Tíminn - 04.03.1966, Qupperneq 9
FÖSTtTDAGTTR 4. marz 1966
TÍMINN
9
Rætt við Áma Guðmundsson, skólastjóra Iþróttakennaraskólans
íþróttakennaraskóli íslands
býr vi5 lélegar aðstæður, svo
lélegar, að til skammar er.
íþróttaáhugi á íslandi er mik-
ffl og sífellt skortur á leiðbein-
endum til að sinna þeim mörgu
ungmennum, sem streyma í
raðir íþrótta- og ungmennafélag
anna. Það er hagur ísl. þjóðar-
innar að eiga hrausta og táp-
mikla æsku og þá má ekki
hrekja hana frá íþróttahreyfing
unni vegna þess, að skortur er
á hæfum leiðbeinendum.
Hér á síðunni er viðtal við
Árna Guðmundsson, skóla-
stjóra íþróttakennaraskóla fs-
lands, og ræðir hann um þann
vanda, sem steðjar að skólan
um í dag. Hann bendir einnig
'á í viðtalinu, hvernig mætti
hagnýta skólann og mannvirki
hans fyrir hina frjálsu íþrótta
starfsemi yfir sumartímann, en
einmitt sú leið, ætti að geta
orðið að miklu gagni í þeirri við
leitni að við eignumst fleiri
leiðbeinendur í hinum mörgu
íþróttagreinum, sem stundaðar
eru á íslandi í dag.
fþróttakennara með sérþekkingu
t. d. í knattspyrnu, frjálsíþróttum,
handknattleik o. fl. í ráði er, að
milli námsáranna verði nemend
umir skyldaðir til að taka að
sér íþróttakennslu hjá íþróttafé-
lögunum eða ungmennafélögunum
og ætti að vera mikill fengur
fyrir íþróttahreyfinguna að fá
slíka starfskrafta árlega.
— Krefst ekki breytingin á
skólanum, þ. e. að hann verði
að tveggja ára skóla, breyttra að-
stæðna?
— Jú, að óbreyttri aðstöðu
yrði erfitt að framkvæma hana.
í fyrsta lagi krefst hún aukins
kennaraliðs og leysa verður hús
næðisvandræði skólans. en
segja má, að þau standi skólan
um fyrir þrifum. Eins og sakir
standa fyrirfinnst ekki sérstak
ur nemendabústaður og hefur
reyndar aldrei gert. Hafa vista
verur nemenda verið á hrak
hólum og er þetta ástand mjög
slæmt, svo ekki sé sterkara að
orði kveðið. Piltarnir í skólan
um hafast við í timburskála, en
stúlkumar í kjallara skólastjóra-
bústaðarins.
— Hvað er að frétta af bygg
ingaáformum, stendur ekki til
að reisa nemendabústað?
— Jú, það er reyndar byrjað
á þeirri byggingu, en henni miðar
seint áfram. aðeins búið að steypa
upp kjallara. í ráði er, að í
byggingunni, sem verður 2 hæð
ir og kjallari, verði rúm fyrir
30 nemendur og tvær kennara-
íbúðir. Grunnflötur hússins er
450 ferm. og áætlaður kostnaður
við það 10 milljónir en til þess
að gera það fokhelt vantar rúm-
ar 2 milljónir. í fjárlögum
þessa árs er einni milljón veitt
til skólans og vantar því rúma
milljón upp á til að hægt sé að
ljúka þessari framkvæmd. Ég
er að vona að lán fáist, svo hægt
verði að halda framkvæmdum á-
fram, því skólinn má ekki við
því að búa við óbreyttar aðstæð-
ur mikið lengur.
— Nú hefur verið um það
rætt, að íþróttakennaraskólinn
væri betur staðsettur í Reykja-
vík en að Laugarvatni. Hvað
viltu segja um þetta Árni?
— Ég er ekki í neinum vafa
um það, að Laugarvatn er í flestu
tilliti miklu heppilegri staður
fyrir íþróttakennaraskóla en
Reykjavík. Ber fyrst að nefna,
að hér á Laugarvatni hafa nem-
endur miklu meiri möguleika á
því að einbeita sér að náminu.
Hér truflar ekkert utanaðkom-
andi. Erlendis þykir það mikill
kostur, ef hægt er að koma því
við að staðsetja íþróttakennara
skóla fyrir utan mesta þéttbýlið.
Má í því sambandi nefna það, að
Norðmenn eru að flytja sinn
skóla út úr Osló. í annan stað
má nefna það. að nauðsynlegt er
fyrir íþróttahreyfinguna að eign
ast íþróttamiðstöð fyrir utan höf
uðborgina. Þegar búið er að
reisa nemendabústaðinn hér á
staðnum, getur hann staðið opinn
fyrir íþróttahreyfinguna yfir sum
artímann. Og í því sambandi opn
ast ótal möguleikar. Hægt væri
að halda hér sumarskóla og nám-
skeið, hafa æfingabúðir fyrir knatt
spyrnumenn og frjálsíþróttamenn.
Hér er góður grasvöllur. hlaupa
braut og íþróttahús. í sambandi
við skólahald dettur mér í hug,
Blómarósir skólans: Frá vinstrí: Sveinfríður Jóhannesdóttir, Rvík, Guðrún GuSmundsdóttir, Rvfk, Hulda
Gunnlaugsdóttir Rvík, Halldóra Helgadóttir, Rvík, Minerva Jónsdóttir, fþróttakennarl, Ragnheiður Stefinsdótt-
ir, Vorsabæ, Sólveig Þorsteinsdóttir, Rvík og Vigdís Guðmundsdóttir, Húsavík.
að knattspyrnumenn gætu haft
hér knattspyrnuþjálfaraskóla yfir
sumartímann. Ég las það nýlega
að þeir hefðu áhuga á að stofna
slíkan skóla, ekkert er því til
fyrirstöðu að tengja slíkan skóla
við íþróttakennaraskólann í fram
tíðinni. Það eina, sem stendur
í veginum eru núverandi húsnæð
isvandræði. Á meðan nemenda
bústaðurinn er ekki til, liggja
íþróttamannvirkin ónotuð yfir
sumartímann.
— Úr því að minnst er á notk
un íþróttamannvirkja. er ekki
íþróttahúsið að Laugarvatni mik
ið notað yfir vetrartímann?
— Jú, húsið er í notkun frá
morgni og langt fram á kvöld.
Að jafnaði eru notaðir 100
tímar í húsinu á viku. Um helgar
eru alltaf haldin kappmót hjá
skólunum.
— Aðsókn að íþróttakennara-
skólanum hefur alltaf verið mik-
il?
— Já, það komast jafnan miklu
færri að en vilja. Yfirleitt hafa
milli 30 og 50 sótt um skóla
göngu árlega, en við getum tekið
á móti 14 nemendum. Þeir, sem
sækja um skólavist, eru flestir
hæfir að okkar dómi, en einhvers
Yfirlltsmynd frá Laugarvatni. NeSst á myndinni til vinstri sést uppsteypti kjallarinn f nýbyggingunni. Fyrir ofan hann sést kofinn frægí. Ofar sjást
svo HéraSsskólinn til vinstri og viS hlið hans íþróttahúsið.
, *
staðar verður að skera niður.
Og við látum því einkunnir og
meðmæli oft ráða. Til að anna
þörfinni eftir íþróttakennurum
við skólana, þyrftum við að út-
skrifa 15 nemendur á ári. Alls
hefur skólinn brautskráð 298
nemendur frá 1933, en eins og
kunnugt er, stofnaði Björn Jak-
obsson þennan skóla 1932 og
rak hann fyrstu árin sem einka
skóla. Vann Björn merkilegt
brautryðjendastarf, sem seint verð
ur fullþakkað.
— Vinnudagurinn er langur hjá
þér Árni?
— Já. Eins og ég sagði þér
áðan, erum við aðeins tvö fast-
ráðin við skólann, ég og Mín
erva, og vinnudagurinn því lang
ur hjá okkur. Það væri full þörf
á því að bæta kennara við skól-
ann.
— Hefurðu trú á því, að betur .
verði búið að skólanum á næst- i
unni?
— Maður verður að_ vera bjart
sýnn í þeim efnum. íþróttakenn
araskólinn hefur mikilsverðu
Viðbúnir og . . . Piltarnir æfa sund.
Framhald á bls. 12.