Tíminn - 04.03.1966, Qupperneq 14
14
TlMINN
FÖSTUDAGUB 4. marz 1966
SÖNGSKEMMTUN
Framhald af bls. 2.
og ííuðmund Guðjónsson, en und-
irleik annast Sigríður Ragnarsdótt
ir. Kórinn skipa um 50 félagar
úr Sunnukórnum og Karlakór ísa-
fjarðar og er söngstjóri Ragnar
H. Ragnar.
Með hljómleikum þessum vilja
kórarnir einnig leggja fram sinn
skerf til hátiðahalda á „Afmælis-
ári“ ísafjarðarkaupstaðar og
minna á að sönglíf hefur lengi
staðið og stendur enn með tals-
verðum blóma í kaupstaðnum.
Til þess að hægt séfað halda
þessa hljómleika, verður að stækka
leiksvið Alþýðuhússins um 3
metra fram í salinn, því ómögu-
legt er að koma fyrir svo stór-
um söngflokk sem hér er á nú-
verandi sviði.
NKRUMAH
Framhald af bls. 1.
einnig eftir því, að Nkrumah
yrði framkvæmdastjóri Þjóðar
flokksins í Guinea. Sagði hann,
að Toure hefði komið með þetta
tilboð sitt til þess að sýna þá
vináttu, og þá tryggð, sem íbúar
Guineu tengja við Nkruman.
Hann ræddi ekki nánar tilboð
Toures forseta.
Blöðin í Accra birtu í dag
umfangsmiklar afhjúpanir af
siðleysi því, sem á að hafa ríkt
undir stjórn Nkrumah. Eitt
atriðið er, að Nkrumah hafi
sjálfur notað ótakmarkaða pen
inga á vissa ungfrú að nafni
Genoviva, suður-afríska ást-
mey sína. Einnig segir, að sam
starfsmenn hans hafi náð í
stúlkur frá heimavistarskólum
sjálfum sér til skemmtunar um
helgar. Nkrumah gerði ungfrú
Genoviva að dagskrárstjóra í
sjónvarþi Ghana og keypti
bandaríska lúxusbifreið fyrir
hana. — Dyggð kvenna vorra
var dregin niður í forina, —
segir blaðið Ghanaian Times.
Eiginmenn og foreldrar neydd
?ust til að afhenda valdamiklum
flokksforingjum konur sínar
og dætur.
Formaður efnahagsnefndar
frelsisráðsins, E. N. Omaboe,
sagði í dag, að Ghana þyrfti
1800 milljón króna lán til þess
að boma efnahagslífi landsins á
réttan kjöl að nýju.
AIRAHfl
úrvals finnskar
RAFÍTLÖÐUB
stál og oiast fvrir vasaljós
og transistortæki.
Heildsölubirgðir.
RAFTÆKJAVERZLUN ISLANDS,
Skólavörðustíg 3 — Sími '7975 — /6
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúS og vinarhug viS andlát og
jarSarför,
Árna Kristjánssonar
Kistufelli.
Sérstakar þakkir færum viS konum í Lundarreykjadal fyrir sér-
staka aSstoS viS útförina.
Elín Kristjánsdóttir og börn.
Sveinn Ásmundsson
byggingameistari frá SiglufirSi,
verSur jarSsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. marz kl.
10.30 f. H.
Þeir, sem vilja minnast hans er bent á Siysavarnafélag íslands.
Athöfni—1 verSur útvarpaS.
Margrét Snæbjörnsdóttir,
börn, tengdabörn, móSir og systkini
hins látna.
Þökkum innilega samúS og vináttu viS andlát og jarSarför móSur
okkar, tengdamóSur og ömmu,
ValgerSar G. J. Jónsdóttur
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Öllum þeim mörgu nær og fjær, sem sýndu okkur samúS viS andlát
og útför,
Oddgeirs Kristjánssonar
og heiSruSu minningu hans, færum viS aiúSarþakkir.
Svava GuSjónsdóttir, Hildur Oddgelrsdóttir,
Hrefna Oddgeirsdóttir og börn og systkini hins látna.
B*sw
EiginmaSur minn og faðir okkar,
Páll Eyjólfsson
bifreiSastjóri, Þórsgötu 20B
verSur jarSsettur frá Fossvogskirkju, föstudaginn 4. marz kl. 10.30.
Blóm og kransar afbeSIS, en þeir sem vlldu minnast hins látna
er bent á liknarstofnanir,
SigriSur Einarsdóttir,
KristrúnjPálsdóttir, Marta Pálsdóttir,
ÁsgerSur Pálsdóttir, Eyjólfur Pálsson,
Efnhildur f. Pálsdóttlr.
Óljóst er, hvort Toure hefur
dregið sig til baka sem þjóð-
höfðingi Guineu, en ljóst er
að hann sagði á fjöldafundinuio
í gær, að líta yrði á Nkruma
sem þjóðhöfðingja Guineu og
framkvaamdastjóra Þjóðar-
flokksins, sem er stjómarflokk
urinn í landinu.
Á fundi Einingarbandalagsins
í Addis Abeba í morgun fóru
sendinefndir Mali, Guineu og
Tanzaníu af fundi í mótmæla
skymi við, að sendinefnd nýju
valdhafanna í Ghana sat fundi
bandalagsins sem fulltrúi þess
lands. Og í kvöld fékik sendi-
nefnd Egyptalands skipun um
að yfirgefa fundinn af sötmu
ástæðu.
FÆRÐ BATNAND
Framhald af 16 sfðu.
frostlaust verði, þokuloft en úr-
komulítið.
Að sögn fréttaritara blaðsins
víða á Norður- og Austurlandi cr
færðin víðast hvar stórum betri
nú en um síðustu helgi. Þó fer
því fjarri að hún sé góð á Austur
landi, og enn er víða alls ekki fært
um nema á snjóbílum. Snjóbill
heldur uppi daglegum áætlunum
milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða
en hins vegar er fært öllum bílum
milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar
Illa hefur gengið að halda
uppi föstum áætlunum á snjóbíl
milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða,
en það hefur verið reynt eftir
megni. Fært er á jeppum frá Eg
ilsstöðum út í Eiða, en aftur a
móti er ógerlegt að komast inn í
Fljótsdal og Jökuldal og fara mjólk
urflutningar þaðan enn fram á
ýtum, en ef framhald verður á
hægviðri og frostleysi, líður áreið
anléga ekki á löngu, unz það fær
ist til betri vegar.
KYNÞÁTTASTRÍÐ
Framhald af bis. 1.
þjóðernissinna í Rhodesíu. Mál
þetta mun vera til umræðu í
stjórnmálanefndinni á fundi
ráðherra bandalagsríkjanna i
Addis Abeba.
VERZL. ÖRNÓLFUR
Framhald af bls. 16.
legt að hafa opið til kl. 18. Á
milli kl. 18—18.30 í kvöld komu
10 kaupmenn á staðinn með for
mann Kaupmannasamtakanna,
Sigurð Magnússon, í broddi
fylkingar, röðuðu sér við dyrn-
ar og meinuðu viðskiptavinum
að fara inn. Kallað var á lög-
regluna, og þegar hún kom á
staðinn höfðu um 60 manns safn
azt þarna saman og skapaði
það algjört umferðaröngþvéiti,
að sögn lögregluþjóns þess,
sem þarna var á vakt í kvöld.
Samdi lögreglumaðurinn við
kaupmenn um, að þeir skyldu
hverfa af sviðinu, en hann
halda vakt í verzluninni, þar
sem kaupmaðurinn neitaði að
loka henni, og gæta þess að
enginn verzlaði. Hélt lögregtu
maðurinn vakt fram til kl. 10
í kvöld að verzluninni var lok
að, en fram eftir kvöldi mátti
sjá kaupmenn í einkabílum sín
um í nágrenni verzlunarinnar.
VERZLANIR
Framhald af 16. síðu.
maður væri við vinnu í slíkum
verzlunum. Aftur á móti væru ör
fáar litlar verzlanir opnar og
væru það eigendurnir, sem af-
greiddu þar, og væri það þeirra
mál. Væri mikil samstaða hjá fé-
lagsmönnum VR.
Blaðamenn Tímans fóru um
borgina í dag, og sáu fjórar mat-
vöruverzlanir opnar, en enga kjöt
búð. Voru eigendumir sjálfir við
afgreiðslu í þessum verzlunum.
Nýlenduvömverzlanir og kjöt-
búðir munu opna að nýju á mánu
daginn.
Þess ber að geta að nýlendu-
vöm- og kjötverzlanir í Hafnar-
firði eru opnar.
JARÐSKJÁLFTAR
Framhald af 16. síðu.
Surti, en samkvæmt upplýsingum,
sem Tíminn fékk frá jarðeðlis-
fræðideild Veðurstofunnar og Sig-
urði Þórarinssyni jarðfræðingi á
það að öllum líkindum ekki við
nein rök að styðjast, þar sem fjar
lægðin milli staðanna er það mikil,
en ef þetta væri hins vegar tilfell-
ið, hefðu umbrotin í Surti verið
talsvert meiri. Ekki er heldur álit-
ið að landskjálftarnir standi í
beinu sambandi við Kötlu, en þó
er það ekki fullvíst. Okkur var
tjáð, að fyrir Kötlugosin síðustu
hefðu alltaf fundizt allsnarpir
jarðskjálftar í Vík í Mýrdal, en
enginn þar hefði orðið hið minnsta
var við þá jarðskjálftakippi, sem
nú hefðu mælzt í 145 km. fjarlægð
frá Reykjavík. Rétt er að geta
þess, að á þessum slóðum, sem
jarðhræringanna varð vart fyrir
síðustu helgi, hafa svipaðir kippir
oft komið fram á mælum á undan-
förnum árum, þó að fólk hafi ekki
orðið vart við þá.
SUNNUDAGSBLAÐIÐ
Framhald af bls. 1
eyri — Árneshrepp á Strönd-
um. Lítið eitt er vikið að nýárs
nóttinni fyrir fimmtíu árum —
þá var nálfgerður heimsslita-
bragur á höfuðstaðnum, því
að bannlögin gengu í gildi að
morgni. Loks er þar snjöll
dæmisaga eftir Frímann Jón-
asson, skólastjóra, um beyg
þeirra Austmanns og Vest-
manns, vísur eftir vestur-ís-
lenzkan lækni af Reykjaströnd,
og grein um náhveli.
LANDSVERKFALL
Framhald af bls. 1.
í öllum aðalatriðum.
Þá hafði blaðið samband við
Guðmund H. Garðarsson formann
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur, og sagði hann að á fundi
stjórnar og trúnaðarmannaráðs
VR í gær hafi verið samþykkt að
boða til allsherjarverkfalls frá og
með mánudeginum 14. marz.
Guðmundur sagði, að þessi á-
kvörðun hafi verið tekin með hlið
sjón af vilja félagsmanna úti á
landi, en þau ieggi aðaláherzlu á
allsherjarverkfall í stað „skæru-
hernaðar” Með þetta atriði í
huga hafi stjórn og trúnaðar-
mannaráð ákveðið að breyta um
aðferðir við verkfallsframkvæmd
ina, og í stað þess að halda áfram
takmörkuðum verkföllum ákveðið
að boða til allsherjarverkfalls,
hafi ekki tekizt samningar fyrir
ofangreindan tíma.
Guðmundur sagði, að kaupið
væri enn aðal deilumálið. — Það
er misskilningur, sagði hann, sem
hefur staðið í Vísi og Morgun-
blaðinu, að fólkinu hafi verið
boðnar verulegar kjarabætur.
Það hefur ekki verið gert til
þessa, sagði Guðmundur að lok-
um.
Á VÍÐAVANGI
að stjórn kunni að stjórna,
heldur virðist hún aðeins eiga
að sitja á ráðherrastólunum og
þakka sér það, þegar góð tíð
er, mikil aflabrögð og nátt-
úran gjöful en kenna svo
bara stjórnarandstöðunni um,
þegar hún missir efnahagsmál-
in úr böndum.
„Nýtt stefnumál"
Vísir slær því umm með
stóra letrinu um þvera forsíðu
í gær, að ríkisstjórnin hafi nú
tekið sér „nýtt stefnumál,“
sem er lífeyrissjóður fyrir alla
landsmenn. Vísir hittir nagl
ann á föfuðið. Þetta hefur
ekki verið stefnumál ríkis
stjórnarinnar fyrr en þá núna,
eftir að Framsóknarflokkur-
inn er búinn að berjast fyrir
því í níu ár, en stjornin búin
að liggja á því í sjö. Nú loks
verður það stefnumál hennar.
ÍÞROmR
Framhald af bls. 13.
Aðalástæðan fyrir hinni slöku
útkomu Rúmenanna í langskot
um og uppstökkum var frábær
markvarzla Leif Gelvad í
danska markinu, sem átti góð-
an dag.
Ef nefna ætti einstaka leik-
menn í rúmenska liðinu, sem
ísl. liðið þyrfti að vara sig sér-
staklega á, er Ion Moser efst-
ur á blaði. Þessi leikmaður
virtist geta skorað hvenær sem
hann vildi og línusendingar
hans voru frábærar. Þegar
hann reyndi uppstökk fyrir
framan danska varnarmúrinn,
fóru að jafnaði tveir danskir
vamarleikmenn á móti, en þá
átti hann það til að gefa knött
inn aftur fyrir sig í stökkinu
inn á línu. Minnti þetta óneit-
anlega á Mares í liði Dukla
Prag (3), sem lék svipað bragð
með góðum árangri í leikjun-
um gegn FH og landsliðinu í
Laugardalshöllinni. Af öðrum
leikmönnum má nefna Jakob,
einnig mjög hættulegur og
Gruia, sem átti mörg hörku-
skot, en var frekar óheppinn,
því mörg þeirra höfnuðu í
stöng.
í danska liðinu voru Leif
Gelvad í markinu og Arne And
ersen mennirnir á bak við
skyndiupphlaupin. Þessir tveir
leikmenn komu bezt frá leikn-
um. Vodsgaars. Max Nielsen og
Ole Sandhöj voru og góðir og
Ove Ejlertsen í siðari hálfleik,
en í fyrri hálfleik skaut hann
10 sinnum og skoraði aðeins
einu sinni — úr vítakasti!"
SKRIFSTOFUSTARF - FRAMTÍDARSTARF
Vér viljum ráða sem fyrst skrifstofumann til ákveðins,
sjálfstæðs starfs í sambandi við innflutning.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjórinn.
A/
SUÐURLANDSBRAUT 6 — SÍMI 38540.