Tíminn - 03.03.1966, Page 11
TflVIINN
\
FTMMTUDAGUR 3. marz 1966
lj|
VERÐIR LAGANNA
TOM TULLETT
5
og í Bandaríkjunum. Alþjóðalögreglan gerði lögregluliðum
beggja landa viðvart með skeytum. Prófessorinn var hand-
tekinn fyrir þátttöku í að koma löglega framleiddu heróíni
á ólöglegan markað.
AUmargir lögreglumenn frá Fjármálaráðuneyti og Eitur
lyfjaskrifstofu Bandaríkjastjómar voru sendir austur um
haf að starfa með ítölsku lögreglunni, og ekki leið á löngu
að þeir höfðu upp á mikilli fúlgu falsaðra tíu og tuttugu
dollara seðla í Mflanó. Sjö menn voru handteknir, þar á
meðal Pedelli nokkur, sem hlotið hafði dóm og verið vísað
úr landi í Bandaríkjunum. Hann var fyrsti hlekkurinn í
keðju, sem sá náunga að nafni Manucci fyrir fölsuðum doll-
araseðlum, en sá var aftur erindreki manns að nafni Gian-
carli, sem bjó í Bandaríkjunum. Tvö ár liðu áður en unnt
var að handtaka Manucci, því hann hafði búizt vandlega um,
undirbúið margar undankomuleiðir og tryggt sér vitneskju
úr ýmsum áttum.
í ágúst 1952 fundust enn 4000 tíu dollara seðlar í Trieste og
sjö úr hringnum í viðbót náðust. Manucci var handtekinn
þegar hann var að afhenda peningana. Sýnishorn af seðlun-
um fór til falsanadeildar Alþjóðalögreglunnar í Haag, og
sérfræðingunum þar tókst að ganga úr skugga um, að föls-
uðu peningamir höfðu verið prentaðir í París. Þótt starfsemi
hringsins hefði raskazt við þessar tvær hóphandtökur, var
hann ekki enn úr sögunni og rannsókn var haldið áfram.
í ágúst sendi yfirlögreglustjómin ítalska í Róm skeyti til
Alþj óðalögreglunnar:
„Fjögur kíló af heróíni tekin í Salerno. Perreto handtek-
inn.“
Þetta var merkileg vitneskja um þennan margslungna
hring, sem verzlaði ekki aðeins með falsaða peninga, heldur
líka eiturlyf, því vitað var að Perreto var félagi Giancarli og
hafði verið vísað úr landi í Bandaríkjunum eins og Pedelli.
ítalska lögreglan gekk úr skugga um að heróínið, sem tekið
var í Salemo átti einmitt að fara til Giancarli, sem annaðist
dreifinguna 1 Bandaríkjunum og hafði aðsetur í New York.
Nú þurfti Alþjóðalögreglan að ganga frá öllum öngum máls-
ins. Bandaríska fjármálaráðuneytinu tókst að sanna að Gian-
carli hafði komið hringnum á laggimar með þvi að láta
prenta falsaða dollaraseðla í Buffalo í New York-fyiki. Þá
lét hann erindrekum sínum á Ítalíu í té, og þeir notuðu féð
til að kaupa mikið magn af heróíni, sem svo var smyglað
til baka til New York. Árið 1950 komst upp um fölsunar-
verkstæðið í Buffalo, og Giancarli varð að flytja þann þátt
starfseminnar til Parísar.
Aðeins mánuði eftir að þessi fjögur kiló af heróáni fundust,
gat Alþjóðalögreglan lagt málsskjölin endanlega til hliðar.
Frá lögreglunni í Chicago barst skeyti: „Giancarli drepinn
í bardaga bófaflofcka.“
En skjölin sem hina varða eru vel geymd í París eins
lengi og þeir lifa.
Annar kafli.
Mörg ár eru liðin siðan Alþjóðalögreglan var stofnuð til
að fást við alþjóðlega glæpamenn, sem em síður en svo ný
tegund illvirkja. Þá eins og nú leitaðist glæpamaðurinn við
að komast sem lengst í burt frá fórnarlambi sínu — og
þeim sem leituðu hans sökum afbrotsins. Nýjungin er, hversu
auðvelt menn eiga með að komast landa á milli á ískyggi-
lega skömmum tíma. Þar að aufci hafa nýlegir atburðir
haft í för með sér umfangsmikla tilflutninga og blöndun
fólks, sem stuðlar að alþjóðlegri glæpamennsku, því smá-
bófi úr frumstæðu landi lærir að færa úr kvíamar, þegar
hann kynnist kænni og betur menntuðum glæpamönnum.
Hvað er í rauninni „alþjóðlegur glæpamaður?“
Skflgreinig á þessari tegund afbrotamanns byggist ekki
á neinu lögfræðilegu hugtaki — þvi engin lög fjalla um
alþjóðlega glæpi — heldur á því einu, sem henta þykir. Til
dæmis telst maður, sem drepur konu til fjár í París og flýr
síðan til Belgíu, alþjóðlegur glæpamaður. Sama máli gegnir
um þjóf eða fjársvikara, sem stundar iðju sína í tveim lönd-
um eða fleiri. En svo er það líka ítalski peningafalsarinn,
sem aldrei hefur komið út fyrir Róm, þar sem hann falsar
dollaraseðla í fylgsni sínu. Hann er einnig talinn „alþjóðleg-
ur,“ því falsanir hans geta verið í umferð um allan heim.
Af þessum sökum getur eðli afbrotsins eitt orðið til þess
að maður komist á skrá hjá Alþjóðalögreglunni.
Sú stofnun varð nauðsynleg vegna þess, að samræma
hverju - held ég hefði getað drep
ið hana. En nú er allt um garð
gengið. Guði sé lof og þökk fyrir
það!
Vonnie heyrði fótatak í gang-
inum. Hún stirðnaði upp og lagði
við hlustir.
Nigel gægðist inn.
— Viltu koma inn í stofuna,
Vonnie.
— Vonnie! Rhoda hrukkaði
ennið.
— Það er einmitt það, sem ég
þarf að útskýra, Rhoda. En seinna.
Og þakka þér fyrir að binda um
sárið.
Vonnie hraðaði sér út Þegar
þau voru komin fram, nam hún
staðar og sneri sér að honum.
— Er Joss frændi mjög reiður
út í mig?
— Hann er seigari en þú held-
ur, Vonnie. Þú mátt ekki titra
svona. Nú er allt í lagi. Vertu
bara eðlileg — reyndu ekki að
gera þér neitt upp. Það máttu
aldrei gera.
Hún gekk seinlega inn í stof-
una. Joss gamli stóð þar. Hann
rétti fram höndina og dró hana
inn fyrir.
— Rihoda er dugleg að binda
um sár, sagði hann og virti um-
búðirnar fyrir sér.
Vonnie fann hve hjartað barð-
ist ótt í brjósti hennar. Hægt
lyfti hún höfði.
— Ég skammast min svo, hr.
OTVARPIÐ
Fimmtudagur 3. marz
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádegis
útvarp 13.00 A frívaktinní Eydís
Eyþórsdóttir stjórnar óskalaga-
ba*tti fvrir ?iómenn 14.40 Við.
sem heima
í dag
sitjum
[ 15.00 Mið-
degisútvarp 16.00 Síðdegisútvarp
17.40 Þingfréttir. 18,00 Segðu mér
sögu Bergþóra Gústafsdórtir og
Sigríður Gunnlaugsdóttir st.ióma
þætti fyrir yngstu hlustendurna
18,20 Veðurfregnir 18,30 Tónleik
ar 19.30 Fréttir 20.00 Dagiegt mál
UNDIR FÖLSKU FLAGGI
ANNE MAYBURY
48
frænda. Ég fæ ekki frið fyrr en
hann veit — og ég get sagt hon-
um hvað ég hef gert.
— Ef þú ferð inn svona, set-
urðu blóð út um allt. sagði Nigel.
— Vonnie, farðu og láttu binda
um höndina á þér!
Hún sýndi engin merki þess að
hafa heyrt hvað hann sagði.
— En er þorandi að segja Joss
frænda frá því núna? Verður það
honum ekki um megn eftir allt
sem á undan er gengið? Eg hef
ákveðið að hann verði að fá að
vita allt, en —
— Taktu þessu ekki svona þung
lega, Vonnie, sagði hann hlýlega.
— Hann fékk versta áfallið fyr-
ir allmörgum dögum, þegar hon-
um varð ljóst, að skammturinn
var honum ætlaður!
Nú þegar annað var hjá liðið
mundi hún allt í einu eftir sínu
eigin vandamáli.
— Hvers vegna komst þú hing-
að í kvöld?
Hann tók andlit hennar milli
handa sér.
— Þegar þú sagðir mér. hvað
þú hafðir gert, varð ég svo skelfd-
ur að mér var ómögulegt að
hugsa skynsamlega. Ég gerði sjálf-
an mig að Guði, eins og þú sagðir.
En í dag sá ég þetta í öðru Ijósi.
Mér skildist að þrátt fyrir að
þetta var í meira lagi dirfskufullt
athæfi gerðir þú allt í góðri mein
ingu. Það var rangt og heimsku-
legt og elskulegt af þér. Ó, Vonnie,
litli svikahrappurinn minn, ef þú
bara vissir hvað ég elska þig heitt.
Gleðin og hamingjan sem gagn-
tók hana varð henni næstum of-
viða.
Hún lokaði augunum og fann
tárin brenna undir augnalokun-
um.
Nige! snart vanga hennar.
— Það er bara vitleysa að góð-
ur tilgangur helgi meðölin. Og
það er varhugavert.
— Ég veit það núna, hvíslaði
hún.
— Vonnie, viltu að ég tali yið
hr. Ashlyn? Ég skal segja honum
allt af létta og ég skal gera það
miklu betur en þú mundir gera!
— En það er ég sem ber ábyrgð
ina!
— Við! leiðrétti hann. Allt, sem
þú gerir héðan í frá er einnig
á mína ábyrgð. Nú skaltu koma
þér af stað, litla þrjózkukindin
mín. Hann ýtti blíðlega við henni.
— Farðu og biddu Rhodu að
setja umbúðir á höndina og gefðu
mér stundarfjórðung til að tala
við hann.
Hún hlýddi og gekk þegjandi
að eldhúsinu og henni fannst að
ekkert af þessu væri raunverulegt,
— allt sem gerzt hafði virtist sem
kynlegur draumur — eða martröð.
En Nigel hafði sagt: Ég elska þig
af öllu hjarta. Hún opnaði dyrn-
ar fram í eldhúsið og leit eymdar
lega á Rhodu.
— Höndin á þér. Róleg og
stillileg rödd Rhodu þrengdi sér
inn í huga hennar. — Ég skal
binda um sárið.
— Þökk fyrir, Rhoda, sagði
Vonnie og settist utan við sig á
stól.
— Þetta er ljótt sár. Rhoda
hreinsaði sárið og batt fimlega
um. — Þetta hefur ekki beinlínis
verið þægilegt fyrir þig. Eigum
við að fá okkur sígarettu?
Hún kveikti í fyrir þær og virt-
ist undarlega óróleg og hvarflandi.
— Ég get eins sagt þér það
strax og lokið því af. Ég hélt
það værir þú, sem óskaðir að gera
Joss mein. Það var ekki gott að
vita, hvernig þú hefðir átt að
koma því ! kring, en ég hafði
tekið það í mig að komast að
því og tæla þig í gildru á ein-
hvern hátt. Þú týndir ekki hnappn
um í garðinum- Ég bið þig að
fyrirgefa mér, en satt að segja
fann ég hann í herberginu þínu.
Það gat hugsazt að þú værir kon-
an sem þýzka stúlkan í nágranna-
húsinu sá í garðinum. Þú hefðir
getað komið til Englands fyrr en
þú sagðir sjálf. Ef ég hefði komizt
yfir vegabréfið þitt hefði ég ekki
vílað fyrir mér að rannsaka það.
Ég bið þig mikillega að afsaka
tortryggni mína.
— Það er óþarft, sagði Vonnie
hæglátlega. — Ég þarf líka að
koma með skýringu! En ég get
ekkert sagt þér, fyrr en Joss
frændi hefur fengið að vita um
það. Allir hafa víst grunað hvern
annan. Það gerist oft, þegar vof-
veiflegir atburðir verða.
Rhoda lyfti mjóum augabrún-
um. — Og þú grunaðir mig, var
ekki svo. En maður reynir ekki
að gera þeim mein, sem maður
elskar!
— Það — það er sem sagt satt?
— Já, en þú þarft ekki að segja
frá því! Hún brosti angurvær.
— Joss er orðinn gamall núna,
en hann er enn dauðhræddur um
að flækjast í neti konu. Ég held
að hann imyndi sér hjónaband
svipað og helvíti! Hann getur ekki
að því gert, þetta er meðfætt hjá
honum — þáttar í hinu óstýri-
Iáta sérlundaða listamannseðli
hans. Ég skil hann.
— Fyrst þú elskar Joss frænda
— varsta þá ekki hrædd um að
sá sem reynt hafði að vinna hon-
um mein gerði aðra tilraun?
— Jú, það máttu reiða þig á.
Kannski veittirðu því ekki eftir-
tekt, en ég var eins og varðhund-
ur. Ég var alls staðar og hafði
gætur á öllu og öllum.
— En Fenella ætlaði ekki að i
drepa neinn!
— En hún gerði það samt. Og i
ég fyrir mitt leyti hef enga samúð i
með henni. Alls enga! Hún fellir
sig sjálfsagt ekki við lífið í fang- á
elsinu, en það gerir ekkert til. @
Ef hún hefði gert Joss eitthvað — i
þótt ég geti orðið fjúkandi vond |
út í hann og þreytt á honum öðru m
Árnl Böðvarsson flytur pittinn 20
05 „Töfrasproti æskunnar“ svíta
nr. 2 op. lb eftir Elgar 20,20
Okkar á milli: í Skálholti Jðkull
Jakobsson og Sveinn Einarsson
tóku saonan dagskrána. 21.00 Atr
úr óperunni „Carmen" eftir Bizet
21,15 Bókaspjall 21,50 Strengja-
tríó i B-dúr eftir Schubert. 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,29 ÍIús
frú Þórdís. Séra Gunnar Árnason
les. 22.40 Djassþáttur Jón Múli
Ámason kynnir. 23.15 Bridgeþátt
ur Hallur Símonarson flytur. 28
40 Dagskrárlok.
Föstudagur 4 marz
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegis
útvarp 13.15 Lesin dagskrá næstu
viku 13.50 Við vinnuna: Tónleík
ar. 1440 Við, sem heima sitjiun
15.00 Mið-
degisútvarp
16.00 Síð-
degisútvarp. 1700 Fréttir. 1705 1
veldi hljómanna. Jón Örn Marinós
son kynnir sígilda tónlist fyrir
ungt fólk. 18.00 Sannar sögur frá
liðnum öldum. 18.20 Veðurfregn
ir. 1830 Tónleikar. 19.30 Fréttir
20.00 Kvöldvaka: a. Lestur forn
rita: Færeyinga saga b. í haust-
myrkri á Óshlið, frásöguþáttur.
c. Tökum lagið! Jón Ásgeirss. stj.
d Leikimenn vfgðir til prests Séra
Gisli Brynjólfsson segir frá presta
fæð á öldinni, sem leið; — fyrri
þáttur. e. Lausavísan lifir enn.
Sigurbjörn Stefánsson flytur
vísnaþátt. 21.30 Útvarpssagan;
„Dagurinn og nóttin“ Hjörtur
Pálsson les (7). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.20 fslenzkt mál.
Ásgeir Bl. Magnúss. cand. mag
stj. 22.40 Næturhljómleikar. Sin
fóníuhljómsveitin í Boston leikur.
23.30 Dagskrárlok.
/