viðhorf annarra ríkja til NATO. Utanríkismálanefnd hefði lagzt niður nema að nafninu til. Emil Jónsson sagðist ekki gera sér ljóst hvað vaki fyrir flutnings- mönnum með tillögunni. Ef átt er við úrsögn úr NATO, þá hefði hvergi verið rætt meðal ríkisstjórnarinnar um úrsögn af íslands hálfu. Um gagnasöfnun frá NATO þarf ekki að ræða, fastafulltrúi fslands sendir með stuttu millibili skýrslur af öllum fundum og þær væru flest allar trúnaðarskýrslur. Einnig taldi hann nefndarskipunina, sem þingsályktunartill. felur í sér alveg óþarfa, fulltrúi íslands og utan ríldsmálanefnd væru alveg einfærar um að segja til um hvaða hug- myndir væru uppi meðal aðildarríkja NATO um skipulag þess og íramtíð. kvæmilegt sé að tryggja þeim, sem óvinnufærir verða, vegna örorku eða aldurs, betri lífsskiiyrði og sambærilegri við kjör almennings, en gert er með gildandi löggjöf. Sé það látið ógert, verður hlut- skipti þeirra verra hér á landi en hjá grannþjóðum okkar.“ Ólafur Jóhannesson þakkaði fé- lagsmálaráðherra fyrir skýrsluna. Býsna margir hefðu verið orðn ir langeygir eftir henni, það hefði tekið níu ár að koma mál- inu á þetta stig. Hann taldi skýrslu félagsmáia- ráðherra fróðlega að mörgu leyti og hún væri í samræmi við stað- reyndir málsins svo langt sem hún næði. En hann vildi bæta við nokkr um atriðum sem ekki hefðu kom- ið fram í skýrslunni. Hann kvað félagsmálaráðherra hafa gleymt að geta þess að það hefðu verið Framsóknarmenn sem hefðu flutt þá'ltili. 1957. Nefndin sem skipðu hefði ver- ið skömmu eftir samþykkt þáltill. hefði unnið mikið og merkt starf við rannsókn málsins. T. d. hefði hún leitað álits hjá Guðjóni Han- sen, tryggingarfræðingi. Nefndin hefði skilað áliti sínu haustið 1960. f nefndarálitinu hefði kom- ið fram nokkrar tillögur. 1) Sett verði löggjöf um almennan líf- eyristryggingasjóð sem allir lands nienn eigi kost að tryggja sig hjá 2) Slíkur almennur lífeyrissjóð- ur veiti tryggingu, sem aðeins verði viðbótartrygging við al- mannatryggingar. 3) Unnið verði að breytingu á núverandi sérsjóðum, svo að þeir allir veiti framvegis aðeins viðbótartryggingu við almanna- tryggingar. Hann fagnaði því, að með lög- um frá 1963 hefði þriðji liðurinn verið framkvæmdur. Síðan 1960 hefði ekki heyrzt hósti né stuna frá ríkisstjórninni um samningu frumvarps um almennan lífeyris- sjqð. 1964 hefðu Framsóknarmenn á ný flutt þáltill. um kosningu fimm manna nefndar til að semja frum- varp um almennan lífeyrissjóð. Þingið hefði samþykkt hana en breytt henni á þá lund að ríkis- stjórninni skyldi falið til hlítar að kanna hvort tiltækilegt vœri að semja löggjöf um almennan lífeyrissjóð. Ólafi fannst nefndarálitið, sem fram var lagt 1960, lítils metið hjá ríkisstjórninni, þó að í nefnd- inni hefðu átt sæti þrír menn, sem væru sérstaklega vel að sér í trygg ingarmálum þjóðarinnar. Þá strax hefði mátt hefjast handa umsamn ingu frv. Einnig fannst honum það trl- hneiging hjá Alþýðuflokknum að eigna sér þetta mál, sú tilhneig- ing hefði komið fram bæði í útvarpi og málgagni Alþýðu- flokksins. Hann sagði að Alþýðu- flokkurinn hefði unnið flokka mest að tryggingamálum og því þyrfti hann ekki á slíkri láns- fjöður að halda. Hann taldi það öruggt mál, að í skýrslu Haralds Guðmundssonar væri mikinn fróðleik að finna, en ekki hefði hún allan þann fróð- leik að geyma, sem tilvonandi nefnd þyrfti á að halda við samn- ingu frumvarpsins. Framhald á 14. síðu. Rikisframlag tíl hafnar- gerða og lendingarbóta Frumvarp til laga um ríkisfram lag til hafnargerða og lendingar- bóta. Flm.: Gísli Guðmundsson, Jón Skaftason, Halldór E. Sigurðs son, Sigurvin Einarsson, Halldór Ásgrimsson, Bjöm Pálsson og Ágúst Þorvaldsson. Hafnar- og lendingarbótastöð- um samkv. 2. gr. laga um hafn- j argerðir og lendingarbætur, nr. 29 23. apríl 1946, skal skipta í 3 flokka, er nefnast A-flokkur, B-flokkur og C-fiokkur. Skal skipt ingin við það miðuð, að hafnar- sjóðir hafi sem jafnasta fjárhags- lega aðstöðu til að koma upp und- irstöðumannvirkjum hafnargerðar. Til undirstöðumannvirkja teljast í þessu sambandi t.d. hafnargarðar (öldubrjótar), bátakvíar, ein af- greiðslubryggja með allt að 150 metra legukanti í hverri höfn og dýpkun á siglingaleið í hafnar- mynni og að bryggju hafnarsjóðs. Um skiptingu í flokka fer að öðru leyti eftir 2. gr. Vitamálastjóri gerir eftir gildis- töku laga þessara rökstudda til- lögu um skiptingu hafnar- og lendingarbótastaða í flokka samkv. 1. gr. Skal tillaga til þingsálykt- unar um skiptinguna lögð fyrir sameinað Alþingi á árinu 1966. Þegar ályktunin hefur hlotið sam- þykki Alþingis. skulu ákvæði um ríkisframlag samkv. 3. gr. taka giMi. f ályktuninni má ákveða, að þau ákvœði taki einnig til framkvæmda, sem unnar eru áð- ur en hún hlaut samþykki. Vitamálastjóri gerir einnig eft- ir gildist þessara laga áætlun til tveggja ára í senn um framkvæmd- ir samkv. iögum þessum og unl fjármagnsþörf vegna þeirra. Skal tillaga til þingsályktunar um slíka tveggja ára áætlun og öflun fjár- magns til hennar lögð fyrir Al- þingi samtímis tillögu þeirri, er um getur í 2. gr. Þegar fram- kvæmdaáætlunin hefur hlotið sam- þykki Alþingis, greiðir ríkissjóð- ur að fullu ár hvert ríkisfram- lag til áætlunarframkvæmdanna á því ári. Veita skal jafnframt á fjárlög- um fé til að standa skil á ógreidd- um framlögum fyrri ára þannig, að greiðslum þessum verði að fullu lokið á 3 árum eftir gildis- töku þessara laga. Ríkisstjórnin veitir hafnarsjóð- um aðstoð við útvegun lánsfjár til framkvæmda samkv. 2 ára áætlun. Ríkisframlag til hafnar- og lend ingarbótamannavirkja skal, unz sett hafa verið ný lög í stað þeirra laga, er nú gilda um hafn- argerðir og lendingarbætur, vera sem hér segir 1. Á stöðum í A-fl. 50% af kostn. 2. Á stöðum í B-fl. 60% af kostn. 3. Á stöðum í C-fl. 70% af kostn. Ríkisstjórninni er heimilt að ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs lán til greiðslu á hluta af hafn- ar- og lendingarbótakostnaði sem hér segir: 1. Á stöðum i A-fl. 50% af kostn. 2. Á stöðum í B-fl. 40% af kostn. 3. Á stöðum í C-fl. 30% af kostn. Hér fer á eftir útdráttur úr greinargerðinni: í lögum nr. 29 23. apríl 1946. um hafnargerðir og lendingarbæt- ur, eru taldir upp 113 hafnarstað- ir, þar sem gert er ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram fé til hafn- arframkvæmda. Fram til ársloka 1960 hafði ríkissjóður lagt fram fé til framkvæmda nál. 90 af þess- um 113 stöðum (sums staðar þó mjög lágar upphæðir), og hefur víst engin teljandi breyting orð- ið á þeirri tölu síðan. Þessum 113 stöðum, sem taldir eru upp í, lögunmu, er skipt í tvo flokka. Á 35 stöðum eru kallaðar hafnir, en á 78 stöðum lendingarbætur. Ríkisframlagið er í lögunum ákveð ið 40% af framkvæmdakostnaði, nema um sé að ræða „lendingar- bót,“ sem hefur ekki kostað meira en 1.6 millj. kr., þá er ríkisfram- lagið 50%. En þegar kostnaður við lendingarbót er kominn yfir 1.6 millj. kr., lækkar ríkisfram- lagið niður í 40% af þeim kostn- aði, sem er fram yfir 1.6 millj. kr. Ríkisstjórninni er heimilað að ábyrgjast lán allt að þeirri upp- hæð, sem hafnar- og lendingar- bótasjóði ber að greiða, þ.e. 50 eða 60% af stofnkostnaðinum. Þegar hér á eftir verður rætt um hafnarsjóði í þessari greinargerð, er einnig átt við lendingarbóta- sjóðina, enda er þar raunverulega yfirleitt lítill munur á. Og þegar rætt verður um hafnir hér á eft- ir, er einnig átt við lendingarbæt- ur. Lengst af hafa flestir hafnar- sjóðir orðið að taka lán til að greiða sinn hluta framkvæmda- kostnaðar að mestu eða öllu leyti, enda er hér nú yfirleitt um svo háar upphæðir að ræða, að engin von er tii, aað hægt sé að greiða nema þá mjög lítinn hluta þeirra af tekjum sveitarfélaga, þeg ar framkvæmdir eiga sér stað. Slík lán eru tekin með ríkisábyrgð. Framhald á 14. síðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.