Tíminn - 26.03.1966, Side 16

Tíminn - 26.03.1966, Side 16
Ætlarað verja doktörsritgerö 71. tbl — Laugardagur 26. marz 1966 — 50. árg. um ísl. máva KJARVAL 6AF HÆSTBJÓÐ- ANDA (RÍKINU) 75 ÞÚS- UND KRÓNA MÁLVERKID GB—Reykjavík, föstudag. Fyrir hálfum mánuði var opn uð Kjarvalssýning í Listasafni ís lands. sérsýning í þrem sölum á 33 málverkum, öllum þeim verk um listamannsins, sem eru í eigu safnsins, utan þriggja mynda sem nú eru á sýningum erlendis. Nú hefur safnið eignazt Kjarvalsmál- verk í viðbót og með allsérstæð- um hætti, sem er sérstætt eða táknrænt fyrir Kjarval öllu held ur. Á uppboði hjá Sigurði Bene- diktss. s. L miðvikudag var Lista safni íslamds slegin myndin „Svanasöngur“ eða „Bak og fyr- ir“ öðru nafni, eftir Jóhannes Sv. Kjarval á 75 þúsund krómur, en næsthæsta boð var 72 þús. Lista maðurinn hefur ákveðið að af- henda Listasafni íslands mynd þessa að gjöf og hefur það verið þegið með þökkum. Kjarvalssýningin í Listasafni ís lands er opin kl. hálf-tvö til fjög ur síðdegis á þriðjudögum og fimmtudögum, en kl. hálftvö til tíu á laugardögum og sunnudög- um. Kaffiklúbbur kemur saman í dag, laugard. kl. 3 síðd. alð Tjarn- síðdegis að Tjarn argötu 26. Jónas Haralz hagfræð ingur forstöðu- maður Efnahags- stofnunarinnar svarar fyrirspum um um efnahagsmál. Allt Fram sóknarfólk velkomið meðan hús- rúm leyfir. Framsóknarfélögin. GB—Reykjavík, föstudag. fslenzkir mávar og fæðuöflun þeirra verður ræðuefni Agnars Ingólfssonar dýrafræðings á fundi í Hinu íslenzka náttúrufræðifé- liagi, sem haldinn verðuir í 1. kennslustofu Háskólans á mánu- dágskvöld, en Agnar mun flestum fróðari um þetta efni. Hann verð ur örugglega orðinm doktor á þessu sviði áður en langt um líður. Agnar hefur undanfarin ár lagt stund á rannsóknir á íslenzkum mávum, sambúð þeirra og fæðu- öflun. Og á komandi vetri mun hann verja doktorsritgerð um Framhald á 14. síðu. Klukkan 10 í gærmorgun flaug Filippus prins héðan á- leiðis til London eftir skamma viðdvöl hér á landi. Prinsinn flaug vél sinni sjálfur, og hugð ist hann fljúga yfir Surtsey ef skyggni yrði gott. Myndina tók GE þcgar prinsinn var að kveðja og ganga um borð í vél sína. STARFSMENN LOFTLEIÐA NÆR 900 ER HÓTELIÐ TEKUR TIL STARFA Kjarval SJ—Reykjavík, föstudag. Loftleiðir sendu nýlega frá sér fyrsta fréttabréfið, sem er ætlað að kynna starfsemi félagsins meðal hinna mörgu dreifðu starfsmanna félagsins. Fréttabréfið er af skilj anlegum ástæðum að mestu ritað á ensku og á að koma út á tveggja mánaða fresti. í fréttabréfinu er skýrt frá því m.a., að á sl. ári hefðu tæplega 29 þúsund ferðamenn komið til íslands og var aukningin 26% frá árinu áður. Af þessum hópi komu 24,488 með flugvélum, eða 85% og flestir frá Bandaríkjun um. f þessari tölu er ekki reiknað með þeim farþegum Loftleiðavél anna sem höfðu hér sólarhrings viðdvöl, en þeir voru samtals 4.658 sem notfærðu sér þetta tilboð Loft leiða. Frá og með 1. maí, er hótel ið nýja tekur til starfa, ætla Loft leiðir að bjóða farþegum sínum að hafa hér tveggja, þriggja eða fjögurra sólarhringa viðdvöl og standa þeian til boða ferðalög um Reykjavík og nágrenni. Fastir starfsmenn Loftleiða eru nú 762, þar af um 230 starfandi erlendis. Við þessa tölu mun senn bætast um 100 manna starfslið hins nýja hótels, sem á að rúma 216 gesti í 108 herbergjum, Þor valdur Guðmundsson mun verða hótelstjóri fyrst í stað, en hann hefur staðið fyrir framkvæmdum við byggingu hótelsins. Lokið er við að ráða í flest störf við hótelið, en að svo stöddu er ekki hægt að skýra frá því hverjir verða þar í lykilstöðum. Loftleiðir munu í sumar hafa í ferðum 9 flugvélar, fjórar RR- OPNAR NU SYNINGU EFTIR 12 ÁRA HLÉ 400 (3 lengdar er taka 189 farþega hver og eina venjulega er tekur 160 farþega) og fimm DC — 6B. Tvær hinar síðarnefndu munu verða í leiguflugi og vöruflutninga flugi á næstunni. Eitt mesta vandamál Loftleiða er skortur á vinnuafli, einkanlega hvað snertir flugmenn. GB—Reykjavík, föstudag. Kjartan Guðjónsson listmálari, sem ekki hefur haldið sérsýningu í tólf ár, opnar málverkasýningu í Listamannaskálanum um helg- Fálkinn undir ritstjórn Sigvalda Hjálmarss. kemur út með nýja þætti VAR HANNIBAL BOD- INN RÁÐHERRASTÓLL? ina. Var listamaðurinn búinn að hengja upp, er blaðamenn komu í Skálann í dag, en þá var enn stafli mynda eftir á gólfinu, sem málaranum fannst hvergi komast fyrir. Þótt Kjartan hafi ekki efnt til sérsýningar á þessu árabili, hef j ur hann þó tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin verður opin boðsgestum á laugardag kl. 3—7 síðdegis, en almenningi verð ur hún opin kl. 2—10 síðdegis frá og með sunnudegi og stendur til skírdagskvölds. Öll málverkin á sýningunni eru til sölu. SJ-Reykjavík, föstudag. í næsta tölublaði vikublaðsins Fálkans hefst nýr þáttur er nefn ist Svarthöfði segir. Af þessum þætti má ráða, að þar haldi maður á penna sem er vel heima að tjaldabaki. Svarthöfði segir m. a.: „Ríkisstjórn sú, sem nú situr að völdum í landinu, hefur valið þann kost að þrauka. í rauninni má segja að það sé hennar megin stefna. Hún hefur lifað af ýmsar merkilegar sviptingar og alltaf komið sigruð úr hverjum leik. Framundan eru stórfelld atök í stóriðjumálinu. Hún verður sjálf sagt borin ofurliði í því máli — in a way, og mun sitja áfram. Samt hefur þetta mál sett þann hroll að forsætisráðherra, að hann hefur í fyrsta sinn, síðan stjórn hans hóf göngu sína, boðið lausan ráðherrastól. Hugmynd hans var að bæta þessum ráð- herra við þá sjö sem fyrir eru stjórninni, en maðurinn, sem fékk boðið um stólinn, sagðist hafa í öðru að snúast þessa stundina og afþakkaði. Maður þessi er Hannibal Valdimarsson." AJ öðru efni í blaðinu má nefna, þar sem lýst er í máli og myndum einum vinnudegi í lffi nóbelsskáldsins okkar. Hann seg ir á einum stað: „Já, afköstin eru mjög misjöfn eftir daginn. Að meðaltali held ég að þau séu ekki nema hálf blaðsíða í bók . . .“ Þá ritar Ófeigur J. Ófeigsson, læknir, þáttinn Líf og heilsa og fjallar hann um erfðir og val föður eða móður að barni sínu. Vilborg Dagbjartsdóttir skrif ar fyrir yngstu kynslóðina og Jón Helgason, ritstjóri, skrifar þátt inn Sendibréf úr fortíðinni, sem á að koma mánaðarlega. KVIKMYNIR ÓSVALDS SÝNDAR UM HELGINA Þrjár kvitomyndir Ó. Knudsens seim sýndar voru hér á síðast liðnum vetri, verða vegna beiðni margra endursýndar í Gamla bíó kl. 7 í dag laugar dag, og sunnudag á sama túna. Myndirnar eru Surtur fer sunnan, Sveitin milli sanda og Svipmyndir. Eins og getið hefur verið í fréttum, hefur Surtseyjarmynd Ósvalds fengið verðlaun og við urkenningu erlendis á undan förnum mánuðum, m. a. gull- verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Torento á Ítalíu í október s. 1. Mynd sú, sem nú verður sýnd í Gamla bíó, er af sömu gerð og verðlaunamyndin, nokkru styttri en Surtseyjar- myndin sem sýnd var hér í fyrra.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.